Morgunblaðið - 06.04.1962, Qupperneq 10
1C
MOKGllNBL tfílfí
Föstuclagur 6. april 1962
' - r r-
't isá< ', c. “ tóiv- f ,'*f 's
iPhilip, hertogfi af Edinborg, í sundlaug sendiráðsins í Rio de sem varð fjúkandi vondur við
SUND er góð og holil íþrótt reyndu að ta'ka mynd af hón-
eins og allir vita. En eikiki eru um í sundhöll brezka sendi-
allir jafnhrifnir af að láta taka ráðsins í Ri-o de Janeiro í
mynd af sér á sundi, a.m.k. Brazilíu, þar sem hann nú er
ekki hertoginn af .Edinborg, á ferðalagi.
Tage Erlander, forsætisráð-
\ Janeb**
fréttaljósmyndarana, sem herra Svíþjóðar, skeytti því
hinsvegar engiu, þó mynddr
vœru teknar af honuim á sundi
í Dauðahafinu, og mynd sú,
sem hér með fylgir, hefur
birzt af forsætisráðherranum
í öllum heimisblöðunum og al)l-
ir haft gaman af. Forsætisráð-
herrann dvelur um þessar
mundir í opinberri heimsókn í
ísrael.
★ Gauragangurinn í Rió.
Það var einskær tiiviljun að
braziisku fréttaljósmyndarar
komu auga á Fhilip. Þeir sátu
á bekk undir trjánum, sem
umikringja sundlaugina, og
voru að lesa grínblöð, m.eðan
þeir biðu eftir að fá leyfi tiíl
að fara til Bretlandls. Þá
heyrðu þeir altt í einu lágan
hllátur, og hertoginn birtist í
ljósum stuttbuxum, með rauð-
röndótt handiklæði, í tennis-
skóm ög með sólgleraugu. —
Hann varð æfur er hann kom
auga á 1 j ósmyndarana og fór
að hrópa til þeirra. Þeir skildu
ekki orð og hrópuðu á móti, og
reyndu að útskýra hversvegna
þeir væru þarna staddir, en
án árangurs. Hertoginn kallaði
á lífvörð sinn og þremenning-
arnir flúðu, þegar þeir sáu
vörðinn koma með stóran
hund.
Þeir hlupu inn í nærliggj-
andi hús og beindu ljósmynda
vélurn sínum að sundlauginni.
Þegar hertoginn-hafðj lokið
sundinu og sneri aftur til
sendiráðsins, uppgötvaði hann
stóra aðdráttarlinsu, sem var
beint að honum í einum glugg
anum. Þá fyrst reiddist hann
fyrir alvöru, en stillti sig og
gekk á braut. — Og ljósmiynd-
ararnir höfðu drjúgan skild-
ing upp úr krafsinu fyrir ljós-
myndir sínar.
Matari fyrír fræsara
óskast til kaups. — Upplýsingar í síma 34383 dag-
lega eftir kl. 8 s.d.
Hárgreiðslustofan Fjólan
áður Austurstræti 20, er flutt á Langholtsveg 89.
Opnar á laugardaginn 7. apríl. Sími 12142.
STEINUNN HIÍÓBJARTSDÓTTIR.
Ég undirritaður óska hér með eftir að gerast
áskrifandi að Búnaðarblaðinu frá og með
/ 19H2.
□ Greiðsla fylgir
□ Sendið póstkröfu
Nafn
Heimilisfang
S;
Áskriftarverð kr. 150.00.
Áskrift sendist í pósthólf 149 Reykjavík.
FALLEGIR
enskir kvenskór
- NÝKOMID —
Hinir vinsælu frönsku KARLMANNASKÓR
Einnig vandaðir
enskir
KARLMANNASKÓR
Amerískar
KVENMOKKASÍUR
Ófært
frá Húsavík
HÚSAVÍK, 31. marz. — Alla
þessa viiku hefir verið hér hríð-
arveður og í gær og dag er veðr
ið verst, nánarst stórhríð. Sjó-
sókn hefir gengið mjög erfiðlega,
sérstaklega rauðmagaveiðin
vegna þess að ekki hefir verið
hægt að vitja um netin, en stærri
bátarnir, sem eru á þorskaveið-
um hafa þó getað vitjað um.
Línubátar hafa ekki róið.
Áætlunarfcíllinn, sem átti að
fara til Akureyrar í morgun fór
ekki vegna þess að ófært er
talið.
Þrátt fyrír hina langstæðu snjó
komu hefir ekki verði stunduð
skíðaíþróttin vegna veðráíiams og
þátttaka í landsgöngunni því
léleg. — Fréttaritari.
íslenzkir skipstj. á
brezkum togurum
TVEIR íslenzkir togaraskipstjór-
ar frá ísafirði hafa nú ráðið sig
á brezka tógara og segjast una
þar vel hag sínum. Hafa þeir
verið um borð í 10 daiga sem
fiskileiðsögumenn.
Þeir skipstjórarnir Fáll Péls-
son, sem áður var með togarann
SólbOrgu frá ísafirði og Einar
Jóhannsson sem var með ísborgu
hafa nú ráðið sig á togara frá
Aberdeen.
Flugu þeir utan fyrir um 10
dögum og eru komnir á miðin
hér við ísland.
Páll er á togaranum Scottish
Princess, en Einar á Mont Ever-
est, en báðir þessir togarar ern
lítið eitt stærri en austur-þýzku
togskipin og hafa þau mest stund
að veiðar við Færeyjar og afli
verið fremur rýr.
Báðir Komu þeir félagar á skip
um sínum inn til ísafjarðar um
síðustu helgi Létu þeir vel yfir
sínum hag, en algert leyndarmál
er fyrir hvaða kjör beir eru á
skipunum.