Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 24

Morgunblaðið - 28.02.1962, Side 24
Fiértasímar Mbl — eftir lokun — Erlecdar fréttir: 2-24-85 Innienrlar fréttir: 2-24-84 Vettvangur Sjá bls. 13 49. tbl. — Miðvikudagur 28. febrúar 1962 w Myndin var tekin, meðan dælt var úr borholunni við Bullaugu. Vatnsflaumurinn úr þessari einu holu var gífurlegur, eða 120 I á sek., sem svarar til 9 þúsund tonna á sólarhring. GeysiSegur vatnsfundur: Ndg vatn handa Reykjavík MORGUNBLAÐIÐ frétti um helgina, að geysilegt vatns- inagn hefði fundizt í ná- grenni bæjarins, sem myndi nægja íbúum Reykjavíkur um næstu aldir, þótt miðað sé við mestu hugsanlega fjölgun. Af þessu tilefni gekk fréttamaður Mbl. á fund vatnsveitustjóra, og fékk eftirfarandi upplýsing- ar hjá honum. Jón Þorláksson benti á staðinn Þóroddur Th. Sigurðsson, vatnsveitustjóri Reykjavíkur- borgar, tjáði tíðindamanni Mbl. að vatnsveitan hefði undan- farið borað víða eftir vatni, m.a. í Grafarlandi, austur af Smá- löndum, þar sem nýi golfvöll- urinn er, og virtist borun á þeim stað hafa gefið mjög góða raun, þannig að líkur eru fyrir, að horfið verði að því ráði að reyna að virkja þar. — Jón Þorláksson benti fyrst á þennan stað árið 1907, en lind- irnar sem borað er við eru kall- aðar Buliaugu og rennur Graf- arlaekur úr þeim. Boraðar hafa verið tvær holur. Fyrri holan er 27—29 m á 0 0 0 & 0 0 0'0 0‘* & & * * & T dýpt. Stanzlaust var dælt úr henni í 8 klst. og runnu til jafnaðar úr henni 120 lítrar á sekúndu, en gamla sjálfsrennslið nemur 200 lítrum á sekúndu. Til samanburðar má geta þess, að úr Gvendarbrunnum fást 700 lítrar á sek., sem nægja fyrir alian bæinn, auk Seltjarnarness og Kópavogs. Úr hinni borhol- unni renna 20—30 lítrar á sek. í sjálfstreymi og reiknaði vatns veitustjóri með, að hún væri í gærkvöldi orðin um 35 metrar á dýpt. Svo virtist sem þarna sé komið niður á sandsteinslög, 7—8 m á þykkt, sem geyma mikið af vatni og flytja grunn- vatnið til sjávar. Bullaugu eru í 51 m hæð yfir sjávarmáli og taldi vatnsveitu- stjóri, líkur til, að horfið yrði að því ráði að virkja þarna, þótt dæla þurfi vatninu upp í 40 m hæð, þar sem lindimar eru svo skammt frá bænum. Líflegt Oidið í Vestmannæyjum Unnið iil miðnætiis í öllum írystihúsum Fjórir slasaðir togara- sjómenn á Þingeyri § Strákar sprengga skot Skotfæri fundust enn í gær í FYRRADAG barst lögregl- unni í hendiur noikikuð af sikot- um, sem strákar í Austurbæn- varningi, sem stráíkamir höfðu hnuplað víðsvegar um gær. Hafa strákamir gert sér að leik að sprengja skotin með því að berja á þau, O'g er hér að sjálfsögðu um stórhættu- legan leiik að ræða. Ennfrean- ur fannsit talsvert af smá- um höfðu safnað, og sprengt sum þeirra. Voru stráikarnir yfirheyrðir, og kom í ljóis að fleiri skot miyndu í umferð, og eftir tilvíisan þeirra fann lög- reglan á annað hundrað skot í bæinn. 000000000000 ÍI FJÓRIR brezkir togarasjómenn liggja nú í sjúkrahúsi á Þing- eyri, og hafa togarar þeirra kom ið með þá þangað inn á síðustu 10 dögum, eftir að þeir lentu í slysum um borð. f gærmorgun kom togarinn Barnsley frá Grimsby inn með ungan háseta, sem hafði lent í spili togarans í fyrrinótt og slasast mikið. Var hann lærbrot- inn og handleggsbrotinn. Lækn- irinn á Þingeyri, Þorgeir Jóns- son, gerði að sárum hans, en hann hafði einnig tekið á móti hin- um, þegar komið var með þá. Fyrir þremur dögum kom sami togari inn með slasaðan háseta, er reyndist vera með brotinn augnkarlinn. Líður honum nú ágætlega. Þann 16. febrúar kom togarinn Everttan með sjómann. sem var brákaður á hrygg og þann 19. kom togarinn Ross Rhartoum inn með mann, sem hafði mar- izt illa á baki. Barnsley fór aftur út á veið- ar í gærmorgun, er sjómannin- um hafði verið skilað á land. Ekki er lengur fullur mannskap- ur um borð, aðeins 17 menn. VESTMANNAEYJUM, 27. febr. — í dag var hér hver fleyta á sjó, línubátar, færabátar, loðnu- og síldarbátar. f gær var í fyrsta sinn gott sjóveður, eins og sagt hefur verið frá. Enda sáist það á aflanum. Alls munu hafa borizt á land tæpar 600 lestir. Af því fékk Vinnslustöðin 120 lestir, ís- félagið 100 lestir, Hraðfrystistöð- in 160 Iestir og Fiskiðjan 125 lest- ir. Var líflegt hér, unnið til kl. 12 í gaerkvöldi í öllum frysti- húsunum og verður vafalaust aftur í kvöld. Mestan afla í gær hafði Dala- röst, rúmar 20 lestir. Hjá flestum bátunum var liðlega helmingur af líhunni beitfcur loðnu, og í róðrunum í dag beitfcu allir loðnu, sem nóg fékkst af í gær. Var miikill handagangur í öskj- unni í gær, þegar menn beiittu hver sem bebur gat. Flestir munu í dag hafa farið með um 45 sitampa af l'ínu og nokkrir meira. Þegar ég var niðri á bryggju lel. 7 voru margir bátar komnir að með afla og höfðu yfirleitt aflað vel, Aðeins 2—3 bátar voru með undir 10 lestum. Plestir höfðu 10—12 lestir og sá hæsti 18. Þó ber þess að geta, að ekjkj er ólíklegt að þeir bátar sem seinna koma séu með ennþá meira. ★ Lélegur afli á net. Tveir bátar eru byrjaðir með net, Leo og Erlingur, og hefur aflinn hjá þeim verið lélegur. Sex bátar komu inn með sild. Var sílveiðin sæmileg frá 100 upp í 6—700 tunniur. Þrír togar- ar biðu hér eftir sild. Er búist við að Gylfj leggi af stað með síldarfarm til Þýzikalands kvöld. Byrjað er að lesta Ask, en þriðji togarinn er Neptúnus. — Bj. Guðm. 17 Sandgerðisbátar. SANDGERÐI, 27. febr. — 17 þátar komu að landi í gærkivöldl með 162,4 lestir. Þar er aflahæst Freyja mieð 18,6 lestir, Smári 16,6, Giuðbjörig 12,1 lest. — P.P. ic Feitur og fallegur þorskur. AKRANESI, 27. febr. 11 liinu- bátar lönduðu hér í gær, og var afli þeirra samtals 107 lestir. Afla hæstir voru þessir þrír Ólafuir Magnússon 12.9 Istir, Ásmundur næstur með 12,7 og Skipaskagi 11,7 lestir. Megin hluti aflana var feitur og faMegur þorskur, sem aliúr var flakaður Oig hrað- frysfcúr. 12. bátar eru á sjó í dag. Helmingur bátanna var kiominn að kl. 10 í kvöld og höfðu 7—10 lestir. Hér var hollenzkt skip í gær, og lestaði 3000 tunnur salbsíild, sem á að fara til Póllandis. Þrír eru ennþá með hringnó't- ina um borð. Einn þeirra, Har- aldur, fékik í nótt 200 tunnur af síld út af Eldeyjarskerjium. 4—5 bátar fóru út í dag með þorska- netin til að leggja. — Odidur. F) rsti togarinn landar í Reykjavík á árinu f GÆR landaði togarinn Fylkir 150 lestum af fiski í Reykjavík og er það fyrsti togarafiskurinn sem hér kemur á land á þessu ári. Hafa togararnir yfirleitt siglt með afla sinn. Hallgrímur Guðmundsson í Togaraafgreiðsl- unni sagði að þetta hefði verið 1 ágætur fiskur. Aðspurður um það hvort þetta muni ekki vera einsdæmi, að eng inn togari landi í Reykjavík næst um fyrstu tvo mánuði ársins, kvaðst Hallgrímur halda það. Vöruskiptajöfn- uður hagstæður SAMKVÆMT upplýsingum frá Hagstofu íslands var vöruskipta jöfnuðurinn í janúar s.l. hagstæð ur um liðlega 78,7 millj. kr. í jan úar s.l. en var hagstæður um lið lega 40,6 millj. 1964. Út voru fluttar vörur (tölur frá í fyrra í svigum) fyrir 305,8 millj. kr. (188,3) en inn voru flutt ar vörur fyrir 2i27,l millj. kr. (147,6). Pétur Sigurðsson, alþingismaður, sýnir strákunum í sjóvinnunámskeiði Æskulýðsráðs Reykja- vikur pokahnútmn (sjá grein á SUS-síðu í dag). Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.