Morgunblaðið - 28.02.1962, Page 15

Morgunblaðið - 28.02.1962, Page 15
Miðvikudagur 28. febr. 1962 MORGVTSBLAÐIÐ 15 RITSTJÓRAH: BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON annist þessa kennslu, Einar? — Já, það er Ásgrímur Björns son, Hörður Þorsteinsson og ég. Við kennum héma samtals um 140 strá:kum og eru um það bil 20 strákar í hverjum flokki. Hver þátttakandi fær 4 kennslustund- ir í viku. Við gætum sennilega tekið við fleiri strákum, ef hús- næðið væri stærra, því að þessi starfsemi á vaxandi vinsældum að fagna. — Ykkur vantar því meira húsrými? — Já, þetta er aðeins bráða- birgðahúsnæði og ekki stærra en 40 fermetrar. Fyrst var sjóvinnu skólinn til húsa í Lindargötu 50, síðan inn í Laugardal og nú. síð- ast hér. Húsnæðisskorturinn stendur vonandi til bóta, en okk- ar draumur er að fá gott húsnæði við sjó, þar sem unnt er að fara með strákana út í báta. ÞAÐ voru hróp og köll táp- mikilla og fjörugra stráka, sem bárust á móti tíðinda- manni og ljósmyndara síð- unnar, er við brugðum okk- ur á dögunum inn í Ár- mannsheimilið við Sigtún, þar sem Æskulýðsráð Reykja víkur hefur fundið sjóvinnu- námskeiði sínu stað. Þegar við komum inn fyrir gat að líta hóp af strákum, sem ým- ist voru að hnýta net, splæsa tó, setja upp línu eða vinna einhver önnur af þeim fjöl- þættu störfum, sem piltarnir læra á námskeiðunum. Þar voru og fyrir þrír kennarar, sem leiðbeindu piltunum og í einu horni stofunnar sáum við Pétur Sigurðsson, alþingismann, sem þarna var staddur og hafði hann safnað í kringum sig hóp af strákum og var greinilega að segja þeim einhverja sjóarasögu. A.m.k. störðu þeir á hann með gal- opin augun og hálfopinn munninn, en fóru síðan að skellihlæja, þegar Pétur hafði lokið sögu sinni, sem reyndist vera frá þeim tíma Það eru tápmiklir strákar, sem stunda sjóvinnunámskeið Æskulýðsráðs. Ljósm. Þar una æskumenn viö holla tdmstundaiöju Litib inn á sjóvinnunámskeib Æskulýbsráðs Reykjavikur ■— Hvað eru þessir strákar gamlir. — Þeir eru aðal'lega á aldrin- um 13 til 16 ára, en geta þó ver- ið eldri og allt upp í 21 árs og all- vír. Allt þetta starf hér miðar að því að gera piltana hæfari til sjómennsku en ella og því er þessi starfsemi hér í raun og veru komin af því föndurstigi, sem Uörður Þorsteinsson kennir Sigurði Gunnlaugssyni (16 ára) að splæsa vír. þegar Pétur togurum. var háseti á Við snerum okkur fyrst að ein- um kennaranna, Einari Guð- jnundssyni, þar sem hann var í óða önn að segja einum strák- anna tól. Sá var að hnýta net og óður en Einar gat snúið sér að Okkur sagði hann við strákinn: „Haltu aftast á náliiuii, strákur". Hann gerði eins og honum var sagt og hnýtti síðan fimlega Ihvern hnútinn á fætur öðrum. — Þið eruð hérna þrír, sem ir gera þeir þetta utan síns reglu- lega skóla eða vinnu og þá af áhuga eingöngu. — Og hvað kennið þið nú hér? — Við Dyrjum á því að kenna þeim algengustu hnúta, sem hnýttir eru til sjós. Þá kennum við þeim að setja upp línu, splæsa tó, hnýta net og bæta. Ennfremur að þekkja á áttavita svo og lítið eitt í hjálp í við- lögum. Þeir, sem eru hér á fleiri en einu námskeiði, en hvert nám skeið tekur 3 mónuði, læra að sjálfsögðu meira, t. d. að splæsa hún upphaflega var í, en hinsveg- ar orðin spurning um atvinnu fyrir piltana — Fara margir þeirra á sjóinn eftir að nafa sótt þessi námskeið? spyrjum við nú Ásgrím Björns- son. — Margir af þessum strákum hér eru í skólum, t. d. er hér einn úr Menntaskólanum. Þeir hafa aðallega áhuga á því að fara á síld á sumrin, en hugsa sér ekki frekar að gera sjómennsk- una að ævistarfi. Svo er hér allt- af einhver hópur, sem er hér að búa sig undir ævistarf og þeim piltum reynum við að hjálpa og útvega skipsrúm, en ráðningar- málum þyrfti að koma í betra horf. Strákarnir hafa forgangs- rétt um rúm á skólabát æsku- lýðsráðs, sem t. d. fór í þrjá 3ja vikna veiðitúra s.l. sumar. Við höfum og notið sérstakrar velvildar Landhelgisgæzlunnar. Einu sinni á vetri hefur eitt várð skipið farið út á flóa með allan hópinn og þar hafa farið fram björgunarbátaæfingar. — Þetta er einhver munur, en þegar ég var strákur á togurum, segir nú Pétur Sigurðsson. Þá þurfti maður að hanga tímunum saman upp á keis og reyna að fá kallana til að kenna sér eitthvað. Oft fékk maður óblíðar viðtökur, enda þótt sumir að sjálfsögðu legðu sig fram um að kenna manni einföldustu handbrögðin. Nú geta strákarnir lært þetta allt hér og það er að sjálfsögðu til mikilla bóta. Fyrir utan það, sem beint snertir störf piltanna, má sjá þarna inni ýmislegt, sem minnir á sjóinn Og sjósókn. Þarna eru t. d. gamlar myndir af seglskip- um, gömlum togurum og göml- um sjómönnum Og ýmislegt annað, sem minnir á sjðinn og sjósókn. — Þessar myndir eiga allar sinn þátt i því að skapa hér gott andrúmsloft, sem er mettað af sjávarseltu, segir Hörður Þor- steinsson um leið og hann geng- ur með okkur um salinn og út- skýrir fyrir okkur einstakar myndir á veggjunum. — Þessi mynd hér er af skip- inu „Farsæll“ frá Vestmanna- eyjum, en það var áraskip méð ,19 manna áhöfn. Þessar myndir hérna eru hinsvegar af öllum gömlu togurunum, sem voru fyrir rennarar nýsköpunartogaranna. Þannig höldum við áfram um sal inn Og Hörður útskýrir myndirn- ar. — Hvað heitir þú? spyrjum við ungan pilt, sem er í óða önn að hnýta net. — Bjartmar Sveinbjörnsson. — Hvað ertu gamall? — 16 ára. — Og ætlar þú að verða sjó- maður? — Það held ég nú varla. Ég er núna í 3ja bekk Mennetaskólans og ég hef mestan hug á því að verða dýralæknir. Hinsvegar langar mig til sjós á sumrin og þetta námskeið hér á að geta Framhald á bls. 17. Helgi ívarsson lærir á áttavita.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.