Morgunblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 8
8 MORGVNBLAÐ1Ð Sunnudagur 3. júní 1962 FLUIíFÉLAG Islands er 25 ára í dag. Þetta eru merk tímamót í aögu flugsins á íslandi, mikið hef ■r áunnizt — og brautryðjend- urnir geta litið yfir farinn veg Og glaðst, því þeir hafa unnið þakklátt starf. Flugið gegnir nú orðið mikilvægu hlutverki í dag- legu lífi þjóðarinnar og með hverju ári vex því þróttur. Saga Flugfélagsins segir í raun inni stærsta hlutann af sögu flugs áns á íslandi. Flugfélag íslands hið fyrsta, sem stofnað var árið 1919 væri íeitt elzta flugfélag heims, ef starf Semi þess hefði haldið áfram ó- Blitið. Þrátt fyrir dugnað og fram sýni forráðamannanna urðu óyf- írstíganlegir örðugleikar á vegi félagsins og það hætti starfsemi ieftir tilraunaflug í tvö sumur. Hinn 1. maí 1928 var Flugfé- lag íslands hið annað í röðinni Stofnað. Það félag efndi til flug- Samgangna innanlands í sam- yinnu við þýzka flugfélagið Luft- hansa og stóðu þær í fjögur sum- ur. Á vegi þessa félags urðu einn- ig óyfirstíganlegir örðugleikar. Síðasta árið sem félagið starfaði löskuðust flugvélar félagsins, sem allar voru sjóflugvélar, í of- viðri og sukku, og heimskreppan kom í veg fyrir áframhaldandi Starfsemi þess. Frá 1931 til 1937 sézt hér eiigin íslenzk flugvél á lofti. Flugfélag íslands, það sem nú starfar, var stofnað á Akureyri 3. júní 1937, og hlaut nafnið Flug félag Akureyrar. Aðalhvatamað- ur að stofnun félagsins var Agn- ar Kofoed-Hansen núverandi flugmálastjóri. Hann hafði lokið námi og prófum atvinnuflug- manna í Danmörku og eftir heim komuna tók hann strax að vinna að flugmálum. Ekki var hlaup- ið að því að stofna flugfélag því örlög hinna tveggja fyrri voru mönnum í of fersku minni. Hins vegar stofr.aði hann Svifflugfé- lagið og Flugmálafélagið, svo nokkuð sé nefnt. Eftir að hafa gengið bónleiðir til búðar í Reykjavík hélt Agnar til Akur- eyrar, þar sem nokkrir framá- menn tóku máli hans vel og þar var Flugfélagið sem fyrr segir stofnað. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu Vilhjálmur Þór, formað- ur og meðstjórnendur, Kristján Kristjánsson, forstjóri og Guð- mundur Karl Pétursson læknir. Félagið ákvað strax að leita fyr- ir sér um kaup á fimm sæta flug- vél og var ráð fyrir gert, að flug- ferðir gætu hafizt strax. Af þessu varð þó ekki, vegna þess að lengri tíma hefði tekið að útvega flugvélina en menn hugðu í fyrstu. Flugvélin kom til landsins í apríl vorið eftir og 2. maí flaug hún fyrsta flug sitt frá Reyltjavík til Akureyrar. Við margskonar erfiðleika var að etja á fyrstu dögum flugs- ins. Flugþjónusta var þá enginn innanlands Radíóvitar, sem nú þykja sjálfsagðir voru heldur ekki fyrir hendi og veðurlýsing- ar auk veðurfrétta veðurstofunn- ar, voru fengnar með viðtölum við veðuiglögga menn úti um land. Fyrsta árið sem TF-ÖRN Waco-sjóflugvél Flugfélags Ak- ureyrar var hér í förum, flutti hún 770 farþega. Vorið 1939 lét Agnar Kofoed-Hansen af störfum hjá félaginu, en við tók örn Ó. Johnson, sem þá gerðist eini flugmaður félagsins og forstjóri og síðaratalda starfinu hefir hann gegnt síðan. TF-ÖRN eða Örninn, eins og flugvélin var kölluð flaug víða um land og flutti farþega og póst. Enginn flugvöllur var þá til á landinu, enda var flugvélin höfð á flot- holtum. Snemma árs 1940 var fé- lagið endurskipulagt. Hlutafé þess var aukið og heimili þess flutt til Reykjavíkur. Nafni fé- lagsins var breytt í Flugfélag ís- lands h.f. Nokkru áður hafði verið hafizt handa um að kaupa aðra flug- vél. Hún var af sömu gerð og hin fyrri, kom til landsins 1940 og hlaut nafnið „Haförn”. Fyrri flug vélinni „Erninum", hafði nú ver- ið breytt í landflugvél. Eftir her nám íslands vorið 1940 hafði brezka setuliðið hafizt handa um flugvallargerð í Vatnsmýrinni í Reykjavík Setuliðið lagði bann við flugferðum, en eftir nokkuð þóf fékkst leyfi til innanlands- flugferða, þó undir mjög ná- kvæmu eftirliti. Sumarið 1941 hófust fyrstu reglulegu áætlunar- ferðirnar innanlands, milli Reykjavíkur og Akureyrar. Starf semi félagsins var nú í örum vexti og urn áramót 1941 og 1942 var ákveðið að félagið keypti nýja og stærri flugvél. Sú flug- vél kom til landsins vorið 1942. Það var fyrsta tveggja hreyfla flugvél, sem íslendingar eignuð- ust og tók átta farþega. Um sum- arið hófust fastar áætlunarflug- ferðir milli Reykjavíkur og Eg- ilsstaða. Snemma árs 1944 keypti Flug- félag fslands tvær tveggja hreyfla De Havilland flugvélar frá Bretlandi og um haustið eign- aðist það sinn fyrsta Katalína- flugbát. Hann var keyptur í Bandaríkjunum og fór íslenzk á- höfn vestur til að sækja hann. Flugstjóri heim var Örn Ó. John- son, aðstoðarflugmaður Smári Karlsson og vélamaður Sigurður Ingólfsson, en auk þeirra tveir Bandaríkjamenn. Þetta var sögií- legur viðburður, því þarna flaug íslenzk flugvél og íslenzk áhöfn í fyrsta skipti yfir Atlantshaf. Nokkrum vikum eftir stríðslok í Evrópu, sumarið 1945, ákvað Flugfélag íslands að gera tilraun til millilandaflugs. FlugbátUrinn, sem fyrr er nefndur og í daglegu tali var nefndur „Pétur gamli“, var valinn til fararinnar. Flug- stjóri var Jóhannes R. Snorra- son, aðstoðarflugmaður Smári Karlsson, vélamaður Sigurður Ingólfsson og loftskeytamaður Jóhann Gíslason. Auk þess voru 2 menn úr brezka flughernum í áhöfninni. Farþegar voru fjórir, Sr. Robert Jack og stórkaupmenn irnir Hans Þórdarson, Jón Jó- hannesson og Jón Einarsson. „Pétur gamli“ lagði upp frá Skerjafirðinum í Reykjavík að morgni hins 11. júlí 1945 og flaug til Largs Bay í Skotlandi á rúmum sex klukkustundum. Flugvélin kom til Reykjavíkur daginn eftir og var vel fagnað. Hinu fyrsta millilandaflugi fs- lendinga var farsællega lokið. Síðar um sumarið fór sama flugvél tvær ferðir, þá til Largs Bay í Skotlandi og til Kaup- mannahafnar og „Pétur gamli“ var ein fyrsta farþegaflugvélin, sem þar lenti eftir stríð. Alls voru fluttii 56 farþegar milli landa þetta sumar. í ljós kom að sjóflugvél var ekki heppileg til þessara flugferða. T. d. þurfti flugvélin í síðustu ferð sinni að bíða nokkra daga eftir heppilegu veðri til flugtaks í Kaupmanna- höfn vegna undiröldu á Eyrar- sundi. Voiið 1946 samdi Flug- félag íslands við Scottish Air- lines um leigu á tveim Liberator- flugvélum til millilandaflugs. Þessi háttur hélzt í tvö ár og var flogið til Prestvíkur í Skotlandi og Kaupmannahafnar. Flugfélag- ið eignaðist um þetta leyti þriðja Katalínaflugbát sinn og árið 1936 eignaðist það einnig fyrstu Dakotaflugvél sína. Innanlandsflugið jókst jafnt og þétt og flogið var til flestra stærri kaupstaða á landinu. Fé- lagið hafði og stefnt að því að eignast eigin flugvél til milli- landaflugs. Slíkt fyrirtæki var fjárfrekt stefnt skyldi að því að fá góða og trausta flugvél. Eimskipafélag íslands hljóp und- ir bagga og veitti Flugfélaginu drengilega aðstoð í þessu máli. Hinn 8. júlí 1948 kom flugvélin svo til landsins og hlaut nafnið „Gullfaxi*. Millilandaflug Flug- félags íslands var nú framkvæmt með eigin flugvél og af íslenzk- um áhöfnum Hafnar voru ferð- ir til fleiri staða erlendis. Næsta viðbót á millilandaáætluninni varð Osló og stuttu síðar Lond- on. Árið 1950 varð merkisár í sögu Flugfélags íslands að tvennu leyti. Það ár hófust Grænlandsferðirnar og félagið gekk í Alþjóðasamband flugfé- laga, IATA Fyrsta Grænlands- flugið var farið 15. júlí fyrir rannsóknarleiðangur dr. Lauge Kock, en fimmtán menn úr leið- angri hans voru fluttir til Ell- eyjar í Óskarsfirði á norð-aust- ur strönd Grænlands. Sumarið eftir hófust flugferð- ir fyrir leiðangur Frakkans Poul Emil Victor og 1952 byrjaði Flug- félagið flutninga fyrir ýmsa að- ila sem atvinnurekstur hafa í Grænlandi c. fl. Árið 1951 hættu Loftleiðir, sem um sjö ára skeði höfðu tekið þátt í innanlandsflugi þeirri starf- semi og hefir Flugfélag íslands síðan eitt annazt allt reglubund- ið innanlandsflug hér á landi. Er hér var komið mátti segja að Flugfélagði hefði slitið barnsskón um. Flutnir.gar jukust jafnt og þétt og viðkomustöðum fjölgaði. Hlutur Flugfélagsins í atvinnu- Örn ó. Johnson, flugmaður og forstjóri frá 1939. sögu landsins er þáttur út af fyr- ir sig. Auk þess að flytja vertíðar fólk, síldarfólk o. fl. með skjót- um hætti landshornanna á milli, tók það að sér hlutverk, sem vakti mikla athygli jafnvel langt út fyrir landssteinanna. Það var þegar fjárflutningarnir miklu úr Öræfum áttu sér stað. Hundruð líflamba voru flutt frá öræfum upp í Borgarfjörð til sinna nýju heimkynna. Nokkru áður hafði loftbrúin til öræfa, sem síðan hef ir verið starfrækt hvert haust, einnig verið opnuð. Innanlands- flugið krafist aukins flugvéla- kosts, sama var að segja um milli landaflugið. Árði 1954 eignaðist Flugfélag íslands aðra millilanda flugvél sína, „Sólfaxa" og fjórðu Dakota-flugvél sína „Sæfaxa.“ Vorið 1955 hóf Flugfélga fs- lands flug til Stokkhólms, Ham- borgar og Glasgow. Flug til Stokkhólms lagðist niður um haustið og hafa viðkomustaðir ,,Faxanna“ erlendis síðan verið, Kaupmannahöfn, Glasgow, Lond in, Hamborg og Osló og sl. vor bættist Bergen við. Á öllum þess- um stöðum hefir Flugfélag ís- lands kornið sér upp myndar- legri aðstöðu. Góðum skrifstof- um með æfðu starfsliði. Far- þegatalan jókst jafnt og þétt og tækni í flugi fleygði fram, jafn- hliða kröfum um hraðfleygari og þægilegri flugvélar. Skömmu eftir áramót 1957 kom endurnýjun millilandaflug- flotans á döfina hjá forráðamönn um Flugfélags fslands og litlu síðar festi félagið kaup á tveim Vickers-Viscount skrúfuþotum aí fullkomnustu gerð. Þessar flug- vélar komu til landsins hinn 2. maí 1957, nákvæmlega 19 árum eftir fyrsta flug „Arnarins“ frá Reykjavík til Akureyrar. Flugvél arnar hlutu nöfnin „Gullfaxi" og „Hrímfaxi" og hafa reynzt sér- stök happafley. Nokkru eftir komu hinna nýju Viscount skrúfuþota var gamli „Gullfax,“ seldur úr landi. Rétt fyrri 21. af- mælisdag sinn flutti Flugfélag íslands hálf milljónasta farþeg- an. Hann ferðaðist á leiðinni Ak- ureyri—Reykjavík og það er táknrænt, því sú leið hefir al'á tíð verið fjölfarnasta flugleið fé- lagsins. Agnar Kofoed-Hansen var fyrstl flugmaður félagsins. á föstum áætlunarferðum þang- að. Leyfi til þess fengust ekki, en þá um sumarið efndi félagið til fyrstu hópferðanna til Græn- lands. Slíkar ferðir hafa síðan verið fastur liður í starfsemi fé- lagsins og hafa verið framkvæmd. ar í samvinnu. við Ferðaskrif- stofu ríkisins Auk hinna föstu áætlunaferða utan lands og innan, hafa flug- vélar félagsins farið margar leigu flugferðir til fjarlægra staða. Þá annaðist Flugfélag íslands, sér- staklega fyrr á árum, sjúkraflug innanlands en um nokkurra ára skeið hefir sá þáttur flugsins fallið í hlut sérstakra sjúkraflug- véla. Árið 1960 samdist svo milll Flugfélags íslands og aðila, sem hagsmuna hafa að gæta í Græn- landi, að félagið tæki að sér flug þar í landi og yrðu áhafnir og flugvélar staðsettar í Grænlandi- í fyrsta lagi var um að ræða ís- könnunnarflug með flugvél stað settri í Narssarssuaq og í öðru lagi innanlandsflug með flugvél staðsettri í Syðri-Straumfirði. Þessi starfsemi hófst laust eftir áramót 1961 og síðan hafa tvær af flugvélum félagsins gegnt fyrr greindum verkefnum. Aukin verkefni krefjast aukinna tækja Framh. ai bls. 22. Sem fyrr segir höfðu Faxarnir frá því árið 1950 verið tíðir gest- ir í Grænlandi. Áhugí fyrir ferð- um til þessa stóra og lítt num la lands var mikill og vorið 19i9 hugðist Flugfélag íslands korna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.