Morgunblaðið - 28.02.1962, Síða 11
Miðvikudagur 28. íebr. 1962
MORGV1S BL AÐIÐ
11
KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR
yí^p^'trhy
KVIKMYNDIR
AUSTURBÆ JARBÍÓ:
SKKIFAR UM:
>
W
KVIKM'SNDIR * •
Dagur í Bjarnardal.
MYND þessi, sem. er austurrísík
og tekin í litum er byggð á skáld
sögu eftir Trygve Gulbranssen,
og hiefur sagan komið út í is-
lenzkri þýðingu. Segir þarna frá
stórbóndanum í Bjarnardal, semn
Dagur heitir. Hann er gajnald
xnaður, haxðlyndiur, sérgóður og
tillitslauis við aðra, en undir
kaldhryissingnum búa þó sterkar
tilfinningar. Dagur hefur alla
sma löngu ævi hugsað um það
eitt að stæikka jörð sína og efl-
ast að völdium og veraldarauði,
ekki sízt til þess að geta boðið
byrgin nágranna sínum von
Gall, sem býr á- herrasterinu
Borg. Bex gamli maðurinn þung
an hug til von Gall, en þó eink
um til Elisabetar dóttux hans,
sem er hrokafull stúlka, sem
aldrei hefur dregið dul á fyrir
litningu sina á þeim BjarnardaiLs
bændium. Dagur gamlj á tvo syni
Þóri, sem er fljóthuga og ofsa
fenginn og ærið kvenhoillur, og
Dag, sem er hæglátur drengiskap
armaður og djarfur veiðimaður.
Meginefni myndarinnar eru átök
in milli þessara nágranna og þau
átök eru mikil og verða öriaga
rík áður en lýkur, svo sem hlaut
aC verða, þar sem annarsvegar
er hin hrokafulla og ósveigjan-
lega dóttir von Gall’s og hins
vegar hinn skapmikli og óbil-
gjarni Bjarnardalsbóndi, sem
hatar Elísabetu, sem hann telur
að eigi sök á dauða I>óris, eftir
lætissonar hans. Til þees að heifna
sín á Borgarfólkinu, notar Dagur
sér fjárþröng von GaU’s og kaup
ir veðskuldabréf og víxla, sem
vo Gall hefur neyðst til að selja
til þess að geta haldið eigninni.
Dagur hefur því lobum öll ráð
von Gall’s í hendf sér. En þegar
ó að selja Borg á uppboði grípur
Elísabet til örþrifaróða . . . Von
Gall, stendur nú uppi allslaus og
einmana en óbilgirni og harðlyndi
Dagis gamla hefur einnig gert
honum lífið erfitt og gleðisnautt
þrátt fyrir hina fjárhagslegu
Velgengni hans. Að lokum leitar
hann af veikum mætti upp í
fjallakofann til Dags sonar síns
óg Aðalheiðar bonu hans og deyr
þar rólegur, er hann heyrir að
nýfæddúr sonur þeirra hjónanna
á að hljóta nafn Þóris sonar
hans.
Mynd þessi er mjög áhrifamik
il, enda stórbrotið fólk, sem þar
beyr hatramma baráttu unz yfir
lýkur. Aðalpersónuna, Dag
gamla leikur Gert Fröbe, stór
vexti og svipmikill eftir því. Er
leikur hans allur þróttmikili og
heilsteyptur. Elísal>etu von Gaili
Ieikur Anna Smolik og fer einn
ig afburðavel nB&ð það hlutverk.
Aðrir leikendur fara og vel með
hlutverk sín. í myndinni eru fagr
ar landslagsmyndir teknar í
Noregi.
STJÖRNUBÍÓ:
Susanna.
Þessi sænska mynd fjallar um
hið óholla sloemmtanalif ung-
linga eins og það gerist í Sviþjóð
og reyndar víða um Iieim. Er sagt
að myndin byggist á raiunveru-
legum atburðum, en höÆundar
hennar eru læknishjónin Elsa og
Kit Colfach.
Aðailpersóna myndarinnar er
kornung stúlka, Susanna að
nafni. Henni leiðist í skólanum
ög heima hjá sér er Ivún ein-
mana. Því að foreldrarnir eru
uppteknir af samkvæmdislífinu og
hafa því engan tíma aiflögu til að
6inna þessari dótur sinni, sem
er á svo viðkvæmum aldri. Af
þessum ástæðum liendir Susanna
í vondium félagsskap, þar sem
unglingarnir, piltar og stúlkur
eyða öllum stundum við tryllta
og æsandi jazz-músik, dans Og
daður, en þjóta þess á milli meira
og minna drukkin í biXum. Fyrir
Súsönnu endar þetta á hörmuleg-
an hátt. Hún er með „vini“ sín-
um, Óla, í bifreið hans og hann
er drukkinn við stýrið, þau lenda
í árekstri, er veldur dauða þess
sem var í hinium bílnum, og sjáXf
eru þau liættulega limlest og
farið með þau í sjúkrahús. Sús-
önnu er í fyrstu vart hugað líf.
Að lokum batnar henni þó og
hún fer heim til sán. En hún
breyst svo við áfallið að hún hef-
ur engar hömlur á sér og fleygir
sér út í æðisgengið lauslæti. Hún
verður barnshafandi með Óla og
hann giftist henni, enda þykir
honum vænit um hana þrátt fyrir
allt. En hjónaband þeirra er allt
í molum, því að hún heldiur á-
fram hinu tryllta líferni sínu.
En að lokuim verður það móður-
ástin í brjósti hennar er beinir
lífi hennar á rétta brauit.
Mynd þessj er geyisi áhrifa-
mikil, enda er hún tímabær og
alvöruþrungin áminning og að-
vörun til æskufólikis nú á dögum.
Ættu því sem flestir unglingar
að gera sér ferð í Stjörnubíó og
sjá myndina. Hún er auk þesisa,
ágætlega leikin. Einkum er þó
leikur Susanne Ulfsater í hlut-
verld Súsönnu afbragðsgóður,
eðlilegur og sannfærandi. Einnig
eru sýndar í myndinni miklar
skurðaðgerðir og barrtsíæðing.
Eg mæli eindregið með þessari
óvenjulega athyglisverðu og lær-
dómsriku mynd.
BÆJARBÍÓ:
SAGA UNGA HERMANNSINS
ÞETTA er rússnesk verðlauna-
mynd. Leikstjóri er Grigori
Clrrukari, þekktur víða um heim
fyrir listræna leikstjórn. Hann
hefur einnig skrifað handritið
ásamt Valentin Yezhov. Hér er
ekki um venjulega stríðsmynd
að ræða, heldur sögð saga ungs
hermanns, Alyosha, sem vegna
hernaðarafreks fær orlof til þess
að heimsækja móður sína, og
á leiðinni til hennar gerast þeir
atburðir, sem myndin segir frá.
Atburðarásin er hvorki hröð né
fjölbreytileg, en hún lýsir vel hin
um unga hermanni, mannkostum
hans, skyldurækni og hreinu hug-
arfari, og jafr.framt lífi fólksins,
sem er meira og minna þrúgað
af ógnum stríðsins og kvíða fyrir
örlögum ástvina sinna, sem kall-
aðir hafa verið á vígvöllinn. Á
leiðinni hittir AlyOsha unga
stúlku, Shura, og verða þau sam-
ferða í vöruflutningalest. Hún
verður hrædd við hann í fyrstu,
en sér brátt hver ágætismaður
hann er. Þau fella hugi saman
og þegar þau skilja Iirópar hann
til hennar hermannaheimilisfang
sitt. Alyosha hittir nú móður
sína og verður með þeim innileg-
ur fagnaðarfundur. En hann á eft
ir aðeins nokkrar mínútur af or-
lofi sínu. Alyosha verður að slíta
sig úr faðmlögum móður sinnar,
— en hún stendur við veginn og
horfir á eftir bílnum, sem flutti
hann á brott.
Mynd þessi er nokkuð þung og
drungaleg eins og margar rúss-
neskar myndir, en þó er yfir
henni aðlaðandi listrænn blær.
Og aðalhlutverkin eru ágætlega
Ibúðir til sölu
í sambýlishúsi við Kleppsveg eru til sölu mjög rúm-
góðar 3ja—4ra herbergja íbúðir. Eru seldar með full
gerðri miðstöð, sem er komin nú þegar, með tvö-
földu gleri og sameign inni múrhúðaðri. Fullgerð
húsvarðaríbúð fylgir. Hægt er að fá íbúðirnar múr-
húðaðar á skömmum tíma, ef óskað er. íbúðirnar
eru í fullgerðu hvarfi með verzlunum og öðrum
þægindum, Hitaveha væntanleg. Hagstætt verð, ef
samið er strax.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.,
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4 — Sími 14314 og 34231.
Lagerpláss
. 150—200 ferm. að stærð óskast til leigu.
Upplýsingar í snna 22973.
I B li Ð
Góð - íbúð óskast, 3—4 herb. helzt innan Hring-
brautar. — Upplýsiugar í síma: 1-21-76.
leikin. Vladimir Ivashov leikur
Alyosha og Shuru leikur Shanna
Prokhorenko. Þau eru bæði nem-
endur við kvikmyndaskólann í
Moekvu. Er þetta fyrsta hlutverk
þeirra og bendir ótvírætt til þess
að þau búl yfir góðum leikgáf-
um.
Myndin hefur hlotið mörg verð
laun, meðal annars á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes, í San
Francisco og í Tékkóslóvakíu.
NÚ fer að líða að þvi að
flugturninn nýi á Reykja-
víkurflugvelli verði full-
byggður. Þessa mynd tók
ljósmyndari blaðsins, Ól. K.
Mag., í sl. viku. Þá var
verið að vinna að því að
setja upp glerkúpulinn,
þaðan sem flugumferðar-
stjórnin fær gott útsýni
upp í geiininn og út yfir
völlinn.
HEMCD
HflklL
VERÐLÆ8CKIJN
Næstu daga seljum
við sterkar og vand-
aðar BAÐVOGIR
með 25% afslætti.
Grípið tækifærið og
eignist góðan hlut,
MAYONNAISE
SANDWICH SPRED
F yrirligg j andi
I. Brynjólfsson & Kvaran
Jafnan fyrirliggjandi
TVÍHERTIR AMERÍSKIR STÁLBOLTAR MEÐ FÍNU OG
GRÓFU GENGI. TVÍHIíRTIR SÆNSKIR OG ÞÝZKIR
STÁLBOLTAR MI.Ð MILLIMETRA GENGI — RÆR —
HÁRÆR — SPENNISKÍFUR — FLATSKÍFUR — BRETTA-
SKÍFUR.
Afgreiðum af lager jafnskjótt og pantanir berast.
Sendum gcgn póstkröfu um land allt.
BIÐJIÐ U M VERÐLISTA
Umboðs- & heildverzlun
Brautarholti 20 — Reykjavík
Sími 1-51-59.
ISÓL HF.