Morgunblaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.07.1962, Blaðsíða 2
2 MORGVTSBLAÐIÐ Sunnudagur 1. júlí 1962 Churchill á batavegi London, 30. júní (AP). LÆKNAR sir Winston Churchills tilkynntu í morgun að honum liði eftir atvikum vel, hann hefði Sr. Ingi Jónsson látirrn SR. INGI JÓN JÓNSSON, sókn- arprestur á Norðfirði, léat í sjúkrahúsi í Aarhus aðfaranótt fóstudags, 35 áira að aldri. Sr. Ingi var stúdent frá Mennta skólanum í Reykjavik 1047, og að guðfræðinámd við Háskóla felands loknu, gierðist hann pnest ur á Norðfirði og hefur verið það síðan. SL vetur kenndi hanin sjúbdóms þess er leiddi hann til bana, fór þá utan að leita sér leekninga og lézt í Danmörku sl. föstudag. Baðfatasýniog FRJÁLSfÞRÓTTADEILD ÍR efnir til skemmtikvölds í Lídó í kvöld, sunnudaginn 1. júlí. — Mjög margþætt skemmtiatriði. Þar sýna þekktar þokkagyðjur nýjustu tízku. Sýnd verða sport föt allskonar, þar á meðal bik- ini-baðföt, framleidd af Sport- ver hf. í Reykjavík. Einnig mun undirfatagerðin Carabella sýna nýjustu gerð náttfata og undirfata. Ýmsar sport- og tízkuvörur frá verzluninni Geysir og verzluninni Sif verða og sýndar. Hljómsveit Svavars Gests leikur fyrir dansi. Utvarpsskák Svart: Svein Johannessen, ósló ABCDEFGH sofið vel í nótt eftir uppskurð- inn í gær þegar gert var að mjaðmarbroti, sem Churchiil varð fyrir í Monte Carlo í fyrra- dag. Churchill, sem nú er 87 ára, var fluttur til Englands í gær með þotu frá brezka flughernum og lagður inn í Middlesex sjúkra- húsið. Moran lávarður, líflæknir og vinur Churchills, var viðstadd ur uppskurðinn er læknar Middl- esex sjúkrahússins festu saman mjaðmabrotið með stálvír. Tók aðgerðin hálfa aðra klukkustund. Eiginkona sir Winstons heimsótti hann í sjúkrahúsið í gær og aftur í morgun. Segir hún að Churchill hafi verið hress og kátur en örlítið eftir sig. Og yfirlæknirinn við uppskurðinn, Philip Newman sagði: Það er allt í lagi með gamla manninn. Síld brædd í Reykjavlk ABCDEFGH Hvítt: Ingi R. Jóhannsson. 36........ H-f5 ÞÓTT SÍLD berist nú ekki á land hér í Reykjavík, er samt unnið sif fullum krafti að síldar bræðslu í Síldar- og Fiskimjöls verksmiðjunni að Kletti. Hafði MbL af þessu tilefni tal af Jón- asi Jónssyni, framkvæmdastjóra verksmiðjunnar, og innti hann frétta af þessum einstæðu fram- kvæmdum. Fórust honum svo orð: ,,5'íld sú, sem nú er verið að vinna í verksmiðjunni, er mánað ar gömul, hefur hún verið geymd í tönkum og var sett í tankana geymsluefni, sem er blanda af formalini og natrium-nitriti. — Teknar eru prufur af síldinni vikulega og fylgzt með því, hve mikið magn er eftir af geymslu efninu, en því hættir til að dvína einkum í hita. Þó verður að gæta þess að taka síldirva ekki of snemma af tönkunum, því að ef of mikið er af geymsluefninu eftir, þegar hún er sett í bræðslu, kemur bað fram í mjölinu, og er þá eina ráðið að geyma mjölið í nokkurn tíma, þar til ákveðin efnabreyt ing hefur átt sér stað og mjölið verður söluhæft"'. „Hvað er um mikið magn að ræða“. „Við höfum geymt um 32 þús. tunnur í tönkum, en við tók- um þessa síld af bátum, þegar mest af henni barst á land og þar sem við gátum ekki sett hana í bræðslu jafnóðum, grip um við til þessa ráðs. Það er ekki vafamál, að þetta hefur orð ið bátunum til mikils hagræðis, auk þess, sem mikil verðmæti hafa bjargazt frá eyðileggingu". „Hefur síld verið geymd svona í tönkum áður?“ „Eg hef viðhaft þessa aðferð undanfarin ár og reyndi hana fyrst á Seyðisfirði árið 1954. — Það hefur þó aldrei verið í svona stórum 'stíl, sem nú og að því er ég bezt veit, er þetta í fyrsta sinn hér í Reykjavík, sem síld er tekin til bræðslu, eft ir að hafa verið geymd i tönk- um, svo sem við höfum gert". „Hvaðan er þessi aðferð upp- runnin?“ „Hugmyndin er norsk og hef- ur verið allmikið notuð þar í landi“. „Eru gæði síldarinnar hin sömu, eftir að hafa verið geymd þetta lengi?“ „Gæði mjölsins eru alveg hin sömu, en lýsinu getur hætt til að súrna örlítið. Þótt þetta baki töluverðan aukakostnað við akst ur og geymslu, var nauðsynlegt að taka hann á sig, til að bjarga svo miklum verðmætum, en síld in, sem í tönkunum er er a.m.k. 2% millj. kr. virði. Kostnaður við að ná síldinni upp úr tönk unum er einnig mikill, því taka verður hana með gripum upp um op þeirra, en ekki er unnt að láta hana renna af þeim, vegna þess, hve mögur hún er. Þegar síldin er svo mögur sem þessi, hleðst hún upp, eins og í veggi, en rennur alls ekki“. Þetta er svipmynd frá leik KR gegn danska úrvalinu s.l. föstudagskvöld. Þórólfur fær hér óblíðar móttökur er hann nálgast mark Dan- anna. KR-ingar sóttu oft fast upp undir mark Dana, en þar brást þeim ætíð boga listin og öll sókn varð bit- laus og án árangurs. — Ljósm. Sveinn Þormóðss. Akurnesingar móti Dönum annað kvöld AKURNESINGAR hafa þegar valið lið sitt, sem leika skal gegn úrvalsliði S.B.U. á mánudag, og er það þannig skipað: Helgi Daníelsson (1) Þórður Árnason (2) Helgi Hannesson (3) Tómas Runólfsson (4) Bogi Sigurðsson (5) Jón Leósson (6) Ingvar Elísson (8) Þórður Jónsson (10) Jóhannes Þórðars. (7) Ríkharður Jónss. (9) Skúli Hákonars. (11) Varamenn: Sveinn Teitsson, Björn Lárusson, Pétur Jóhannesson og Kjartan Sigurðsson. Sveitarstjórnar k osn inga r Vestur-Skaftafellssýsla Hörgslandshreppur. Hrepps- nefnd: Bjarni Bjarnason, Hörgs- NÁLÆGT miðju Grænlands- hafi er fremur djúp lægð á kortinu og hreyfist hún hart N-NA. í dag má því búast við, að loftið vestan við kulda- skilin verði komið yfir land- ið. Suðvestan lands verður þá hætt við skúrum, en bjart með köflum. Norðan og austan lands mun verða sólskin og hlýtt í veðri. Veðurspáin á hádegi í gær: SV-land til Vestfjarða og miðin: Hvass sunnan og rign- ing eða súld fyrst, gengur í allhvassa SV átt og þykknar upp síðdegis, lygnandi og smá skúrir í nótt. Norðurland og miðin: Sunn an og síðar SV stinningskaldi_ dálítil rigning vestan til. NA-land, Austfirðir og mið- in: Sunnan kaldi, hlýtt og víð- ast þurrt. SA-land og miðin: Sunnan stinningskaldi, rigning og þokusúld einkum vestan tii. dal; Bjarni Þorláksson, Múla- koti; Bergur Helgason, Kálfa- felli; Bergur Kristófersson, Keldunúpi; Helgi Pálsson, Seljalandi. •—• Sýslunefndar- maður: Bjarni Bjarnason, Hörgsdal. Kirkjubæjarhreppur. Hrepps- nefnd: Páll Pálsson, Efri-Vík; Sigfús H. Vigfússon, Geirlandi; Siggeir Björnsson, Holti; Sig- geir Lárusson, Kirkjubæ; Sig- urður Sveinsson, Hrauni. — Sýslunefildarmaður: Sigfús H. Vigfússon, Geirlandi. Leiðvallarhreppur. Hrepps- nefnd: Björn Sveinsson, Lang- holti; Eyjólfur Eyjólfsson, Hnausum; Halldór Hávarðsson, Króki; Loftur Runólfsson, Strönd; Runólfur Bjarnason, Bakkakoti. — Sýslunefndarmað ur: Eyjólfur Eyjólfsson, Hnaus- um. Skaftártunguhreppur. Hrepps- nefnd: Gísli Vigfússon, Flögu; Guðjón Guðjónsson, Hlíð; Guð- jón Bárðarson, Hemru. — Sýslunefndarmaður: Guðjón Guðjónsson, Hlíð. Alftavershreppur. — Hrepps- nefnd: Brynjólfur Oddsson, Þykkvabæjarklaustri; Jón Gísla son, Norðurhjáleigu; Símon Pálsson, Mýrum. — Sýslunefnd armaður, Jón Gíslasou, Norður- hjáleigu. Gullbringu- og Kjósarsýsla Gerðahre^pur: í Gerðum I Garði kusu 274 af 320 á kjörskrá. Kjörnir vOru: Björn Finnbogason, Þorlákur Benediktsson, Sigrún Oddsdóttir, Guðm. Jónsson og Þórður Guðmundsson. __ Björa Finnhogasön er sveitarstjóri. Heimskunnur guðspekifyrir- DVALIZT hefur hér á landi a8 undanförnu beimskunmur guð- spekifyrirlesari frá Engliandi, Mrs. Doris Groves. Hún flybur opinberan fyrirlestur í Guðsipeki félagshúsiniu í kvöilid kl. 8.30, og nefnist fyrirlesturinn: „Frelsi og örlög manna“. Frúin sófti suimarskóla Guð- spekifélagsins, sem ný'legia er lok ið að Hlíðardal í Öifusi. Hún var aðaifyrirlesari skóJans Og flutti þar sjö fyrirlestra uim yogaþjálf- un og yogaheimspekL Hún eir eimn af helztu foruistumönniuim Guðspekifélagsins í heiminium og á sæti í allsherj árráði þess. >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.