Morgunblaðið - 24.05.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.05.1962, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 24. maí 1%2 MORGVNBLAÐIÐ 13 Halldór Jóhannsson Hvammstanga — minning HALL.DÓR Jóharmsson endur- skoðandi á Hvammstanga lézt eftir skamma legu lð. þessa mánaðar. Hann vax fæddur 22. des. 1-889 á Haugi í Núpsd-al. Foreldrar hans voru Jóhann Ás- mundsson Bjarnasonar bónda á Bjargi, Bjarnasonar prests á Mælifelli og Arndís Halldórs- dóttir Bjarnasonar kirkjusmiðs, eem var kunnur í Húnavatns- og Borgarf jarðarsýslu fyrir list- rænar smíðar og fjölþættar gáf- Ur. — Halldór ólst u-pp hjá foreldr- um sínum á Haugi, hann var einbimi þeirra. Arndís móðir Ihans var seinni kona Jóhanns Ásmundssonar. Þegar Halldór Jóhannsson var barn að aldri,' kom það skýrt í ljós að hann var óvenjulega góðum gáfum gasddur. For-eldrar hans voru fáteek, en bjargálna sem kallað var. Barna- ekólamenntun hlaut hann ekki aðra en að hann var til náms samanlagt í þrjá mánuði hjá tveim farkennurum, Eggerti Helgasyni og Jónasi Ólafssyni, en þessir tveir sjálfboðaliðar í kennarastétt voru uppfrseðarar af guðs náð. Ég minnist þess, að það var fært í frásögur, að þegar Halldór var 9 ára gamall, þá skrifaði hann betur en nokkurt ung- menni annað í sveitinni. Þegar hann var 10 ára að aldri fór hann með föður sínum sína fyrstu kaupstaðarferð til Borð- eyrar, sem var þá viðskiptakaup- tún Miðfirðinga. Theodór Ólafs- son var verzlunarstjóri við Riis- verzlun á Borðeyri. Hann hafði frétt að þessi ungi piltur, sem kom þar í búðina í fyrsta ski-pti, væri svo ungur, orðinn lista- skrifari. Theodór tók drenginn við hönd sér og leiddi ha-nn að •bókarapúltinu og lét hann skrifa litla úttekt í höfuðbókina, sem svaraði til einnar línu og lauk lofsorði á og hafði til sýn-is búð- armönnum. Haustið 1908 fór Halldór í Flensborgarskóla. Um miðjan veturinn fór ég til sjóróðra á 6uðurnes. Ég hafði tveggja daga viðdvöl í Hafnarfirði. >ar var |þá Jón S. Bergmann skáld, lög- regluþjónn. Við vorum kunnugir ©g vorum við mikið saman þessa tvo daga. Eitt sinn barst tal okk- «r að húnvetnskum námssvein- um á Flensborg, en þar var Jón kunnugur. Hann sagði mér að einn nemandi bær-i þar af öðr- um að gáfum og námshæfni. Það væri Halldór Jóhannsson frá Haugi. Haustið 1908 an-daðist Jóhann Ásmundsson, faðir Halldórs. >á varð hann, tæplega tvítugur að aldri, að taka að sér búsumsjá með móður sinni aldraðri, en ekki varð meira aí skólagöngu. I>að kom strax í ljós að Hall- dór var þeim vanda vaxinn að etjórna búi, við þröngan efna- hag og frumstæða erfiðleika þeirra ára. Snyrtimennska í allri umgengni, fyrirhyggja um af- komu og samúð með mönnum ©g málleysingjum, fylgdust að •lla hans búskapartíð, sem varð löng. Árið 1913 kvæntist Halldór Guðrúnu Jónasdóttir, mikilhæfri konu, aem stóð við hlið hans til síðasta dægurs, eins og góður engill, sem aldrei haggaði róleg- um geðsmunum og hefur til að •bera fágæta mannúð og mildi, sem er ógleymanleg þeim er hana þekkja. Þeim hjónum varð ekki barna auðið, en ólu upp nokkur fósturbörn, sem sum hafa haft fram að þéssu hjá þeim meira og minna skjól og athvarf. Skömmu eftir að Hall-dór hóf •búskapinn, var hann af sveitung- um sínum kosinn í hreppsnefnd og um leið varð hann oddviti hennar. Ekki var honum fyrir- fram hugleikið, að taka að sér opinber störf og gjarnan tók hann sér þann lögboðna rétt, að vera laus við þau um sex ára bil hverju sinni. En undantekning- arlaust komst hann ekki hjá því að starfa í nær öllum nefndum og félagslegum málefnum í sinni sveit, svo óskorað var tra-ust sveit unga hans á þessum mæta manni. Hann var úrræðagóður, ósérhlífinn og svo vandur að verkum sínum, að þau voru varla umdeild nokkru sinni. í hrepps- nefnd og sóknarnefnd var hann svo ofx, sem borgaraleg skylda krafði. Að einu leyti báru verk hans af í þessu efni, en það var allur frágangur á öllum opin- Frarohald á bls. 15. Ilngur afgreiðslumaður óskast í karlmannafataverzlun. Reglusemi áskilin. Tilboð merkt: „Áhugasamur — 4763“ leggist inn á af- greiðslu blaðsins. íbúð Tveggja herbergja íbúð við Nesveg til sölu. stæðir skilmálar ef samið er strax. Upplýsingar í síma 16495. Hag- Bazar Hvítabandsins verður í Góðtemplarahúsinu uppi, í dag kl. 2 fimmtu dag 24. maá. Mikið af góðum barnafatnaði og fl. STJÓRNIN. Stúlkur óskast til starfa í eldhúsi. GLALMBÆR Aukastarf Viðskiptafræðingur eða lögfræðingur óskast til að annast bókhald og innheimtu ca. 10 klst. á viku eftir venjulegan skrifstofutíma. Laun um 3.000 á mánuði. Tilboð merkt .Aukastarf — 4762“ sendist blaðinu fyrir hádegi á laugardag n.k. Til sdlu Kelvinator kæliskópur (8 cuft) og nýtízku dönsk hús- gögn. bókaskápar, borðstofuborð m. 6 stólum, úr teak og fleira. Erik Sonderholm Bergstaðastræti 52 — Sími 2 41 38. Flatlock saumavél óskast. Upplýsingar í síma 22453. Tilboð óskast í stóran timburskúr til niðurrifs nú þegar. Uppl. í Coca Cola verksmiðjunni. DÖMUR - DÖMUR Ný sending af sumarhöttum, margar gerðir og litir. Aldrei meira úrval en nú. Verzlunin Jenny Skólavörðustíg 13A. Akranes Húseignin Heiðarbraut 65 er til sölu strax. Húsið er byggt sein einbýlishús, en í því geta verið tvær sér- skildar íbúðir. Húsið verður laust til í'búðar 5. haust. Nánari upp- lýsingar gefur Indriði Björnsson, sími 646. Nýjung Gallabuxur með tvöföldum hnjám á 2 — 10 ára. Tvöfalt slitþol. Sama verð, fást aðeins hjá okkur Miklatorgi. Vinnufatabúðin GALLABUXUR allar stærðir LJÓSAR VINNUBUXUR allar stærðir LJÓSAR VINNUSKYRTUR allar stærðir AMERÍSKAR SPORTSKYRTUR AMERÍSKAR SKYRTUPEYSUR REIÐBUXUR allar stærðir SPORTBLÚSSCR margar gerðir. VINMUFATABUÐIIM Laugavegi 76 — Sími 15425. Reykvíkingar BÖR Blaðaummæli: . . . Kom hann (Sigurjón Vilihjálmsson) mjög á óvart með skemmtilegum og örugg- um leik í þessu erfiða hlut- verki . . . Hefði engum getað dottið í hug að leikandi hafi aldrei sigið á leiksvið fyrr . . . Húsið var þéttskipað og leikn- um afbragðsvel tekið ..." Sigurður Grímsson í Mbl. Blaðaummæli Reykvíkingar BÖRSSON JR. verður sýndur í Iðnó fimmtudag 24. maí kl. 8.30. Síðasta sýning Aðgöngumiðasala frá kl. 2 í Iðnó. Með hlutverk Bör Börssonar fer Sigurjón Vilhjálmsson. Leikstjóri: Kristján Jón-sson. Leikfélagið Stakkur. Blaðaummæli: „ . . - Mín skoðun er sú að hann (Kristján Jónsson leikstjóri) hafi síður en svo reist sér hurðarás um öxl með vali þessa viðfangsefnis. Áhorf andinn fær þá heildarmynd af þessari leiksýningu, að hér séu ekki viðvaningar að verki . . . “ Hilmar Jónisson í Alþbl. GUÐRÚN BJARNADÓTTIR sem er einn þátttakendanna í fegurðarsamkeppninni um þessar mundir (varð feg- urðardrottnmg íslands 1962) er stórglæsileg stúlka á svið, og mætti segja mér uð hún ætti eftir að sjást oftar, því að framkoma hennar er með ágætum . . . Frammistaða leikenda og þó sérstaklega leiðgleði var á þann veg, að þau mundu sannarlega sóma sér hvar. sem væri B. H. í Ný vikutíðindi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.