Morgunblaðið - 06.04.1962, Síða 3
Föstudagur 6. apríl 1962
MORGU'NBLAÐIÐ
3
KOMMÚNXSTAR virðast nú
hafa fundið. upp alveg nýjar
mótbárur, sem gera þeim
fært að standa gegn svo
til öllum verklegum fram-
kvæmdum í borgarlandinu.
Kom þetta m.a. fram í gær,
þegar samþykkt borgarráðs
frá 30. marz sl. um úthlutun
Laugamesi lá fyrir borgar-
stjórn til staðfestingar. —
Kvaddi þá Guðmundur J.
Guðmundsson (K) sér hljóðs
og kvað það álit sitt, að ekki
næði nokkurri átt að byggja
þama vörugeymslu, það væri
svo fallegt Laugarnesið. —
Skömmu síðar á sama fundi
var Laugarnesið þó ekki feg-
urra en svo í augum kommún-
ista, að annar borgarfulltrúi
þeirra, Guðmundur Vigfús-
son, talaði um, að þar yrðu i
framtíðinni reist verksmiðju-
hús fyrir þungaiðnað. Enn
síðar á þessum saina fundi
gerðist það svo, að síðarnefndi
borgarfulltrúinn mátti ekki
heyra nefnt, að iðnaðarhverfi
risi við Grensásveg, það væri
svo fallegt þar og vel til þess
fallið, að þar væru opin
svæði. í þessu sambandi rifj-
ast það svo upp, þegar sömu
borgarfulltrúar fyrir nokkrum
mánuðum börðust sem ákaf-
ast gegn því að ný lögreglu-
stöð yrði reist, þar sem gas-
töðin stóð áður, því að sú lóð
væri svo dýr.
Að áliti kommúnista virðast
þannig flestir staðir í borgar-
landnu annað hvort vera of^
fallegir eða of dýrir til þess,
að þar megi reka nokkra ny.t-
sama starfsemi.
STAKSIEIMAH
BV. Þorsteinn Ingólfsson seldí
afla sinn í Grimsby í gærmorgun,
117 lestir fyrir 7.746 sterlings-
pund. Þetta er seinasta sala
kaup Og kjör togarasjómanna.
Vb. Reynir frá Akranesl kemur að gúmm íbjörgunarbátnum rn.eð mönnunum af Verði.
— Vörður
Framh. af bls. 1
vang og leysti fyrri vélina af
hólmi kl. 18.33. Sveimaði hún
yfir björgunarbátnum, unz vb.
Reynir frá Akranesi kom á stað
inn og tók mennina upp í kl.
18.44, en hann var um 3 mílur
frá Verði, er honum barst hjálp-
erbeiðnin. Hélt flugvélin þá að
flakinu og hélt sig yfir því, unz
varðskipið Þór kom og hóf
Blökkvistarfið um kl. 19.30. Lt.
Holmes frá bandaríska flotanum
hafði stjórn með höndum í Nep-
tune-vélinni.
Þyrla frá varnarliðinu fór og
á loft og var reiðuibúin að veita
aðstoð, ef á þyrfti að halda.
Eldurinn virðist hafa magnazt
mjög skjótt í skipinu, því að á-
höfnin yfirgaf það stuttu eftir að
eldur kom upp.
Þegar varðslkipið Gautur kom
a@ v.b. Reyni, fór áhöfn Varðar
um borð í hann. Var Gautur
væntanlegur til Keflavikur um
kl. tvö í nótt.
Þegar Þór kom að Verði, log-
aði hann stafna á milli. Töldu
varðskipsmenn ekki unnt að
ráða við eldinn nema með því
móti að daela Vörð fullan af sjó
fyrst, en dæla síðan sjónum aft
ur úr, þegar eldurinn kafnaði.
Tókst þeim að slökkva að veru
legu leyti í bátnum, en ekki til
full'S, enda aðstaða erfið, þar sem
sjór var töluverður. Börðust
þeir við eldinn, þar til kl. 23:20,
að Vörður sökk 15 sjómilur NNV
af Garðskaga.
Þessi mynd sýnir sjúkra-
húsið, sem OAS-menn réðust
á í dögun s.l. þriðjudag. —
Sjúkrahús þetta er í hverfi
Serkja, Beau Fraisier, í út-
jaðri Algeirsborgar. Hryðju-
verkamenn OAS skutu níu
sjúklinga til bana með vél-
byssum og særðu átta. Áður
en óaidarmennirnir yfirgáfu
sjúkrahúsið, sprengdu þeir
15 kg. plastsprengju í skrif
stofu sjúkrahússtjórans. Mynd
in sýnir hversu sjúkrahúsið
leit út að árásinni lokinni. —
(AP) —
Ritklúbbur
æskufólks
RITKLÚBBUR æskufólks heldur
fund í æskulýðsheimilinu á
Bræðraborgarstíg 9 í kvöld,
föstudag kl. 8,30. Á dagskrá er:
Erlendur Jónsson talar um Hann-
es Þorsteinsson, Elín Pálmadótt-
ir talar um blaðamennsku og
tveir klúbbfélagar lesa upp frum
samið efni.
í Laugarnesi - ekki
Héðinshöfða
SÚ VILLA var í blaðinu í gær,
er skýrt var frá hinni nýju tcll
vörugeymslu, að hún var sögð
fyrirhuguð í Héðinshöfða, en átti
að vera í Laugarnesi. Þar verður
hún vestan götu, sem mun eiga
að heita Héðinsgata af einhverj-
um ástæðum, þótt ekki sé hún
nálægt Héðinshöfða
Lausaskuldir bænda "
Fyrir skömmu ritaði Jónas
Pétursson, alþixgismaður, grein
hér í blaðinu um tillögur ríkis-
stjórnarinnar í lánamálum
bænda. Komst hann þar m.a. að
orði á þessa leið:
„Hinn 23. marz s.I. var frum-
varp um lausaskuldir bænda af-
greitt sem lög frá Alþingi. Lög-
in eru merkilegur þáttur í þeirri
endurreisn í efnahagskerfi lands-
ins, sent, nú fer fram. Undangeng
ið verðbólgutímabil markaði spor
um allt þjóðlífið, líka meðal
bænda landsins. Lausaskuldir
þeirra voru orðnar meinsemdir,
sem varð að lækna.
Nokkrir þeirra voru komnir í
vonlausa aðstöðu með að geta
haldið áfram búskap. Nú hefur
skapazt nýtt viðhorf og nýir
möguleikar. Á næstu vikum
verða þær lánaumsóknir afgreidd
ar, sem nú liggja fyrir í veð-
deild Búnaðarbankans. Má ætla
að þannig verði allt að 80 millj.
kr. af lausaskuldum um þúsund
bænda færðar í fast horf í 2ð
ára lánum.
Sem bctur fer reyndust lang-
flestir af umsækendum eiga
nægilegt veð að setja í jörðum
og mannvirkjum. Þeir, sem áð-
ur sáu litla eða enga möguleika
finna nú fast land undir fótum
og sérstaklega ef það tekst, sem
von er til, að fella í þennan far-
veg svo til allar lausaskuldir
hvers þess bónda, sem lánið
fær.“
Það er vissulega rétt, sem Jón-
as Pétursson segir. Hér er um
mikið hagsmunamál bænda að
ræða. Á því hefur verið tekið af
hálfu ríkisstjórnarinnar af skyn-
semi, skilningi og raunsæi.
Kommúnistar
á móti almannavörnum
Alþýðublaðið birtir í gær for-
ystugTein, þar sem. það gagn-
rýnir harðlega afstöðu kommún-
ista til tillagna ríkisstjórnarinn-
ar um almannavarnir, en eins
og kunnugt er miða þær fyrst
og fremst að því að bjarga manns
lífum og firra vandræðum og
upplausn, ef til styrjaldar drægi,
sem allir Íslendingar vona að
ekki verði. Kemst Alþýðublaðið
m.a. að orði á þessa leiff um> af-
stöðu kommúnista:
„Eina hugsanlega skýringin á
þessari furðulegu afstöðu er sú,
að þeir þoli alls ekki að íslenzka
þjóðin horfist í augu við stað-
reyndir alþjóðamála og geri þær
ráðstafanir, sem allar aðrar þjóð
ir telja nauðsynlegar. Kommún-
istar óttast, að því meira, sem
almenningur á íslandi hugsar um
friðarmálin og alþjóðleg viðhorf,
því ir.inna verðj fylgi kommún-
ismans og fylgifiska hans í land-
inu.
Önnur skýring er líka til. Hún
er á þá lund, að forystumenn
Sovétríkjanna hafa alltaf talaff
af fyrirlitningu (rétt eins og
Hannibal) um almannavarnir,
enda þótt vitaff sé að þær varn-
ir eru til í landi þeirra. Þar sem
slík afstaða er tekin austur í
Moskvu finnst íslenzkum komm-
únistum þeir megi til að taka
sömu afstöðu. Þetta er ótrúleg
skýring — en hún gæti veriff
sönn“.
Já, hún gæti svo sannarlega
veriff sönn.
•1