Morgunblaðið - 17.04.1962, Page 4

Morgunblaðið - 17.04.1962, Page 4
Monr.rnviBl^ÐlB IriðljudaiíU'r 17. apríl 1&62 Islenzk þjdö veröur að fylgja frjálslyndri víðsýnni umbófastefn l Ræba Gunnars Thoroddsen fjármálaráðherra Herra forseti. Góðir hlustendur. Eins og fram kom í ræðu hiv. 1. m. m. Austurl. (Eyst. J.) í k/völd, halda frarosöknarmenn því fram. að við fall vinstri Stjórnarinnar hafi hér verið ágæt afkoma, atvinnulífið íblóma, gjaldeyriseign, tekjuafgangur, — allt í himnalagi, að undanskildu þessu lítilræði, að ríkisstj. réð ekiki við vísitöluna og verðbólg- una. I>að, sem bagaði vinstri stjórnina, sagði hv. þm., var vísi töluikerfið. Þetta minnir á frásögn frá ævi lokum skáldsins Benedikts Grön- dals. Þorvaldur Hhoroddsen kom til Gröndals tveimur eða þremur dögum áður en hann dó, og var hann þá mjög veikur, „Hvemig 1‘íður þér í dag, Gröndal?“ spurði_ Þorvaldur. Gröndal svar- aði: „Ég gct ekki gengið og ekki andað, en annars líður mér vel“. Án þess að ég vilji líkja sam- an hinu skarpgáfaða skáldi og Ihinni vesælu vinstri stjórn þá var henni eitthvað svipað farið, þegar hún lá banaleguna. Henni var orðið þungt og þröngt um andardrátt, og víst er það, að ihiún gat ökki gengið. Hún réð ekki við dýrtíð né vísitölu, en annars leið henni vel. Eða svo fannst Framsókn. Á þekn tveim árum, sem liðin eru síðan viðreisnin hófst, hefur verið unnið að marglhóttuðum umbótum á mörgum sviðum þjóðlífsins. Skulu nefndar hér nokkrar þeirra. Afkoma þjóðarinnar rétt við Afkorna þjóðarinnar í heild hefur rétt við. Ár hvert, síðan Styrjöldinni lauk, hafði halli verið á þjóðarbúskapnum og skuldum safnað, þangað til í fyrra. Þá varð greiðsiujöfnuður þjóðarbúsins hagstæður um 200— 250 millj. í ársskýrslu Seðlabank- ans segir: „Er því óhætt að segja, að náðst hafi mjög mikil- vægur árangur í þeirri viðleitni að styrkja stöðu þjóðarinnar gagn vart útlöndum“. í beinu sambandi við afkomu þjóðarbúsins út á við er gjald- eyrisástandið. Skortur á erlend- »m gjaldeyri hefur lengst af verið þjóðinni þrálát plága og fjötur um f5t. Nú hefur skipt um. Þegar viðreisnin hófst í lok fe- brúar 1060, var gjaldeyrisskuld bankanna 216 millj. reilcnaðmeð múv. gengi. En nú, tveim ár- ttm seinna. er gjaldeyriseignin 704 millj., og bati á þessum tveim érum því um 920 millj. Fjárhagsafköma ríkissjóðs er ■einn af hyrningarsteinum efna- hagslífsins. Á því eina heila ári, sem vinstri stjórnin sat, 1957, vsarð greiðsluhalli hjá ríkissjáði. Á þeiim tveim árum, sem núv. stjóm hefur starfað, hefur orðið ttokkur tekjuafgangur bæði árin. Umframgreiðslur, — útgjöld um- fram áætlun fjárlaga, hafa lengi tíðkazt, og oft verið mikill mis- brestur á því, að fjárlögum væri fylgt. Stundum hefur ekki verið gætt hófs um útgjöld fram yfir heimildir fjárlaga. En 1960 Urðu útgjöld ríkisins í fyrsta sikipti lægri en fjárlög höfðu áætlað. Til þarfa útvegsins Tveir hv. þm. hafa gert að um- telsefni hér í kvöld gengishagn- að af útflutningsbirgðum s.l. haust, sem ríkissjóður hafi rang- liega tekið traustataki af útveg- inum, Því er til að svara, að við fyrri gengisbreytingar hefur gengisgróði af birgðum ekki ver Í& látinn renna til þeirra, sem áttu þær birgðir á þeirn degi, er gengislækkun varð. Þessi gengis- hagnaður verður ekki látinn renna til ríkissjóðs heldur í sér- stakan Ríkisábyrgðasjóð til þess að standa undir áföllnum ábyrgð um vegna atvinnuveganna, Og fer þetta fé þannig fyrst og fremst til þarfa útvegsins. Karl Guðjónsson sagði að gengisbreyt imgin hefði bjargað ríkissjóði og væntanlega verið til þess gerð. Þetta er misskilningur. Þær auknu tólltekjur og aðrar tekj- ur, sem níkssjóður hlaut af geng isbreytingunni, námu ekki hærri upphæð heldur én aukin útgjöld ríkissjóðs vegna hennar. Skattamálin tekin til endurskoðunar Lögð hefur verið rækt við að koma á umbótum og bættu skipu lagi við ýmsa opinbera starfsemi. Hefur það þegar borið verulegan árangur til sparnaðar. Hér skulu þrjú dæmi nefnd. Viðskiptafrelsið gerði kleift að leggja niður inn flutningssikrifstofuna Og spara þar um 3 miilj. kr. á ári. Fyrir- huguð sameining innheimtu ríkis skatta, útsvara og sjúkrasamiags iðgjalda í Reykjavík mun spara um 6 millj. kr. á ári. Sameinig áfengis- og tóbaksverzlunar spar ar um eða yfir 2 millj. kr. á ári. Fjöldi annarra atriða til aukins sparnaðar og hagkvæmni hefur ýmist komizt í framkvæmd þeg- ar, eða er i undirbúningi. Skattamálin hafa verið tekin til gagngerðar endurskoðunar, beinir skattar verið lækkaðir stórlega, fyrst á einstaklingum, óg á þessu þingi verða afgreidd- ar ýmsar .lagfæringar atvinnu- rekstrinum til handa. Til þess að bæta ríkissjóði tekjutap hans vegna þeirrar skattalækkunar á einstaklingum, sem var fram- kvæmd fyrir tveimur árum, til að standa undir auknum al- mannatryggingum og til þess að fá sveitarfélögunum nýjan tekju- stofn, var lagður á 3% almennur söluskattur. Þessa leið hafa ná- grannaþjóðir okkar farið eða eru að fara ian á. Svíar hafa um nokkurra ára skeið haft 4% sölu gkatt, Norðmenn 10% og Danir munu væntanlega lögleiða á næst unni 5% söluskatt. Endurskoðun hefur farið fram á útsvarslöggjöfinni, Og sveitar- félögum fengnir nýir tekjustofn- ar eins og hluti af söluskatti og landsútsvör. Hert á eftirliti Tollamálin öll eru í endurskoð un. Ný tollskrá verður lögð fyrir þingið í haust. f nóvémber s.l. voru samþ. verulegar tollalækk- anir á ým?um vörum Endurbæturnar á skatta- og út- svars- og toliamálum, eru ekki aðeins fjánhagslegs eðlis heldur og siðferðilegs. Skattsvik og smygl haía á undanförnum ár- um gagnsýrt þjóðfélagið. Með hinum geysiháu skatta Og tolla- stigum hefur þróazt hverskonar spilling og sviksemi, röng fram- töl, misrétti milli manna. þar sem tekjur sumra hafa verið tald ar fram að fuillu. en aðrir hafa komizt upp með að draga hluta tekna^ sinna og eigna undan skött um. í sambandi við lagfæringu á skatta- Og tollamálum verður hert á eftirliti með því, að menn telji rétt fram Og að vörur fái löglega tollafgreiðslu. Eru í und- irbúningi ýmsar ráðstafanir í þeim efnum, ranglát lög leiða af sér ólöghlýðni og óheiðarleika. Þegar menn finna að töLla- Og skattalög eru réttlát og hófleg munu þeir virða þau og hlýða þéim. Hér er því verið að örv: og efla atvinnulífið í landinu framtak og vinnusemi manna, en um leið reynt að eyða spillingu og sviksemi og koma á heiðar- legri og réttlátari þjóðfélagshát'i um en áður. f stað þeirrar óreiðu og ógætni sem átt nefur sér stað um veit- ingu rikisábyrgða fyrir ýmum Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra lánum, sem síðan hafa lent í van skilum og fallið ríkissjóði til byrði, hefur nú verið komið fastri skipan á þau mál með lögum um ríkisábyrgðir og eftir- lit með þeim, og með frv. því um ríkisábyrgðasjóð, sem liggur fyrir þinginu. Sparifjársöfnun almennings er ómissandi hlekkur í viðreisninni. Ör vöxtur sparifjársins er undir staða heilbrigðrar lánastarfsemi. Til þess að bæta úr þeim tilfinn- anlega lánsfjárskorti, sem þjak- að hefur þjóðina um langan aldur, er nauðsynlegt að auka spariféð. ÞaS hefur tekizt bæði vegna hinna háu innlánsvaxta, vegna stöðugrar og mikillar at- vinnu og ioks vegna -þess, að fólkið hefur íengið nýtt og aukið traUst á fjármálum og elfna- hag þjóðarinnar. Sparifé í bönk- um og sparisjóðum hefur á þess- um íveim árum, frá febrúar lokum 1960 til febrúarloka 1962, áukizt um 1017 millj. eða rúm- an milljarð. Samningréttur opinberra starfsmanna mikil réttarbót Frv. um samningsrétt opin- berra starfsmanna er mikilsverð réttarbót fyrir þann fjölmenna hóp starfsmanna, sem um árabil hefur barizt fyrir þessari viður- kenningu. Þær aðgerðir og umbætur, sem núv ríkisstj. hefur staðið að og beitt sér fyrir, hafa veruleg áhrif á afkomu manna á líðandi stund. En allar eru þær fyrst og fremst miðaðar við framtíðina. Þær stefna að því að skapa æsku ís- lands sem bezta aðstöðu í lífs- baráttunni. Með viðreisninni er lagður heilbrigður og traustur grundvöllur að framtíðarstarfi. Með viðreisninni er verið að tryggja, að æskan taki við betra landi, Og henni verði búin betri úarfsskilyrði en fyrr. Það er unnið að því að tryggja fjárhags legt sjálfstæði þessa lands, svo að íslenzk æska þurfi ekki að taka við drápsklyfjum erlendra skulda og stynja undir þeim aillt sitt líf. Það er reynt að skapa fjárhagslegt jafrwægi í stað verðbólgu, öruggan atvinnu grundvöll, svö að atvinnuleysi hefji aldrei oftar innreið sína í þetta land. Létt undir með námsmönnum Það hefur verið búið í haginn fyrir íslenzka námsmenn á marga lund. Áður fyrr var oft miklum örðugdeikum bundið fyri- náms- menn vegna gjaldeyrisskorts að fá nauðsynlegan gjaldeyri á rétt- um tíma. Nú eru þeir erfiðleikar úr sögunm. Miikið hefur verið gert til að létta undir með náms mönnum með auknum framlög- um, til styrkja og lána. Ný lög- gjöf hefur verið sett um lána- sjóði íslenzkra nómsmanna. Árið 1958 voru framlög í fjárl. til stynkja og lána til námsmanna tæpar 2 millj. kr. í gildandi fjárl. eru það rúmar 8 millj. Þegar með er talið eigið fé lánasjóðs og þau bankalán, sem hafa feng- izt til útlána, hefur fé til náms- lána og styrkja hækkað á fjór- um árum úr 2 millj. upp í rúmar 13 miMj. kr. f skattafrv. er það nýmæli, að draga skuli frá tekjum, áður en skattur er á lagður, námskostnað, sem stofnað er til eftir tvítugs- aldur. Með þessu er verið að létta undir með námsmönnum sem oft koma skuldum hlaðnir eftir langt og dýrt nám, og eiga sérstaklega fyrstu árin eftir að þeir taka við starfi fullerfitt með að standa undir vöxtum Og af- borgunum námsskulda. Lægri byggingarkostnaður ein hin stærsta kjarabót æskufólks Húsnæðismálin eru vafalaust eitt stærsta áhugamál æskunnar. Miklar umbætur hafa verið gerð ar á þessu þingi á lögum um húsnæðismálastjórn og verka* mannabústaði, og lánsupphæðir hækaðar veruilega. Lánsfjárskort urinn hefur háð og háir mjög hús byggingum ekki síður unga fólks ins en annarra. En með hinni öni sparifjáraukningu, sem er ein afleiðing viðreisnarinnar, mun bráðlega breytt til batnaðar i þessu efni, svo auðveldara verði en áður að fá byggingarlón. En mikilvægasta verkefnið er að lækka byggingarkostnaðinn og gera húsnæðið þannig ódýr- ara. Lægri byggingar- og húsnæðiskostnaður mundi vera ein hin stærsta kjarabót fyr- ir æskulýð þessa lands, — og að því verður að vinna. Stefna viðskipta- og athafna- frelsis, stefna frjólslyndis og víð sýni skapar æskunni aukið svig- rúm og hollara andrúmsloft. Hver sá æskumaður, sem hefur Orku og áræði, kraft í kögglum, eld í æðum fær þá fleiri tæki- færi, margfalda möguleika, til þess að afla sér fjár og frama, ryðja nýjar brautir, þjóðinni allri, sér og sínum til farsældar. íslenzk þjóð verður að fylgja frjálslyndri og víðsýnni umbóta- stefnu til þess að vel fari. Æskulýðsráð NÝLEGA var haldinn fyrsti fundur Æsltulýðsráðs Selfoss, en það var stofnað á vegum hrepps r.efndar Selfosshrepps og hefur Kvenfélag Selfoss haft forgöngu um stofnun þess. Frú Amdís Þorbjamardótfir var kosin formaður Æskulýðs- rá&s, en aðrir í ráðinu eru: Haf- stemn Þorvaldsson, lögreglu- þjónn, og Jón Ingi Sigurmunds- son, kennari. Flestum - mun vera ljóst hversu aðkallandi það er hér á Selfossi, að koma á heilbrigðu tómstunda- og félagsstarfi barna og unglinga. Æskulýðsráði Selfoss er falið að reyna að koma á slíkri starf- semi og vera félagssamtökum úngs fóltks til aðstoðar í þeim málum. Ýmsir aðilar hafa þegar sýnt skilning og áhuga á þessari væntanlegu starfsemi og boðið fram aðstoð sína eða húsnæði. Fyrsta verkefni Æskulýðsróðs er að stuðla að því, að á kom- andi sumri verði komið á kennslu í frjálsum íþróttum, knattspyrnu og handknattleik á i egum UMF Selfoss. — Annað starf er einnig í undirbúningi, — FréttaritarL Aðalfundur Félags pípulagninga- meistara N Ý L E G A er lokið aðalfundi Félags píplagningameistara í Reykjavík. Fyrir fundinum lágu ýmis aðkallandi mál, en þó fyrst og fremst að taka ákvörð- un um á hvem hátt félagið geti hrundið í framkvæmd einu mesta nauðsynjamáli sínu, en það er að koma á svokölluðum uppmælingataxta fyrir selda vinnu. En reynsla annarra félaga hefur greinilega sýnt að þetta er mjög heppilegt fyrirkomulag fyrir alla aðila, enda stefnir almenn þróun í þá átt, að sem flest verði unnið á einn eða annan hátt í ákvæðisvinnu- formi. 1 tilefni af góðri samvinnu við borgaryfirvöld við setningu reglugerða varðandi iðnina, og aukin réttindi pípulagninga- meistara, var eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða. „Félag pípulagningameistara, Reykjavík, lýsir ánægju sinni yfir árangri þeim sem náðst hefur í réttindamálum stéttar- innar með tilkomu reglugerðar varðandi iðnina, sem vonandi getur orðið til mikilla hagsbóta fyrir félagsmenn sjálfa, og þá um leið til öryggis fyrir almenn ing í heild Um leið og fundurinn þakkar hlutaðeigandi borgaryfirvöldum fyrir skilning þeirra og góðan stuðning í þessum málum, væntir hann þess að umrædd- um reglugerðum verði sem fyrst komið í það form að þær nái tilætluðum árangri". Ýmis önnur mál voru tekin til meðferðar og samþykktir gerðar, þar á meðal að vinna að því að koma á verknámskeiðum í samráði við Iðnskólann. Sömu- leiðis voru félagsmenn hvattir til að safna munum á Iðnminja- safn það sem nú þegar er kom- inn vísir að. / Bergur Jónsson, sem verið hefur formaður félagsins síðast- liðin 6 ár, baðst undan endur- kjöri í það starf, en í hans stað var kjörinn Grímur Bjarnason. Stjóm félagsins er nú þannig skipuð: Grímur Bjarnason for- maður, Tryggvi Gíslason vara- formaður, Hallgrímur Kristjáns- son ritari, Haraldur Salómons- son gjaldkeri og Bergur Jóns- son meðstj órnandL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.