Morgunblaðið - 17.04.1962, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIB
íriðjudagnr 17. april 1962
Meistar-
arnir
FH féll á eigin bragði
og Fram hlaut titilinn
Æsispennandi úrslitaleikir, góður
endapunktur Islandsmótsins
ÞÚSUND manns ýmist æptu eSa stóðu á öndinni að Hálogpa-
landi í fyrrakvöld er lokamínútur leiks FH og Fram í m.fl.
karla stóðu yfir. Á gólfinu háðu tvö lið æðisgengna baráttu.
Það var ógurlegur darraðardans þegar FH menn brutust fram
og léku „maður gegn manni“ í örvæntingartilraun til að stöðva
sigurgöngu Fram. En Framarar svöruðu með því að auka
forskotið og tryggðu sér íslandsmeistaratitil með 20 marka
sigri gegn 18 yfir FH, sem verið hafa ókrýndir konungar ísl.
handknattleiks að undanfömu. Fram var vel að þessum sigri
korr.ið og það voru glaðir piltar sem tóku við íslandsbikamum.
★ ..Þeir mala Fram . .
FH byrjaði með glæsilegu
marki Póturs. Og margir muldr-
Karl Ben. er að komast í gegn —
og komst þó Bergþór haldi.
Ljósm. Þorm. Sveinss.
uðu „Þeir mala Framarana
núna“. En það fór á annan veg.
Guðjón Jónsson jafaði og Hilmar
Ólafsson hinn gamalkunni fyrir-
liði Fram náði forystu fyrir
Fram. og eftir þetta höfðu Fram-
arar lengst af forystuna allan
hálflei'kinn utan það að FH
bomst tvívegis yfir (8—7) á 17.
mín og (13—11) 3 mín fyrir hlé.
í hálfleik stóð 13—12 fyrir FH.
í fyrri hálfleiknum kom strax
í upphafi í ljós sá höfuðgalli hjá
FH hve vörnin var opin. Birgir
fyrirliði var ebki með vegna
meiðsla og fjarvera hans leiddi í
ljós sérlega illa skipulagðan
varnarleik FH. Framarar fundu
þennan vanmátt FH Línumenn
Fram drógu sig út j homin og
þar stóðu varnarleikmenn FH
staðir yfir þeim. Við það opnuð
ust langskyttum Fram tækifæri
sem nyttust vel þar sem Hjalti
var ekki í sínu bezta „stuði“.
Það voru því ebki sízt þeir menn
Fram, sem minnst bar á í leikn
um, sem réðu úrslitum hans.
Fram náði að jafna strax í síð
ari hálfleik og að ná forystu. En
baráttan var gífurlega hörð —
og jöfn. — Um miðjan háifleik
hafa FH menn 2 mörfc yfir. En
þetta dýrmæta forskot misstu
þeir, og 11 mín. fyrir leikslok er
staðan 17—17.
Lokabaráttan
Á 19. mán. varði Hjalti Ein
fslandsn’.eistaramir Fram í karlaflokki. Hilmar með bikarinn
Ágúst Þór, Xómas Guðjón, Erlingur, Karl Ben., þjálfari og
og síðan frá honum Sigurjon, Þorgeir markmaður, Jon, bigurour,
Ingólfur. — Myndimar tók Bjamleifur.
Hjónin með bikarana
íslandsmótið í handknatt-
Ieik er fjöimennasta íþrótta-
mót, sem haldið hefur verið á
íslandi. Keppendur eru ungir
og gamlir, heimilisfólk og ein
staklingar. Og hér getum við
birt mynd af hjónum, sem
bæði tóku þátt í mótinu. —
Uppskera þeirra var meiri en
almennt gerist, því þau urðu
bæði fslandsmeistarar. En svo
einkennilega vill til að þau
era sitt í hvora félagi. Ekki
mun það þó stafa af þvi, að
þau geti ekki komið sér sam
an, heldur af hinu að svona
var þetta þegar hugir þeirra
féllu saman og þó ástin sé oft
heit megnar hún kannski ekki
að slíta gömul og trygg félags
bönd.
Og í gær héldu þau bæði á
islandsbikurum, Guðjón Jóns
son á bikar Framara, sem
hann átti mikinn þátt í að
vinna og Sigríður Sigurðar-
dóttir kona hans, á bikar
Valsstúlkna, sem hún átti
ekki minni þátt í að vinna
fyrir Val.
Ingimar vann í 5. lotu
- en leikurinn hneyksli
INGIMAB Johanson, fyrram
heimsmeistari í hnefaleikum,
keppti við Hollendinginn Snoek
á sunnudaginn, en þetta var síð
asti leikur Ingós, áður en hann
berst um Evróputitilinn. Ingó
vann í 5. lotu á rothöggi.
Leikurinn var mjög sögu-
legur. Þegar 40 sek. vora af 1.
lotu barði Snoek Ingo niður
með eldsnöggu höggi. ' Ingo
stóð ekki upp fyrr en dómar-
inn sagði „9“ en útlendum
blaðamönnum við leikinn ber
saman um að dómarinn hafi
talið allt of hægt og þannig
gefið Ingo 7—8 sek. tíma til
að jafna sig, sem hann ekki
átti.
„Ef dómarinn hefði verið
hlutlaus, ættu Svíar nú enga
hnefaleikahetju“, segir BT. —
Snoek sagði eftir leikinn. —
„Eg gerkannaði Ingo á kvik-
mynd. Eg fann veikan punkt í
vörn hans. Mér tókst að not
færa mér hann. Það er gremju
Iegt að hlutdrægur dómari
eyðileggi slík tækifæri“.
Körfuknattleikur:
Sigur ÍR
eða 3 jöfn
f kvöld lýkur Körfuknatt-
leiksmóti íslands. Fara fram
3 leikir og meðal þeirra er sá
sem beðið er með með mestri
eftirvæntingru í öllu mótinu,
fleikur ÍR og Ármanns í m.fl.,
karla. ÍB nægir jafntefli til að
»vinna titilinn en vinni Ár-
mann verða þrjú félög, ÍR,'
Ármann og KFR jöfn að stig
um og verða að keppa aftur.'
Hinir 2 úrslitaleikirnir í
Íkvöld era í 1. fl. karla einnig
milli Ármanns og ÍR og í 4.'
fl. drengja þar sem A- og B-
lið ÍR mætast í úrslitum eft'
ir keppni 7 liða í þessum
i flokki.
þannig
Staðan I m.fl. karla er nú
þegar einum leik er
ólokið
4 4-0-0 306:186 8 st.,
5 4-0-1 286:253 8 —
Árm. .. 4 3-0-1 259:167 6 —
.. 5 2-0-3 268:310 4 —
;ÍS .... 5 1-0-4 205:297 2 —
■ÍKF .. 5 0-0-0 208:304 0 —
IR ..
KFR
arsson vítakast frá Ingólfi og
töldu menn það illan fyrir
boða fyrir Fram. Hófst nú
harðvítug barátta um forskot
ið. Stóð hún í 6 mín, en þá
Frarmh. á bls. 23