Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 10

Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 10
10 MORGHNBL ifílb Miðvikudagur 28. febr. 1962 Matthías Jochumsso Fréttabréf '*1 skáldsins um heiidarútgáfu ísafoldar prentsmiðju h.f. á ritum þess, og um Skugga-Svein 100 ára. HilRRA skáldkonungur — elsku legj vin! í trausti þess að þú haf;r enn lifandi áhuga fyrir öllu mann- legu, svo á jörðu sem á himnum, hripa ég þér þessar línur um bókmenntalega afkomu þína vor á meðal, Íslendinga, um þessar mundir. Fáum dögum fyrir jól sendi ísafoldarprentsmiðja n.f. frá sér 8. bindið af ritum þínurn í nýju heildarútgáfunni, sem hafin var árið 1956. Tæplega heifur það verið tilvilj un ein eða út í bláinn hjá Pétri Ólafssyni að láta 8. bindið, sem inniheldur frumsamin leikrit þín, koma út núna. Hann hefur munað hvað gerðiist í febrúar- mánuði 1862 — að nú liði að merk isafmiæli þíns baldna sonar Og rómsterka öldungs, Skugga- Sveins. Enda hefur Skuggi látið að sér kveða að undanförnu, þvi ekki er nóg með það, að hann hafi sagt Pétri í ísafold fyrir verkium og stjórni með honum útgáfustarfinu, heldur hefur hann þessa dagana tekið með grenjandi skyndiáhlaupi nokkur helztu menningarvígi höfuðistað arins, og heldur þeim með bra- vör og elegans svo vikum skipt ir: Þjóðleikhúsi, Menntaskóla- srveinum og Háskólabíói. Stór- kostlegt, Matthías! Geri aðrir betur. • En hvörflum nú andartak frá syni þínum, hinum 100 ára gamla og ódauðlega, meðan ég rifja upp hvað Pétur hefur ver ið að sýsla við rit þín að undan- förnu. í>að byrjaði 1956, eins og ég gat um áðan. Þá komu frumisömdu kvæðin, bók upp á 740 blaðsiður. Árni Kristjánsson slaghörpuleik arinn góði bjó hana undir prent un, af jafn umhyggjusamri ná- kvæmni og hann býr sig undir sóló-konserta sína, — vandvirkn asti maður í heimi. Mætti ég gerast svo djarfur að segja þér hvaða visa í þessari stóru bók kemur mér oftast í hug eftir lesturinn? — Það er þessi vísa úr erfiljóðum eftir skipherrann Júlíus, á blaðs ðu 376: Viku af viku, nótt og dapran dag dauðans engill söng þitt vöggulag, söng og skenkti sárra kvala vín, söng og spann þitt hvita dáins-lin. Loks kom heilög hönd, sem um þig bjó, himnesk röad, er sagði: Það er nóg. Sama ár, 1956, kom út í þrem bindum þýðing þín á Sögum íer læknisins eftir gamla Zacharías Topelíus hinn finnska. Þessa löngu sögu las ég spjaildanna milli upphátt fyrir heimilisfóik ið í Guttormshaga á kvöldvök- unum þegar ég var barn. Karl XII. — æ, að hann skyldi ekki heldur falla dauður með öllu sínu liði á bökkum Dnéprfljóts við Poltava, en leita kaldra griða og gestrisni hjá óvinum lrristn- innar suður í Miklagarði! En fáar skáldsögur eða engar hef ég séð í fallegri útgáfu en Sögur herlæknisins eru í þessari nýju ísafoldarútgáfu, myndskreytt og fagurlega bundin. Ljóðskáldið Snorri Hjartarson bjó bækurnar til prentunar. Næst kom röðin að þýddum ljóðum þinum, það var 1958. Vin ur þinn Árni Kristjánsson sá u-m útgáíuna. Þetta bindi er 710 blað síður. Nú stend ég uppi ráðalaus* — að segja í fáum orðum það sem segja ber. Mér dettur þetta í hug: Stórt væri skarðið í menntun ís- lendinga og bókmenntalegu upp- eldi þrjá síðustu aldarfjórðung ana, ef þú hefðir ekki gefið okk Matthías Jochumsson Ijóðaþýðingar þínar. Þeir hafa sett Friðþjófssögu Tegnérs fremista, þetta alþjóðlega iista- verk, sem þú gerðir svo fullkom- lega íslenzkt, að það rann okkur í roerg og blóð ekki síður en Njála og passíusálmarnir. Enn í dag syngja börn okkar fullum hálsi: Vorið kemur kvaka fuglar, kvistir grænka, sunna hlær, ísinn þiðnar elfur dansa ofan þar til dunar sær; rósin gegnum reifa brosir rjóð og hýr sem Freyju kinn; brjóstum manna vorið vekur vonarhlýjan unað sinn. En ekki fullyrði ég náttúrlega að þau viti það öll, að þetta sé upphafið á 19. kafla Friðþjófs sögu. Síðasta stórvirkið í þýddum ljóðum er Mannfreð eftir Byron Bretatröll. Um þá þýðingu segir okkar lærði bókmenntaprófessor, Steingrímur J. Þorsteinsson: „Þetta er ein frábærasta ís- lenzk þýðing, sem nokkru sinni hefur verið gerð“. Skemmtilegur bókarauki er Ávarp þitt til lesendanna og for- máli fyrir fyrstu útgáfu Frið- þjófssögu. Þetta er í reyndinni snjöll og stórfróðleg ritgerð um bókmenntir og andlega strauma á Norðurlöndum. Næsta bindið, sem ísafold gaf út af ritsafni þíinu var sjálfsævi- sagan: Sögukaflar af sjálfum mér. Árni Kristjánsson sá um útgáfuna sem fyrr, bindið kom út 1959. Bftirmála og viðauka við sögukaflana ritar þinn ágæti son ur, Steingrímur Matthiíassön læknir. Segir þar nokkuð frá glímu þinni við síðasta stórvirki ævinnar. Ennfremur frá veikind um þínum og banameini, vinsæld um, alþýðuhylli og þjóðhylli, samsæti og saroúð, andláti cg út för. Þessi bók er 447 blaðsíður. Sjöunda bindið í ritsafni þínu kom út 1960. Það er 391 blað- síða og hefur inni að halda þau fjögur leikrit Shakespeares sem þú þýddir: Macbet, Hamlet, Rómeó Og Júlíu og Óteiló. Um fangbrögð þín við andagift og skáldlist brezka ofurmennisins eru ekki lengur skiptar skoðanir. Shakespeare hæfði þér og þú hæfðir honum. Þetta er 3. prent un leikritanna. Bókarauka, fag- lega ritaðan og fróðlegan, hefur ungur leikhúsfræðingur, Sveinn Einarsson fil. kand., skrifað, og nefnir ritgerð sína: „Leijchúslíf á Englandi á dögum Shakespeai es". Þá er komið að 8. bindi ritsafns ins. Það kom út fyrir síðustu jól, svo sem fyrr er getið. Það er 536 blaðsíður plúis 47 síður, og enn sá Árni Kristjánsson um út- gáfuna. Hérna eru saman komin öll frumsamin leikrit þín og leik þættir, átta talsins, ef Útilegu- mennirnir og Skugga-Sveinn eru ekki taldir sama leikritið. Um leikritun þína skrifar Steingrímur J. Þorsteinsson langa og gagnmerka ritgerð, um 40 blaðsíður að lengd, hún er prentuð fremst í bókinni. f þessari ritgerð trúi ég að fært sé saman allt sem vitað er og máli skiptir um þessa grein skáldskapar þíns. Langmerkiileg astar eru -upplýsingarnar um sköpunarsögu Útilegumannanna og Skugga-Sveins, og svo aðdrag andinn að ritum Jóns Arasonar og glíma þín við það verkefni, ásamt viðleitni þinni til að koma leikritinu á framfæri. Við sjáum þig á öðru leitinu vinna fræga sigra, þar sem þú bjóst ekki við miklu, og á hinu leitinu verða fyrir harkalegum vonbrigðum, þar sem þú væntir hvað stærstra sigra. Svona er að vera skáld: Það er eins og að spila fjárhættu spil um hjarta sitt — að yrkja er að kasta teningum: Vinning- urinn er aldrei viss. En hvort Jón Arason á eftir að koma upp eða ekki, eitt er Skugga-Sveinn held ur velli. Mér er sagt að Mennta- skólapiltamir þræði frumgerð leikritsins og farist það af snilld, láti hinn töfrandi og barnslega einfaldleika njóta sín til fulls. Aftur á móti sé Þjóðleikhúsið með dýra skrautútgáfu og var- iationir af verkinu á sinum fjöl- um. Sumir segja: Þetta er ekki í anda Matthíasar, gef oss heldur Útilegumennina einfalda og ó- mengaða! En aðrir segja: Semj- um óperu upp úr þessu þjóðlega verki — nýja My fair Lady! En enginn segir: Burt með æsku- verk Matthíasar úr íslenzkum leikhúsum. Það dettur engum í hug, heldur fyllir fólkið húsin viku eftir viku til að gleðja augu sín við hið 100 ára gamla sjónar spil þitt, en deilir aðeins um hvort eigi að setja það á svið svona eða hinsegin. „Þetta er að kunna vel til vígs og vera landisins hnoss“, eins og þú hefur eftir Runeberg og Sandels um Svein Dúfu. En svo að fleiri geti nú tekið til máls um gerð Útilegumann- anna og Skugga-Svein heldur en þeir sem ná í aðgöngumiða að Lœknisráð vikunnar Practicus ritar um: Ingi vonn 50 skókir n Akur- eyri Ingi R. Jóhannesson brá sér til Akureyrar um helgina til að tefla við Akureyringa. Varð þetta mik il frægðarför fyrir Inga. Á laugardaginn fcefldi hann á 21 borði við nemendur í Mennta skólanum. Vann Ingi 20 skákir en einni lauk með jafntefli. Á sunnudag telfdi Ingi á 29 borðum við ýmsa skákmenn. Ingi vann 23 skákir, 4 urðu jafn- tefli en 2 tapaði Ingi. Þeir sem unnu voru Ólafur Kristjánsson og Balvin Kristjánsson. Á sunnudagiskvöld telfdi Ingi við 10 meistaraflokikismenn. Ingi vann 7 skákanna, tapaði einni en 2 urðu jafntefli. Sá sem vann var Halldór Jónsson Norður- landismeistari. Jafntefli gerðu þeir Albert Sigurðisson cg Júlíus Bogason. Sjúkdómurinn ræðst eink- um á konur, sem eru að kom ast á miðjan aldur. öruggast er að greina sjúkdóminn með mælingu á efnaskiptum. Meðferðin í fyi*»tu er lyf- lækning með efni, sem nefn- ist methylfchiouracil og dceg- Basedows - sýki SJÚKDÓMUR sá, sem kennist við Basedow, á heima í skjald kiritlinum og er að einhverju leyti arfgengur .Orsök hans er ekki þekkt, en rálrænar verkanir virðast oft eiga nokk urn hlut að máli. Fyrstu ein kennin eru oft þau, að sjúkl ingurinn er þreyttur og ergi- legur. Sjúklingar þessir eru órólegir, handóðir cg fljótir til gráts. Þeir hafa oft glansandi augu .Mjög einikennandi er að þessir sjúklingar finna sjald an til kulda og fá oft hita- köst. Húðin er heit og rök og líkamshitinn oftast lítið eitt hækkaður. Púlsinn er nærri alltaf hraðúr, sjúklingarnir kvarta oft um hjartslátt. Fín gerður skjálfti sést á tungu og fingrum, sjúklingnum sjáli- um finnst þetta vera titringur og óróleiki. Nærri alltaf finnsc stæikkun á skjaldkirtlinum, svonefnd struma. Sjúklingarnir verða oft fyrir óþægindum af þess um sökum, og hafa oft hósta. í h.u.b. belming sjúkl inganna eru augun stór, glans andi og virðast sitanda mikið fram. Einkenni Von Graefes. Þeg- ar augunum er rennt niður á við fylgja augnlokin eftir í heilbrigðu fólki. Þegar starfsemi skjaldkirtilsins er aukin hverfur þessi hreyfing jafnvel þótt lítið eða ekk- ert beri á að augun séu fram stæð. Þegar fingrinum er haldið í hæð við hársræturn ar og hann hreyfður hægt niður, eins og á myndinni sézt, fylgja augun hreyfing- unni eftir og sjá má hvítuna ofan við sjáaldrið. 0 0 0 0,0 0 0 00 0 0 00 0 0 Þj óðleikhúsinu og Háskólabíói, er ekki tilvalið fyrir þá að fletta upp í 8. bindi RitEafnsms, þar sem báðar gerðir leiksins eru prentaðar? — Þar að auki er bókin augnayndi að ytri frá- gangi. Herra skáldkonuna„r, þár mun nú finnast nóg komið af svo góðu. Fyrirgefðu fljótaskriftina. í febrúarmánuði 1962, Þinn einlægur Guðmundur Daníelsson. Fjárhagsáætlun Keflavíkur Fjárhagsáætlun Keflavíkur hef ur nýlega verið samþykkt og eru niðurstöðutölur kr. 17.3 milljónir. Þar af eru áætluð útsvör 13,9 millj. Útsvarsupphæðin er 13,5% hærri en árið áður, sem stafar af fjölgun gjaldenda, en útsvör verða lægri en árið áður miðað við sömu tekjur. Helstu gjaldaliðir á fjárhags- áætlun eru þessir: Lýðtryggingar og lýðhjálp .. Menntamál .... Styrkir til menningarmála Heilbrigðismál .. Þrifnaður .. .. Framfærslumál Löggæzla .. .. Skipulagsmál .. Eldvarnir og öryggismál .. Viðhald gatna .. Verklegar framkv. Afb. af lánum og vextir........ Til áhaldakaupa Stjórn kaupstaðarins Óviss útgjöld .. .. 2.900.000.00 1.300.000.00 375.000.00 675.000.00 585.000.00 810.000.00 728.000 00 470.000.00 256.000 00 645.000 00 5.735.000.00 1.100.000 00 710.000.00 775.000.00 230.000.00 Við síðari umræðu fjánhags- áætlunar kom minnihluti Alþýðu flokksins með nokkra rtillögur til hækkaðra útgjalda og lækk- aðra tekna, en þær tillögur náðu eðlilega ekki fram að ganga. — h.s.j. — ur úr framleiðslu skjaldkirtils hormónsins. Verði enginn ár- angur af þessu ma reyna upp skurð, og þá er fjarlægður meiri hluti skjaldkirti/lsins, eft ir viðeigand lyfjameðferð. Margir læknar vilja þó heildur skera upp strax, vegna þess, að oft er erfitt að fá sjúkling ana til að mæta til áframihald andi eftirlits, eftir að þaim finnst þeir vera orðnir alheil brigðir. Ef sjúklingarnir hætta þá sjálfir að taka lyf sín, verða þeir veikir á ný og leita þá til læknis. Meðferð in verður þá aðeins fram- kvæmd með höppum og glöpp um, en í þeim tilfellum, þar sem lyfjameðferðin er fram- kvæmd á réttan hátt næst eins góður árangur og við skurðaðgerð. Augun hætta oftast að vera framstæð eftir skurðaðgerð- ina eða lyfjameðtferðina. Þó eru undantekningar frá þeirri reglu, augun taka að standa meira og meira út, þrátt fyrír rétta meðferð. Þetta er mjög alvarlegt einkenni, og þá á sjúklingurinn að leita tiil lækn is við fyrsta tækifæri. Frum orsök þessa fyrrbrigðis er ó- þekkt, en sem stendur er reiknað með, að ákveðnu heiladinigiuiLshonmóni sé um að kenna. Reynt hefur verið að taka burt heiladingulinn, og hefur það bætt úr fyrir sum- um. Einnig má reyna, að fá meira rúm fyrir augun með því að taka „þakið“ af augn- tóttunuim. Um það bil 90% allra með aukna skjaldkirtilsstarfsemi læknast, annaðhvort með lyfj um eða uppskurði. Lyfjameð- ferðin tekur heilt ár, minnsta kosti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.