Morgunblaðið - 25.05.1962, Qupperneq 14
I
14
MORCVNBLAÐ1Ð
Föstudagur 25. maí 1962
L'nnið að íuglabók AB. Frá vinstri: Eirikur Hreinn, dr. Finnur Guðmundsson og Balðvin.
Eg hygg, að ég myndi aðallega
fjalla um menningarmál, skóla-
mál og Ihin ýmsu vandamál æsk-
unnar, þegar til minna kasta
‘kæmi sem varaborgarfulltrúi.
Þetta eru þau mál, sem ég hef
aðallega áhuga á. Hitt er svo aug
ljóst, að til þess að hægt sé að
hlú að menningarstarfsemi og
skólum borgarinnar, þá verður
fjármálastjórn borgarinnar að
vera góð. Þannig eru þessi mál
öll samtvinnuð og því erfitt að
aðgreina þau einhliða hvert frá
öðru.
Félagsmálastarf
Eins og augljóst er, þá er fram
kvæmdastj. eins stærsta bókaút
útgáfufyrirtækis landsins mjög
umsvifamikið starf og í mörg
horn að líta. Auk almennrar
stjórnar fyrirtækisins, sem jafn
framt rekur Bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar, þá þarf
að ræða við höfunda, þýðendur,
prentara, bókbindara, prent-
myndasmiði og teiknara. Ræða
við þá um tilhögun verksins og
semja um skilmála. Síðast en
ekki sízt, þarf að lesa bækur,
fjölda bóka í leit að verkum ti'l
útgáfu. f»á er Baldvin ritstjóri
Félagsibréfs, stærsta bókmennta-
tímarits, sem gefið er út hér-
„Það er mikið á sig leggj-
andi fyrir eigin íbúð“
Til þessara starfa fer mikill
tími, en Baldvin sagðist ekki
telja hann eftir sér, þegar blaða
maðurinn spurði hann um það.
— Eg hef alltaf haft ánægju
og yndi af félagsstörfum, sagði
Baldvin, það var ef til vill vegna
þess, sem ég valdi lögfræðina
í 'háskólanum.
Eigin húsnæði borgaranna
stefna Sjálfstæðisflokksins
Blaðamaðurinn og ljósmynd-
ari Mlbl. skruppu heim með
Baldvin, þegar hann hætti störf
um um hálf sjöleytið. Við ókum
með Baldvin 1 fólksvagninum
og þegar hann beygði austur
Mikluibrautina, spurðum við,
hvort hann væri fluttur, því að
síðast þegar við vissum til, þá
bjó hann á Suðurgötunni.
— Það er langt síðan, segir
Baldvin, tvö ár. Eg keypti tíu
ára gamla íbúð í Hamrahlíð-
inni, fjögur herbergi og eldhús.
Þetta er að vísu dálítið erfitt,
en það er mikið til vinnandi að
búa í eigin húsnæði .
Við ræðum fleira við Baldvin
um húsnæðismálin og spyrjum
um álit hans.
— Það á að vera og hefur
verið stefna meirihluta sjálfstæð
ismanna í borgarstjórn Reykja-
víkur, segir Baldvin, að stuðla
að þvi að fólk geti komið sér
upp eða byggt eigin húsnæðL
Þessi stefna borgarstjórnar-
meirihlutans er mest í samræmi
við Sjálfstæðisstefnuna, sem
boðar stuðning við framtak og
sjálfstæði borgaranna, þetta á
- Sagði Baldvin Tryggvason 12. maður D-listans
við Morgunblaðið í gær
ÍBÍHJM Reykjavíkur hefur fjölg
að um meira en helming síðustu
tvo áratugi og hafa öll héruð
landsins lagt borginni til nýta
og góða starfskrafta og borg-
ara. Mikill fjöldi ungra mennta-
manna, sem starfa hér í Reykja-
vík, eru utan af landsbyggðinni,
en sóttu háskólamenntun sina
til höfuðborgarinnar. Einn þess
ara manna er Baldvin Tryggva-
son, lögfræðingur, framkvæmda
stjóri Almenna bókafélagsins.
Baldvin skipar nú 12. sætið á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins við borgarstjórnarkosning-
arnar.
Frá Ólafsfirði til
Reykjavíkur
Baldvin er fæddur í Ólafsfirði
árið 1926 og er því aðeins 36
ára gamall. Hann er sonur hjón-
anna Rósu Friðfinnsdóttur og
Tryggva Marteinssonar, fyrrum
útvegsmanns. Baldvin stundaði
nám við Menntaskólann á Ak-
ureyri og varð stúdent þaðan
1948. Haustið eftir innritaðist
hann í lagadeild háskólans og
lauk þaðan kandídatsprófi ár-
ið 1953. Á námsárum sínum
stundaði Baldvin allskonar
vinnu til lands og sjávar, m.a.
£ frystihúsi, á síldarbát og við
'blaðamennsku.
Þegar í skóla hafði Baldvin
áhuga á félagsmálum og gegndi
hann ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir skólasystkini sín og sam-
stúdenta. Hann var formaður
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta og átti sæti í stúdenta-
ráði. Á háskólaárum sínum hélt
Baldvin úti blaði um málefni
heimabyggðar sinnar í Ólafs-
Lokað
eftir hádegi i dag vegna jarðarfarar.
Bæjarfógeta og sýsluskrifstofan
Hafnarfirði.
Eiginkona mín
THEÓDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR
Háteigsvegi 28,
lézt í Landsspítalanum 23. þessa mánaðar.
Þorkell Guðbrandsson.
Útför mannsins míns
MAGNÚSAR B. JÓNSSONAR
Brekku, Austur-Húnavatnssýslu,
fer fram mánudaginn 28. maí og hefst með húskveðju að
heimili hins látna kl. 1 eJh.
Sigrún Sigurðardóttir.
firði. Hét það Ólafsfirðingur og
kom út mánaðarlega í eitt ár.
Menningarmálin og fjár-
málin samtvinnuð
Að loknu embættisprófi starf-
aði Baldvin við lögfræðistörf í
nokkur ár, en varð framkvæmda
stjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfé-
laganna í Reykjavík og gegndi
þvi starfi til ársins 1960, er
hann var ráðinn framkvæmda-
stjóri eins stærsta útgáfufyrir-
tækis landsins, Almenna bóka-
félagsins. Þá átti hann í mörg
ár sæti í stjórn Heimdallar og
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna og var formaður Heim-
dallar 1958—59. ■
Blaðamaður Mbl. heimsótti
Baldvin á dögunum á skrifstofu
hans við Tjarnargötuna. Blaða-
maðurinn sótti illa að þá stund-
ina, því að Baldvin var önnum
kafinn á fundi með Eiríki
Hreini Finnbogasyni, starfs-
manni bókmenntaráðs A.B. og
dr. Finni Guðmundssyni, fugla-
fræðingi. Þeir voru að ræða ým
is vandamál varðandi fugla-
bókina, sem A.B. mun gefa út
á næstunni.
Blaðamaðurinn innti Baldvin
eftir þeim málum, sem sérstak-
lega vektu áhuga hans af þeim
málefnum, sem borgarstjórnin
fjallar um.
Þessa mynd tok ljosm. Mbl. 01. K. M. af fjölskyldu
Baldvins að heimili þeirra við Hamrahlíð.
lendis, ásamt Eiríki Hreini Finn
bogasyni.
Auk þessa gegnir Baldvin
mörgum trúnaðarstörfum. Mó
þar nefna, að hann er í stjórn
Lánasjóðs íslenzkra námsmanna,
í stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis, í stjórn Fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, varaformaður Stú-
dentafélags Reykjavíkur og
varamaður í menntamálaráði.
Þókkum kæriega skeyti, blóm og góðar óskir vegna
gullbrúðkaups okkar 21. mai.
Lifi»5 öll heil og í guðs friðL
Sigurbjörg og Sigurður
frá Veðramóti.
Lokað
eftir hádegi í dag, föstudaginn 25. mai,
vegna jarðarfarar.
Timburverzlunin Völundur hl
ekki sízt við í húsnæðismálun-
um.
Vandamál æskunnar
þarf að leysa
— Hvað áttu mörg börn, Bald
vin?
— Ég á einn strák, 4 ára.
— Segðu mér eitt, hvað held-
ur þú að sé helzti munurinn á
aðstöðu sonar þíns til leiks og
starfa og þeirri aðstöðu og verk
efnum, sem þú gazt fengizt við,
þegar þú sjálfur varst að alast
upp norður í Ólafsfirði?
— Þegar við strákarnir vor-
um litlir, sagði Baldvin, þá byrj-
uðum við strax og við gátum
að hjálpa til við störfin heima
við, við bátana og annað tilheyr-
andi störfum foreldra okkar.
Auk þess höfðum við vítt og
ótakmarkað leiksvæði í hlíð-
inni fyrir ofan kauptúnið eða 1
fjörunni. Þar var ekki teljandi
hætta af umferðinni eða aðrar
hættur, sem fylgja borgarlífinu.
Athafnaþrá barna hér í Reykja-
vík hefur hinsvegar ekki sömu
möguleika til þess að njóta sín.
Þetta er að mínum dómi eitt
mesta vandamálið, sem borgar-
yfirvöldin eiga við að stríða. Að
finna verkefni, sem börn og
Framh. á bk. 19.