Morgunblaðið - 28.02.1962, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.02.1962, Blaðsíða 22
22 MORGINRLAÐIÐ Miðvikudagur 28. febr. 1962 í 1 Þrennt af bezta sund- fdlki Norðurlanda hingað Keppa hér á afmælismóti sem ÍR heldur SUNDDEILD ÍR hefur boðið hingað til lands tveimur sund- mönnum og einni sundkonu og nv.mu þau keppa á móti sem hald ið verður í tilefni af 55 ára af- mæli félagsins í byrjun næsta mánaðar. Sundfólk þetta kemur frá Noregi og Svíþjóð. Norðmað- urinn er Christer Bjarne en frá Svíþjóð koma Roland Lundberg og Christina Larsen. ★ Sundfólkið sem kemur Hér er um að ræða sundfólk úr röðum hins bezta á Norður- löndum. Norðmaðurinn Ohrister Bjarne er bezti sundmaður Norð manna í dag og keppir hér í skriðsundi og flugsundi. Ohristina Larsen er frá Málm- ey og er margfaldur sænskur meistari í flugsundi kvenna. En hún er einnig mjög góð skrið- sundskona hefur synt á betri tíma en 1.06 mín. Landi hennar Roland Lund- berg er einn fremsti bringusunds maður Svía. Hann hefur synt 200 m á skemmri tíma en 2.40,0 mín og 100 m á um það bil 1.13,0. Það verður gaman að sjá ísl. sundfólkið — sem er fá- Körfubolti í kvöld Körfuknattlei'ksmótinu verður fram haldið í kvötld og verður keppnin að Hálogalandi kl. 8.15. Tveir leikir eru á dagiskrá kvöldsins. Fyrst leiika Stúdentar og KFR í 1. flokiki karla en að þeim leik loknium verður leikur í meigtarafloikki karla milli KR og IKF. Ingo aftur í hringinn ÞAÐ mun nú skammt að bíða þess að Ingimar Johanson, hnefaleikakeppni, fari aftur í hringinn í áframhaldandi sókn að heimsmeistaratitli. Næsti mótstöðumaður er sagður vera Dick Richardson (ensk- ur) Evrópumeistari í þunga- vigt. Er gert ráð fyrir að leik- urinn verði í Gautaborg í maí lok. Richardson er sagður auð- veldari fyrir Ingimar en Byg- reaves sem var fyrrv. meistari brezka samveldisins. Tottenham í undanúrslit TOTTENHAM, enska 1. deildar- liðið, tryggði sér rétt til keppni í 4 liða úrslitum í keppninni uim Evrópubikarinn er liðið sigraði í íyrrakvöld tékikneska liðið Dukla með 4 mörkum gegn 1. í fyrri leiknum (í Prag) vann Dukla 1—0 svo heildarúrsilitin eru 4—2 fyrir Totteniham. í fyrri leiknum lék Totteniham varnarleik en gerbreytti um í þeim síðari og naut þá góðs stuðningis áhorfenda sem æptu liðið fram til dáða. mennur hópur en góður — þegar það fær verkefni og keppni sem. um munar eins og hér gerist. Á sundmótum und anfarið hefur sigurvegarinn verið viss fyrirfram nema í bringusundi karla. Nú kemur I Svíþjóð. spenningur í allar greinar, spenningur um sigra og afrek. Það er »sannarlega ánægju- legt að sunddeild ÍR tókst að fá þetta sundfólk hingað. Deildin var mikið búin að reyna að fá sundfólk hingað og virtust öll sund vera að lokast, þegar loks- ins kom „hið græna ljós“ frá ÍiSÍSflÖ Hoppað og stokkið til að stæla fætur og auka stökkkraft. Ásta Karlsdóttir brosir blítt, þegar hún hefur náð „pund- unum“ á réttan stað. I lyftingatíma íijá kvenfdlki Já, það er ótrúlegt — en það er satt. Það er kvenfólk, laglegar og fjörugar stúlkur, sem leggja stund á lyftingar m. a. En markmið þeirra er ekki að keppa í lyftingum, lyftingaáhöldin eru þeim að- eins hjálpartæki til að styrkja líkama sinn, því þær undir- búa sig í keppni í hlaupum og stökkum og köstum á sumri komanda. Sveinn Þorr.ióðsson „fann“ þessar stúlkur að æfingu í leikfimishúsi ÍR, en það hús var áður kirkja. Frjálsíþrótta- deild ÍR var að æfingum og æfingin var dálítið sérstök og það vegna þess að þjálfari deildarinnar í s.l. 10 ár, Guð- mundur Þórarinsson, var að kveðja. Hann kom á þessa síðustu æfingu og þá voru piltarnir og stúlkumar saman honum til heiðurs. íþrótta- fólkið efhenti honum að gjöf málverk sem lítinn þakklætis- vott og formaður ÍR kom einnig ásamt stjórnarmönnum og sæmdi Guðmund gull- stjörnu félagsins. Guðmundur heldur nú til Svíþjóðar til að þjálfa þar. Honum hafa boð- izt betri kjör en ísl. íþrótta- félög gætu hugsað sér að greiða. En þegar kveðjuathöfn var lokið tóku allir til óspilltra mála. Athygli Sveins beind- ist að vonum mest að stúlk- unum. Þær tóku lyftingar- áhöld og gerðu þrekæfingar og Sveinn segir að þyngdin hafi mest orðið rúmlega 100 pund. Þær æfðu einnig þrek- æfingar með hvor aðra á herðunum og síðan hoppuðu þær upp á hesta o. fl. áhöld til að styrkja fæturna og auka stökkkraftinn. augnablikum í keppni. Piltarnir gerðu einnig sín- Asta í kúluvarpi í g»ða veðrinu úti í garði. ar æfingar en allt í allt voru þarna nær 20 manns á æfingu. Þarna ríkti gleði og glað- værð. Fólkið fann mikla skemmtun í æfingunum og framundan er sumarið með mikilli útiveru og spennandi keppnum. Nær er Guðrún Róbertsdóttir með Ástu Karlsdóttur á herðunum. Fjær situr íslandsmeistarinn í 100 m hlaupi Guðlaug Steingrímsdóttir á herðum Friðu Guðmundsd. Sigurjón, formaður ÍR, sæmir Guðmund þjálfara gullkrossi ÍR og þakkar honum. áratugs starf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.