Morgunblaðið - 24.05.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.05.1962, Blaðsíða 1
Tvö blöð, 36 síður C9 ávgangur 117. tbl. — Fimmtudagur 24. maí 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins Illvigar deilur vinstri manna sanna upplausn- ina9 ef þeir næðu . meirihluta Alþýðuflokkurinn vill þjóðnýta alla útgerð ræmi við hinn áratuga gamla hugsunarhátt, sem nú hefur verið endurlífgaður í þeim í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM í gærkvöldi vönduðu ræðu- menn vinstri flokkanna hver öðrum ekki kveðjurnar. — Voru deilur þeirra svo harð- ar og óvægar að frekar þarf ekki vitnanna um það, að sú samstjóm, sem tækist með þeim um borgarmálefni Reykjavíkur, ef Sjálfstæðis- flokkurinn missti meirihluta, yrði áreiðanlega ekki betri en vinstri stjómin alræmda. Brigzluðu þeir hver öðmm um þjónustusemi við erlent vald, töluðu um „að láta nautin ráða ferðinni“, „sendi- sveinadeild SÍS“ o. s. frv. — Til að kóróna vinstri glund- roðann, var þvi svo lýst yfir, að stofnaður yrði enn einn nýr vinstri flokkur að af- loknum borgarstjórnarkosn- ingum. Þá vakti það einnig at- hygli, að Pétur Pétursson, einn af frambjóðendum Al- þýðuflokksins, lýsti því yfir, að það væri stefna Alþýðu- flokksins að hefja stórfellda bátaútgerð. Sagði hann að „margfalda“ ætti Bæjarút- gerðina með rekstri báta- flota. Með hliðsjón af því að togarar Bæjarútgerðarinnar færa á land í Reykjavík svipað aflamagn og bátamir, virðist Alþýðuflokkurinn ætla að stefna að því að þjóðnýta alla bátaútgerð í borginni. Kemur þessi þjóð- nýtingaryfirlýsing í kjölfar þeirra stefnumála að hindra íbúðabyggingar einstaklinga og gera upptækan „söluhagn að“ af fásteignum. í ræðu sinni vék Gunnar Thoroddsen, fjármálaráð- herra, að því, að þegar einkaframtak ekki réði við mikilvæg verkefni, þyrftu opinberir aðilar stundum að eiga hlut að atvinnufram- kvæmdum, en svo hefði ver- ið þegar togarar Bæjarút- gerðarinnar vom keyptir. Samkvæmt hinum nýju kenningum Alþýðuflokksins, vill hann hinsvegar leggja megináherzlu á bæjarrekst- ur þess atvinnuvegs, sem ein Btaklingamir eiga hægara með að kljúfa, þ.e.a.s. báta- útgerðimar. Er það í sam- Bandaríkin taka við kínverska fldttafdlkinu flokki. Einn af ræðumönnum minnihlutans vék að því, að mjög hættulegt væri að sömu menn stjómuðu lengi í borgarfélaginu, en bætti því síðan við, að hastarlegt væri að Sjálfstæðisflokkur- nesiu- inn skyldi hafa bætt nýjum mönnum á lista sinn! Ræðumaður Framsóknar- flokksins tók upp harða vöm fyrir þjóðfylkingará- form flokksins, og einkum þó fyrir kommúnista. Talaði hann um „óvægna ádeilu á það, sem þeir (þ.e. Sjálf- stæðismenn) kalla þjóð- Framh. á bls. 2 Kennedy sagði d blaðamannafundi þegar fengið landvistarleyfi 1 gær, að þúsundir hefðu Washington, 23. maí. — NTB. K E N N E D Y , Bandaríkjaforseti, hélt í kvöld fund með' blaða- mönnum. Tók hann til umræ'ðu ýmis af þeim málum, sem hæst hefur borið af alþjóðamálum, nú síðustu daga. Forsetinn sagði, að Bandaríkin hefðu tekið ákvörðun um að veita hæli kínversku flóttafólki, sem komið hefði til Hong Kong, þar sem ekki væri nú lengur hægt að veita því hæli þar, vegna fólksmergðar. — Einnig vék forsetinn að Berlínarmálinu og ástandinu í Indó- • Þúsundir fá landvistarleyfi. Kennedy sagði, að bandaríska sendiráðið í Hong Kong hefði veitt mörgum þúsundum kán- verskra flóttamanna vegabréfsá- ritun til Bandaríkjanna. Hér væri um að ræða svipað- ar aðgerðir, og er ung- verskuim og kúbönskum filótta- mönnum var veitt landvistarleyfi í Bandarikjunum, á sinum tíma, þrátt íyrir það, að löngu hefði verið náð tölu þeirra innflytjenda sem leyfð væri, frá þessum lönd- um. Forsetinn sagði ennfremur, að reynt yrði að filýta filutningum þessa fiólks, frá Hong Kong til Bandaríkjanna, sem mest mætti verða. Forsetinn vék einnig að þeim ráðagerðum, sem kínverskir kommúnistar gripu til í dag, að stöðva flóttamannastrauminn, en það er í fyrsta skipti í langan tíma, sem kinverskir landamæra- verðir hafa gripið til þess. Þá upplýsti Kennedy, að Banda ríkin hefðu um langan aldur gef- ið matvæli, til að fæða hálfa milljón flóttamanna, sem dvalið hafa í Hong Kong. Hann lauk lofisorði á Breta, fyrir viðleitni þeirra, til þess að finna vinnu handa öllum þeim fjölda filótta- manna, sem komið hafa til ný- lendunnar. • Misklíð Bandarikjanna og Þjóðverja úr sögunni. Þá upplýsti Kennedy, að mis- klíð sú, sem gerði vart við sig um daginn, milli V-Þýzkalands og Bandaríkjanna, varðandi Ber- línarmiálið, væri nú að fuliu úr sögunni. Hann sagði, að tillögur V-Þýzkalands um alþjóðlegu eftir litsnefndina, sem Bandaríkja- menn hafa stungið upp á, að verði látin fjalla um Berlín, verði teknar til nákvæmrar athugunar. Þá lagði hann áherzlu á, að viðræður Bandaríkjamanna og Rússa, um Berlinarmálið, yrðu að haiida áfram. Framh. á bls. 2 Salan í lífs- tíðarfangelsi Stochl við kom.una til Kaupmannahafnar PARÍS 23. maí — NTB. ÞAÐ ”AR tilkynnt í París í kvöld, að Salan, fyrrum hers- Stochl vekur athygli í K.höfn — Var þogull sem grofin, á Kastrupflugvelli ÞEGAR Tékkinn Stochl, sem hugðist múta ísl. flugmannin- um, Sigurði Ólafssyni, til njósna fyrir kommúnista, kom til Kast- rup-flugvallar, í fyrradag, á leið sinni tii Frag, voru mættir á flugvellinum blaðamenn og ljós- myndarar frá dönskum blöðum. Var augljóst, að fréttin um njósnamálið hafði vakið mikla athyglj í Danmörku. Berlingske Tidende segir, að enginn hafi tekið á móti Stochl, og hafi hann verið þögull sem giröfin og einungis hrist höfuðið, þegar hann var spurður að því, hvort honum hefði verið vísað burt firá íslandi. Hann vissi ekik- ert og gat ekkart skilið og ekki var einu sinni hægt að toga út úr honum, hvað hann héti, segir blaðið. Á myndinni hér að ofan sést danskur ljósmyndari taika mynd af Tékkanum, þegar hann fær afgreiðslu á flugvellinum. Þess má geta, að Þjóðviljinn leggst svo lágt í gær, að hrigzla Sigurði Ólafssyni, flugmanni, um að hafa ætlað sér að hagmast á að skýra frá erindi Stochl við hann. í fyrirsögn yfir grein blaðsins, þess efnis, segiir um Sigurð: „Vill fá 420 þúis. króraur fyrir viðvikið”. Hins vegar vita allir laradsmenn, að Sigurður sneri sér, að sjálfsögðu, sem góð- ur og gegn islenzkur borgari, til stjómarvaldanna og skýrði frá málinu, eins og það lá fyrir, enda þótt honum hafi verið ljóst, að það mundi hafa í för með sér aukna fjárhagserfiðleika. Slíkt eiga þeir meran erfitt með að skilja, sem selt hafa þjóðiholl ustu sína við Rússagulli. Slíkt „viðvik“ teist ekki til tíðinda í herbúðum íslenzkra kommúnista. Nánar er um mál þetta fjallað í Staksiteinum í blaðinu í dag. höfðingi, og síðar yfirmaðtu OAS-samtakanna, hefði . verií dæmdur í lífstíðarfangelsi — er ekki til dauða, eins og búizt vai við fyrr í dag, er málflutning saksóknarans Iauk. Salan var áærðux fyrir að hafí tekið þátt í byltingunni í Alsú í fyrra, auk þess að hafa verif yfirmaður OAS-hryðjuverkasati takanna í Alsir, sem staðið hafe að morðum þúsunda, og ógna? allri tilveru manna, þar unc slóðir. Alls voru ákæruatriðin 6 Salan var sekur fundinn um S atriðanna, en hvað viðkom þv. sjötta, þá litlu dómarar svo á að þar hefði verið um mildandi aðstæður að ræða. Á grundvelli þess, var Salan ekki dæmdur til dauða, heldui í lífstíðarfaragelsi. Áheyrendur í salnum tóku a® syngja „Marseillessinn", er dóno ur hafði verið kveðinn upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.