Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 12

Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 12
12 MORGVNBLAÐiÐ Miðvikudagur 28. febr. 1962 \ Otgefandi: H.f Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (átim.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: í).ðalstræti 6. Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 3.00 eintakið. BÆTT AÐSTAÐA ÞJÓÐARBÚSINS Innflytjendum til Ástralíu fækkar í yfirlitsgrein dr. Jóhannes- ar Nordals í Fjármálatíð- indum, sem birt var hér í blaðinu í gær, eru í stuttu máli dregin upp mjög glögg mynd af þeirri þróun, sem gerzt hefur í íslenzkum efna- hagsmálum sl. tvö ár. Þar kemur það fram, að greiðslu jöfnuður við útlönd hefur á árinu 1961 í fyrsta skipti síð- an frá stríðslokum orðið hag- stæður. Um þetta kemst greinarhöfundur m. a. að orði á þessa leið: „Þessi hagstæði jöfnuður kemur m. a. fram í því að gjaldeyrisstaða bankanna hef ur batnað stórlega, enda er nú Ijóst að náðst hefur hag- stæður greiðslujöfnuður í heildarviðskiptum þjóðarbús ins við útlönd með vörur og þjónustu. Nemur hinn hag- stæði greiðslujöfnuður veru- legri upphæð, eða samkvæmt bráðabirgðaáætlun um eða yfir 200 millj. kr. og er þetta fyrsta árið, síðan styrjöldinni lauk, sem ekki hefur verið greiðsluhalli á viðskiptum við aðrar þjóðir.“ Hér er vissulega um merki lega staðreynd að ræða, sem sýnir á ótvíræðan hátt heilla vænleg áhrif viðreisnarstefn- imnar. Síðar í grein sinni bendir dr. Jóhannes Nordal á það, að gjaldeyrisstaðan batnaði á árinu 1961 um 400 millj. kr. eða um allmiklu hærri upphæð en nemur hinum á- ætlaða greiðsluafgangi. Staf- ar það einkum af tvennu. í fyrsta lagi voru á árinu not- aðar 85 millj. kr. af óaftur- kræfu framlagi frá Banda- ríkjunum, og í öðru lagi juk- ust stutt vörukaupalán inn- flytjenda um 52 millj. kr. Hins vegar jukust samtímis birgðir af útflutningsafurð- um í landinu mjög verulega á árinu, eða um 186 millj. kr. 1 niðurlagi greinar sinnar bendir dr. Nordal á að árang ur sá, sem náðst hefur und- anfarin tvö ár í því að bæta aðstöðu þjóðarbúsins út á við sé vissulega mjög mikil- vægur. Enn vanti þó allmikið á að íslendingar hafi eignazt nægilegan gjaldeyrisvara- sjóð, þegar tillit sé tekið til hinna miklu erlendu skulda og þeirra áfalla, sem afla- brestur og verðfall hafa hvað eftir annað leitt yfir þjóðina. Engum hugsandi Islendingi getur blandazt hugur um það, að til þess ber brýna nauðsyn að haldið verði á- fram framkvæmd þeirrar stefnu, sem núverandi ríkis- stjórn hefur markað í efna- hagsmálunum. Með henni hefur tekizt að skapa jafn- vægi í peningamálum innan- lands og hagstæðan greiðslu- jöfnuð út á við. Það er bein- línis frumskilyrði þess að unnt verði að halda áfram áframhaldandi uppbyggingu og framförum í landinu að ekki verði á ný horfið á braut verðbólgu og upplausn ar. í kjölfar verðbólgustefn- unnar fylgir ævinlega geng- isfelling og þverrandi trú á gjaldmiðilinn. íslendingum er nú höfuðnauðsyn á því að sparifjármyndun haldi á- fram að aukast og grundvöll- ur íslenzkrar krónu að treyst ast. — ÚRSUTIN í PRENTARA- FÉLAGINU fTrslit stjórnarkosningarinn- ar í Hinu íslenzka prent- arafélagi er enn eitt áfallið fyrir kommúnista og Fram- sóknarmenn. Lýðræðissinnar fengu nú frá 178 atkv. til 197 atkv. í félaginu. En þeg- ar síðast var kosið þar um stjórn, fengu þeir 146—167 atkvæði. Kommúnistar og Fram- sóknarmenn fengu nú hins vegar 47—63 atk., en fengu síðast 59—82 atkv. í prent- arafélaginu er um einstakl- ingsbundnar kosningar að ræða. Fylgi niðurrifsbandalags- ins, kommúnista og Fram- sóknarmanna í Hinu íslenzka prentarafélagi heldur þannig ört áfram að hraka. For- mannsefni lýðræðissinná er nú kosinn með 178 atkv. en mótframbjóðandinn af hálfu kommúnista og Framsóknar- manna fær aðeins 63 atkv. Frambjóðandi lýðræðissinna til gjaldkerastarfs í prentara félaginu fær 197 atkv. en frambjóðandi kommúnista að eins 47. atkv. í Iðju, félagi verksmiðju- fólks, töpuðu kommúnistar og Framsóknarmenn í kosn- ingunum um síðustu helgi hvorki meira né minna en 168 atkvæðum miðað við stjórnarkosningamar í fyrra. Rík ástæða er til þess að fagna þessari þróun. Óbeit íslenzks almennings og fólks- ins innan verkalýðsfélaganna á hinum alþjóðlega komm- únisma er að firra kommún- í FYRSTA skipti síðan innflytj- endaáætlunin kom til fram- kvæmda fyrir meira en tíu ár- um, eru áströlsk yfirvöld farin að efast um, að takmarki þeirra, 20 milljónum íbúa í lok aldar- innar, verði náð. Ibúafjöldi Ástralíu hefur aukizt frá 8 millj. í lok striðsins upp í rúmar tíu milljónir, en útlitið er nú ekki uppörvandi. Tala innflytjenda árið 1961—62 er áætluð 115,000 en átti að verða 125,000. En þessi 10 000 manna halli versnar við það, að fleiri og fleiri innflytjendur snúa nú aftur til heimalands síns. Nettó aukning á ibúatölu Ástralíu af völdum innflytjenda ista og fylgifiska þeirra fylgi og trausti. ÓLÍKT HAFAST ÞEIR AÐ Á valdatímum vinstri stjórn arinnar dró mjög úr stuðningi hins opinbera við húsnæðisumbætur í landinu. Flokkar vinstri stjómarinnar höfðu að vísu lofað að stór- auka þennan stuðning. En á öðrum fjórðungi ársins sem leið varð aðeins 14 258, og aukn- ingin féll niður í 9770 á þriðja fjórðungnum. Aðrar tölur sýna, að heildarfjölgunin vegna inn- flutnings og fæðinga umfram dauðsföll var 214 555 árið 1959, 231 997 árið 1960 en aðeins talin 210 000 á síðasta ári, en lokatölur fyrir það ár hafa enn ekki verið gefnar út. Ástæðurnar fyrir þessari stöðn- un eru aðallega tvær. Sú fyrri er efnahagsástandið, og margir telja, að stjórnin eigi sök á því. Síðan stjórn Menzies létti af inn- flutningshöftum og seinna, fyrir 15 mánuðum, dró úr útlánum banka og eyðslu til að vega á það loforð var svikið eins og öll önnur. Núverandi ríkisstjórn hef- ur fyrir skömmu flutt frum- varp um að hækka lán hús- næðismálastjórnarinnar úr 100 þús. kr. í 150 þús. kr. Jafnhliða er gert ráð fyrir að heimild Landsbankans til þess að gefa út skuldabréf séu aukin úr 100 millj. kr. í 150 millj. kr. Ennfremur legg ur ríkisstjórnin til að Bygg- móti alvarlegum viðskiptaihalla við útlönd. hefur atvinnuástand- ið farið síversnandi. Tala skrá- settra atvinnuleysingja hefur aukizt úr 56 000 í 115 000, og hef- ur það í sjálfu sér ekki verið skelfilegt, en það hefur dregið mikið úr trausti almennings. Atvinnuleysisaukningin hefur eyðilagt mikið innanlands og enn meira utanlands, þar sem mynd Ástralíu, sem lands með hrað- vaxandi iðnaðarmátt og ótak- mörkuð tækifæri, hefur fölnað sorglega mikið. Svo virðist sem ríkisstjórnin, sem aðeins fékk tveggja atkvæða meirihluta í fulltrúadeildinni f síðustu kosningum, hafi lært af reynslunni. Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd með fulltrúum iðnaðar, banka, verzlunar og hinna mikil- vægu ullar-, kjöt- og mjólkur- afurða framleiðsluhópa, og er nefnd þessi stjórninni til aðstoð- ar við að undirbúa „leiftur" áætl- un, sem er ætlað að örva efna- hagslíf þjóðarinnar og endur- vekja trúna á hina „ótakmörk- uðu Ástralíu". eins og hún var auglýst fyrir nokkrum árum. Um leið er stjórnin að herða áróður sinn fyrir auknum innflytjenda- straumi, ekki aðeins frá Bret- landi, heldur einnig frá löndum eins og Spáni. í Canberra vona menn, að þess- ar aðgerðir endurveki inn- flytjendastrauminn, eins og hann var í byrjun 6. tugsins. En nýtt og óútreiknanlegt atriði er komið fram, sem þegar hefur dregið verulega úr innflytjendastraumn um frá Evrópu. Þar er um efna- hagsbandalagið að ræða. Nýlegar rannsóknir óopinberra aðila hafa sýrit, að í Hollandi, Vesturþýzkalandi og Ítalíu er hraðvaxandi iðnaður, sem skortir vinnuail. Lífskjör og vinnulaun eru góð, og löngunin til að byrja nýtt lif í nýju landi fer þverr- andi. Þjóðum þessara landa og Bretlands er Ástralía ekki sama óskaland og hún var fyrir fimm árum. Stofnun efnahagstoandalags- ins, ásamt því, að Bretar ^erast sennilega aðilar að því, og batn- andi lífskjör, á óefað eftir að erf- iða Ástralíumönnum leitina að innflytjendum. til að verða ekki á eftir verður Ástralía að gera flutningana eftirsóknarverðari og fara fram úr lífskjörum þeirra Evrópulanda, sem hún hefur fengið meira en eina milljón nýrra landnema frá síðan 1949. ingarsjóður verkamanna verði stórlega efldur. Ólík hafast þeir að, núver- andi ríkisstjórn og vinstri stjórnin sáluga. Vinstri stjóm in lofaði öllu fögru en efnd- irnar urðu þverrandi stuðn- ingur við íbúðabyggingar og stórauknar álögur á allan al- menning í landinu. Núver- andi ríkisstjóm hækkar lán til íbúðabygginga og stór- lækkar skatta á lágtekjufólki. Mynd þessi birtist í Rauðu stjörnunni, málgagni hersins í Sovétrikjunum. Með henni var svohljóðandi texti: Myndin sýnir eldflaugakafbát. Hérna er hann eins og hann birtist á yfirborðinu óvinunum að óvörum og miðar flaugunum yfir sjóinn. Eldflaugamar tvær virðast vera aftast á kafbátnum og eftir textanum að dænr.a er ekki unnt að skjóta þeim á loft meðan kafbáturinn er neðansjávar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.