Morgunblaðið - 04.01.1962, Qupperneq 13
Fimmtudagur 4. jan. 1962
MORGVNBLAÐIÐ
13
Guðmundur Hansson
Mlinning
30. NÓVEMBER sl. var á Akra-
nesi til grafar borinn Guðmund-
ur Hansson frá Elínarhöfða við
Akranes, sem kallað var í Vog-
um. Hann kvaddi þennan heim
eftir langa og hamingjusama
ævi, sem einn af traustu fram-
farastoðum þess bæjar, sem
hann unni í starfi, þar sem
hann byggði sitt ból og bjó líka
langa ævi.
Guðmundur var í heiminn
borinn 6. júlí 1876 og því 85
ára. Hann var elztur af börn-
um sinna foreldra, Ingibjargar
Guðmundsdóttur og Hans Jörg-
enssonar, sem bjuggu allan sinn
búskap á ættarjörð sinni, Elín-
arhöfða, en þar höfðu fimm
ættliðir búið. Sá fyrsti var Hans
Klingenberg, sem sendur var af
dönsku stjórninni að kenna bún-
aðarháttu. Kona Hans þessa var
Steinunn Ámundsdóttir úr
Grímsnesinu, og er stór ætt frá
Elínarhöfða komin. Þar ólst
Guðmundur upp með systkinum
sínum, þeim Valgerði og Jörg-
en, sem einnig fluttu út á Akra
nes og bjuggu þar, en eru nú
látin, í góðri minningu um sína
ævi, frá góðum foreldrum og
skylduliði þeirra.
En viðhorfi uppeldismálanna
mætti lýsa með þessum orðum:
Þar hafaldan braut við Höfða-
tún
með hamförum stundi á kletta-
brún
heyrðist sú orka um byggð og
ból
en bratt var túnið á móti sól
við áttum þar Elínarsæti.
Svo lindin fagra með vatnið
vígt
og vegur norður að Blesa.
Þar stendur hann ennþá stoltur
og hár
starir á hafið, sem er svo ríkt
en hvetur til dáða, þó finnist
hann fár;
fjörgar æskunnar börn með alls
konar gleðilæti.
Svo Höfðinn stóri sem varði Vík
með vogarsand, hún er gulli lík
þar veiðiklappir, kuðung og skel
við kunnum að notfæra mæta
vel
og byggðum þar hugmyndaheima.
Þá blasir við útsýni Akrafjall
og opinn er dalurinn mæti.
En þarna spratt æska með at-
hafnaþrá
og öll vildu þekkingu finna,
þess vegna hurfu þau heiman'frá
með hugsun, þjóðlegu störfun-
um sinna.
En Guðmundur unni líka
þessum æskuslóðum alla ævi og
minntist oft góðra og glaðra
leika okkar Vogabarna, með
prúðmennsku hvort við annað.
Nú er byggð þessi horfin og
bæirnir líka,
þó bera samt vogarnir einkenni
sín. !
Þeir unglingar gáfu þá óskina
slíka,
önnur börn gleðjist, þá sólin
hér skín. \
Svo var það með þessa Höfða-
bræður að þeir voru dugmiklir
á skútum og eftirsóttir sjómenn.
Þeir voru þátttakendur að fyrstu
mótorbátum, sem Akranes átti,
Jörgen annar eigandi og véla-
maður á „Laxáin“ en Guðmund-
ur hluthafi að m.b. „Hegrinn".
Sem víðast vildu þeir ryðja
brautina fyrir Akraneskaupstað
cg alla ævi vildu þeir starfa
sem nýtir Akurnesingar. Þeir
áttu góðvild í gleði og mikið
snarræði á sjónum, sem kom
sér oft vel, eins og að grípa
menn úr sjónum sem duttu fyr-
ir borð á hafi úti. En þeirra
ævisaga verður ekki skráð hér
með þessum línum.
Árið 1903 giftist Guðmundur
Marsibil Gísladóttir frá Kal-
mansvík. Var hún af traustu
og góðu fólki komin, fríð stúlka,
prúð í framkomu, nokkuð hlé-
dræg, en unni mikið manni sín-
um og heimili. Þau eignuðust 7
börn sem öll eru mjög mann-
vænleg, búsett á Akranesi,
Reykjavík og ein dóttir, Ingi-
björg, búsett í Danmörku.
Guðmundur var glæsimenni,
stór og beinn í baki til þess
síðasta, en sjónin farin að dapr-
ast. Þó bætti það um á undan-
förnum árum, sá góðkunni vel-
gerðarmaður, Kristján Sveins-
son augnlæknir. En tryggð hans
til æskustöðva og Voganna
dapraðist aldrei og þar hafði
hann útgerð á vorin og leið vel.
Þegar Guðmundur giftist
byggði hann snoturt hús á Akra
nesi og nefndi Akurgerði.
Þar bjuggu þau hjón allan sinn
langa búskap og ólu upp böm
sín, þar til Marsibal andað-
ist 1950 eftir ástríka sambúð.
Börn þeirra byggðu annað hús
úr steini á þeirri lóð og heitir
líka Akurgerði. Eins er nú gat-
an heitin þar eftir.
En að síðustu var útför hans
gerð þaðan af miklum myndar-
brag og hans minnzt að verð-
leikum við fjölmenni, sem þátt-
takanda til framfara þessa bæj-
ar. Líka var hann kvaddur sem
góður og reglusamur faðir barna
sinna, hress í viðmóti, mann-
þýður, hóglátur en glaður, svo
minning hans lifir sem traustur
þjóðfélagssonur síns héraðs.
J. E. Helgason.
Slys
Boa Esperanca, Brasilíu,
2. janúar (AP).
28 MANNS biðu bana og 34
aðrir meiddust mikið er lang-
ferðabifreið valt út af þjóðvegin-
um í nánd við Boa Esperanca
á mánudag. Bifreiðin fór marg-
ar veltur niður bratta brekiku
Hækkun launa án samsvarandi
aukningar framieiðsiu gagniaus
MORGUNBLAÐIÐ hefur fengið
sendan útdrátt úr ársskýrslu Efna
hags- og framfarastofnunarinnar
(OECD), sem fjallar um þróun
efnahagsmála á íslandi árin 1960
og 1961 og þau verkefni sem
framundan eru.
Mikil verðbólga
í skýrslunni segir m. a., að á
árunum 1950—1960 hafi ríkt
mikil verðbólga á íslandi, sem
að verulegu leyti mátti rekja
mikillar fjárfestingar. Stjórnar-
völdin leituðust við að hamla á
móti afleiðingum ofþenslunnar —
stöðugum verðhækkunum innan-
lands og miklum greiðsluhalla út
á við — með flóknu kerfi niður-
greiðslna, margfalds gengis og
viðskiptahafta. Með þessum ráð-
stöfunum reyndist kleift að halda
uppi og auka útflutningsfram-
leiðslu, þrátt fyrir ört hækkandi
ti'kostnað. A hinn bóginn beind-
ust þessar ráðstafanir ekki gegn
uppsprettu verðbólgunnar, og
þær leiddu til þess, að eðlileg
verðmyndun fór úr skorðum og
framleiðsla og erlend viðskitpi
beindust inn á óeðlilegar brautir.
Viðreisnin gekk vel
Á þessu varð róttæk breyting,
þegar íslenzka ríkisstjórnin lagði
fram viðreisnaráætlun í þeim til
gangi að draga úr of mikilli eftir-
spurn, koma á jafnvægi í erlend-
um greiðslum og taka aftur upp
eðlilega skipun efnahagsmála.
Vel gekk að framkvæma við-
reisnaráætlunina árið 1960 og var
þeirri framkvæmd haldið áfram
árið 1961 með minniháttar breyt-
ingum. Á fyrstu fimmtán mánuð-
um áætlunarinnar mátti sjá af
henni verulegan árangur: dregið
hafði úr of mikilli eftirspurn,
verðlag hafði Orðið stöðugra eftir
óhjákvæmilegar breytingar af
völdum gengislækkunarinnar,
sparnaður innanlands jókst hröð-
um skrefum og gjaldeyrisstaðan
hafði batnað verulega.
Nauðugur einn kostur
Mikið af því,‘ sem þannig hafði
áunnizt, fór hins vegar forgörðum
vegna langvarandi verkfalla á
fyrri hluta árs 1961 er að lokum
enduðu með almennum launa-
hækkunum, sem námu um það
bil 16%. Þessar launahækkanir
leiddu til stóraukinnar eftirspurn
ar án samsvarandi aukningar
framleiðslu. Afleiðingin gat því
ekki orðið önnur en stóraukinn
innflutningur, sem ómögulegt var |
að greiða af samtíma tekjum af I
útflutningi eða gjaldeyrisforðan-
um, sem enn var lítill. Samtímis
hafði framleiðslukostnaður út-’
flutningsatvinnuveganna aukizt
svo mjög, að við blasti stöðvun
reksturs, enda gátu þessir atvinnu
vegir ekki hækkað söluverð af-
urða sinna, sem ákvarðast af að-
stæðum á heimsmarkaðinum. Rík
isstjórninni var því nauðugur
einn kostur að gera ráðstafanir
til að gengið yrði lækkað á ný
hinn 4. ágúst 1961.
Þá segir, að hætta sé á, að
áframhald viðreisnarinnar verði
torveldað af nýjum tilraunum
verkalýðsfélaganna til að auka
laun að krónutölu með beitingu
uppsagnarákvæðanna í hinum
rýju samningum. Ekkert tæki-
færi ætti að láta ónotað til að
reyna að sannfæra almenning um
það að hækkun íáuna í krónum
án samsvarandi aukningar fram-
leiðslu er gagnslaus. Betri skiln-
ingur innan þjóðfélagsins gæti
skapazt við það, að stjórnarvöldin
hefðu yfirlýsta stefnu í launamál
um, sem tengdi raunverulegar
launagreiðslur við þróun fram-
leiðslunnar.
Aukin fjölbreytni í framleiðslu
Loks segir, að einn aðaltilgang-
ur viðreisnarinnar hafi verið að
leggja trausta hornsteina að fram
þróun íslenzks efnahagslífs. Slík
íramþróun, er haldizt gæti til
langframa er þó vart hugsanleg
án mikilla breytinga í uppbygg-
ingu þjóðar.búskaparins sem mið-
uðu að aukinni fjölbreytni í fram
leiðslu og utflutningi. Þetta krefst
verulegrar fjárfestingar á kom-
andi árum og með því að ráðstóf
unarfé er takmarkað, er nauð-
synlegt, að vandað sé mjög til
vals fjárfestingarverkefna. Sér-
fræðingar á vegum Framleiðslu-
stofnunar Evrópu (European
Produetivity Agency) vinna nú
í Reykjavík að undirbúningi fram
kvæmdaáætlunar. Efnahags- og
framfarastofnunin er reiðubúin
að kynna sér áætlunina þegar
hún liggur fvrir, og taka til at-
hugunar á hvern hátt hún gæti
aðstoðað við framkvæmd hennar.
Aígreiðs ! ustúlka
Vantar stúlku til afgreiðslustarfa strax í tóbaks- og
sælgætisverzlun. Upplýsingar í síma 34020 og eftir
kl. 7 í síma 33932.
Til lelgu
Óinnréttaður kjallari til leigu í Hafnarfirði. Góður
sem verkstæðispláss eða geymsla.
Upplýsingar í síma 50984 kl. 12 og 1.
Maður óskasf
til verzlunarstarfa.
Síld & Fiskur
Austurstræti.
Verkstjóri
óskast í frystihús Norðanlands.
Uppl. í Sjávarafurðadeild S.Í.S. Sambands-
húsinu. Sími 17080.
í Reykjavik Freyjugötu 41
(inngangur frá Mímisvegi.
Sími 11990.
Kennsla hefst mánudaginn
8. janúar.
Hægt að bæta við nemend-
um í kvölddeildir.
Þá hefst nýtt námskeið
í barnadeildum.
Innritun daglega frá 8—9.
Peningalán
lánað 100—150 þús>. kr. til 10—15 ára gegn öruggu
fasteignaveði. Þeir, sem hafa áhuga á þessu leggi
nöfn, heimilisföng ásamt nánari uppl. um veð
á afgr. Mbl. merkt: „Peningalán — 7290“ fyrir há-
dégi n.k laugardag.
Bnlletskólinn
Tjnrnnrgötn 4
Kennsla hefst að nýju mánu
daginn 8. januar.
Endurnýjun skírteina fer
fram fimmtudaginn 4. jan.
kl. 4—7.
Innritun og afhending skír
teina fynr nýja nemendur
fer fram íöstud. 5. jan. kl.
4—7 að Tjarnargötu 4,
5. hæð simi 16103.
Munið okkar vinsælu kvenna
og unglingatíma á kvöldin.