Morgunblaðið - 04.01.1962, Page 10

Morgunblaðið - 04.01.1962, Page 10
10 MORGlJTSBLAÐltí Fimmtudagur 4. jan. 1962 CTtgefandi: H.f Arvakur. Reykjavik. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (átom.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: ft.ðalstræti 6. Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. IJ THAIMT VELLR AÐSTOÐARMENN ¥ 1 Thant, settur fram- kvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, hefur fyrir skömmu tilkynnt, að hann hafi valið sér átta aðstoðar- menn við framkvæmdastjórn samtakanna. Af þessum átta mönnum eru þrír nýliðar í starfsliði Sameinuðu þjóð- anna. Er einn þeira frá Sam- einaða Arabalýðveldinu, ann- ar frá Tékkóslóvakíu og hinn þriðji frá Nígeríu. Hinir fimm, sem starfað hafa við framkvæmdastjóm Samein- uðu þjóðanna áður, eru frá Bandaríkjunum, Sovétríkj- unum, Indlandi, Frakklandi og Brasilíu. Með þesari ráðstöfun fram kvæmdastjórans hefur á- ákvörðun verið tekin í miklu deilumáli. Eins og kunnugt er kröfðust Rússar þess á 15. allshei jarþinginu að starf framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna, sem þá var Dag Hammarskjöld, yrði lagt niður og í stað þess sett á laggirnar þriggja manna framkvæmdastjóm, þar sem hver einstakur framkvæmda stjóri hefði neitunarvald. — Hinar vestrænu lýðræðis- þjóðir og margar hinaf nýju og hlutlausu þjóðir snerust hart gegn þessari tillögu Rússa og bentu á, að með henni væru samtökin í raun og veru gerð óstarfhæf. Þeg- ar Rússar sáu að þeir höfðu enga möguleika til þess að fá þessa tillögu samþykkta, breyttu þeir nokkuð um stefnu og lögðu nú ýmist til að ráðnir yrði 3 eða 5 að- stoðarframkvæmdastjórar og að aðalframkvæmdastjórinn væri skyldur til að hlýða ráð um þeirra að meira eða minna leyti. Þessi tilaga Rússa átti heldur ekki hljómgrunn inn- an samtakanna, nema hjá fylgiríkjum Sovétríkjanna og örfáum öðrum. Niðurstaðan varð sú, að þegar U Thant var ráðinn framkvæmdastjóri til bráða- birgða hélt hann því valdi óskertu sem stofnskrá sam- takanna gerði ráð fyrir. Rússar höfðu því neyðzt til að láta algerlega af kröfu sinni um neitunarvald innan framkvæmdastjórnar 'Samein uðu þjóðanna. U Thant lýsti því hins vegar yfir við em- bættistöku sína, að hann myndi fá „takmarkaðan fjölda aðstoðarmanna“ til þess að vera aðalráðgjafar sínir. Myndi hann hafa nána samvinnu við þá á grund- velli gagnkvæms skilnings. GIFTLSAIHLEG MÐIJRSTAÐA ¥ T Thant hefur nú fram- ^ kvæmt þessa stefnuyfir- lýsingu sína þannig, aðhann hefur ráðið 8 menn sér til aðstoðar við framkvæmda- stjórnina. Er bersýnilegt að hann hefur reynt að velja þá þannig, að sem flestir þjóða- og hagsmunahópar innan samtakanna ættu þar fulltrúa. Af hinum 8 aðstoð- arframkvæmdastjórum er einn Bandaríkjamaður, einn Rússi, einn Suður-Ameríku- maður, einn Indverji, einn Afríkumaður, einn Arabi, einn Frakki og einn fulltrúi frá fylgiríkjum Rússa í Aust- ur-Evrópu. Þessar mannaráðningar framkvæmdastjórans fela í raun og veru ekki í sér ýkja miklar breytingar. Þegar Tryggvi Lie varð fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hafði hann einnig 8 aðstoðarkvæmdastjóra, sem mynduðu nokkurs konar innri hring í framkvæmda- stjórninni. Fimm þeirra voru frá stórveldunum, sem eiga fast sæti í Öryggisráðinu, en hinir þrír voru frá Suður- Ameríku, Austur-Evrópu og Hollandi. Var sú starfsskipt- ing ekki ósvipuð þeirri, sem U Thant hefur nú gert. Vegna aukinna áhrifa Asíu- og Afríkuþjóða er þeirra þátt ur þó gerður nokkru ríkari en áður. Er nú einnig þann- ig komið að 51 meðlimaþjóð Sameinuðu þjóðanna af 104 eru í Asíu og Afríku. Aðalatriðið er, að Sovét- ríkjunum hefur ekki tekizt að koma fram tillögu sinni um neitunarvald innan fram kvæmdastjórnarinnar. Aðal- framkvæmdastjórinn heldur óskertu því valdi, sem stofn- skráin gerir ráð fyrir. Ýmsar blikur eru hins veg ar á lofti, sem benda til þess að samtökin kunni að veikj- ast verulega á næstimni, enda þótt yfirgnæfandi meiri hluti meðlimaþjóða þeirra telji tilveru þeirra frumskil- yrði friðar og öryggiís í heim- inum. En fljótt á litið virð- ist U Thant hafa tekizt giftu samlega um val aðstoðarfram kvæmdastjóra sinna og skipt ingu þeira milli hinna ýmsu hagsmunahópa og heims- hluta. Mikið deilumál hefur um skeið verið útkljáð þann- nnrás í Nýju Guineu áhugamál kommúnista DEII.A HoIIendinga og Indó- nesa um vesturhluta Nýju Guineu (sem er hollenzk ný- lenda) er stöðugt eitt helzta fréttaefnið. Það er nú nýjast í því máli, sem sagt var frá í blaðinu í gær, að Hollending- ar hafa fallið frá einu helzta skilyrði sinu fyrir samning- um við Indónesíustjórni um framtíð hollenzku nýlendunn- ar — þvi, að frumbyggjarnir þar, Papúar, fái sjálfir að ráða framtíð sinni. Hollenzki for- sætisráðherran, Jan de Quay, )ét svo um mælt í þessu sam- bandi, að nú hefðu Hollend- ingar hliðrað eins mikið til í þessu máli og framast væri unnt. Er þetta skref hollenzku stjórnarinnar talið gefa nokkra von um friðsamlega lausn deil unnar — cn, þó virðist mörg- um enn liklegast, að Sukarno Indónesíuforseti reyni að finna sér einhverja átyllu til þess að ráðast á hollenzku ný- lenduna og leggja hana undir Indónesíu með valdi. Enda þótt hann óttist nokkuð,, að loo km- / PILlPSEYJAft. '"■'M " •) 1 ■ SUKARNO — undir komn'. ínískum áhrifum . Hér á myndinnl sést afstaða hollenzku Nýju Gulneu tll Indónesíu. Aðeins tiltölulega fámennt lið er til varnar, en landið er hins vegar á.kaflega erfitt yfirferðar og engan veginn fyrir fjölmennan her að sækja þar fram, þó að landganga ætti aftur á móti að reynast fremur auðveld. Ástralía og Bandaríkin kynnu að veita Hollendingum virkan stuðning, ef ráðizt yrði á hol- lenzku Nýju Guinieu, virðist hann setja traust sitt á yfirlýs- ingu Rússa um „fullan stuðn- ing“ við kröfu Indónesíu til nýlendunnar. Bandaríska fréttaritið „U. S. News & World Report“ sagði á dögunum, að það væri ekki sízt fyrir stuðning og hvatn- ingu frá kommúnistum, bæði heima fyrir og ejjlendis (og þá fyrst og fremst Rússum), að Sukarno hefði nú gerzt svo herskár. Enda væri það mála sannast, að — enda þótt Suk- arno haldi þvi fram, að hann sé „vinstri-sinni“, en ekki kommúnisti, þó hafi kommún- istar æ meira að segja varð- andi framtíð þeirra 90 millj. manna, sem byggja Indónesíu- ríki. „U. S. News” vekur at- hygli á því, að Sukarno mundi gjarna vilja, að deilan við Hol- lendinga kæmi fyrir Samein- uðu þjóðirnar, þar sem hann gæti þar treyst á stuðning ig, að flestir virðast sæmi- lega við una. RISKLPS- BOÐSKAPtJR Diskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, flutti samkvæmt venju ára- mótapredikun í Dómkirkj- unni á nýjársdag. Var ræða hans eins og vænta mátti þróttmikil og um ýmsa hluti hin merkasta. Biskup hikaði ekki við að taka hreina og klára afstöðu til ýmissa nú- tímafyrirbrigða. Meðal ann- ars réðst hann einarðlega gegn skurðgoðadýrkun síðari áratuga og sýndi fram á, hvernig ýmsum pólitískum skurðgoðum hefði verið steypt af stalli og hinum hörðustu orðum farið um verk þeirra og stefnu. Kvað biskup tíma til þess kominn, að við íslendingar gerðum okkur betur ljósa þá hættu, sem pólitísk skurðgoðadýrk- un hefði í för með sér, og settum í þess stað aukið traust á þá guðstrú, sem kristindómurinn boðaði og aldrei brygðist þeim, sem hana tileinkuðu sér. Fyllsta ástæða er til þess að vekja athygli á og taka undir þessi orð og mörg önn ur í áramótaboðskap biskups ins. Má raunar segja með nokkrum sanni, að íslenzk kirkja og leiðtogar hennar hafi oft á undanförnum ár- um verið altof hikandi og stefnulitlir gagnvart niður- rifsiðju hinna pólitísku skurð goðadýrkenda, sem ekki hafa legið á liði sínu hér, frekar en annars staðar. kommúnistaríkjanna og asísk- afrísrcu ríkjanna, sem ávaiit eru á mót.i öllu og öllum, sem hægt er að bendla á einhvern hátt við nýlendustefnu. Þann- ig mundi hann þykjast nokk- uð öruggur um að fá fram ail- víðtæsa fordæmingu á hinni „hvítu nýlendustjórn“ Hollend inga 4 Nýju Guineu — og teija að Hollendingar teldu sér ekki stætt á öðru eftir það en að láta nýlendu sína eftir bar- áttulaust Einnig er talið í ritinu, að árás Indverja á portúgölsku nýlenduna Goa, sem þeir komust upp rr.tð hindrúnarlaust, hafi Orðið Sukarnö veruleg hvatning til að láta til skarar skríða gegn hollenzku Nýju Guineu. Vakin er athygli á því, að landganga á vesturodda eyjarinnar yrði Indónesíumönnum tiltölulega auðveld, þar sem nálega engar varnir séu fyrir hendi — og næsta eyjan í Indónesíuríki sé aðeins um 50 mílur undan landi. Hollendingar hafa ein- ungis um 3000 manna lið til varnar í nýlendu sinni, en "landher Indónesíu einn telur um 275 þús. manna — og mundi Sukarno því örugglega geta sent Ofurefli liðs á vett- vang. Aftur á móti er vakin athygli á því, hve landið er ákaflega erfitt yfirferðar — varla hægt að segja, að þar fyrirfinnist vegarspotti, landið allt sundurskorið af sprung- um, mikið um mýrarfláka og fen, auk annarra farartálma. Af þessum sökum er mjög erfitt að beita miklum liðsafla svo, að hann fái notið sín til fulls — og því ekki auðvelt að spá um úrslit hernaðará- taka. Alla vega má gera ráð fyrir því, að ef Hollendingar og Papúarnir (sem eru um 700 þúsund talsins) tækju þann kost að berjast einbeitt- lega gegn innrásarliði Indó- nesa, þá gætu þeir gert mönn um Sukarnos marga skráveifu, hver svo sem lokaúrslitin yrðu. í sama hefti „U. S. News & World Report“ og hér hefir verið vitnað til er einnig birt viðtal við hollenzka utanrík- Frh. á bls. 19

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.