Morgunblaðið - 04.01.1962, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 4. jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
9
SJÁVARÚTVEGUR
Franskt fiskirannsóknarskip.
í „Fiskaren" 2. s.l. er skýrt frá
því, að þá nýlega hafi stór
franskur skuttogari komið óvænt
inn á höfnina í Harstad. Kom
í Ijós að hér var á ferðinni fiski-
rannsóknarskipið „Thalassa” fré
Brest í Frakklandi. Vakti J>að
jnikla athygli, bæði vegna stærð
ar og útlits með brúna fyrir fram
en mitt skip, og svipaði helzt til
rússnesku 2—3.000 tonna verk-
smiðjutogaranna, sem sagt er að
séu a.m.k. 30 að veiðum nú í
norðurhöfum. Aðeins liturinn
var frábrugðinn, léttsvartur til
Ijósgrár.
Um borð í togaranum fékk
fréttaritari „Fiskaren" þær upp-
lýsingar, að „Thalassa" hefði
verið í Kaupmannaihöfn 30. sept.
í samibandi við hina alþjóðlegu
fiskimálaráðstefnu þar. Þaðan
fór skipið svo til Boulogne í
Frakklandi, og eftir að hafa tek-
ið þar vistir og annan útbúnað
hélt það af stað þann 28. októ-
ber í vísindaleiðangur til haf-
svæðisins umhverfis fsland.
Meðal vísindamanna um borð
í skipinu var Norðmaður frá
Fiskeridirektoratet í Bergen.
Það hafði verið áformað, að
leiðangurinn við ísland næði út
nóvembermánuð, en af einhverj
um ástæðum, sem ekki var greint
frá, lauk honum fyrr, og 15. nóv.
kom „Thalassa“ til Harstad, til
þess að sækja nýjar birgðir og
fá viðgerð m. a. á radarútbún-
aði. Síðan átti það að halda til
Boulogne. (Myndin er tekin af
skipinu við b>y#«rju í Harstad).
Átta frystitogarar fyrir Spán.
Spánska útgerðarfélagið Pes-
canova S.A. er að láta byggja
8 frystitogara, fjóra 150 feta, tvo
| 167 feta og tvo skuttogara 223
fet hvor. Fyrsti togarinn Lemos
150 feta (174 ft. o. a.) er þegar
kominn j notkun, og er fyrsti
| frystitogarinn byggður fyrir
| Spánverja. Frystiafköst eru 5
tonn af flökum á sólarhring,
I kæligeymslur eru fyrir 300 tonn
af fiski í 3'5 til 45 kílóa pakkn-
ingum. Skipin eru ýmist útbúin
I blásturs- eða plötufrystitækjum.
I Frystiútbúnaður skuttogaranna
hefir 25 tonna afköst. Skipin öll
I verða af fullkomnustu gerð í
I spánska fiskiskipaflotanum og er
ætlað að stunda veiðar á S-Ame-
ríku og Afríku-miðum, og senni-
lega landa aflanum ýmist heima
eða erlendis.
Stærsti þýzki skuttogarinn
nýkominn í rekstur.
Nýlega hefir hinn 252 feta
diesel-electric verksmiðjuskut-
togari Burgermeister Smidt ver-
ið afhentur eigendum Hansea-
tische Hochseefisoherei A.G.
Þetta er 10. togarinn sem þetta
félag hefir látið byggja, sam-
kvæmt endurnýjunaráætlun
skipastóls síns, sem það hefir
gert. Heildarstærð skipsins er
o. a. 252 ft. b.p. 220 ft. br. 38 og
djúprista. Geymslurúm fyrir
frystan og kældan fisk er 10.600
cu.ft. og fiskilest fyrir ísaðan
eða saltaðan fisk 14.000 cu.ft.
Til vinnslu á þorski og karfa
í frystiflök eru Baader vélar
| hausingavélar. flökunar- og roð-
flettingarvélar á vinnsludekki,
og síðan taka við pökkunarvél-
ar, þannig að flökin eru tilbúin
til neytenda strax frá skipshlið.
Skipið er frábrugðið öðrum al.*
mennum þýzkum togurum út-
búið diesel-electric sem aðalvél,
sem fullyrt er að gefi meira far-
rými og stærra vinnupláss. Ýms-
ar nýjungar eru í sambandi við
vélaútbúnað skipsins með tilliti
til vinnsluvéla af ýmsum gerð-
um. Einnig til nákvæmari still-
ingar aðalvéla, sem hægt er að
stjórna jafnt frá brú sem í véla-
rúmi. í reynsluferð sýndi þessi
útbúnaður ágæti sitt, þar sem
hægt var að snarstöðva vél og
setja aftur á baik, án nokikurrar
áreynslu á kerfinu.
Byggingarlag skipskrokksins
er byggt á reynslu hliðstæðra
skipa^ og tilraunum í skipatönk-
um. f reynsluferðinni náðist til-
ætlaður ganghraði. Ein nýbreytn
in er staðsetning ölíu og vatns-
geyma framan til og aftur í skip
inu, svo hægt sé að ráða hleðslu
þess eftir aðstæðum um afla og
. A F, b'iu
Franska fiskirannsó knarskipið „Thalassa".
veðurlag. Vegna fyrirkomulags
á dekki og vinnslurúmi er stærð
armæling skipsins 1.101 tonn. Og
er stærsta skipið í þýzka fiski-
flotanum.
Kæliklefar og fiskilestar er
einangrað með „Alfol“, sem
hefir reynzt vel. Kælilestin er
klædd með mahogny viði, en í
lestarlofti er polyester steypa.
Fiskilestin er klædd með special
timibri til hliða en polyester-efni
í lofti, og öll lestarborð og hill-
ur eru úr mahogny. Annar út-
búnaður er fiskþvottavél. Fiski-
mjölsverksmiðja með 20 tonna
framleiðsluafköstum á sólar-
hring, lýsisvinnsla og fersk-
vatnsvélar er framleiða 2,5 tohn
á sólarhring af ferskvatni.
VISINDI NUTIMANS FÆRIR YÐUR
Skrifslofuvélaviðgerðir
Önnumst viðgerðir á ritvélum, reiknivélum, fjöl-
riturum, saumavélum, búðarkössum o. fl.
Fiiót og góð afgreiðsla. — Sótt og sent.
BALDUR JÓNSSON S.F.
Barónsstíg 3 — Sími 18994.
Húse'.gn óskast
Er kaupandi að húseign í Reykjavík með tveimur til
5 íbúðum. Má vera timburhús. Ef einhver hefur
áhuga fyrir viðskiptum, þá leggur hann nafn og
símanúmer inn á afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld
8. janúar merkt: „Viðskipti — 7288“.
íbúðarhæð á
Lít ug arnesveg i 78
(Bjarmaland) er til sölu. í búðin selst til flutnings
eða niðurrifs. íbúðm er til sýnis næstu daga frá kl.
3—6.
Nrn
FULLKOMIÐ
TANNKREM
SVALAR MIINNI YÐAR MEÐ SÍNU
HRESSANDI JÍRAUUl!
Söiumaóur
Kvenmaður, 35 til 40 ára, vön allri skrifstofuvinnu
og sölu í gegn um sima, óskast frá 1. apríl n.k., að
telja til starfa á skrifstofu við sölu fasteigna, skipa
og fyrir söluumboð. Mjög góð kjör. Tilboð sendist
ásamt mynd og eiginhandarumsókn til Morgunblaðs-
ins merkt: „Sölumaður — 201“.
virkt hreinsandi efni eykur
Ijóma tanna yðar og birtu
bross yðar.
Léttið bros uðar
PRÝSTIÐ Á TÚBUNA
Sjáið hve miklu mýkra löður
hins nýja Pepsodents er.
BURSTIÐ TENNURNAR
Finnið þykkt og mjúkt löðrið
smeygja sér inn í hverja
litla smugu.
SKOLIÐ MUNNINN — Hinn
hressandi tilfinning og hinar skín-
andi hvítu te e.” vitni þess, að.
þér notið tannkrem dagsins!
íslendingar mitímuns nota eingöngu
nýtizku tannkrem.
X-PD t1l/lC-«043-5S
tneð hinuNÝJA Pepsodent