Morgunblaðið - 04.07.1962, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.07.1962, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 4. júlí 1962 Guðmundur, Sigríður, Þóra og Jón. „Eg vil eignast barn“ út um land A FÖSTUDAGINN heldur leik- flokkurinn „4 á ferð“ frá Reykja vík út á land með gamanleik, sem nefnist „Ég vil eignast barn“ og er eftir bandaríska höfundinn Lesiie Stevens í þýðingu Ásgeirs Hjartarsonar. Leikurinn nefnist á frummálinu „The Marriage- Go-Round“ eða hjónabands hringekjan og hefur verið sýndur í Bandaríkjunum og víða í Evrópu við mjög miklar vin- sældir, enda bráðsmellinn. í leikflokknum eru tvenn hjón þau Sigríður Hagalín og Guð- mundur Pálsson og Þóra Friðriks dóttir og Jón Sigurbjörnsson. Er þetta þriðja sumarið í röð, sem Arsæll Sigurðs' son II. nýr bátur HAFNARFIRÐI — í fyrsrinótt kom hingað nýr bátur, Ársæll Sigurðsson II, sem byggður er úr tré í Friðrikssundi í Dan- mörku. Eigandi er Sæmundur Sigurðsson skipstjórd, sem sigldi bátnum til landsins og verður jafnframt með hann. Kvað hann þá hafa hreppt vont veður í Haf- iniu (mótvind). en báturinn hefði reynzt hinn bezti í alla staði. Ársæll Sigurðsson II er 104 smálestir með 380 hestafla Alfa- dlíselvél. í reynsluför gekk hann lö sjóm. Hann er að sjálfsögðu búínn öllum helztu og beztu sigingatækjum, svo sem síldar- leitartæki, ratsjá og dýptar- mæli. Byrjað var á smíði hans í júní 1961. Áhöfnin verður 12 manns, en héðan heldur hann á síldveiðar um næstu helgi. Ár- sæll Sigurðsson mun geta borið 1(200—1300 mál síldar. — G.E. þau fara saman út á land með leiksýningar, en hafa auk þess öll farið nokkrum sinnum með öðrum leikflokkum. Leikstjóri er Guðmundur Páls- son og er þetta frumraun hans á því sviði. Flokkurinn fer með fullkominn leitohúsviðbúnað, leik tjöld og ljós, og hefur Gunnar Bjarnason hjá Þjóðleitohúsinu gert leiktjöldin en Gissur Páls- son ljósameistari Leifcfélags Reytkjavílkur leiðbeint með ljós- in. Frumsýning verður að Mána- garði við Höfn í Hornafirði á föstuda^stovöld, en þaðan heldur flotokurinn um Austurland, Norð urland, Vestfirði, Vesturland og Suðurland. Telur flatokurinn að ferðin tatoi um 6 vikur. Á fúndi með fréttamiönnum í gær ræddu leikararnir um það hve aðstaða til leiksýninga úti á landi hefði batnað á undanföm-, um árum, þar sem víðast hvar væru risin ný og fullkomin sam- komuhús. Þessu til sönnunar bentu þau á að þótt þau hafi ferðast um allt land í fyrrasum- ar, sýni þau í sumar í þremur nýjum og fullkomnum samkomu húsum, sem etoki voru til þá. Þetta er á Ólafsfirði, Neskaup- stað og hjá Haga á Barðaströnd. Og með bættri aðstöðu hefur leiklistaráhuginn í sveitum auto- izt og *heimsóknum leikfloklka farið fjölgandi. Svo virðist þó sem í sumar verði óvenju lítið um ferðir leikflotoka frá Reykja vík út á land. Leikfélag Reykja- vikur er um það bil að ljútoa hringferð um landið, og „Rekkju flokkurinn" er að koma heim úr ferð um Vesturland. Verður því 1 */* NA IS hnihr' SV 50 hnútor „4 á ferð“ eini Reykjavíkurflotok urinn úti á landi a.m.k. fyrst um sinn. „4 á ferð“ er einlkafyrirteefci leikaranna sjálfra og hafa þeir vandað mjö'g til sýningarinnar. Má búast við að Reytovíkingar fái að sjá þennan gamanleik að lotoinni hringferðinni. Síldin stygg Ekki erindi sem erfiði Raufarhöfn 3. júlí. Mikið var kastað á síld á Strandagrunni síðastliðna nótt, en skipin höfðu ekki erindi sem erfiði, því síldin reyndist stygg og munu mörg skipanna hafa fengið lítið sem ekkert. Frá kl. 8 í morgun hafa eftir- talin skip látið síldarleitina vita um veiði sína: Gjafar VE 500 mál, Þorbjörn' GK 550, Faxaborg GK 400, Eldey GK 900, Pétur Jónsson ÞH 300, Björg NK 400, Hafþór RE 1000. Þessi síld er ekki söltunarhæf, aðeins 15—16% feit. í dag köstuðu 6 skip á síld á Austursvæðinu, austan Langa- ness. Ekkert þeirra fékk síld, nema Víðir II sem mun hafa feng ið eitthvað lítið. Ægir leitar síld ar á þeim slóðum, en þar er nú norðan kuldagjóla og heldur bágt útlit. Skipin rekast á torfu og torfu en síldin stendur djúpt. Fyrir fjórum dögum fann Ægir mikla síld út af Sléttu, austur af Kolbeinsey, en missti af henni. Pétur Torsteinsson fann í dag á svipuðum slóðum síld. Þarna virðist vera um mikið síldarmagn að ræða, en torfurnar eru fremur litlar og standa djúpt þó eru einstaka torfur góðar. Viu miðnætti frétti blaðið að engin síld hefði fengist austur al Kolbeinsey, og skipin farin það- an aftur. Hinsvegar hafði Ægif þá fundið talsvert magn af síh austan við Langanes. Brutust inn AÐFARANOTT mánudagsi na voru tveir innbrotsþjófar staðnir að verki í Fiskiðjuverinu. Höfðu þeir stórskemmt peningastoáp er þeir reyndu að brjóta hann upp með hamri og meitli, í þessura stoáp var ekkert verðmæti. Enn- fremur fóru þeir inn á Skrifsfof- ur fyrirtækisins og brutu þar upp hirslur og gerðu spjöll á mununv Tveir starfsmenn Fisk- iðjuversins komu að inrabrotsþjóf unum, þeir Georg Hólm og Sig- urgeir Vilhjálmsson og gerðu þeir lögreglunni aðvart, sem handtóto þegar annan þeirra, en hinn slapp. Sá. sem náðist sagði þó til hans. Ektoi höíðu inhbrotsþjóf- arnir fundið verðmæti er þeir voru truflaðir. * Snjótoma • ÚSi V Stúrir K Þrumur 'WSS, Kutdostit Hihtktt H Hmt 1 Dr. Björn 'Sigurbjörnsson og Ölafur Asgeirsson með sjálfvirku byssuna, sem á að fæla burtu gæs úr ö'crum og túnum. Byssa fælir burtu gæsir af túnum og ökrum bænda OFT hefur það sézt í blöðun- um að bændur kvarta. undan gæsinni, sem þeir segja hinn versta átvagl, komist hún í akra þeirra eða tún. • En ekki er gott í efni, því gæsin er friðuð þangað til seinast í ágúst. Nú hafa verið fengnar til landsins til reynslu byssur, sem eiga að fæla burtu gæsina. Er byssan hlaðin með karbít og er vatn dýpur á hann, kem- ur geysilegur hvellur og hægt að stilla byssuna þannig að hvellirnir komi með jöfnu millibili, allt frá hálfri mínútu til klukkustundar millibils. Dr. Björn Sigurbjörnsson hjá Búnaðardeild Atvinnudeildar- innar sýndi okkur eina af þess- um byssum í gær. Hann var í fyrra á jurtarannsóknarþingi í Cambridge í Englandi, lagði sig þá út á gras með bók, en allt í einu kvað við gífurlegur hvellur og hafði hann legið í nánd við eina af byssum þeim, sem notaðar eru í Bretlandi til að fæla burtu spörfugla. Hann skrifaði niður framleiðslumerk- ið, en um 50 þús. slíkar byssur eru í notkun í Bretlandi. Og minnugur þess að gæsin hér byrjar að éta sáðgrasið á vor- in, bítur svo gras bænda allt sumarið og étur kornið -á haust in, til að fara sílspikuð til Eng- lands, þar sem enskir lávarðar skjóta hana, fékk hann Árna Gestssyni í Globus nafnið og hann pantaði þrjár til reynslu, til að freista þc^ss að losa bændur við ágang gæsarinnar. Einar Þorsteinsson, ráðunaut- ur, ætlar að setja eina upp á Skógasandi, en þar eyðilögðust tilraunir af völdum gæsarinn- ar í fyrra, Árni Gestsson ætlar áð setja aðra upp á akrinum á Hafrafelli á Rangárvöllum og sú sem við sáum, á að fara í Gunnarsholt, þar sem þeir Björn og Sturla Friðriksson sáðu korni vegna tilrauna sinna í aprílmánuði, þar eð klaki fc ekki úr jörðu við Korpúlfsstaí fyrr en í maí eða of seint t þess. Á byssan að fæla spöi fugla úr 8 hektara landi, e engin reynsla fengin um gæ: ina. En venst ekki gæsin bar hveljunum? spyrjum við Björj —• Þá er enginn skaði skeðu: svarar hann, þá verður hú bara auðveldara skotmark haust. í Bretlandi er reynsla sú að spörfuglarnir venja: þannig að þeir fara burtu ví hvellina, en koma nokkur tíma á milli og dregur þett mikið úr tjóninu sem- þej valda. En þeir eru heldur ekl nærri eins styggir og gæsin. í sambandi við þetta tjáí Björn okkur að hann hefði vor séð akur á Seljalandi 'stói skemmdan af völdum gæsa: væru stráin uppétin um lei og þau kæmu uþp og er han kom út á akurhorn í Gunnars liolti, flugu þar upp 70 gæsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.