Morgunblaðið - 09.01.1962, Side 18
JLU
MORGVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 9. janúar 1962
►
Aðems 2 þjóðir eiga betri þristökkvara
EINN íslendingur er á heims
skránni yfir beztu frjáls-
íþróttaafrekin á árinu 1961.
Það er Vilhjálmur Einarsson
og hann skipar þennan veg-
lega sess enn einu sinni fyr-
ir afrek sitt í þrístökki, 16.17
m. Það afrek er það 8. bezta
EM í Irjólsum
i Finnlondi
1966?
FINNSKA ft-jálsíþróttasam-
bandið hefur ákveðið að sækja
um að fá að halda Evrópu-
meistaramótið i frjálsum í-
þróttur 1966. Ef umsókn Finna
verður samþykkt þá verður
frjálsíþróttamótið 1966 fyrsti
stórviðburðurinn í frjálsum,
íþróttum í Fannlandi síðan
1958 að Finnar stóðu fyrir,
Olympíuleikum.
sem vannst í heiminum í
þeirri grein á sl. ári. Aðeins
tvær þjóðir í heimi eiga
betri þrístökkvara en íslend-
ingar á árinu 1961.
Það er heiður hverri smá-
þjóð að komast á blað á
heimsafrekaskránni og þær
eru ekki ýkja margar sem
eiga fulltrúa þar. Um 5 ára
skeið hefur Vilhjálmur nú
verið á þessari skrá. Það sýn
ir hversu framúrskarandi af-
reksmaður hann er í þessari
grein.
Afrekaskráin í þrístökki lítur
þannig út:
16.71 Kreer, Rússland.
16.53 Malcherscyk, Pólland.
16.52 Gorjajew, Rússland.
16.40 J. Schmidt, Pólland.
16.33 Rajkowski, Rússland.
16.26 Dementjew, Rússland.
16.20 Okunkow, Rússland.
16.17 Vilhjálmur Einarsson.
16.15 Solotoarjev, Rússland.
16.13 Werestschagin, Rússl.
16.13 Michailow, Rússland.
16.11 Samuels, Jamaika.
Vilhjálmur stekkur 16.17 í lands-
keppninni s.l. sumar.
Hvergi annars staðar eru ís-
lendingar nálægt því að vera á
heimsafrekaskránni. 1 stangar-
stökki t. d. er bezta afrek árs-
ins 4.83 — heimsmet G. Davies,
Bandaríkjunum. 13. maður á
skránni er með 4.65 m. Svo all-
langt er þar í land fyrir Val-
bjöm. 1 hástökki er Brummel
með bezta afrekið — heimsmet-
ið 2.25. — 18 menn hafa stokkið
2.08 eða hærra. Svo þar er og
talsvert langt að sækja á bratt-
ann fyrir hinn unga Jón Þ. Ólafs-
son sem setti ísl. met í stimar.
X öðrum greinum er ennþá
lengra í sæti á þessari eftir-
sóttu skrá.
KR til Danmerkur
- og Danir hingað
DANSKA blaðið Berlinske Tid-
ende skýrir frá því að íslands-
meistarar KR í knattspyrnu muni
heimsækja Danmörku í sumar og
leika 4 leiki á tímabilinu 26. júní
til 4. júlí. Heimsókn KR til Dan-
merkur er á vegum Sjællands
Boldspil Union en það samband á
afmæli í ár og heldur upp á það
með veglegum og fjölbreyttum
hátíðahöldum. M.a. mætir úr-
valslið þess úrvali Kaupmanna-
hafnar í Idrætsparken.
STUTT SAMBAND
SBU er sterkt samband. Það
hefur sent lið sín hingað til lands
og hafa þau farið ósigruð héðan.
KR-ingar hafa einnig áður keppt
við þá úti en ekki borið sigur úr
býtum í þeim leikjum.
Ekki er enn vitað hvaða liðum
KR-ingar mæta, en Berlingur seg
ir að líklegast sé að það verði úr
valslið Holbæk-sambandsins og
„Úthverfa“-samsteypan, en í
henni er nú m.a. AB sem hefur
sameinast Bagswærd IF.
Ver Evrópu-
meistaratitil
ENSKI hnefaleikakappinn Dick
Richardson hyggst verja Evrópu
meistaratitil sinn í þungavigt 24.
febrúar n.k. Mætir hann þá Þjóð
verjanum Carl Mildenberger. —
Leikurinn fer fram í Dortmund í
Þýzkalandi.
DANIR HINGAÐ HEIM.
Til endurgjalds fyrir þessa
heimsókn KR-inga, sækja Sjá
lendingar ísland heim í júlí
lok eða ágústbyrjun. f þeirri
ferð verða allir sterkustu leik-
menn sambandsins þ.e.a.s.
beztu menn deildaliðanna
Köge, AB, Næstved, Hróars-
keldu, Helsingör og Lyngby.
Afmœlismót
HKRR um
helgina
HANDKNATTLEIKSRÁÐ R-vík-
ur á 20 ára afmæli hinn 29.
janúar n.k. Ráðið ætlar að minn
ast afmælisins með hraðkeppni
í handknattleik og fer hún fram
um næstu helgi. Keppnin hefst
á laugardaginn kl. 7:30 og verða
fyrst leiknir 4 leikir í m.fl. krv.
óg síðan 5 leikir í m.fl. k—
í kvennaflokki mætast á laug
ardag:
Víkingur — Valur.
KR — Breiðablik
Armann — Þróttur
FH — Fram
í karlaflökki mætast þá:
FH — Breiðablik
Yalur — KR
Ármann — Fram
Víkingur — ÍR
Haukar — Þróttur
Keppnin heldur áfram á sunnu
dag og hefst þá kl. 8. Það lið se<m
tapar leik er úr keppninni.
morgun hefst okkar
%
árlega
IÍTSAL
á alls konar fafnaði
FYRIR KVENFÓLK:
ULLARKÁPUR
POPLÍNKÁPUR
DRAGTIR
JERSEYKJÓLAR
POPLÍNKJÓLAR
PEYSUR
KULDABUX UR
PILS
ÚLPUR
HÚFUR
TREFI.AR
FYRIR BÖRN:
STAKKAR
POPLÍNKÁPUR
PEYSUR
BLÚSSUR — PRJÓNASKYRTUR
FYRIR KARLA:
ULLARFRAKKAR
POPLÍNí’RAKKAR
BLÚSSUR
PEYSUR
PRJÓNASKYRTUR
TREFLAR
-X illikiil afsláttur, uieira voruval en nokkru sinni fyrr -x
EVGLÓ, Laugavegi 116