Morgunblaðið - 24.05.1962, Page 15

Morgunblaðið - 24.05.1962, Page 15
Fimmtudagur 24. maí 1962 15 MORGUNBLAÐIÐ — Minning Framíhald af bls. 13. berum skjölum og plöggum. Eggert Levý, mikilhœfur maður, var um tugi ára endurskoðaudi Ihreppsreikninga í Y.-Húnavatns- sýslu. Ég heyrði hann segja að reikningar frá Halldórs hendi væru þeir nákvæmustu og beztu, sem hann hefði kynnzt. Sams- konar ummæli hafði yfirskatta- inefndarmaður Húnvetninga um skattskýrslur frá Halldórs hendi. Halldór bjó á Haugi í hálfan 4. tug ára með mikilli sæmd. Hann unni jörð sinni mjög og gerði henni allt til gagns og um- bóta, sem hann mátti. Á eftir- stríðsárunum tóku búskaparhætt ir almennt mikilli breytingu. Vinnufólk varð torfengið, en vélavinna kom í staðinn, sem væri hentari ungu fólki en gömlu. Árið 1947 seldi Halldór jörð og bú og fluttist til Hvamms 'tanga. Þegar Halldór hvarf frá óðali sínu veitti hann sjálfum sér sár sem var opið og ógróið til ævi- loka. En hann lét raunsæja skyn- eemi ráða með örlögum og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Hann hafði á meðan hann bjó á Haugi haft lengi mikla önn og starf fyrir Kaupfél. V.-Húrtvetn- inga á Hvammstanga. Varð for- maður þess, stundum verkstjóri á mesta annatíma, gegndi full- trúastöðu, endurskoðaði reikn- inga og vann skrifstofustörf í viðlögum. Þegar hann var al- fluttur í kauptúnið varð honum ekki verkavant. Lífsins kyngi kallar mikla hæfileikamenn til starfa hvar sem er. Hann vann mörg störf fyrir kaupfélagið og ýms félagsleg og opinber störf hlóðust að honum. Vinsældir hans höfðu verið miklar á með- an hann bjó í sveit, en ekki urðu þær minni í kauptúninu, sem honum þótti vænt um og vildi af alhug hefja til gengis og fram- fara. Halldór var vel að sér í ís- lenzkum bókmenntum. Hann hafði næmt skyn á málfræði og vandaði töluð orð svo að athygl- isvert var, en ritháttur hans var langt umfram það, sem almennt gerist Eins og áður er sagt var hann aðeins einn vetrartíma á skóla. En eftir verkum hans að dæma, sem ég var þrautkunn- ugur mörgum, veit ég engan hafa iært jafnmikið á jafnskömmum tíma. Á síðustu árum komu þau hjón Halldór og Guðrún nokkrum sinnum til Reykjavíkur. Þá dvöldu þau á heimili mínu. Það voru dýrðlegir dagar fyrir mig. Margs var að minnast frá æsku og fullorðinsárum okkar Hall- dórs. Við höfðum alltaf verið nágrannar á meðan ég átti heima í sveit og margt unnið saman, ævinlega í bróðerni, hjálpfýsi og velvilja þessa mannkostamanns, ef ég eða mitt heimili þurfti ein- hvers við, er mér ógleymanleg. Að síðustu færi ég þessum látna vini mínum þökk frá mér og konu minnf fyrir kynningu, eem varpar skærum bjarma end- urminninga liðinna ára. Magnús F. Jónsson. Félagslíi Hand knattlci ksstúlkur Ármanns. Æfingar í sumar verða á leik- vellinum við Sigtún, sem hér »egir: M. fl., 1. fl. og 2. fl. kv. mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8. Fyrir 13 ára og yngrl: inánudaga og fimmtudaga kl. 7. Mætið vel og takið með ykkur nýja félaga. Stjómin. I VKIPAÚTfiCRB KIKlSINS Ms. ESJA fer væntanlega héðan aukaferð til Austfjarða miðvikudaginn 30. maí. Viðkomustaðir: Fáskrúðs- fjörður, Reyðarfjörður, Eskifjörð ur, Norðfjörður, Seyðisfjörður og þaðan beint suður. Vörumóttaka á morgun og farmiðasala. ❖❖4 f | t f f f f A A A Breiðfirðingabúð INGÓ —BINGÓ v e r ð u r í kvöld kl. 9. Meðal vinninga: SINDRASTÓLL Borðpantanir í síma 17985. Ókeypis aðgangur — Húsið opnað kl. 8,30. f f I BREIÐFIRÐINGABÚÐ «♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦e ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ aftk y v^v f f i f i f ♦% IIMGÓLFSCAFÉ DANSLEIKUR í kvöld FLAMINGO og ÞÓR NIELSEN skemmta — Öll nýjustu lögin: 1. Good luck eharm. 2. Whats your name? 3. Jambalaja. 4. Young world. 5. Got a funny felling. 6. The young ones. 7. Night in Moskva. 8. Twist part 1. 9. Twist again. 10. The sanage. Atvinna óskast Maður óskar eftir atvinnu. Margt kemur til greina. Skrifstofustörf, innheimta, næturvarzla o. fl. Einnig heimvina.na. Starf nálfan daginn kemur til greina. Tiiboð merkt: „Abvinna — 476‘, sendist Mlbl. sem fyrst. Verkamannafélagið DAGSBRÚN Félagsfundur verður í Gamla bíói í kvöld, fimmtudag kl 9. Fundarfeni: Tekin ákvörðun um nýja samninga. Skorað er á félagsmemn að fjölmenn og sýna skírteini við innganginn. STJÓRNIN. Gömlu dansarnir kl. 21. póhstoJll Hljómsveit: Guðmundar Finnbjörnssonar Söngvari: Hulda Emilsdóttir Vetrargarðurinn DANSLEIKUR í kvöld Lúdó sextett og Stefán Sími 16710. K.R.R. 1912 - Í.S.Í. - 1962 í KVÖLD KL. 20.30 K.S.I. REYKJAVIK UTANBÆJARMENN Á LAUGARDALSVELLINUM. Dómari: GRÉAR NORÐFJÖRÐ FYRSTI LEIKURIISIN Á GRASI Aðgangur: Stúka kr. 35.00 — Stæði kr. 25.00 — Börn kr. 5.00 Komið tímanlega. — Forðist þrengsli. Afmælisnefndin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.