Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 23

Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 23
JVUðviKuclagur 28. febr. 1962 MOnGUNBLAÐlÐ 23 Tilræði við for- seta S-Vietnam Tvær flugvélar gerðu loftárás á forseta- liöllina. Annar flugmannanna komst undan Saigon, S-Vietnam, 27. febr. 1 MORGUN gerðu tvær flug- vélar úr flugher Suður-Viet- nam loftárás á forsetahöllina í Saigon og ollu þar miklum skemmdum. Forsetinn, Ngo Dinh Diem, slapp með öllu ómeiddur, svo og allt hans skyldulið, en 16 menn af þjónustuliði hallarinnar særð ust meira eða minna. Önnur árásarflugvélin komst undan til Cambodiu, en hin varð að nauðlenda eftir að fallbyssu- skot hafði laskað hana. Allt var með kyrrum kjörum í dag og kvöld, en öflugur her- vörður umihverfis forsetahöllina og helztu byggingar. Forsetinn og aðrir íbúar hallarinnar fluttu í stórhýsi skammt frá. Kennedy forseti sendi Ngo Dinh Diem heillaskeyti vegna þess, hve vel hann slapp frá þessu tilræði. Aðeins er liðið um það bil ár síðan gerð var upp- reisnartilraun gegn Dinh Diem. í>á tóku uppreisnarmenn nokkr- ar mikilvægar byggingar í borg- inni en náðu ekki að gera árás á forsetahöllina áður en hermenn hliðhollir forsetanum komu á vettvang og bældu uppreisnina niður. Talið er víst, að þessi árás í — Fundum slitið Framhald af bls. 1. uggandi vegna hryðjuverka OAS og mikill tími hafi farið í um- ræður um það, hvað hreyfingin kunni að taka til bragðs þegar opinberlega hafi verið lýst yfir vopnahléi. Óttinn við samvizkuleysi OAS-manna er einnig almennur í París. Michel Debré hefur, sem fyrr segir, skipað yfirvöld- unum að gera sitt ítrasta til að hindra hryðjuverk og skírskot- ar til hersins í Alsír að líta á það verkefni sem sitt höfuðhlut- verk í baráttunni fyrir friði í landinu. í dag voru handteknir í París fimm menn, sem taldir eru mjög háttsettir í OAS hreyf ingunni. Síðan á laugardag hafa a.m.k. 50 manns verið myrtir í Alsír og í dag gerðu evrópskir kaup- menn verkfaíl — lokuðu verzl- unum sínum — til þess að und- irstrika kröfur sínar um franskt Alsír. í Oran var framið eitt banka- ránið enn. Voru þar að verki menn OAS og komust þeir á brott með meira en 7 milljónir ísl. kr. morgun hafi miðast eingöngu að því að ráða forsetann af dögum en hafi ekki verið liður í upp- reisn. Ekkert virtist benda til þess að árásin ætti stuðnings- menn innan hersins, sem brá fljótt og vel við til aðstoðar for- setanum. Þó er kunnugt að Ngo Dinh Diem á að mæta harðri gagnrýni ýmissa stétta þjóðfé- lagsins. Bandarískir diplómatar. - sem áttu tal við forsetann í morgun, rétt eftir árásina sögðu, að hann hefði verið hinn rólegasti og hefði fulla stjórn á mönnum sín- um. • Slapp naumlega Flugmennirnir tveir á árás- arvélunum — en þeir eru báðir bornir og barnfæddir í Norður- Vietnaihm, höfðu fengið skipun um að styðja aðgerðir stjórnar- hersins gegn kommúnískum skæruliðum suður af Saigon. Þeir breyttu skyndilega um stefnu og héldu tii borgarinnar, steyptu vélunum yfir forsetahöll ina og létu léttum sprengjum og litlum flugskeytum rigna yf- ir hana í hálfa klukkustund. Eitt flugskeytanna smaug gegnum þak 'hallarinnar og inn í vinnu- herbergi forsetans. Hann var þá staddur í litlu hliðartherbergi þar hjá en komst undan í tæka tíð, áður en skeytið sprakk. Gjögri 26. febrúar. SÍMASAMBANDSLAUST hefir verið hér á Ströndum um lengri tíma vegna bilunar símalína á Trékyllisheiði og víðar. Loks tókst að ljúka viðgerð á línunni á föstudaginn var. Hefir síðan verið mikið að gera á símstöðv- unum hér. — Regína. Neliru greiðir atkvæði á kjörstað. Kongress-flokkurinn í Indlandi heldur öruggum meirihluta Krishna IUenon sigraði Kjripalani Nýju Delhi, 27. fébrúar, — (AP-NTB) — EKKI eru enn kunn endan- leg úrslit í kosningunum í Indlandi, en sýnt þykir þó, að Kongress-flokkurinn, flokkur Nehrus forsætisráðherra, hef- „Tíminn", Iaugardag 1962. Shnmmast Framsóknaimenn sín fyrir þjónnstnna? HÉR ERU myndir af fréttaiþjón- ustu „Tímans“ fyrir og eftir Lionsklúbbur á Patreksfirði MÁNUDAGINN 19. þ. m. var Lionsklúbbur stofnaður á Pat- reksfirði og verða félagsmenn um 30 talsins. Umdæmisstjóri Lions International hér á ís- landi, Haraldur E. Sigurðsson, og Eyjólfur Sigurjónsson, fyrr- verandi umdæmisritari, mættu é fyrsta fundi klúbbsins og ekýrðu tilgang og starfsemi Lionshreyfingarinnar. Stjórn hins nýstofnaða klúbbs íkipa eftirtaldir menn: Sigurð- lir Jónasson formaður, og með- ptjórnendur: Jakob Helgason og Ingólfur Arason. 22 Lionsklúbbar eru starf- *ndi hér á landi, 6 í Reykja- vík og 16 úti á landi, og telja §>eir um 700 meðlimi. Enn sem Jcomið er eru engir klúbbar á Austurlandi, en gert er ráð fyrir að þar verði stofnaðir klúbbar áður en langt um líður og að keðja þessa vinsæla fé- lagsskapar nái í kringum land- ið. — A þeim tíu árum, sem liðin eru frá stofnun fyrsta klúbbs- ins hér á landi, Lionsklúbbs Reykjavíkur, hefur þessi féíags- skapur látið margt gott af sér leiða. Hafa félagsmenn unnið að allskonar líknarstarfsemi, menn- ingar- og framfaramálum, hver í sínu héraði. Samtök þessi vinna að áhugamálum sínum í kyrrþey. Þau láta stjórnmál af- skiptalaus og reyna að sameina starfskrafta héraða sinna til að vinna að hagsmunamálum byggðarlagsins án tillits tii stjómmálaskoðunar. Það var Magnús Kjaran, ræðismaður, sem stofnaði fyrsta hérlenda klúbbinn, og á hann heiður skilið fyrir það. bosningar í IÐJU, félagi verk- smiðjufólks i Reykjavík. Fyrir kosningar hét taplistinn „listi vinstri manna“, en eftir þær ihafði hann breytt uim nafn og nefndist „A-listi (Björn Bjarna- son o.fI.)“ Bjarsaíeh o. fl.) hlaút 428 sticv,, en B-liítt íGuðjóh Siguyðssoa o. Ö ) 899 atkve t „Tíminn", þriðjudag 27. febr. St jornarkosiiing í Sókn AÐALFUNDUR Sóknar var hald inn í Aðalstræti 12 í gærkvöidi. Fór þá fram stjórnarkjör. Var Margrét Auðunsdóttir endur- kjörin formaður og er stjórnin óbreytt fra því á síðasta ári. ur haldið öruggum meiri- hluta síuum á þingi og þar með tryggt sér stjórnarfor- ystu næstu fimm árin. Þegar taiið hafði verið í 82 kjördæmum hafði Kongress- flokkurinn fengið 70 þingsæti í þjóðþinginu og hlotið allt að tveim þriðju hlutum þingmanna á fylkisþingunum þrettán. Flokkurinn hefur þó greini- lega tapað nokkru fylgi í ýms- um kjördæmum, til dæmis Mi- dras og Punjab og í Kerala fengu kommúnistar alla þing- mennina, átta talsins. I Norður-Bombay er Krishna Menon landvarnarráðherra Ör- uggur um sigur — hafði er síð- ast fréttist um 70 þús. atkvæði fram yfir höfuðandstæðinginn, Kripalani, frambjóðanda jafn- aðarmanna. Og í kjördæminu Pmuiphur í Norður-Indlandi leiddi Nehru forsætisráðherra með 43 þúsund atkvæði fram yfir höfuðandstæðinginn. Einar kaupir Hannes lóðs Vestmannaeyjum, 26. febr. EINAR Sigurðsson útgerðarmað- ur og frystihúsaeigandi hér í Eyj- um hefir nú keypt vélbátinn Hannes lóðs fyrir 4% milljón kr. Bátinn átti Jóhann Pálsson og var hann jafnframt skipstjóri á honum oig mun verða það áfram hjá Einari. — Bj. Guðm. Talið er víst að þegar allt er tahð muni Kongressflokkurinn hafa tapað þó nokkru fylgi, en kommúnistar hafa hinsvegar aukið fylgi sitt allverulega, sennilega um það bil 3%. 1 sumum kjördæmum varð á- greiningur meðal kommúnista út af stefnu flokksins gagnvart yfirtroðslum Kínverja á landa- mærum Indlands. Flokkurinn fordæmdi þær víðast hvar og mun sú stefna hafa orðið mjög happadrjúg. Þar sem frambjóð- endur voru hógværari gagnvart Kínverjum misstu kommúnistar yfirleitt fylgi frá því sem var í síðustu kosningum. Félagslíf 55 ára afmælissundmót íþróttafélags Reykjavíkux verður haldið í SundhöU Reykjavíkur dagana 7. og 8. marz 1962. Keppt verður í eftirtöldum greinum: Fyrri dagur: 100 m bringusund karla, 50 — bringusund karla, 100 — skriðsund karla, 100 — flugsund karla, 100 — skriðsund kvenna, 50 — bringusund kvenna, 100 — bringusund unglingaff, piltar (18 ára og yngri) 100 — skriðsund drengja, (16 ára og yngri) 50 — bringusund sveina, (14 ára og yngri). 100 — bringusund telpna, 4x50 — bringusund kvení«K, 4x50 — bringusund karla, Síðari dagur: 200 m skriðsund karla, 200 — bringusund karla, 50 — flugsund karla, 100 — flugsund kvenna, 50 — skriðsund kvenna, 200 — bringusund kvenna, 100 — bringusund drengja, 50 — skriðsund drengja, 50 — skriðsund sveina, 50 — bringusund telpna, 50 — skriðsund telpna, 20) — einstaklings fjórsund karla. Þátttökutilkynningair skulu berast til Guðmundar Gíslasonar, Hvassaleiti 37, sími 37925, fyrir þ. 3. marz 1962. Sunddeild Í.R. Unglíngur óskast til að bera MorgunbJaðið út á FÁLKAGÖTU Afgreiðslan — Sími 22480.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.