Morgunblaðið - 24.05.1962, Síða 2
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmíudagur 24. maí 1962
Efstu menn
B-LISTAN5
ifi SeyOttSiiroi
Fétur Blöndal iðnrekandi.
Sveinn Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri.
Stefán Jóhannsson vélfræðingur.
+< ■■■ .
Hörður Jónsson verkamaður,
Guðmundur Gíslason banka-
bókari.
— Úfvarpsumræðut
Framh. af bls. 1
hættulega starfsemi komm-
únista“. Sagði hann að þetta
minnti á „galdrabrennur
fyrri alda“ og væri „siðlaus
áróður“. Framsóknarmönn-
um virðist þannig enn
renna blóðið til skyldunnar
að hjálpa bandalagsflokki
sínum, þegar flett hefur ver-
ið ofan af fyrirætlunum hans
um að hneppa íslendinga í
kommúníska áþján.
Á öðrum stað í blaðinu er
sagt frá ræðum þeirra Sjálf-
stæðismanna, sem töluðu við
umræðumar, en sérstaka at-
hygli vaxti, að Gunnar Thor-
oddsen lýsti yfir, að hús-
næðismálastjóm mundi í ár
lána meira til húsbygginga
en nokkru sinni áður, eða
100 millj. kr. Frá þessari á-
kvörðun er einnig greint í
grein Jóhanns Hafsteins i
öðrum stað í blaðinu.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjórí, var síðasti ræðumaður
kvöldsins. Hann hrakti ýms-
ar af firmm andstæðinga,
vék að hinum miklu verk-
efnum sem framundan eru
á vegum borgarinnar og lauk
máli sínu á þessum orðum:
„Við íslendingar lifum í
góðu landi og við Reykvík-
ingar lifum í góðri borg, og
við ætlum okkur ekki að
fórna þeim dýrmæta auði,
sem við eigurn í frelsi þessa
lands og æsku þessa lands.
Við ætlum okkur þvert á
móti að halda áfram að
auðga þjóðlífið, byggja betri
og fegurri borg, borg at-
hafna og hagsældar, en um-
fram allt borg frelsis og
sjálfstæðis borgaranna. Megi
úrslit borgarstjómarkosning-
anna verða Reykjavík og
Reykvíkingum til gæfu og
gengis“.
Bill brennur
á Kambabrún
Varð sjálfsíkveikja í tilbunum áburði?
Hveragerði 23. ma.í
1 GÆRKVÖL.D I kviknaði í vöru-
bíl hlöðnum áburði á Kamba-
brún. Brann bíllinn mikið og
allur farmurinn eyðilagðist. Eig-
andi bílsins og áburðarins, Guð-
mundur Bergsson, bóndi í
Hvammj í ölfusi, hefur hér orð-
ið fyrir miklu tjóni. Bílinn keypti
hann þennan sama dag í Reykja-
vík og var á heimleið.
Á þriðjudaginn fór Guðmund-
ur bóndi til Reykjavíkur. Festi
hann þar kaup á bíl hjá Mjólk-
ursamsölunni. Var hér um að
ræða yfirbyggðan Chevrolet-
vörubíl, árgerð 1947, sem sam-
salan hefur notað til þess að
aka mjóik um baeinn.
Eftir að hafa fest kaup á bíln-
um keypti Guðmundur fjögur
tonn af tilbúnum áburði og hélt
síðan heim á leið.
Þegar bíllinn kom að Kömb-
um, varð Guðmundur þess var,
að reyk lagði frá bílnum. Nam
hann þegar staðar á Kambabrún
og athugaði, hverju þetta sætti.
Var þá kviknað í áburðarfarm-
inum á. palli bílsins.
Fregnin um bílbrunann barst
brátt til Hveragerðis, og munu
menn hér hafa séð reykinn, enda
sást hann víða að úr Ölfusi. Var
brunalúðurinn hér þeyttur, og
fóni slökkviliðsmenn þegar af
stað. Ekkert vatn er í Körnb-
um, og fóru slökkviliðsmenn því
um þorpið og söfnuðu saman
handslökkvitækjum. Aðrir
slökkviliðsmenn fylltu vatns-
poka mikinn, sem slökkviliðið
hefur, og fóru með hann ásamt
lítilli dælu upp á Kambahrún.
Tókst að slökkva eldinn, en bíll-
inn brann mikið, einkum að aft-
anverðu, svo og húsið. Vélin
mun þó hafa sloppið óskemmd.
Hefur Guðmundur bóndi orðið
fyrir miklu tjóni af bruna þess-
um. — G. M.
Mbl. átti tal við Guðmund í
Hvammi í gærkvöldi Sagði hann
svo frá, að hann hefði verið
staddur á Kambabrún á tíunda
timanum kvöldið áður, þegar
maður í öðrum bíl stöðvaði hann
og sagði, að reyk legði upp af
bíl Guðmundar. Fór Guðmund-
ur þegar út og sá, að rauk upp
af bílpallinum. Enginn eldur var
sjáanlegur undir bílnum. Hjálp
var sótt til Hvergerðinga, sem
brugðu vel og skjótt við og
gerðu allt, sem þeir gátu, til þess
að bjarga bílnum. Tókst þeim
að slökkva, áður en eldurinn
komst í vélina, svo að hún er
heil. Bíllinn hefur verið athug-
aður, og er ljóst, að eldsupptak-
anna er ekki að leita í honum,
svo að allt bendir til þess, að
kviknað hafi í áburðinum af ein-
hverjum ástæðum.
I*essi mynd var tekin fyrir fáum dögum af elzta borgara
Akureyrar, Tómasi Tómassyni.
Elzti borgari Akureyrar 700 ára
ELZTI borgari Akureyrar verður
100 ára í dag 24. maí. Hann heit-
ir Tómas Tómasson, Helgamagra
stræti 4 Akureyri. Tómas er fædd
ur Skagfirðingur. en eyfirzkur í
föðurætt. Hann fluttist ungur til
Eyjarfjarðar Og dvalist lengst af
í Öxnadal. Konu sína, Jóhönnu
Sigurgeirsdóttur, missti Tómas
árið 1926. Eftir það bjó Tóm-
as hjá Elíasi syni sínum, sem
var fyrst bóndi á Hrauni í Öxna
dal, en siðar bankagjaldkeri á
Akureyri. Tómas missti sjónina
fyrir nokkuð mörgum árum, en
hefur þó fulla fótavist. — S.E.S.
VEÐUR var kyrrt um allt
land í gær, einungis sólfars-
vindur, þ. e. hafgola að deg-
inum, en logn eða hæg land-
gola yfir nóttina. Loftið yfir
landinu var svalt, einkum við
sjóinn fyrir austan Og norð-
an, en á Suðvesturlandi var
hlýjast, 9—10 stig.
Talsverð lægð var suður af
Grænlandi Og hreyfðist norð
ur eða jafnvel norðvestur. —
Var talið líklegt að sjást
myndi til blikunnar af þess-
ari lægð nú með morgninum.
— Kennedy
Framh. af bls. 1
• Með óhlaðnar byssur í
Thailandi.
Forsetinn vék einnig að herliði
því, sem Bandaríkjamenn hafa
sent ti'l Thailands. Hann sagði, að
hermennirnir gengju ekki með
hlaðnar byssur, þar eð þeir væru
í vinalandi, — og bætti því við,
að ekki yrði gripið til þess að
hlaða byssur þeirra, nema nauð-
syn krefji. Hins vegar sagði for-
setinn, að herlið Bandaríkja-
manna í Thailandi yrði ekki kall
að heim, fyrr en einihver lausn
hiefði fengizt í Laosmálinu.
• Styðja upptöku Breta.
Kennedy sagði Bandaríkja*
menn hafa mjög mikinn áhuga á
því, að Bretland yrði fullgildur
meðlimur efnahagsbandalagsins.
Loks ræddi forsetinn nokkuð
ástandið í Indónesíu, og sagðiist
vonast til þess, að deiluaðilar þar
gætu bomizt að samkomulagi, en
Bandarikjamenn hefðu Lagt fram
tillögur í því máli. Hefði sendi-
herra Bandarífcjanna raú komið
fram með nýjar tillögur, sem
væntanlega gætu leitt tiil árang-