Morgunblaðið - 04.01.1962, Síða 12
12
MORGUTSBLAÐIÐ
Fimmtudagur 4. jan. 1962
G/er og lisfar
Sandblásið gler, Polytox plastmálning.
Undirbuiður margar gerðir.
Ivler og listar h.f.
Laugavegi 178 — Sími 36645.
Sonur okkar
Ó S K AR
andaðist í Sjúkrahúsi Selfoss, 31. des. — Jarðarförin fer
fram frá heimili hins látna, Breiðamörk, Hveragerði
laugardaginn 6. jan. og hefst með húskveðju kl. 1 e.h.
Jarðsett verður að Koíströnd.
Guðrún Guðmundsdóttir, Bjarni Tómasson
Konan mín
ANNA SIGCJRÐARDÓTTIR
Grænuhlíð 6, Reykjavík,
lézt 1. janúar. Jarðarförin ákveðin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 10. janúar kl. 1,30.
Guðbrandur Björnsson
GUÐBJÓRG FINNSDÓTTIR
frá Fossi, Arnarfirði
andaðist 3. ianúar í Landakotsspítalanum.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðfinnur Gíslason
Systir mín
REBEKKA HJÖRTÞÓRSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu 1. janúar.
ída Hjörtþórsdóttir.
Faðir minn
Prófessor MATTHÍAS ÞÓRÐARSON
fyrrverandi þjóðminjavörður
andaðist 29. des. — Útför hans fer fram frá Dómkirkj-
unni laugardaginn (5. jan. kl. 10,30 f.h. — Sóknarnefnd
Dómkirkjunnar hefur óskað að láta útvarpa kirkjuat-
höfninni.
Sigríður Matthíasdóttir
Útför föður míns
ÓLAFS SIGURÐSSONAR
veggfóðrara, Mávahlíð 29,
fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 5. janúar kl. 10.30
og verður útvarpað.
Eggert Ólafsson.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall
og jarðarför mannsins mms, föður okkar, tengdaföður og
afa
GUÖBRANDAR JÓNATANSSONAR
skipstjóra frá Patreksfirði.
Kristín Haraldsdóttir.
Anton Lundberg,
Elín Guðbrandsdóttir,
Haraldur Guðbrandsson,
Lára Guðbrandsdóttir,
Herbert Guðbrandsson,
Kristinn Guðbrandsson,
Jónatan Guðbrandsson,
Sigurborg Eyjólfsdóttir,
Arni Jónsson,
Jónína Samsonardóttir,
Jón Sigurðsson,
Málfríður Einarsdóttir,
Gyða Þórarinsdóttir,
Guðmuuda. Guðmundsd.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát
og útför eiginmanns míns
HALLDÓRS STEINSEN
læknis og fyrrverandi alþingismanns.
Lilja Steinsen.
Jarðarför móður minnar
JÓHÖNNU ÞORSTEINSDÓTTUR
Laugavegi 80,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 5 janúar kl. 1,30.
Guðrún Gísladóttir.
Þökkum auðsýnda sarnúð og hluttekningu við fráfall
og jarðarför
JÓNS BÖDVARSSONAR
Miðtúni 36.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Margrét Magnús-
dóttir — minning
HINN 23. dtsember s.l. lézt að
Elliheimilinu Grund frú Mar-
grét Magnúsdóttir. Margrét var
fædd að Digranesi í Seltjarnar-
neshreppi þann 22. april 1877.
Hún var dóttir Magnúsar Guð-
mundssonar bónda þar og konu
hans Ingibjargar Jónsdóttir. Þar
ólst hún upp í glöðum systkina-
hóp, en þau voru sex börnin,
þrjár dætur og þrír synir. Öll
eru systkini hennar fyrir löngu
látin og var Margrét þeirra síð-
ust að kveðja þennan heim, enda
orðin háöldruð. Strax eftir ferm-
ingaraldur fór Margrét að vinna
fyrir sér í vist á ýmsum heimil-
um, bæði ner í bæ og víðar, enda
voru á þeim árum ekki mörg
önnur úrræði til sjálfsbjargar
fyrir ungar stúlkur. Allsstaðar
vann Margrét sér traust og vin-
áttu húsbænda sinna fyrir hátt-
vísi í allri framkomu, framúr-
skarandi þrifnað Og lagni við öll
heimilisstörf. Meðal annars má
geta þess, að Margrét hafði um
nokkur ár á hendi ráðskonustörf
á heimili Benedikts Gröndals
skálds og hjúkraði honum í veik-
indum hans síðustu árin, sem
hann lifði, af innilegri nærfærni
BvHELGflS0N7 _ _AkllT
SÖ0HRV0G 20 1« i/ I ■
L_ SÍMÍ 36177 / 1
leqsíeinap oq
plö-tur
og elsku, eins og henni var lagið.
Alla tíð síðan átti Margrét þakk-
læti og vinsemd ættingja hans
og vina fyrir störf hennar og þjón
ustu á heimili Gröndals. Síðustu
árin, sem Margrét vann á heimili
Gröndals kynntist hún Ólafi Jóns
syni vélstjóra. Sú kynning leiddi
til hjúskapar þeirra og samvista
um mörg ár. Ólafur var einn
þeirra íslendinga, sem fyrstir
lærðu vélfræði og fengu réttindi
til vélstjórnar á stærri gufuskip
um. Margrét og Ólafur bjuggu
sér strax eftir giftinguna fallegt
heimili hér í bænum, en fluttust
snemma að Laugalandi í Laugar-
dalnum hér við Reykjavík, eftir
að Ólafur hafði keypt þá jörð.
Þar ráku þau um nokkur ár stórt
kúabú. Ólafur vann þá jöfnum
höndum, sem vélstjóri á togurum
Og við búskaparframkvæmdir.
Þá kom mikið til kasta Margrétar
um alla stjórn og framkvæmdir
við búreksturinn, þar sem maður
hennar var oft langdvölum fjar-
verandi við störf sín á sjónum, og
fór það henni, sem allt annað vel
úr hendi. Þetta voru gróskumikil
og skemmtileg ár í lífi þeirra
Margrétar og Ólafs og enn muna
margir þau hjón frá þessum ár-
um. Margréti og Ólafi varð ekki
barna auðið. Síðar slitu þau sam-
vistum. Nokkru þar á eftir kom
Margrét sér upp húsi hér í bæn-
um og átti þar heima þar til hún
seldi það vegna heilsubilunar.
Eftir það var Margrét lengst af
Sigríður
Minning
Dáin 27. des. 1961.
SIGRÍÐUR fæddist 28. júní 1898
að Tungu í Önundarfirði, elzta
barn hjónanna Hinrikku Halldórs
vistmanneskja á Elli og hjúkrun-
arheimilinu Grund. Þar átti hún
öruggt heimili og hæli til dauða-
dags. Margrét var á sínum yngri
órurn fríðleikskona, grönn og
fallega vaxin og hafði alla tíð
næman fegurðarsmekk bæði hvað
snerti sjálfa sig í útliti og klæða-
burði, svo og að hafa allt hreint
og fágað í kring um sig. Mar-
grét var sjálfstæð og ákveðin í
skoðunum um menn og málefni
og fylgdist alla tíð vel með öllu,
sem varðaði heill og hag lands
og þjóðar.
Nú hefur þessi ágæta kona
kvatt þennan heim. Hún þakkar
starfsfólki Elliheimilisins ágæta
hjúkrun og lijálp um mörg ár,
svo Og öllum, sem litu inn til
hennar og léttu henni lífið síð-
ustu árin, eítu að heilsa og kraft-
ar prutu.
Hún er kvödd af ættingjum og
vinum með bæn um Guðs fnð
og Guðs líkn að leiðarlokum.
Blessuð sé minning hennar.
Jónsdóttlr
dóttur og Jóns Sveinssonar, sem
mest allan sinn búskap bjuggu
að Innri-Veðrará við önundar-
fjörð. Hún ólst upp hjá foreldr-
um sínum í Guðsótta og góðum
siðum, við fullt öryggi en ekki
ríkidæmi, ásamt bræðrum sín-
um Sveini, Bjarti og Magnúsi.
Henni var kennt að gera kröfur
til sín en aldrei annarra og að
vera heldur veitandi en þiggj-
andi.
Sigríður giftist aldrei og eign-
aðist ekki börn, en var alltaf
með sínu fólki. Bjó fyrst með
foreldrum sínum þar til þau önd-
uðust og var þeim mikil stoð og
stytta og þau henni. Síðan bjó
hún með yngsta bróður sínum
Magnúsi og hans konu og börn-
um á óðali foreldra þeirra og er
mér kunnugt um að þar ríkti
gleði og samhugur í starfi og
leik.
Sterkustu eiginleikar Sigríðar
voru dyggð og trúmennska í
orði og verki og hún vildi alls
staðar koma fram til góðs, en á
engan halla, sízt þá er máttu
sín minnst.
Sigríður og Magnús bróðir
hennar*hafa haft unglinga og
börn á heimili sínu um lengri
og skemmri tíma, sem nú munu
minnast þeirra Jneð þakklátum
huga fyrir allt og allt, sem þeim
hefur verið gert.
Bjart fannst mér yfir lífi Sig
ríðar. Hún var svo gæfusöm að
þurfa aldrei að vera einmana,
átti fuila heilsu ög starfskrafta
til hins síðasta, var fjárhagslega
sjálfstæð og gat I ví frekar miðl-
að öðrum, en pað var skapi henn
ar næst.
Eg vil votta bræðrum Sigríðar
og öðrum skyldmennum innileg
ustu samúð mína og uim leið
þakka Magnúsi og Gróu konu
hans og þeirra börnum fyrir
þeirra órjúfandi tryggð og vin-
áttu henni til handa.
Að lokum þakka ég af alhug
alla þá vinsemd og höfðingsskap
sem mér og mínum hefur verið
sýnd á liðnUm árum af Sigríði
og hennar nánustu.
Þar tignartindi á
ég tjald vil gera.
Þar góðum guði hjá
er gott að vera.
J. S.
r—z*
SniBkennsla
námskeið 5 kjólasniði hefst 8. jan.
Framhaldsnámskeið hefst 15. janúar.
Nokkur plass Jaus .
Sigrún Á. Sigurðardóttir
Drápuhlíð 48 — Sími 19178.
Kópavogsbúar
Okkur vantar 3—4 herb. íbúð
fyrir startmann okkar.
Hlálfiing hf.
Sími 22460.
Afgreiðslustúlka óskast
i Nýlenduvöruverzlun.
Uppl. í verzluninni.
Straufnnes
Nesveg 33 — Sími 19832.
Skrifsfofustúlka
Útflutningsstofnum óskar eftir að ráða skrifstofu-
stúlku. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. — Um-
sóknir sendist afgr. Mbl. fyrir 7. janúar merktar:
„ABC — 7477“.
Kjartan Ólafsson.