Morgunblaðið - 09.01.1962, Síða 19

Morgunblaðið - 09.01.1962, Síða 19
Þriðjudagur 9. janúar 1962 MORCVTSBLAÐIÐ 19 Herdís leikur hand- leggs- brotin UM KL. 9:30 í gærmorgun, er Herdís Þorvaldsdóttir leik- kona, var á leið á leikæfingu í útyarpinu, varð hún fyrir því óhappi að renna til á bón uðum gangi. Bar hún fyrir sig hendina, með þeim afleiðing- um að handleggurinn brotn- <| aði. Herdís leikur seim kunnugt er Margréti, þjónustustúlku hjá sýslumanninum í Skugga- Sveini. Strax í gærmorgun voru gerðar ráðstafanir til að æfa aðra leikkonu til að taka við. En skömmiu seinna hringdi Herdís til þjóðle.ikhús stjóra og kvaðst mundu leika sitt hlutverk eftir sem áður, en næsta sýning er í kvöld. „Sýningin verður að halda á- fram“ er einkunnarorð leik ara, og þótti það á sínum tíma mikið hreystiverk í Bretlandi —* Járnbrautarslys Frh. af bls. 1. hánn hafi reynt með vasahníf að skera brakið frá konu sem sat við hlið hans. En hún var þá látin. Þá reyndi hann ásamt öðrum hermanni að losa mann, sem var klemmdur milli stál- bita. En hann var þá einnig lát- inn og skyndilega stóðu þeir með fótlegg í höndunum. Seinna settist hann við hlið deyjandi manns og var heldur ekki unnt að bjarga honum. Verzlunarmaður nokkur, sem var í hraðlestinni á leið til vinnu sinnar í Utrecht, skýrði frá því að hann hafi komizt lif- andi úr árekstrinum vegna þess að hann fékk ekkert sæti í lest- inni. Hann stóð í lestargangin- um þegar hann heyrði ærandi hávaða, sá vagninn leggjast sam an og farþegana klemmast fasta í sætum sínum. „Ég var í fremsta vagninum og ég get ekki skilið hvemig ég lifði þetta af,“ sagði hann. Lík hinna látnu verða flutt til kirkju í Utrecht, én þar í borg munu sjálfboðaliðar taka á móti ættingjum hinna látnu. Kauði krossinn í Utrecht hefur opnað sérstaka skrifstofu þar sem upplýsingar em gefnar um elysið og líðan hinna særðu. TVEIR VAGNAR EFTIR Klukkan níu í kvöld höfðu björgunarmenn enn ekki kom- izt inn í tvo vagna og er ótt- azt að 1 þeim séu að minnsta kosti tíu manns. Þá segjast björg unarmenn einnig hafa séð nokkrar konur undir vögnimum, en ekki komizt að þeim enn. — Telja þeir sennilegt að þær séu látnar. Má búast við að yfir 100 jnanns hafi farizt í árekstrinum. Um 1000 manns vinna að björg- un farþeganna. Jan de Quay forsætisráðherra kom á slysstaðinn í dag ásamt nokkrum öðrum ráðherrum og ráðuneytisstjórum til að fylgj- ast með björgunarstarfinu. En ekki er búizt við að því ljúki fyrr en á morgun. ★ Mesta járnbrautarslys sögunn- ar varð í Ölpunum árið 1917 þegar frönsk herflutningalest fór út af teinunum. Með henni fórust um 600 hermenn. Samsongur í Kristskirkju Herdis í hlutverki Margrétar, hjá leikkonunni Vivian Leigh, er hún stóð á sviðinu tveim ur dögum eftir að hún hand- leggsbrotnaði. Og nú ættar Herdís sízt að standa henni á sporði í því. — Utan úr heími Framh. af bls. 10. ísl. króna á ári, og olíulindirnar, sem óðum eru að þverra, gefa af sér svipaða upphæð. ,Ef Indónesar myndu eignast þetta landsvæði, er hætt við að sá vafasami ávinningur yrði Sukarno fjárhagslega um megn, þar sem fjárhagur Indónesa er ekki beysinn. í fyrsta lagi yrði hann að leggja í gífurlegan kostn' að við innrásina á eyna — talið er, að til þess þurfi um 16.000 manna lið — og ströndin er allt annað en árennileg — hrjóstugir klettar, myrkir frumskógar og mýrar. Menn hans myndu þurfa að berjast við a. m. k. 5.000 manna lið Hollendinga við hin erfiðustu skilyrði. Jafnvel þótt innrásin tækist giftusamlega fyrir Sukarno, myndi það veitast hon- um erfitt að stjórna og efla landið, því að hann á í rauninni nóg með sitt eigið vanþróaða land, sem teiur um 95 milljónir íbúa. Sagt hefur verið, að Sukarno hafi verið hvattur til þessa, er Indverjar réðust inn í Goa Portú- gala; en það er allt annað en hlaupið að því að vinna Nýju Guineu. En Sukarno hefur sjaldn- ast látið stjórnast af skynsem- inni einni, og Nýja Guinea gæti Orðið jafnuggvekjandi Og blóðug ur vígvöllur og Laos og Kongó, svo ekki sé tekið dýpra í árinni. — Molotov Frh. af bls. 1. héldu áfram árásum á hann, en ekkert heyrðist frá honum sjálfum. Fyrir hálfum mánuði spurðu fréttamenn Krúsjeff forsætisráð herra um Molotov. Sagði for- sætisráðherrann þá að flokkur- inn væri að rannsaka málið. Engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar. Austurríska sendiráðið í Moskvu sagði í dag að Molotov hefði ekki sótt um vegabréfsárit un þar, en verið gæti að hann hefði enn gilda áritun frá Vin. ÞAÐ er yfirleitt ánægjuefni, þegar tónleikar eru vel sóttir, og sjaldgæft, að ástæða sé til að kvarta yfir of miklu fjöl- menni í tónleikasal. En á sam- söng þeim, sem Kvennakór Slysavarnafélagsins og Karlakór Keflavíkur efndu til í Krists- kirkju í Landakoti sl. sunnudag, brá svo við, að þar var ekki einungis setinn hver bekkur, heldur stóðu menn þétt milli bekkja langt inn eftir kirkj- unni og í forkirkju. Fólk, sem stendur upp á end- ann í þéttri iðandi kös í regn- blautum yfirhöfnum, er ekki í ákjósanlegri aðstöðu til að njóta tónleika. Og lítil von til annars en að það valdi ónæði og trufl- un einnig þeim, sem hafa verið svo heppnir að fá sæti. Hætt er við, að nokkuð margir af þeim, sem þarna voru, hafi ekki haft af tónleikunum það gagn sem skyldi, aðeins vegna þess að alltof mörgu fólki hafði verið hleypt inn í kirkjuna. Eru þetta leið mistök, bæði gagnvart þeim, sem tónleikana fluttu, og hin- um, sem þama voru komnir til að njóta þeirra. Sá, sem þessar línur ritar, hélzt við í kirkjunni aðeins stutta stund og heyrði ekki nema upphaf tónleikanna. Fyrstu lögin, sem kvennakórinn söng, hljómuðu mjög vel, söngurinn var áferðargóður og hreinn, en ef til vill helzt til átakamikill viðkvæmu lagi eins og „Ó, Jesúbarn kært“ eftir Bach. Ein- söngur Snæbjargar Snæbjamar var einnig mjög blæfagur og meðferð hennar á tveimur lög- um eftir Pál Isólfsson látlaus og innileg. Eftir þessa byrjun harmaði undirritaður að geta ekki hlýtt á framhald hinnar löngu og fjölbreyttu efnisskrár, þar sem í vændum var orgel- leikur dr. Páls ísólfssonar, ein- söngur Eyglóar Viktorsdóttur og tvísöngur þeirra Snæbjarg- ar, svo og söngur Karlakórs Keflavíkur ásamt einsöng Sverr is Olsen, og loks samsöngur kór- anna. — Herbert Hriberschek, sem hefir verið söngstjóri beggja kóranna nokkur siðustu ár, stjórnaði þeim á þessum tón- leikum. Jón Þórarinsson. Fyrsti róður línubátanna SANDGEKÐI, 8. jan. — Línubát- arnir komu úr fyrsta róðri á vetr- arvertíð á laugardaginn. Var afl inn frá 3 lestum upp 18% lésit. ■— Guðmundtrr Þórðarson var þeirra hæstur. — P. P. Kenmsla Les með skólafólki tungumál, stærðfræði, eðlis- fræði og fl. og bý undir lands- og stúdentspróf. Dr. Ottó Amaldur Magnússon, Grettisgötu 44 A. Sími 15082. & i fíM 'ISIIIÍ M^^OUNUM- Sölubúð Vesturgötu 15 er til leigú frá næstu mánaðamótum Upplýsingar í síma 17866. Einbýlishús á fallegum stað í Kópavogi til sölu. 1. hæð 4 herb. og eldhús, ris óinnréttað. stór ræktuð lóð. Skipti á 5 herb. íbúð í sambýlishúsi æskileg. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl. Laufásvegi 2. Sími 19960 Bókarastaða Opinber sknfstofa óskar að ráða duglegan og reglu- saman bókara annað hvort strax eða fyrsta apríl. Umsóknir merktar: „Bókari — 7297“, sendist afgr. Mbl. fyrir 20. þ.m. ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf og meðmælum ef fyrir hendi eru. Laun samkvæmt launalögum. Nauðungaruppboð eftir kröfu Árna Gunnlaugssonar hdl., fer annað og síðasta uppboð á Vb. Hrefnu GK 374 fram í bátn- um sjálfum við syðri hafnargarðinn í Hafnarfirði föstudaginn 12. jan. kl. 2 s.d. Sýslumaður Gullbringu- og Kjósarsýslu ÖBYGCI - ENDING Notio aðeins Ford varahfuti FOR.D- umboðið KR. KRISTJMSSON H.F, Suburlandsbraut 2 - Sími; 35*300 Félagslíi Enn er hægt að bæta nokkrum í frúar og old boys flokka Fimleikadeildar Armanns. Æf- ingar hjá frúarflokk er á mánu- dag kl. 9 og Old boys miðviku- dag kl. 7. Fimleikadeild Ármanins. Knattspyrnufélagið Valur, knattspy mu deild. 5. flokkur. Skemmtifundur verður haldinn í félagsheimilinu í dag kl. 3. Bingó, kvikmyndasýning o. fl. Mætið allir Stjómin. Sunddcild Ármanns. Sundæfingar eru hafnar að nýju eftir áramótin og eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18.45—20.15. Sundknattleikur er æfður á mánudögum kl. 21.50. Fjölmennið. Sunddeild Ármanns. Sunddeild KR Sundæfingar hefjasf að nýju í kvöld eftir jólahléið. Þær eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18.45 og föstudögum kl. 19.30. Mætum öll vel og stundvíslega! Nýir félagar tali við þjálfarann, Kristj án Þórisson. Stjórnin Knattspymufélagið Valur, knattspyrnudeild. Meistara- og 1. flokkur. Munið að fyrsta æfing ársins er í kvöld kl. 8.30 í íþróttahúsinu. Fjölmennið stundvíslega. Þjálfari. ■.... ............. ■■ ■ Knattspyrnufélagið Valur, knattspymudeild. 3. flokkur. Athugið að æfingarnar verða framvegis á miðvikudögum kl. 8.30—9.20. Næsta æfing verður þ*S á morgun kl. 8.30. Fundur verður eftir æfinguna. Fjölmenn ið stundvíslega. Þjálfarar. Valur handknattleiksdeild. Æfingar verða framvegis sem hér segir: Þriðjudagar: Kl. 18.50, 2. flokkur kvenna. Kl. 19.40. meistarafl. kvenna. Kl. 21.20, meistara-, 1. og 2. fl. kvenna. Miðvikudagar: Kl. 1940. 3. flokkur karla. Föstudagar. Kl. 18.50 3. flokkur karla. Kl. 20.30, meistara- og 2. fl. kv. Kl. 21.20, meistara-, 1. og 2. fL karla. Sunnudagar: Kl. 11.05, 4. flokkur karla. Stjórnin. Körfuknattleiksdeild Ármanns Æfingar deildarinnar hafa breytzt þannig: Mfl. karla: sunnud. kl. 2 10, Hálogalandi. — miðvikud. kl. 9.30 íþróttahús Jóns Þorsteinssonar. 2. fl. karla sunnud. kl. 1.30, Hálogaland — mánud. kl. 9.20, Langholtsskóli. 3. fl. karla mánud. kl. 8.30, Langholtsskóli — föstud. kl. 9.30, íþróttahús Jóns Þorsteinssonar. 4. fl. drengja miðvikud. kl. 8.45_ Íþróttahús Jóns Þorsteinssonar — föstud. kl. 7.40, Langholtsskóli. Kvennaflokkar: miðvikud. kl. 8 íþróttahús Jóns Þorsteinssonar. Fjölmennið, nýir félagar velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.