Morgunblaðið - 04.01.1962, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.01.1962, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 4. jan. 1962 Sjö Islendingar kynntust frðnskum atvinnuvegum S/óí'/róð/eg /erð í ðoð/ Frakka AÐ TILHLUTAN franska sendi- herrans í Reykjavík, M. Jean Brionval Og franska vararæðis mannsins M. C. Cocheret, bauð franska ríkisstjórnin 7 íslending- um í vikuferð til Frakklands dagana 1.—7. október sl. til að kynnast ýmsum greinum fransks iðnaðar. Þátttakendur í ferðinni voru Aðalsteinn Júlíusson, vita- málastjóri, Guðmundur Halldórs son, fulltrúi Landssambands Iðn- aðarmanna, Gunnar Guðjónsson, skipamiðlari, formaður Verzlun- arráðs íslands, Hjálmar R. Bárð- arsön, skipaskoðunarstjóri, Hjört ur Eiríkssón, ullarfræðingur hjá Gefjuni á Akureyri, Sigurður Jó- hannsson, vegamálastjóri og Sveinn Valfells, forstjóri Félags ísl. iðnrekenda. Var hópurinn samferða til Par- ísar og tók þar m. a. á móti honum Jean Marie Delgove full- trúi í „Centre National du Commerce Exterieur“, en sú stofn un skipulagði heimsóknina. Eft- ir það dreifðist hópurinn, þann- ig að þátttakendur heimsóttu þau iðnfyrirtæki og skoðuðu þær framleiðsluvörur, sem áhugi var sérstakur á að kynnast. • Skipasmíðastöðvar Hjálmar R. Bárðarsón, skipa- skoðunarstjóri fór milli skipa- smíðastöðva meðfram allri Atl- antshafsströnd Frakklands, suð- ur til La Röchelle-Pallice og skoðaði 7 skipasmíðastöðvar. Seg ir hann, að ekki sé vafi á, að þær skipasmíðastöðvar, séu vel færar um að byggja fiskiskip, auk þeirra annarra verkefna, sem þær taka að sér, t. d. vöru- flutningaskip. Togarar þeir sem eru þar í smíðum eru annað hvort mjög stórir skuttogarar eða litl- ir togarar, langsamlega flestir af líkri stærð og 250 brl. austur- þýzku skipin, sem íslendingar keyptur fyrir nokkru. En þessi frönsk skip eru eingöngu byggð til togveiða. önnur fransk byggð fiskiskip eru túnfiskskip- in, sem eru allstór frambyggð fiskiskip og svo sardínuveiðiskip- in. Við túnfiskveiðarnar eru not- aðir sjógeymar fyrir iifandi beitu, en sömu geymar eru siðan notað- ir til að frysta túnfiskinn í pækli til heimsiglingarnar, enda veið- arnar stundaðar við Afríkustrend ur. Hjálmar segir að flest fiski- skipanna, sem Frakkar hafa í smíðum, séu fyrir franska kaup- endur. Þó eru 7 línuveiðarar, 29 m. á lengd fyrir „Ognarfélagið" í Færeyjum. Kom eitt þeirra skipa, „Havörnin" til Reykjavíkur í sumar á leið til Grænlands. Og langt er komið smíði á öðru, „Columbus“. í Le Havré eru Frakkar að byggja stóran diesel- rafknúinn skuttogara með frysti búnaði fyrir ísraelsmenn og í Nantes er 1 smíðum nýstárlegur 68 m langur skuttogari, sem mun verða um 1800 brúttólestir. Seg- ir Hjálmar að svo virðist sem franskar skipasmíðastöðvar séu vanar að fara að óskum hvers emstaklmgs, enda Frakkar sér- hyggjumenn. Væri því sennilega vel hægt að fá smíðuð skip eftir íslenzkuin óskum og kröfum í Frakklar.di. En hins vegar sé erfitt að gera sér grein fyrir verð lagi, þar eð ekkert þeirra fiski- skipa, sem nú eru í smíðum, myndu licnta við íslenzkar að- stæður óbreytt. • Ný bilabraut glæsilegt mannvirki Sigurður Jóhannsson, vegamála stjóri i-æddi við yfirmenn vega- mála í Frakklandi, skoðaði ný- tizku vegagerðartæki, mulnings- og hörpunartæki Og stórar mal- bikunarstöðvar. Á fyrsta degi skcðaði hann m. a. hina ný- byggðu bílabraut suður frá Par- ís. Vegur þessi hefur nú verið byggður 41 km og er með 3 ak- brautum í r.vora átt. Hann er steinsteyptur og hið mesta mann- virki, að sögn vegnamálastjóra, og nær allar brýr er yfir hann liggja eru úr förbentri steypu. Vegur þessi liggur m. a. að hinum nýja flugvelli við Orly, sem einnig er hið glæsilegasta mannvirki. Einn ig skoðaði hann Tancarvillebrúna yfir Signu, sem er lengsta hengi- brú í Evrópu, 608 m milli turna, og sjálf er brúin 1400 m. löng. Segir vegamálastjóri, að öll þau fyrirtæki og framkvæmdir, sem honum gafst færi á að skoða á þessari stuttu kynnisför hafi bor- ið vott um mikla verkkunnáttu og háþróaðan iðnað og enginn vafi á því að við íslendingar get- um margt af Frökkum lært í þess um efnum. • Frakkar framarlega í ullariðnaði Hjörtur Eiríksson, ullarfræð- ingur, segir að Frakkar standi mjög framarlega í ullariðnaði, aðeins Bretar og Bandaríkjamenn séu stærri á því sviði, en hvað kvenfataefni snertir standi engir þeim framar. Hann notaði tím- ann í Frakklandi, til að skoða sölusamtök ullarverksmiðja, stsérstu fyrirtæki í framleiðslu kambgarnsvéla og véla til að hnykla prjónagarn og fleiri verk smiðjur. Hann segir að eitt af því sem var mjög gagnlegt og gam- an að sjá hafi verið efnin sjálf. Franska tízkan sé ákveðin og leiðandi. í loðbandsefnum bæði fyrir dömur og herra ber afar mikið á skrauthárum og glanshár- um. Hvað liti snertir, sé brúnt að- altízkuliturinn, súkkulaðibrúnt og koniakbrúnt mest blandað svörtu eða dökk-olíugrænu. Grunnur- inn í efnunum er dökkur, en glanshárin lýsa efriin og gefa þeim sérstakan blæ. í prjóna- garni er sama tízkan og sögðu framleiðendur honum að sprengt prjónagarn væri langmest selda garnið í Frakklandi í dag. Það er blandað einum eða fleiri lit- um af skrauthárum saman við ullina og spunnið saman. • Hafnar- og vitamál Aðalsteinn Júlíusson, vitamála- stjóri, ræddi við franska vita- málastjórann, hafnarmálastjóra, o. fl. en allar franskar hafnir að ’.veimur undanteknum eru ríkis- eign og reknar af ríkinu og verzl- unarráðum í viðkomandi borg- um. Þá heimsótti hann ýmis fyr- irtæki verktaka, og ræddi verk- fræðilegan undirbúning og fram- kvæmdir, ef til kæmi að leitað yrði til erlendra fyrirtækja um aðstoð við hafnarbyggingar á ís- landi. Einnig kynnti hann sér framleiðslu og vinnu við stálþil. Var vitamálastjóri mjög ánægður með þessar viðræður, kvað alla hafa verið boðna og búna til að veita sér þær upplýsingar, sem hann óskaðí eftir. • Verksmiðjuframleidd hús Sveinn Vaiíells kaus að kynna sér þrjár greinar fransks iðnað- ar, niðursuðu fiskjar, verksmiðju fi amleiðsiu og samsetningu-húsa- hluta og sútun og vinnslu sauð- skinna. Sveinn skoðaði m. a. tvær sardínuverksmiðjur. í stað þess að sardínurnar væru reyktar, sem hér er venja, voru þær steiktar og því næst lagðar í olivenolíu með nokkru kryddi og sneið af sítrónu, og fannst Sveim það ómarksins vert fyrir ísl. niður suðuverksmiðjur að athuga þá verkunaraðferð. Þá kynntist Sveinn fyrirtækj- um, sem hafa fjöldaframleiðslu á „standard“ húsahlutum í verk- smiðju og samsetningu slíkra húsahluta á byggingarstað og tekst þannig að framleiða íbúð- arhúsnæði á ódýrari hátt en með eldri byggingaraðferðum. Verk- smiðjan Societe Coignet er skipu- iögð til framleiðslu á 1000 tiJ 1200 íbúðum á ári og eru heilir húsveggir steyptir og teknir full- gerðir úr steypumótum 3% klst. eftir að steypunni hefir ver- ir rennt í mótið og er um þessar mundir verið að reisa „standardis eruð“ fjölbýlishús, 6 hæða há. — Fljótt á litið telur Sveinn, að slík verksmiðia myndi kosta of mikið fyrir íslenzkar aðstæður, enda afköst rr.eiri en íslenzkar þarfir krefjast. Aftur á móti telur hann að önnur og minni verksmiðja Bonnet Calad, sem ekki er með eins vélrænum útbúnaði og fram iejðir 300 íbúðir á ári, mundi henta betur, Þá skoðaði Sveinn fyrirtæki sem súta og meðhöndla skinn bæði þar sem unnið var með stór- um vélum, of afkastamiklum fyr- ir íslenzkar kringumstæður og. þar sem fínni vinna er og meira handunnin. • Fiski landað beint í vinnslustöðvar Gunnar Guðjónsson kaus að kynnast hraðfrystihúsastarfsemi “lisSÉiÉis Bolivía ERFIÐASTA þjóðfélagsvanda- mál Bolivíu er ólæsi — og hafa stúdentar þar beitt sér fyrir víð tækum aðgerðum • til úrbóta. Ekki eru fyrir hendi nákvæmar tölur, en láta mun nærri að 70—80% af íbúum landsins, sem alls eru rúmlega 3,3 milljónir, séu ólæsir. Öllum má vera ljóst, hvílíkum erfiðleikum svo al- mennur skortur á frummennt- un veldur. Og það eru fleiri ríki Suður-Ameríku, sem eiga við sams konar vandamál að stríða. í álfunni búa um 7 millj. Indíána, sem telja má í hópi frumstæðustu þjóðflokka verald ar, sem m.a. lýsir sér í þeirri staðreynd, að um 80% þeirra munu vera ólæsir með öllu. Þeir hafast einkum við á hásléttum Andes-fjallanna og í dölum Cordilleras-fjalla,, og mynda verulegan hluta af íbúafjölda bæði Ecuador, Peru og Bolivíu. Það er til fólksins í þessum hér uðum, em hinar skipulögðu að- gerðir stúdentanna í Bolivíu taka — og eru stúdentarnir fremstir i flokki um slíkar ráð- stafanir til umbóta og fram- fara meðal afkomenda hinnar fornu indíána-menningar á þess- um slóðum. og fiskiðnaði, svo ög skipasmíða- stöðvum, sem hann skoðaði í fylgd með Hjálmari Bárðarsyni. í Boulogne-sur-Mer skoðaði hann hafnarmannvirki, en verzlunar- ráðið í borginni sér um rekstur hafnarinnar. Segir Gunnar, að að- allega hafi verið lærdómsríkt að kynnast öllu fyrirkomulagi fisk- hafnarinnar, sem er alveg aðskil- in frá farþega- og farmskipa- höfninni. Uppboðsskálar, fiskiðju ver, frystihús og geymslur standa þar öll við hafnarbakkann og hafa rúmt athafnasvið. Er því öllum fiski landað beint inn í hús in auk þess sem séð er fyrir beinu járnbrauta- og vegasambandi frá byggingunum, til mikils hagræð- is og sparnaðar fyrir þessa að- ilja. I fiskiðjuverum Frakka vakti vinnsla á síld einkum at- hygli Gunnars, en hún var bæði soðin niður Og reykt á margvís- legan hátt. Sögðu forstöðumenn fiskiðjuversins „Pecheries de la Morine“ geysilegan markað fyr- ir hinar ýmsu tegundir reyktrar síldar, en töldu hráefnisskort há sér mjög, þar eð svo virtist sem afli sildveiðiflota þeirra færi si- minnkandi. Gæti því virzt sem hér sé um óplægðan akur að ræða fyrir sölu á frystri Faxaflóasíld. Voru þeir ferðafélagarnir sam mála um að ferðin hefði opnað augu þeirra rækilega fyrir þeirri staðréynd, að Frakkar eiga sér glæsilegan iðnað og háa tækni- þróun á öllum sviðum, og að oss beri að gefa iðnaðarfram- leiðslu þeirra miklu ríkari gaum en fram til þessa. I. O. G. T. Stúkan Andvari nr. 265 Fundur í kvöld kl. 20..30. Kosning embættismanna og innsetning. Önnur mál. Æt. Stúkan Frón nr. 227. Fundur í kvöld kl. 20.30. Venjuleg fundarstörf. Kosning embættismanna. Ingimar Jóhannesson: Sjálf- valið efni. Kaffi eftir fund. Mætið vel á fyrsta fund nýja ársins. Æt. Félagslíf Eska — Danska Kennsla hafin. Nokkrir tímar lausir. Kristín Ólad. Sími 14263. Knattspyrnufélagið Valur Knattspyrnudeild 4. flokkur. Skemmtifundur verður í félags- heimilinu að Hlíðarenda í kvöld kl. 8. Bingó, kvikmyndasýning o. fl. Allir sem ætla að æfa í vet- ur og næsta sumar eru beðnir að mæta stundvíslega. Stjórnin. Greiðsla utflutningsbóta samkvæmt lögum nr. 4/1960 Það tilkynnist, að skrifstofa útflutnings- sjóðs að Klapparstíg 26 hefur verið lögð niður og að greiðsla bóta úr sjóðnum fer nú fram í gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Frestur til þess að leggja fram bótakröf- ur er til 1. júlí 1962. Reykjavík. 2. janúar 1962. SEÐLABANKI ÍSLANDS. Vélstjárar Vélstjórafélag íslands og Mótorvélstjórafélag íslands JÓLATRÉSSKEMMTUN vélstjóra verður haldinn fyrir börn félagsmanna í Tjarnarcafé sunnud 7. jan. 1962 kl 15. Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu félaganna að Bárugötu 11 og Gissuri Guðmundssyni Rafstöð- stöðinni við Elliðaái. Skemmtinefndin. Knattspyrnu félagiö Valur Knattspyrnudeild 5. flokkur. Skemmtifundur verður í félags- heimilinu að Hlíðarenda á sunnu dag kl. 3. Bingó, kvikmynda- sýning o. fl. Munið æfingarnar hjá D og C kl. 1 og hjá A og B kl. 1.50. — Mætið allir á æf- ingarnar og fundinn. Stjórnin. Knattspyrnufélagið Valur, Knattspyrnudeild. Meistara- og 1. flokkur. Fundur verður í félagsheimilinu að Hliðarenda á föstudagskvöld kl. 8.30. Allir sem ætla að æfa í vetur og næsta sumar eru beðnir að mæta á fundinn. Stjórnin. Mf?INGUNUM. fa/uairtuf& 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.