Morgunblaðið - 23.06.1962, Blaðsíða 23
r Lau.gardagur 23. júní 1962
MORGUNBLAÐIÐ
23
— Salan
Framh. af bls. 1.
innar, sem ræddi við OAS, og
segir að sú rödd hafi talað af
virðuleik: — Sú rödd, segir hann
var mannleg og til sóma þeim
mönnum, sem hafa heitið Evrópu
mönnum öryggi í Alsír framtíð
arinnar. Allt of mikið blóð hefur
runnið í baráttu þessara tveggja
þjóðfélagsbrota. Ég bið yður að
vinna saman að því að byggja
í friði og eindraegni upp sameig-
inlega framtíð.
• Evrópskir menn í öryggisliðið
Frá Algeirsborg berast þær
fregnir að þegar sé byrjað að
skipa evrópska menn í öryggis
liðið, sem í hafa einungis verið
serkneskir menn til þessa. Til að
foyrja með voru 22ö evrópsikir
menn skráðir í liðið.
• Boðar áframhaldandi hryðju
verk í útvarpssendingu OAS
í kvöld tilkynnti Paul Gardy,
leiðtogi OAS á Oransvaeðinu, að
slitnað hefði upp úr samkomu-
lagsviðræðum við Serki og yrði
nú haldið áfram á sömu braut
og hingað til. Hann sagði vopna
hlé við Serki blekkingu eina,
sem aldrei yrði að veruleika. Nú
yrði forstöðumönnum OAS sikip-
að að halda áfram störfum sín-
um, OAS áskildi sér áfram rétt-
indi til þess að halda til streitu
baráttu sinni. Ennfremur hvatti
Gardy evrópska borgara til þess
að flýja til Frakklands svo fljótt,
sem auðið væri.
-r. Síðustu fregnir frá Alsír
herma að menn séu mjög ugg
andi um áslandið eftir yfirlýs
ingu Gardys.
Rétt eftir, að hann hóf mál
sitt, kvað við öflug sprenging
í rúðhúsinu í Oran og eldur
varð laus í báðum álmum húss
ins. Eftir hálfa klukkustund
hafði slökkviliði borgarinnar
tekizt að ná valdi á eldinum.
Og nokkrum mínútum eftir
að Gardy lauk máli sínu mátti
heyra skothvelli frá miðhluta
borgarinnar. Var óttazt, OAS
menn ætluðu i skjóli myrkurs
ins að gera árás á lögreglu-
verði við höfnina. Þessir at-
burðir þykja gefa vísbendingu
um að hefndarverkin hefjist
nú að nýju með enn meira
nfli og ósvífni en verið hefur
til þessa.
L -----------------------
- EFTA
Framhald af bls. 1.
höfn ríktu talsvert mismun-
andi sjónarmið, varðandi tolla-
lækkunina, þótt öll ríkin væru
á eitt sátt um að gera það, sem
unnt væri til þess að bæta
samningsaðstöðuna gagnvart
EEC. —
Einkum voru það Danir,
Norðmenn og Austurríkismenn,
er töldu vandkvæði á lækkun-
inni. Danir töldu óhjákvæmi-
legt að taka tillit til útflutn-
ings á landbúnaðarafurðum,
Norðmenn kváðust eiga erfitt
með að lækka tolla meira en
orðið er, meðan önnur aðildar-
ríki EFTA héldu uppi tak-
mörkunum á innflutningi frá
Noregi. Til þess að koma til
móts við afstöðu Norðmanna,
var ákveðið, að sérstakar við-
ræður færu fram um þessar
takmarkanir og skal fram-
kvæmdastjóri EFTA leggja
fram skýrslu um árangur
þeirra viðræðna á næsta fundi
aðildarríkjanna.
f þessum viðræðum tóku
þátt ellefu ráðherrar, auk
fjölda annarra embættismanna
frá aðildarríkjunum sjö. Þeir
ræddu ennfremur hvernig kom-
ið væri viðræðum hvers ríkis
við stjórn Efnahagsbandalags-
ins og þær viðræður, sem
framundan eru. — Fundinum
Btjórnaði Jens Otto Kragh, ut-
anríkisráðherra, sem nú hefur
einnig á hendi embætti for-
aætisráðherra Danmerkur.
J •
■
* * ......
Hinn nýi strætisvagn Landieiða.
Landleiðir fá nyjan9
fuHki>minn strætisvagn
TIL LANDSINS kom í gær nýr
strætisvagn af fullkonuiustu
gerð, sem Landleiðir hf. munu
bráðlega taka í nckun. á Hafnar-
fjarðarleiðinni. Mun vagn þessi
hinn fullkommsti, sem hingað
hefur komið og búinn öllum ný-
tízku öryggistækjum. Var kaup-
verð hans tæp 1,5 millj. kr.
Bíllinn var fluttur inn full-
hyggður. Yfirbygging hans og
grind eru byggð sem ein heild,
líkt og er með fólksbíla.
Meðal nýjunga, sem ekki hafa
sézt hér áður má nefna að dyra
umbúnaður vagnsins ar þarnnig
gerður að útgöngudyr farþega
geta ekki opnast nema vagninn
Eriendar
fréttir
I STUTTU MÁLI ,
• Lægsta verð hlutabréfa
í 4 ár
Verðfall varð enn mikið í
kauphöllinni I New York í
dag, eftir örlítið bjartara út-
Ht síðustu daga. Sagði í frétt-
um frá Associated Press
fréttastofunni í gærkveldi að
í verð hlutabréfa hefði ekki
orðið jafnlágt í fjögur ár.
• Býður Tshombe *
3 ráöherrasæti |
Brezka útvarpið skýrði frá*
því i gærkveldi að Cyrille
Adoula, forsætisráðherra mið-
stjórnarinnar í Kongó, hefði
boðið Moise Tshombe fylkis-
stjóra Katanga þrjú ráðherra-'
embætti í stjórninni í Leopold
ville og skyldu þau skipuð af
mönnum úr flokki Tshombes.
Ekki er vitað hvort Tshombe
hefur tekið þessu boði.
standi kyrr, og ekki er hægt að
hreyfa vagninn fyrr en dyrnar
hafa lokazt. Dyrnar opnast ekki
fyrr en farþegi stígur niður á
útgöingutröpuur vagnsins, og
verði farþegi á milli stafs og
hurðar þegar dyrnar lokast
hrekkur hurðin sjálfkrafa upp.
Dyrnar lokast sjálfkrafa þegar
síðasti fanþeginn hefur stigið á
útgöngutröppuna og er kominin
út.
Þá er að geta þeirrar nýjungar
að engar fjaðrir eru undir vagn-
imum að aftan. í stað þeirra eru
þar 4 loftpúðar, sem halda uppi
vagninum. Sjálfvirkur útbúnað-
ur sér um að auka loftþrýsting
í púðunum við hleðslu og draga
úr honum ef hleðsla minnkar.
Einnig heldur loftkerfið vagnin-
um jafnan í láréttri stöðu í beygj
um. Miðar þetta að auknum þæg
indum fyrir farþega og betri
meðferð og endingu á húsi vagns
ins.
í vagminum eru sæti fyrir 46
manns, en auk þess mikið rúm
fyrir standandi farþega.
Þá eru í vændum þrýstilofts
knúnir hemlar, og eir hand-
bremsa einnig knúin þrýstilofti.
165 ha. dieselvél er í vagninum.
Eins og fyrr getur kostaði
vagninn, sem er af Scania Vabis
gerð, tæplega 1,5 milljónir króna
Lögðu Landleiðir áherzlu á að
fá vagn, sem búinn væri eins
fullkomnum öryggistækjum og
hugsanlegt væri, og að hann
væri vandaður á allan hátt. Hinn
nýi vagn mun hefja akstur
á Hafnarfjarðarleiðinni innan
skamms.
379 boðið til Japan
Japanska íþróttasambandið
hefur ákveðið að bjóða 379
íþróttamönnum og 69 leiðtogum
til ,,prufu Olympíuleika" sem
haldnir verða í Tókíó 11—15.
október í ár. Samkv. reglum
Olympíunefndarinnar má ekki
bjóða til slíkra „leikja“ nema
5 beztu mönnum í einni og sömu
grein. Á að velja gesti Japan-
anna í ágúst n.k.
Fornir og nýÍr Eúrkj ugrSpIr
frú IJnnar OlafsxSóttur
til sýnis
FRÚ UNNIJR Ólafsdóttir ætlar
að gefa fólki kost á að skoða
kirkjugripi, forna og nýja, uim
helgina á heimili sínu á Dyngju
vegi 4. Frú Unnur á sem kunnugt
er mikið og fagurt safn’ slíkra
gripa og hefur fólk mikið komið
og beðið um að fá að skoða þá,
einkum á sumrin. Hefur hún
því núna komið gripum fyrir
þannig í tveimur stofum, að þeir
geti verið til sýnis, fyrst kl. 2—10
á laugardag og sunnudag og e.t.v.
á einhverjum ákveðnum tímum
oftar í sumar, _
Allir eru gripirnir í einkaeign,
og nýju gripirnir unnir af frú
Unni sjálfri og aðstoðarstúlku
hennar. Þarna eru fornar kirkju-
rúður og nýjar, altaristafla og
altarisklæði, saumað í vaðmál
með Bessastaðahör, forkunnar
fagur eir og silfurborðbúnaður
eftir Leif Kaldal á munkaborði í
annarri stofunni, stytta í fullum
prestsskrúða, skaufcbúningur
og fjölmargir aðrir fagrir gripir,
sem ekki verður getið nánar að
sinnL
— Flugslys
Framhald af bls. 1.
önnur tveggja Guadeloupe-
eyja — og flakið lá í um það
bil fimm hundruð metra hæð
yfir sjávarmáli.
Björgunarsveitir voru þegar
sendar á vettvang, bæði frá San
Juan í Puertö Rico og banda-
risku strandgæzlunni.
^ 11 börn meðal farþega
í tilkynningu frá Air
France segir, að meðal farþega
í flugvélinnl hafi verið fjögur
smábörn og sjö eldri börn. —
Flugstjórinn, Lesieur, átti að
baki sér 15.164 flugstundir, þar
af 1850 með Boeing-707. Hann
var 42 ára, ókvænlur.
Flugumferðarstjórn Banda-
ríkjanna sendi þegar af stað
tvo menn til þess að rannsaka
slys þetta — en báðir höfðu
þeir með höndum rannsókn
slyssins í París 3. júní, en þá
| fórust sem kunnugt er 130
manns.
Félaginu var afhent þessi
þota í marz sl.
Snemrna ársins fórst Boeinig 707-
þota akammt frá Xdlewild-flug-
velli í New York — og með henni
95 manns. í maí sl. fórst Boeing
707, sem var á leið til Kansas
og með henni 45 manns, en
talið er að skemmdarverk hafi
verið orsök þess slyss.
Þetta er fimmta stórslysið
með Boeing 707 frá því byrjað
var að nota þotuna til farþega
flugs í október 1958. Alls hafa
farizt 416 manns í þessum
slysum. Hinsvegar hefur „The
Boeing Airplane Co. lýst því
yfir, að þotan sé bezt búin ör-
yggistækjum af öllum þeim
flugvélum sem notaðar eru við
farþegaflug. Á hverri viku
fljúga Boeing þotur 26 flugfé-
lága um heim allan 5,9 millj.
mílur og flytja tugþúsundir
farþega.
Dyrnar opnast þegar farþegi
stígur á útgöngutröppuna. —
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í blaðinu I gær
að myndir rugluðust, er skýrt var
frá kosningu til Búnaðarþings á
Suðurlandi. Nafn Sigurðar Sig-
mundssonar stóð undir mynd af
Sigurjóni í Raftholti og öfugt. —
Eru viðkomandi beðnir velvirS-
ingar á þessum leiðu mistökum.
Happdrættismiðar
úr slökkvibifreið
Fyrir nokkrum dögum boðaði
stjórn Félags Brunavarða í
Reykjavík blaðamenn á sinn
fund og skýrði frá því, að félag
ið liefði hafið undirbúning að því
að halda hér á landi mót nor-
rænna brunavaröa. Undanfarið
hefur staðið yfir happdrætti
brunavarða vegna þess og næstu
heigar munu þeir selja happ-
drættismiða úr slökkvibifreið á
götum Reykjavíkur. Verður bif
reiðin útbúin móttöku- og sendi
tækjum og í stöðugu sambandi
við siökkviliðsstöðina- og áhöfn
bifreiðarinnar skrýdd fullum
skrúða, ef bruna skyldi bera að
höndum meðan á sölunnj stend
ur,
Vinningar í þessu happdrætti
brunavarðanna eru ferðalög,
fyrsti vinningur flugferð fyrir tvo
fram og til baka til Kaupmanna
hafnar, síðan ýmsar ferðir bæði
utanlands og innan, en síðasti
vinningurinn 210 ferðir með
strætisvagni milli Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur.
Árlega haldin mót brunavarða.
Mót norrænna brunavarða eru
árlega haldin í einhverju Norður
landanna. Hafa íslenzkir bruna-
verðir sótt mótin sl. tiu ár. Hafa
þeir þannig átt þess kost að
kynnast framförum og tækni í
helztu borgum Norðurlanda, svo
sem Kaupmannahöfn, Oslo,
Gautaborg, Helsinki, Stokk-
hólmi og Bergen. Jafnan hafa
verið um 80—100 erlendir gestir
á þessum mótum og uppihald
greitt af gestgjöfum.
Nú celja brunaverðir tíma til
kominn, að fslendingar —ændur-
gjaldi þessi ágætu boð Undir-
búningur er fyrir nokkru hafinm
en þar sem kostnaður verður
vitaskuld mi’kill við uppihald
hátt í hundrað gesta í 5—6 daga
þurfa þeir nokkurn tíma til fjár
öflunar.
Talsmenn félagsins sögðu að
þessi mót hefðu reynzt þejm af-
ar gagnleg, því að með framfór-
um, og breytingum í iðnaði, vél-
væðingu byggingartækni og efna-
fræði breyttist jafnan viðhorf
til eldvarna og slökkvistarfa.
Ekkj er endanlega ákveðið
hvenær þetta mót verður hald
ið. Hefur komið fram uppá-
stunga um að halda það í sam-
bandi við opnun nýrrar slökkvi-
stöðvar í Reykja'ví’k, en þó er
miðað við, að mótið verði ekki
'haldið seinna en árið 1966.
Undirbú'ningsnefnd mótsins
skipa brunaverðirnir: Finnur
Richter, Jón Guðjónsson og
i Gísli Jónsson,