Morgunblaðið - 25.05.1962, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 25.05.1962, Blaðsíða 16
118. tbl. — Föstudagur 25. maí lf nrs Hefur Alþýðuflokkurinn þegar ákveöiö samstarf viö kommúnista í R.vík? 1 ÚTVARPSUMRÆÐUM 24. júní 1956 gaf Harald- ur Guðmundsson, þáver- andi formaður Alþýðu- flokksins, út ákveðna yf- irlýsingu fyrir hönd flokks síns. Hún hljóðaði þannig: „Allt samstarf við kommúnista er útiIokað“. Hinn 23. maí 1962 gaf Óskar Hallgrímsson, for- ystumaður borgarstjórnar- lista Alþýðuflokksins, út yfirlýsingu í útvarpsum- ræðum. Hún hljóðaði þannig: „Ekki samstarf við kommúnista undir nein- um kringumstæðum“. Nokkrir dagar voru til þingkosninga þegar Har- aldur Guðmundsson gaf yfirlýsingu sína. Nokkrir dagar voru til borgar- stjórnarkosninga, þegar Óskar Hallgrímsson opin- beraði boðskap sinn. Naumast voru þing- kosningar afstaðnar, þeg- ar öllum varð kunnugt um, að þegar fyrir þær hafði Alþýðuflokkurinn á- kveðið að ganga til sam- starfs um ríkisstjórn lands ins við kommúnista og bandamenn þeirra í Fram sóknarflokknum. — Með hliðsjón af þeirri stað- reynd er ekki að furða, þótt ýmsir túlki yfirlýs- ingu Óskars Hallgrímsson- ar á þann veg að Alþýðu- flokkurinn hafi þegar á- kveðið að taka upp sam- starf við þessa fyrri bandamenn sína um borg- armálefni Reykjavíkur, ef meirihluti Sjálfstæðis- flokksins tapast, enda væri það í fullu samræmi við afstöðu hans annars staðar, eins og t.d. í Hafn- arfirði og á ísafirði. Síldin isuðí bátun- um og fryst í landi f GÆR var dálítil veiði síðdegis hjó síldarbátunum, og voru sum- ir farnir að tilkynna komu sína inn, en fengu að vita að frysti- húsin yrðu að hætta móttöku kl. 7 vegna boðaðs Dagsbrúnarfund- ar. Hættu bátar þá við að koma inn, fyrr en í dag, en hætt er við að sildin frá í gær fari í gúanó. Undanfarið hefur komið á land í Reykjavík töluvert magn af síld og hefur verið unnið mikið í frystihúsunum, í ísbiminum, hjá Jupiter & Marz, Fiskiðjuverinu, Sænsk-íslenzka og Hraðfrysti- stöðinni. í gær átti Mbl. tal við Pál Guðmundsson verkstjóra hjá ísbirninum. Sagði hann að frá því ísbjörninn byrjaði að taka á móti síldinni 10. maí hefðu verið frystar þar um 300 lestir af síld og um 40 lestir af flökum. Hefur verið unnið mikið að umdanförnu, t.d. kl. 20—3 á sunnudag og frá 8 tiil miðnættis það sem af er vikunnar. Síldin er mest veidd ýmist út af Akranesi eða út af f>ormóðs- skeri og lítið eitt vestar. Hefur síldin verið góð síðan bátarnir fóru að ísa hana, að því er Páll sagði. Hafa þeir yfirleitt farið með 3—4 lestir af ís og ísað 200—300 tunnur, að ósk frysti- hússins. Tvö komin til Noregs. Fréttaritari blaðsins á Akra- nesi símaði að þangað hefðu kom ið 2 bátar inn með aíld í gœr, Anna með 1000 tunnur og Heima- skagi með 300. Komið væri allt að því fullfermi í norska síldar- flutningaskipið Vestby eða 5400 tunnur, Brunnholm hefði lagt af stað að kvöldi 22. maí með 5040 tunnur af síld, og tvö síldarflutn- ingaskipanna mundu vera komin til Noregs. , Víðismenn gólu 35000 krónui BJÖRN Dúason, sveitarstjóri I Sandgerði, afhenti hinn 5. maí í skrifetofu biskups gjöf til söfn- unar vhgna sjóslysa frá skips- 'höfninni á mto. Víði II., Sand- gerði, kr. 35.000,00. Miklu magni afáfengi og tóbaki stolið á Röðli Kassi með 15 flöskum fanust I Skipholti í gærmorgun 1 FYRRINÓTT var brotizt inn í veitingahúsið Röðul og stolið þaðan miklu magni af áfengi og tóbaki. Er bílstjóri einn var að fara til vinnu sinnar snemma í gærmorgun stóð pappakassi með 15 áfengisflöskum við bíl hans og var þar komið sumt af áfeng inu, sem stolið hafði verið úr veitingahúsinu. Ekið á lamb SHJASTLIÐIÐ þriðjudagskvöld var ekið á lamto við Seljabrekku í Mosfellssveit með þeim afleið- ingum að það drapst. Sóst til er stór Mercedes Benz vörubíll, yfirbyggður og rauður á lit, ók á lambið. Bílstjórinn nam stað- ar og leit út, en ók síðan á brott. Er bílstjóri þessi beðinn að gefa sig fram við umferðardeild rann sóknarlögreglunnar. Þjófurinn braut upp vin- geymsluna á Röðli, og hafði á brott með sér þaðan 85 flöskur af áfengi, þar af 25—30 Genever flöskur af Bokma-tegund, í fer- strendum flöskum, 12—16 hvít- vínsflöskur, 30 karton af Camel sígarettum, 30 pakka af London Docks vindlum, og einn 25 stk. kassa af Henry Clay vindlum. Auk þess hafði hann fengið sér matarbita í eldhúsi veitinga- hússins. Klukkan sjö i gærmorgun, *r Hörður Guðmundsson, Skipholti 10, bílstjóri hjá Bæjarleiðum, var að fara út í bíl sinn tók hann eftir þvi að við bílinn stóð pappakassi. í kassanum reyndust vera 15 flöskur af áfengi og reyndist hér um að ræða hluta þýfisins af Röðli, sem er þarna skammt frá. Hörður gerði lög- regiunni þegar aðvart og tók hún kassan í vörzlu sína. Bænadagur þjóðkirkj- unnar á sunnudag NÆSTKÓMANDI sunnudag er hinn árlegi bænadagur þjóðar- innar. Hefur biskupinn yfir fs- landi, herra Sigurbjörn Einars- son, ritað prestum landsins svo- hljóðandí bréf: Hinn árlegi bænadagur vor, 5. sd. e. páska, er að þessu sinni 27. máí. Þótt kosningar eigi að fara fram þann dag í mörgum presfaköllum, er þess að vænta, að fólk geti komið saman ein- hverntíma dagsins í kirkjum sínum, í þeim sóknum sem öðr- um ,til þess að lyfta huga íbæn. Væri vel, ef kirkjan gæti sam- einað sem flesta um bænarefni dagsins, en það er: Sáttfýsi og samhugur, ábyrgð og drengskapur í þjóðlífi og þjóðmálastarfi. Bið ég bræður mína í presta- stétt að standa saman um að stuðla af megni að því, að þessi dagur verði sem almennastur og sannastur bænardagur, þjóð vorri til blessunar. Biskup fslands Sigurbjörn Einarsson. Þegar stóri, rauði boli tók á rás í austurátt með „þjóðfylkingarmenn*1 i eftirdragi. Taugar kommúnista að bila ÞAR sem fáfcr lesa orðið Moskvumálgagnið, er stund- um spurt: hverju svarar Þjóð- viljinn upplýsingunum um leynifélagið SÍA, Sósialista- féiag íslendinga austan- tjalds? En auk þess langar menn til að fá frekari upp- lýsingar um félagið SÍA. Sósíalistafélag íslendinga austantjalds er félagsskapur, sem þeir einir eru meðlimir í, sem dvalið hafa í kommún- istarikjunum. Hann heldur uppi „fræðslu" — og áróðurs starfsemi, en meginmarkmið hans er að stæia þátttakend- ur í trúnni á heimskommún- ismann og skipuleggja bar- áttuna fyrir því að íslending ar verði honum að bráð. Þess vegna Ieggur félagið áherzlu á að ná undirtökum í komm únistaflokknum á íslaaidi, svo að „réttum“ bardagaað- ferðum verði beitt til að flýta fyrir „frelsun“ íslend- inga undan „oki auðValds- ins.“ Fram áð þessu hefur Moskvumálgagnið naumast gert tilraun til að hrekja eitt einasta atriði í upplýsingum Morgunblaðsins, enda væri slíkt vonlaust verk, þar sem allt það, sem Morgunblaðið hefur sagt, er skjalfest. Tím- inn, annað aðalmálgagn þjóð- fylkingarinnar, hefur hins- vegar reynt að verja vini sína, þótt sú vörn hafi verið heldur kátleg. Hið eina, sem Þjóðviljinn hefur sagt, er það sem felst í eftirfarandi orðum blaðsins í gær: „Þess vegna er verið að ympra á bjánalegum fullyrð- ingum um „afhendingu" bréf- anna, jafnvel verið að drótta því að ákveðnum mönnum. Enda þótt þetta séu bama- legar og vesælar afsakanir fyrir eindæma siðlausa fram- komu Morgunblaðsritstjór- anna í þessu máU, gæti það þó bent til að þeir gerðu sér ljóst að slíkar bardagaaðferðir eru hvorki blaðinu né flokkn Frh. á bls 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.