Morgunblaðið - 28.02.1962, Síða 9
Miðvikudagur 28. febr. 1962
WORGVNBLAÐIÐ
9
Sögukennarar mót-
mæla kennslubók
FUNDUR sögukennara við gagn-
fræðaskóla i Reykjavík haldinn
að Vonarsíræti 8 í Reykjavík mið
vikudaginn 15. nóvember 1961
samþykkir eftirfarandi ályktanir:
1) í námsskrá fyrir nemendur
á fræðsluskyldualdri, sem Mennta
imálaráðuneytið gaf út árið 1960,
er gert ráð fyrir, að undir ungl-
ingapróf sé kennd mannkyns-
saga í aðeins einn vetur. Fund-
urinn leggur áherzlu á, að það
er alltof stuttur tími. Ef kenna
á mannkynssögu svo, að gagn
verði að, verður að ætla þessari
námsgrein tvo vetur með þremur
kennslustundum í viku.
2) Fundurinn telur ríkja
ófremdarástand að því er varðar
'kennslubækur í mannkynssögu
Og fslandssögu fyrir gagnfræða-
skólana. Ákveðin nefnd er einráð
um það, hvaða kennslubækur
skuli nota á þessu skólastigi og
að því er virðist einnig um það,
hverjir eru fengnir til að semja
þær bækur. Telur fundurinn óvið
unandi annað en sögukennarar
við gagnfræðaskólana séu hafðir
með í ráðum um nýjar kennslu-
bækur, lesi yfir handrit þeirra
og eigi þess helzt kost að kenna
þær í handriti áður en þær eru
að fullu samþykktar sem kennslu
.bækur.
3) Fundarmenn hafa kynnt sér
Mannkynssögu handa framhalds-
skólum eftir Jón Hjálmarsson,
sem er nýkomin út á vegum Rík-
isútgáfu námsbóka. Telur fund-
uiúnn, að sú bók sé hæf nemend-
um, sem lita námsgetu hafa, en
fullnægi nvorki kröfum til lands-
prófs né þeim kröfum, sem gerá
verður til söguþekkingar getu
meiri nemenda til unglingaprófs.
Fyrir þá nemendur telur fund-
urinn heppilega kennslubók í
mannkynssögu eftir Knút Arn-
grímsson og Ólaf Hansson, sem
nú er að koma út í nýrri endur-
skoðaðri útgáfu.
4) Funduri.nn telur, að kennslu
bók sú í íslandssögu eftir í>or-
stein M. .Tónsson, sem kennurum
og nemendum var fengin í hend-
ur síðastliðið haust, sé óhæf
kennslubók fyrir gagnfræðaskóla
og óskar eindregið eftir því, að
hún verði lögð niður.
5) Að gefnu tilefni vill fund-
urinn taka fram, að hann álítur,
að félagsfræðikennsla og starfs-
fræðsla konu ekki sögukennslu
við.
Óskar Magnússon, Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar; Jón Guðna-
son, Gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar; Egill Jónsson Stardal,
Gagnfræðaskóla Austurbæjar!
Hjalti Jónasson, Miðbæjarskóla;
Hákon Tryggvason, Gagnfræða-
skólanum við Vonarstræti; Gylfi
Pálsson, Réttarholtsskóla; Páll
Pálsson, Lindargötuskóla; Sverrir
Kristjánsson, Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar, Sigurður Haukur
Sigurðsson, Gagnfræðaskóla Aust
urbæjar; Björn Jónsson, Haga-
skóla; Lýður Björnsson, Voga-
skóla; Éiríkur Hreinn Finnboga-
son, Hagaskóla; Ingólfur A. Þor-
kelsson, Vogaskóla; Ingólfur
Pálmason, Laugarnesskóla.
Samband vestinga
og gistihú'saeigenda
Meðlimir Sambandp veitinga og gistihúsaeigenda
eru hérmeð minntir á kynnisferð, er farin verður
í dag (miðvikudag) kl. 2 e.h. til Mjólkursamsölunnar
í Reykjavík, til að kynnast þar starfseminni og fram
leiðsluvörurn fyrirtækisins.
Stjórn S.V.G. skorar á alla meðlimi sína í Reykja.
vík og nágrenni að mæta við Mjólkursamsöluna á
ofangreindum tíma.
Skíðaskólinn á ísafirði
Skíðaskólinn á ísafirði tekur til starfa 4. marz n.k.
Skíðaskólinn útskrifar kennara til skíðakennslu.
Skíðaskólinn þjálfar þá er lengst eru komnir í íþróttinni.
Skíðaskólinn er goít hvíldarheimili fyrir allar stéttir fólks.
Uppl. í Reykjavík Flugf. íslands h.f. afgr. og Guðmundur Sveinsson sími 413.
— á Isafirði hjá Þorsteins Emarsson iþróttafulltrúa
Vdrubílð
Viljum selja 4. tonna Dodge vörubíl, árgerð 1952.
I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN
» Sími 11590.
/
l.
T O L E D O
vogir og alls konar kjöt- og fiskvinnslu-
vélar í miklu úrvali.
G. HeSgason & IVSelsted hf.
Raaðarárstíg 1.
Bréfaskápar
(quarto—folio)
Skjalaskápar
Spjaldskrár
AðalumbofS:
ÓBafur GísSason & Co hf.
Hafnavstræti 10—12 — Sími 18370
Yðnr til ánægja
y/'t'-s.w.
BBQU.
svo
svo
svo
svo
fallegt
endingargott
hreinlegt
þægilegt
Leitið upplýsinga hjá
G. Þorsteinsson & Johnson hf.
Grjótagötu 7 — Sími 24250.
Vörður — Hvöt — Heimdallur — Óðinn
Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík verðui fimmtudaginn 1. marz í Sjálf-
stæðishúsinu. — Sætamiðar afh. í skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í dag kl. 5—6.
Húsið opnað kl. 20.00. — Lokað kl. 20,30.
1. Spiluð félagsvist
2. Ávarp Magnus Jóhanness, bæjarfulltrúi.
3. Spilaverðlaun. afhent.
4. Kvikmyndasýning.
Skemmtinefndin.