Morgunblaðið - 17.04.1962, Side 4
Monr.rnviBl^ÐlB
IriðljudaiíU'r 17. apríl 1&62
Islenzk þjdö veröur að fylgja frjálslyndri
víðsýnni umbófastefn
l
Ræba Gunnars Thoroddsen fjármálaráðherra
Herra forseti.
Góðir hlustendur.
Eins og fram kom í ræðu hiv.
1. m. m. Austurl. (Eyst. J.) í
k/völd, halda frarosöknarmenn
því fram. að við fall vinstri
Stjórnarinnar hafi hér verið
ágæt afkoma, atvinnulífið íblóma,
gjaldeyriseign, tekjuafgangur, —
allt í himnalagi, að undanskildu
þessu lítilræði, að ríkisstj. réð
ekiki við vísitöluna og verðbólg-
una. I>að, sem bagaði vinstri
stjórnina, sagði hv. þm., var vísi
töluikerfið.
Þetta minnir á frásögn frá ævi
lokum skáldsins Benedikts Grön-
dals. Þorvaldur Hhoroddsen kom
til Gröndals tveimur eða þremur
dögum áður en hann dó, og var
hann þá mjög veikur, „Hvemig
1‘íður þér í dag, Gröndal?“
spurði_ Þorvaldur. Gröndal svar-
aði: „Ég gct ekki gengið og ekki
andað, en annars líður mér vel“.
Án þess að ég vilji líkja sam-
an hinu skarpgáfaða skáldi og
Ihinni vesælu vinstri stjórn þá
var henni eitthvað svipað farið,
þegar hún lá banaleguna. Henni
var orðið þungt og þröngt um
andardrátt, og víst er það, að
ihiún gat ökki gengið. Hún réð
ekki við dýrtíð né vísitölu, en
annars leið henni vel. Eða svo
fannst Framsókn.
Á þekn tveim árum, sem liðin
eru síðan viðreisnin hófst, hefur
verið unnið að marglhóttuðum
umbótum á mörgum sviðum
þjóðlífsins. Skulu nefndar hér
nokkrar þeirra.
Afkoma þjóðarinnar rétt við
Afkorna þjóðarinnar í heild
hefur rétt við. Ár hvert, síðan
Styrjöldinni lauk, hafði halli
verið á þjóðarbúskapnum og
skuldum safnað, þangað til í
fyrra. Þá varð greiðsiujöfnuður
þjóðarbúsins hagstæður um 200—
250 millj. í ársskýrslu Seðlabank-
ans segir: „Er því óhætt að
segja, að náðst hafi mjög mikil-
vægur árangur í þeirri viðleitni
að styrkja stöðu þjóðarinnar gagn
vart útlöndum“.
í beinu sambandi við afkomu
þjóðarbúsins út á við er gjald-
eyrisástandið. Skortur á erlend-
»m gjaldeyri hefur lengst af
verið þjóðinni þrálát plága og
fjötur um f5t. Nú hefur skipt um.
Þegar viðreisnin hófst í lok fe-
brúar 1060, var gjaldeyrisskuld
bankanna 216 millj. reilcnaðmeð
múv. gengi. En nú, tveim ár-
ttm seinna. er gjaldeyriseignin
704 millj., og bati á þessum tveim
érum því um 920 millj.
Fjárhagsafköma ríkissjóðs er
■einn af hyrningarsteinum efna-
hagslífsins. Á því eina heila ári,
sem vinstri stjórnin sat, 1957,
vsarð greiðsluhalli hjá ríkissjáði.
Á þeiim tveim árum, sem núv.
stjóm hefur starfað, hefur orðið
ttokkur tekjuafgangur bæði árin.
Umframgreiðslur, — útgjöld um-
fram áætlun fjárlaga, hafa lengi
tíðkazt, og oft verið mikill mis-
brestur á því, að fjárlögum væri
fylgt. Stundum hefur ekki verið
gætt hófs um útgjöld fram yfir
heimildir fjárlaga. En 1960
Urðu útgjöld ríkisins í fyrsta
sikipti lægri en fjárlög höfðu
áætlað.
Til þarfa útvegsins
Tveir hv. þm. hafa gert að um-
telsefni hér í kvöld gengishagn-
að af útflutningsbirgðum s.l.
haust, sem ríkissjóður hafi rang-
liega tekið traustataki af útveg-
inum, Því er til að svara, að við
fyrri gengisbreytingar hefur
gengisgróði af birgðum ekki ver
Í& látinn renna til þeirra, sem
áttu þær birgðir á þeirn degi, er
gengislækkun varð. Þessi gengis-
hagnaður verður ekki látinn
renna til ríkissjóðs heldur í sér-
stakan Ríkisábyrgðasjóð til þess
að standa undir áföllnum ábyrgð
um vegna atvinnuveganna, Og
fer þetta fé þannig fyrst og
fremst til þarfa útvegsins. Karl
Guðjónsson sagði að gengisbreyt
imgin hefði bjargað ríkissjóði og
væntanlega verið til þess gerð.
Þetta er misskilningur. Þær
auknu tólltekjur og aðrar tekj-
ur, sem níkssjóður hlaut af geng
isbreytingunni, námu ekki hærri
upphæð heldur én aukin útgjöld
ríkissjóðs vegna hennar.
Skattamálin
tekin til endurskoðunar
Lögð hefur verið rækt við að
koma á umbótum og bættu skipu
lagi við ýmsa opinbera starfsemi.
Hefur það þegar borið verulegan
árangur til sparnaðar. Hér skulu
þrjú dæmi nefnd. Viðskiptafrelsið
gerði kleift að leggja niður inn
flutningssikrifstofuna Og spara
þar um 3 miilj. kr. á ári. Fyrir-
huguð sameining innheimtu ríkis
skatta, útsvara og sjúkrasamiags
iðgjalda í Reykjavík mun spara
um 6 millj. kr. á ári. Sameinig
áfengis- og tóbaksverzlunar spar
ar um eða yfir 2 millj. kr. á ári.
Fjöldi annarra atriða til aukins
sparnaðar og hagkvæmni hefur
ýmist komizt í framkvæmd þeg-
ar, eða er i undirbúningi.
Skattamálin hafa verið tekin
til gagngerðar endurskoðunar,
beinir skattar verið lækkaðir
stórlega, fyrst á einstaklingum,
óg á þessu þingi verða afgreidd-
ar ýmsar .lagfæringar atvinnu-
rekstrinum til handa. Til þess að
bæta ríkissjóði tekjutap hans
vegna þeirrar skattalækkunar á
einstaklingum, sem var fram-
kvæmd fyrir tveimur árum, til
að standa undir auknum al-
mannatryggingum og til þess að
fá sveitarfélögunum nýjan tekju-
stofn, var lagður á 3% almennur
söluskattur. Þessa leið hafa ná-
grannaþjóðir okkar farið eða eru
að fara ian á. Svíar hafa um
nokkurra ára skeið haft 4% sölu
gkatt, Norðmenn 10% og Danir
munu væntanlega lögleiða á næst
unni 5% söluskatt.
Endurskoðun hefur farið fram
á útsvarslöggjöfinni, Og sveitar-
félögum fengnir nýir tekjustofn-
ar eins og hluti af söluskatti og
landsútsvör.
Hert á eftirliti
Tollamálin öll eru í endurskoð
un. Ný tollskrá verður lögð fyrir
þingið í haust. f nóvémber s.l.
voru samþ. verulegar tollalækk-
anir á ým?um vörum
Endurbæturnar á skatta- og út-
svars- og toliamálum, eru ekki
aðeins fjánhagslegs eðlis heldur
og siðferðilegs. Skattsvik og
smygl haía á undanförnum ár-
um gagnsýrt þjóðfélagið. Með
hinum geysiháu skatta Og tolla-
stigum hefur þróazt hverskonar
spilling og sviksemi, röng fram-
töl, misrétti milli manna. þar
sem tekjur sumra hafa verið tald
ar fram að fuillu. en aðrir hafa
komizt upp með að draga hluta
tekna^ sinna og eigna undan skött
um. í sambandi við lagfæringu
á skatta- Og tollamálum verður
hert á eftirliti með því, að menn
telji rétt fram Og að vörur fái
löglega tollafgreiðslu. Eru í und-
irbúningi ýmsar ráðstafanir í
þeim efnum, ranglát lög leiða af
sér ólöghlýðni og óheiðarleika.
Þegar menn finna að töLla- Og
skattalög eru réttlát og hófleg
munu þeir virða þau og hlýða
þéim. Hér er því verið að örv:
og efla atvinnulífið í landinu
framtak og vinnusemi manna, en
um leið reynt að eyða spillingu
og sviksemi og koma á heiðar-
legri og réttlátari þjóðfélagshát'i
um en áður.
f stað þeirrar óreiðu og ógætni
sem átt nefur sér stað um veit-
ingu rikisábyrgða fyrir ýmum
Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra
lánum, sem síðan hafa lent í van
skilum og fallið ríkissjóði til
byrði, hefur nú verið komið
fastri skipan á þau mál með
lögum um ríkisábyrgðir og eftir-
lit með þeim, og með frv. því
um ríkisábyrgðasjóð, sem liggur
fyrir þinginu.
Sparifjársöfnun almennings er
ómissandi hlekkur í viðreisninni.
Ör vöxtur sparifjársins er undir
staða heilbrigðrar lánastarfsemi.
Til þess að bæta úr þeim tilfinn-
anlega lánsfjárskorti, sem þjak-
að hefur þjóðina um langan
aldur, er nauðsynlegt að auka
spariféð. ÞaS hefur tekizt bæði
vegna hinna háu innlánsvaxta,
vegna stöðugrar og mikillar at-
vinnu og ioks vegna -þess, að
fólkið hefur íengið nýtt og aukið
traUst á fjármálum og elfna-
hag þjóðarinnar. Sparifé í bönk-
um og sparisjóðum hefur á þess-
um íveim árum, frá febrúar
lokum 1960 til febrúarloka 1962,
áukizt um 1017 millj. eða rúm-
an milljarð.
Samningréttur opinberra
starfsmanna mikil réttarbót
Frv. um samningsrétt opin-
berra starfsmanna er mikilsverð
réttarbót fyrir þann fjölmenna
hóp starfsmanna, sem um árabil
hefur barizt fyrir þessari viður-
kenningu.
Þær aðgerðir og umbætur, sem
núv ríkisstj. hefur staðið að og
beitt sér fyrir, hafa veruleg áhrif
á afkomu manna á líðandi stund.
En allar eru þær fyrst og fremst
miðaðar við framtíðina. Þær
stefna að því að skapa æsku ís-
lands sem bezta aðstöðu í lífs-
baráttunni. Með viðreisninni er
lagður heilbrigður og traustur
grundvöllur að framtíðarstarfi.
Með viðreisninni er verið að
tryggja, að æskan taki við betra
landi, Og henni verði búin betri
úarfsskilyrði en fyrr. Það er
unnið að því að tryggja fjárhags
legt sjálfstæði þessa lands, svo
að íslenzk æska þurfi ekki að
taka við drápsklyfjum erlendra
skulda og stynja undir þeim
aillt sitt líf. Það er reynt að
skapa fjárhagslegt jafrwægi í
stað verðbólgu, öruggan atvinnu
grundvöll, svö að atvinnuleysi
hefji aldrei oftar innreið sína í
þetta land.
Létt undir með námsmönnum
Það hefur verið búið í haginn
fyrir íslenzka námsmenn á marga
lund. Áður fyrr var oft miklum
örðugdeikum bundið fyri- náms-
menn vegna gjaldeyrisskorts að
fá nauðsynlegan gjaldeyri á rétt-
um tíma. Nú eru þeir erfiðleikar
úr sögunm. Miikið hefur verið
gert til að létta undir með náms
mönnum með auknum framlög-
um, til styrkja og lána. Ný lög-
gjöf hefur verið sett um lána-
sjóði íslenzkra nómsmanna. Árið
1958 voru framlög í fjárl. til
stynkja og lána til námsmanna
tæpar 2 millj. kr. í gildandi fjárl.
eru það rúmar 8 millj. Þegar
með er talið eigið fé lánasjóðs
og þau bankalán, sem hafa feng-
izt til útlána, hefur fé til náms-
lána og styrkja hækkað á fjór-
um árum úr 2 millj. upp í rúmar
13 miMj. kr.
f skattafrv. er það nýmæli, að
draga skuli frá tekjum, áður en
skattur er á lagður, námskostnað,
sem stofnað er til eftir tvítugs-
aldur. Með þessu er verið að
létta undir með námsmönnum
sem oft koma skuldum hlaðnir
eftir langt og dýrt nám, og eiga
sérstaklega fyrstu árin eftir að
þeir taka við starfi fullerfitt með
að standa undir vöxtum Og af-
borgunum námsskulda.
Lægri byggingarkostnaður
ein hin stærsta kjarabót
æskufólks
Húsnæðismálin eru vafalaust
eitt stærsta áhugamál æskunnar.
Miklar umbætur hafa verið gerð
ar á þessu þingi á lögum um
húsnæðismálastjórn og verka*
mannabústaði, og lánsupphæðir
hækaðar veruilega. Lánsfjárskort
urinn hefur háð og háir mjög hús
byggingum ekki síður unga fólks
ins en annarra. En með hinni
öni sparifjáraukningu, sem er ein
afleiðing viðreisnarinnar, mun
bráðlega breytt til batnaðar i
þessu efni, svo auðveldara verði
en áður að fá byggingarlón. En
mikilvægasta verkefnið er að
lækka byggingarkostnaðinn og
gera húsnæðið þannig ódýr-
ara. Lægri byggingar- og
húsnæðiskostnaður mundi vera
ein hin stærsta kjarabót fyr-
ir æskulýð þessa lands, —
og að því verður að vinna.
Stefna viðskipta- og athafna-
frelsis, stefna frjólslyndis og víð
sýni skapar æskunni aukið svig-
rúm og hollara andrúmsloft. Hver
sá æskumaður, sem hefur Orku
og áræði, kraft í kögglum, eld
í æðum fær þá fleiri tæki-
færi, margfalda möguleika, til
þess að afla sér fjár og frama,
ryðja nýjar brautir, þjóðinni
allri, sér og sínum til farsældar.
íslenzk þjóð verður að fylgja
frjálslyndri og víðsýnni umbóta-
stefnu til þess að vel fari.
Æskulýðsráð
NÝLEGA var haldinn fyrsti
fundur Æsltulýðsráðs Selfoss, en
það var stofnað á vegum hrepps
r.efndar Selfosshrepps og hefur
Kvenfélag Selfoss haft forgöngu
um stofnun þess.
Frú Amdís Þorbjamardótfir
var kosin formaður Æskulýðs-
rá&s, en aðrir í ráðinu eru: Haf-
stemn Þorvaldsson, lögreglu-
þjónn, og Jón Ingi Sigurmunds-
son, kennari.
Flestum - mun vera ljóst
hversu aðkallandi það er hér á
Selfossi, að koma á heilbrigðu
tómstunda- og félagsstarfi barna
og unglinga.
Æskulýðsráði Selfoss er falið
að reyna að koma á slíkri starf-
semi og vera félagssamtökum
úngs fóltks til aðstoðar í þeim
málum.
Ýmsir aðilar hafa þegar sýnt
skilning og áhuga á þessari
væntanlegu starfsemi og boðið
fram aðstoð sína eða húsnæði.
Fyrsta verkefni Æskulýðsróðs
er að stuðla að því, að á kom-
andi sumri verði komið á
kennslu í frjálsum íþróttum,
knattspyrnu og handknattleik á
i egum UMF Selfoss. — Annað
starf er einnig í undirbúningi,
— FréttaritarL
Aðalfundur Félags
pípulagninga-
meistara
N Ý L E G A er lokið aðalfundi
Félags píplagningameistara í
Reykjavík. Fyrir fundinum lágu
ýmis aðkallandi mál, en þó
fyrst og fremst að taka ákvörð-
un um á hvem hátt félagið geti
hrundið í framkvæmd einu
mesta nauðsynjamáli sínu, en
það er að koma á svokölluðum
uppmælingataxta fyrir selda
vinnu.
En reynsla annarra félaga
hefur greinilega sýnt að þetta
er mjög heppilegt fyrirkomulag
fyrir alla aðila, enda stefnir
almenn þróun í þá átt, að sem
flest verði unnið á einn eða
annan hátt í ákvæðisvinnu-
formi.
1 tilefni af góðri samvinnu við
borgaryfirvöld við setningu
reglugerða varðandi iðnina, og
aukin réttindi pípulagninga-
meistara, var eftirfarandi tillaga
samþykkt samhljóða.
„Félag pípulagningameistara,
Reykjavík, lýsir ánægju sinni
yfir árangri þeim sem náðst
hefur í réttindamálum stéttar-
innar með tilkomu reglugerðar
varðandi iðnina, sem vonandi
getur orðið til mikilla hagsbóta
fyrir félagsmenn sjálfa, og þá
um leið til öryggis fyrir almenn
ing í heild
Um leið og fundurinn þakkar
hlutaðeigandi borgaryfirvöldum
fyrir skilning þeirra og góðan
stuðning í þessum málum,
væntir hann þess að umrædd-
um reglugerðum verði sem fyrst
komið í það form að þær nái
tilætluðum árangri".
Ýmis önnur mál voru tekin
til meðferðar og samþykktir
gerðar, þar á meðal að vinna að
því að koma á verknámskeiðum
í samráði við Iðnskólann. Sömu-
leiðis voru félagsmenn hvattir
til að safna munum á Iðnminja-
safn það sem nú þegar er kom-
inn vísir að. /
Bergur Jónsson, sem verið
hefur formaður félagsins síðast-
liðin 6 ár, baðst undan endur-
kjöri í það starf, en í hans stað
var kjörinn Grímur Bjarnason.
Stjóm félagsins er nú þannig
skipuð: Grímur Bjarnason for-
maður, Tryggvi Gíslason vara-
formaður, Hallgrímur Kristjáns-
son ritari, Haraldur Salómons-
son gjaldkeri og Bergur Jóns-
son meðstj órnandL