Morgunblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIh Sunnudagur 3. jönf 1962 Iðnskólanum í Reykjavík slitið Skólinn í örum vexti- 1458 nemar á sl. ári Hvalur 8 siglir inn í Reykjavíkurhöfn á föstudagsmorgun. Tvö leikrit í æfingu hjá Þjóðleikhúsinu „My foir lady" ekki tekin upp aftur i haust (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) IBNSKÓLANUM í Reykjavík var slitið sl. föstudag. Við það tækifæri gáfu gamlir nemend- ur skólans honum brjóstmynd af Jóni Þorlákssyni, sem var fyrsti skólastjóri hans. Styttan er úr eir, og gerði hana Ríkarður Jónsson, mynd- höggvari. Ekkja Jóns, frú Ingi- björg Þorláksson, afhjúpaði myndina, en Magnús Hannes- son, raívirkjameistari, hafði orð fyrir gefendum. Þá flutti Þór Sandholt, skólastjóri, ávarp, sem frú Ingibjörg hafði samið. Fleiri , góðar gjafir bárust skólanum að þessu sinni, m. a. frá 40 ára, 30 ára og 25 ára nemendum. Orð fyrir þeim höfðu Sigmundur Halldórsson, arkitekt, Sveinn Guðmundsson, forstjóri, og Jökull Pétursson, málarameistari. ★ Þór Sandholt, skólastjóri, flutti gefendum og ræðumönn- um þakkir, en skýrði síðan frá starfsemi skólans á liðnu starfs- ári, í skólaslitaræðu. Starfsemi skólans hefur aukizt mjög und- anfarið, einkum að því er tekur til verklegs náms. Meðal verk- efna, er framundan eru, er m. a. smíði viðbótarbyggingar við skólahúsið, sem yrði aðallega ætluð verklega náminu. Standa vonir til þess, að hægt verði að hefja byggingu hennar á næst- unni. Þá er unnið að undirbúningi að stofnun meistaraskóla, þ.e.a.s. skóla fyrir þá, sem fengið hafa sveinsréttindi. Einnig skýrði skólastjóri frá samkomulagi, sem hann hefur gert við danskar skólastofnanir, til þess að auðvelda íslenzkum iðnaðarmönnum tæknilegt fram- haldsnám í Danmörku, að viss- Svart: Svein Johannessen, ósló ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítt: Ingi R. Jóhannsson 16. — Be7—f6 17. Hal—bl c5—e4 18. h2—h3 > um skilyrðum uppfylltum hér heima. Þá var það nýmæli tekið upp á árinu, að Flugfélag íslands réð 15 nemendur í flugvéla- virkjun, sem valdir voru úr stórum hópi umsækjenda. Voru valdir samstæðir nemendur, sem allir voru langt komnir í námi og jafnlangt, og gerðar meiri kröfur til þeirra en al- mennt gerist. Hefur hér verið farið út á nýjar brautir um samstarf fyrirtækja og Iðn- skólans, sem gefið hefur góða raun. ★ Nemendur voru alls 1458 á érinu eða fleiri en nokkru sinni áður. Eru þá meðtaldir nem- endur í öllum námskeiðum, en reglulegir Iðnskólanemendur voru milli 800 og 900. 222 nemendur útskrifuðust að þessu sinni. Þrir hlutu ágætis- einkunn, og hæstur þeirra varð Pétur E. Aðalsteinsson, skrif- vélavirki, sem fékk 9.31. Hann hefur starfað hjá IBM-umboð- inu á íslandi, en er nú farinn til framhaldsnáms til ítalíu. Þá hlaut Gylfi Gíslason, húsasmið- ur, sérstök verðlaun úr .sjóði Finns ó. Thorlaciusar, sem kenndi iðnteikningu húsasmiða um fjöldamörg ár við Iðnskól- ann. Viðskiptasamn- ingnr Viðskipta- og greiðslusamning ur íslands og Ungverjalands frá 6. marz 1953 hefur verið fram- lengdur óbreyttur til ársloka 1962 með orðsendingaskiptum milli sendiráða fslands og Ung- verjalands í Moskvu. Frá utanríkisráðuneytinu, Reykjavík 25. maí 1962. Honolulu, 2. júní. (NTB) — Fyrirhugaðri kjarnorku- sprengingu Bandaríkjamanna í háloftunum yfir Johnson- eyju á Kyrrahafi hefur verið frestað um einn sólarhring vegna veðurs. Átti að gera tilraunina snemma í morg- un, en þá var alskýjað yfir skotstaðnum og því ákveðið að fresta henni. H Æ Ð yfir Bretlandseyjum og lægð yfir vestanverðu Atlantshafi ráða veðurlagi hér um slóðir, eins og sakir standa. Veður er bjart á Bret landi, en kalt í veðri, aðeins þriggja stiga hiti í Lundún- um. Hins vegar streymir hlýtt loft norður eftir miðju Atlantshafi, og þess vegna er 8 stiga hiti í Reykjavík og II stig á Akureyri. Lægðin þokast norðaustur og veldur ENN sýnir Þjóffleikhúsið söng- leikinn „My fair lady“ og hafa allar sýningamar, sem komnar eru yfir 40, veriff fyrir fullu húsi. Verffur haldiff áfram sýn- ingum í júní, sennilega út mán- uffinn, ef affsókn verffur slík sem hingaff til, aff því er þjóðleikhús- stjóri, Gufflaugur Rosinkranz, tjáffi blaðinu. En í júlimánuði verður aff skila búningum, sem fengnir eru aff láni frá Kaup- mannahöfn, og verffur því ekki hægt aff taka þennan söngleik upp aftur í haust. TILBÚIÐ FYRIR HAUSTIÐ Tvö leikrit eru í æfingu hjá Þjóðleikhúsinu fyrir naasta leik- ár. Ástralskt leikrit, sem heitir „17. brúðan“ er fullæft og tilibú- ið, en komst ekki að á þessu ári vegna aðsóknar að ,.My fair lady“ og Skuggasveini. Áistralsk- ur leikflokkur kom með leik, sem er eftir ungan mann Ray Maður á skelli- nöðru slasast f GÆRDAG varð árekstur milli skellinöðru og jeppa á mótum Gullteigs og Sigtúns. ökumaður skellinöðrunnar, Halldór Jóns- son, Framnesvegi 46, slasaðist og var fluttur á slysavarðstofuna. Voru meiðsli hans ekki fullkönn uð er Mbl. vissi síðast til. Hjól- ið skemmdist talsvert og jeppinn einnig að framan. vaxandi SA-átt hér á landi. Veffurspáin á hádegi í gær: SV-land til Vestfjarða og miðin: Hægviðri* í dag, en sunnan- eða SA-kaldi í nótt, skýjað, rigning með köflum. Norðurland til Austfjarða og miðin: Hægviðri, víðast léttskýjað. SA-land og miðin: Vestan gola og þurrt í dag, en SA- kaldi og rigning þegar líður á nóttina. k Lowler, til London, og vakti það svo mikla athygli að það var sýnt í heilt ár. Baldvin Hall- dórsson er leikstjóri. Aðalhlut- verkin leika þær Herdás Þor- valdsdóttir og Guðbjörg Þor- bjarnardóttir og karlahlutverkin Jón Sigurbjörnsson og Róbert Arnfinnsson. Þá eru æfingar í fullum gangi á ameríska leikritinu „Auntie Mame“, sem verður kallað á ís- lenzku „Hún frænka mín“. Gunn ar Eyjólfsson setur það á svið, en aðalhlutverkið, frænkuna leikur Guðbjörg Þorbjamardótt- ir. Þetta leikrit hefur verið sýnt við miklar vinsældir vestra og kvikmyndað. Hlutverkin eru svo mörg að nær allir leikarar leik- hússins hafa þar Wutverk. Humar 0«; flat- fiskur liækkar í Lögbirtingablaðinu auglýsir verðlagsráð sjávarútvegsins lág marksverð á nokkrum fiskteg- undum, sem hækkar frá 1. júní. Humar hækkar úr 8 kr. kg. í kr. 12,70, og í öðrum flotkki úr kr. 3,75 í kr. 4,75. Auglýst er lágmarksverð á ýmsum tegundum af flatfiski og hækkar hann yfirleitt um 19%. Vélarbilun AÐFARANÓTT föstudags bilaði vélin í humarveiðibátnum Merk úr frá Grirudavík, þar sem hann var staddur út af Eldey. Á föstu dagsmorgun fór eitt varðskip- anna út ti'l Merkúrs og aðstoðaði hann við að ná landi. EINS og undanfarandi vor hafa verið starfrækt námsskeið fyrir börn og unglinga víðsvegar um bæinn. Hefur aðsókn víðast hvar verið mjög góð, á nökkrum stöð um hafa komið á 2. hundrað börn. Bætzt hefur við nýr staður, Golfvöllurinn við Hvassaleitið og verður þar tekið við börnum 5—9 ára á þriðjudögum, fimmtu dögum og laugardögum kL 9.30 til 11.30 f.h., og eldri börnum, 9—12 ára á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14—16.00. Nýtt og stórt hvalveiðiskip NÝTT hvalveiðiskip bættist í ís- lenzka flotann á föstudagsmorg- un. Það er Hvalur 8, 13 ára skip, smíðað í Túnsbergi í Nor- egi og hin fallegasta fleyta. —- Skipið er 480 smálestir og stærsta hvalveiðiskip okkar. Agnar Guðmundsson, skip- stjóri, sótti skipið til Noregs, tók við því og sigldi því út hingað. Þegar skipið heldur til veiða, verður Kristján Þorláksson skytta og skipstjóri á þvL Þing Sjálísbjargar ísafirði, 2. júní. FJÓRÐA þing Sjálfsbjargar, á ísafirði sl. föstudag, 1. júní, kl. landsisambands fatlaðra, var sett 13.30 í húsi Oddfellow-regunnar. Forseti landssambandsins, Theo- dór A. Jónsson, setti þingið með ræðu og minntist þeirra félaga, sem látizt höfðu á árinu. For- komna til starfa. seti bauð síðan þingfulltrúa vel- Síðan var gengið til dagskrár og kosin kjörbréfanefnd. Mættir voru 30 fulltrúar frá 10 sam- bandsféögum. Tvö ný Sjálfs- bjargarfélög voru tekin í sam- bandið, annað frá Sauðárkróki með 62 félögum og 196 styrktar- félögum, og hitt Sjálfsbjörg Suð- urnesja með 23 félögum og 7 styrktarfélögum. Forsetar þingsins voru kjörn- ir Kristján Júlíusson, Bolungar- vík, og Sigursveinn D. Kristins- son, Siglufirði. Þingritarar eru Hermann Larsen, Akureyri, Vig- fús Gunnarsson, Reykjavík, Þórð ur Jóhannsson, Hveragerði, og Friðrik Rósmundsson, Sauðár- króki. — Sambandsstjórnin gaf skýrslu um störf síðasta kjör- aímabils, urðu nokkrar umræður um hana. Síðan fluttu formenn samibandsfélaganna skýrslur um starfsemi einstakra félaga á sl. ári. — Um kvöldið sáu þingfull- trúar kvikmyndir frá dönskum æfingastöðvum fataðra, fyrir vanhæf börn og fullorðna. —J. Kennarar eru 2 á hverjum stað og eru þeir allir íþróttakennarar. Staðirnir eru: K.R.-svæði, Ár- mannssvæði, Víkingssvæði, Laugalækjarsvæði og Valssvæði á mánudögum, miðvikudögura og föstudögum, og Skipasunds- tún, Álfheimatún, Þvottalauga- blettur, Golfvöllur, og Landakots tún (aðeins f. hádegi) og Vestur völlur (aðeins eftir hádegi) þriðjudaga fimmtudaga og laug ardaga. I /" NA !5 hnvtor\ X Snjóhoma 1 y SV 50 hnú/oA » ÚSi 7 Skúrir 'VMRogn- K Þrumur ''////tra’bi KuUoM V Hilfk* H.Hmi | íílssÚ Börnin flykkjast til ít>róttaæfinganna Nýr völlur tekinn undir: Golfvöllurinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.