Morgunblaðið - 04.07.1962, Page 3
Miðvikudagur 4. júlí 1962
MORGVNBLAÐIÐ
Bókabíllinn og Bóksalarnir, Gerður, Jón Óttar og Auður
ÞrjiJ í bóksðluferð
f SUMAR getur fólk úti á
landi átt von á að sjá Land-
rower-jeppa með skrýtinn
aftanívagn koma inn í þorpin
og stanza við aðalgötUna. Und
ir stýri situr ung stúlka og
við hlið hennar ungur pi'.tur.
f>au snarast út, opna alla hlið
ina á aftanívagninum og við
vegfarendum blasir svolítil
bókabúð. Þar stendur piltur-
inn og býður til sölu mál-
verkaeftirprentanir og bækur
en stúlkan gengur um þorpið.
‘kveður dyra og ber í húsin
fregnmiða um það sem til er
í bókavagninum og lista yfir
það sem hægt er að gera pönt
un i.
Þarna verða komin börn
Ragnars í Smára, sem í sumar
fara í bóksöluferð fyrir Helga
fell í fyrsta bóksöluvagnin-
um, sem gerður hefur verið
á íslandi. Þau eru þrjú Erna,
Auður og Jón Ottar og skipt-
ast á um að fara í fri, eitt og
eitt í einu. Þau eru ráðin upp
á prósentur, helming á við
það sem bóksalar fá, og ætla
að vinna sér þannig fyrir
vasapeningum til vetrarins,
og hafa opið til miðnættis. —
Þau ætla að hafa a.m.k. eins
mikil upp úr sér og ef þau
færu á síld, segir pabbi þeirra
brosandi. Annars er ekki að
vita nema bókabúðin kunni að
standa á síldarstað og af-
greiðslufólkið fara í síldina.
Tvö yngri systkinin eru í
Menntaskólanum, en Gerður
varð stúdent í vor, og hyggst
fara til náms í innanhúsarki-
tektúr til Englands næsta vet
ur. Þá getur verið gott að vera
búinn að átta sig á hvernig
bezt er að búa bröngt, en á
ferðalögunum ætla systkinin
að búa í vagninum, sofa þar á
vindsængum og elda. Systurn
ar hafa verið að æfa sig austur
í sveitum að aka Landróvern
um en Jón Óttar er enn of ung
ur til að hafa bílpróf. — Þetta
verður ábyggilega skemmti-
legt og tilihreytingarríkt, segir
Auður, en ég kvíði dálítið fyr
ir fyrstu ferðinni.
Ungt fólk les bækur Kiljans
Ragnar segir að lengi hafi
staðið til að Helgafell kæmi
af stað bókabíl til að kynna
bókmenntir og málaralist um
landið. 1 þessa fyrstu ferð hafa
verið valdar nokkrar beztu
og fallegustu bækurnar, sem
Helgafell hefur gefið út. Eru
það tvær bækur eftir Halldór
Kiljan Laxness, Salka Valka
og Sjálfstætt fólk. Nýlega gerði
Ragnar tilraun með að láta
fólk um tvítugt, sem ekki
þekkti bækur Kiljans fyrir
lesa þær, og hetfur komizt að
þeirri niðurstöðu að sú kyn-
slóð, sem nú er að koma upp,
muni skilja þessar bækur, sem
út komu fyrir 30 árum, til fulls
og njóta þeirra. Þegar þær
fyrst komu út lásu þær mest
þroskað fólk í borgarastétt,
einkum konur, að hann telur,
en nú séu þær við hæfi ungs
fólks. Þá verða í fyrstu ferðun
um myndabækurnar ísland í
máli og myndum, þar sem þjóð
kunnir menn skrifa um land
sitt og þjóð og í eru 30 — 40
heilsíðuoniyndir í litwn, og
eru tvær fræðibækur og hand
bækur. Bókin um manninn
með 550 myndum um Kynlíf
og loks sú barna- og unglinga
bók, sem forlagið telur sig hafa
gefið út bezta, Sumardagar eft
ir Sigurð Thorlacius.
Þá verða í fyrstu ferðunum
sérstaklega kynntir með eftir
prentunum fimm ísl. málarar,
hinir elztu. Muggur, Jón Stef-
ánsson, Kjarval, Ásgrímur og
Þórarinn Þorláksson. En aðrar
eftirprentanir og bækur er
hægt að panta.
Þessir nýju bóksalar ætluðu
að leggja af stað í dag, fara
fyrst um Suðurnes, nema
Keflavík, síðan í Árnes- og
Rangárvallasýslu og þá um
Borgarfjörð.Þau systkinin eru
kunnug víða á landinu, hafa
ferðast mikið með íbúðarvagn
aftan í bíl með foreldrum sín
um. Atli Jónsson, vélstjóri hef
ur staðið fyrir smíði bókabíls
ins og teiknað hann. Er hann
• bjartur inni, þar eð gluggar
eru á þakinu og á að geta
farið hinar erfiðustu leiðir.
SIAKSTEIMR
Blint ofstæki
„Fræði Hitlers eru því að end-
urfæðast að fullu í starfsaðferð
um Sjálfstæðisflokksins.“
Þessi tilvitnuðu orð er ekkl
að finna í hinu löggilta mál-
gagni heimskommúnismans
eins og menn munu halda, held-
ur í blaði þess flokks, sem hlífi
skildi heldur yfir kommúnistum
og starfar með honum á flestum
sviðum, Framsóknarflokksins.
Til þvílíkra bardagaaðferða er
gripið í vörn út af
því að Morgunblaðið hefur vak-
ið athygli á atvinnukúgun, sem
forystumenn í samvinnufélög-
um þeim, sem rekin eru í þágu
Franr.sóknarfloksins, hafa gert
sig seka um. Tíminn svarar með
því að Sjálfstæðismenn séu sjálf
ir atvinnukúgarar en bætir þó
við: „Fjölmargir atvinnurekend
ur sem fylgja Sjálfstæðisflokkn
um að málum, eru
andvígir þvi að láta pólitiskar
skoðanir ráða um mannaráðn-
ingar.“
1 f
i
Stolnað Sjálfstæðisfélag
Suður-Þingeyinga
LAUGARDAGINN 23. júní kl. 4
e. h. var settur á Húsav'ík fundur
Sjálfstæðismanna í Suður-Þing-
eyjasýslu. Fundarstjóri var Þór-
halliur B. Snædal, byggingar-
meistari, Húsavík oig fundarrit-
ari Páll Þór Kristinsson, við-
ekiptafræðingur, Húsavík.
Fundiurinn hófst með þvi að
Jónas G. Rafnar alþingismaður,
skýrði frá þeim tilgangi og verk-
efni fundarins að koma á fastri
skipan á flokksstarfið I Suður-
Þingeyjarsýslu og Húsavík sam-
kvæmt þeim skipulagsreglum,
sera Sjálfstæðisflokknuim voru
settar á landsfundi flokksins
Þá flutti Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, erindi um
skipulag og starfsemi Sjálfstæðis
flokksins, og því næs t flutti
Magnús Jónsson, bankastjóri,
ræðu um stjórnmálaviðhorfið.
Síðan voru almennar umræður
og tóku til máls Vernharður
Bjarnason, forstjóri, Húsavík,
Þórthallur B. Srnædal, Páll Þór
Kristmsson, Hallgrímur Þórhalls
son, bóndi, Vogum, Jónas G.
Jónsson, kennari, Húsavík og
Magnús Jónsson, bankastjóri.
Fundurinn samþykkti að
stofna S j á 1 f s tæðisfétag Suður-
Þingeyinga og nær félagssvæðið
til Suður-Þingeyjarsýslu og Húsa
víkur. Þorvaldur Garðár Krist-
jánsson lagði fram og skýrði
frumvarp að lögum fyrir félagið,
sem síðan var samþykkt. Var þar
með og samþykkt að slíta Sjálf-
stæðisfélagi Húsavíkur og með-
limir þess gerðust stofnendur
hins nýja félags. Voru stofnend-
ur félagsins samtals 65 að tölu.
í stjórn félaigsins voru kosnir
vík; Páll Þór Kristinsson og
Árni Kárason, bóndi, Halibjarn-
arstöðum. í varastjórn voru kos-
in Kristján Þóríhalls®on, bóndd,
Vogum; Isleifur Sumarliðason,
Skógarvöiröur, Vöglum; Vern-
harður Bjarnason, Arnviður Æv-
ar Björnsson, pípulagningarmeist
ari, Húsavik; og frú Ingunn Jón-
asdóttir, Húsavík. Ennfriemur
voru ko^tiir fulltrúar félagsins í
fulltrúaráð Sjáifstæðisflokksins
fyrir Suður-Þingeyjarsýslu og
Húsavík og fulltrúar í Kjör-
Einokun liættuleg
Tíminn segir að þar sem Sjálf
stæðismenn hafa pólitísk yfirráð
eins og t-d. í borgarstjórn
Reykjavíkur, þar velji þeir
menn til starfa eftir stjórnmála
legum litarhætti. Ekki nennir
Morgunblaðið að nr.unnhöggvast
við Tímann um þetta atriði, en
vekur athygli i þeim ortfum
blaðsins, sem áður var vitnað
til, að atvinnurekendur, sem
fylgja Sjálfstæðisflokknum færu
ekki þannig að. Mergurinn máls
ins er sá, að ekki er hægt að
beita atvinnukúgun, eða a.m.k.
verður hún ekki hættuleg, þar
er margir atvinnurekendur eru.
Þegar menn eiga margra kosta
völ láta þeir ekki kúgast heldur
leita þangað, sem þeir eru frjáls
ir að skotfunum sínum Þetta gera
framám.snn Framsóknarflokks-
ins sér ljóst. Þess vegna Ieggja
þeir meginkapp á að ná einokun
aratfstötfu sem víðast og ná sem
traustustum pólitískum tökum
á hagsmunasamtökum almenn
’^***'***’**-1 ings. Þar sem það tekst er hægt
atf koma atvinnukúguninni við
og því miður hefur þatf hent,
eins og á hefur verið bent. Sann
leikurinn er sá, að emokunar-
hættan er hvað mest þegar hún
fer saman við pólitísk völd, eins
og er 1 samvinnuhreyfingunni
hér á landi, sem. enn hefur ekki
borið gæfu til að hrista af sér
flokksvald Framsóknarleiðtog-
anna og víða er, þar sem þjóð
nýting er úr hófi.
Þórhalluir B. Snædal, formáður, dæmisráð Norðurlandskjördæm-
Bjartmar Guðmúndsson, alþinig-
ismaður, Sandi; Þorbjörn Ás-
kielsson, ú tgerðarmaður, Greni-
eystra. Að afloknium stofn-
fundi félagsins var haldinn fund-
ur í fulltrúaráðinu.
Snœarhóiel í Stykkishólmi
SUMARHÓTEL hefir verið opn
að í Stykkishólmi. Varþaðopnað
15 júní s. 1. og verður starfrækt
í sumar. Er það til húsa í nýjum
húsakynnum og eru þau öll
tneð nýtízku sniði. Gistirúm fyr-
ir 40 manns og matsalur og setu-
stofa með smekklegum húsgögn-
um og mjög vistleg í alla staði.
Mun þetta sumarhótel verða með
því bezta, sem völ er á hér á landi
bæði hvað aðbúnað og annað
enertir. Eldhús hótelsins er rúm-
gott og öll nýtízku þægindi þar
til framleiðslu matar. Mun hót-
elið taka á móti ferðahópum og
fólki til dvalar um lengri eða
skemmri tíma. Má benda á að
hótelið mun sjá fólki fyrir ferð-
um út um eyjar og hefir í því
sambandi trýggt sér báta til
þeirra nota. Er fólki bent á að
panta tímanlega því gera má
ráð fyrir að mikill ferðamanna-
straumur verði um Snæfellsnes
í sumar þar sem nú hefir verið
opnuð leið umhverfis Nesið um
Búlandshöfða.
Hótelstjóri hefir verið ráðinn
Lúðvíg Halldórsson kennari en
hótelið er starfrækt af Stykkis-
hólmshreppi.
Starsfsfólk hefir valizt gott
að hótelinu.
Fimmtugur í 'dag:
Kristján GamalieEsson
í DAG á Kristján Gamalíelssion
Hafnarfirði 50 ára afmæli. Krist-
ján er fæddur í Reykjavík, 4.
júlí 1912, sonur hjónanna Sigur-
bjargar Björnsdóttur otg Gamalí-
els Jónssonar. Kornungur fluttist
hann til Hafnarfjarðar Og hefur
verið búsetfcur þar síðan.
Það munu fæstir trúa því, að
þar sem Kristján er. fard fimmt-
ugur maður, svo unglegur er
hann, kvikur á fæti og snar í
snúningum. Kristján var líka
mikill leikfimismaður á sínum
yngri árum. Beitti hann sér þá,
ásaant fleiri ungum mönnum,
fyrir stofnun Fimleikafélaigs
Hafnarfjarðar og var fyrsti for-
maður þess. Kristján er mikill
söngvin. Hann hefur ágæta ten-
órrödd, bjarta og háa. Var
hann söngtmaður í Karlakórnum
„Þrestir' í mörg ár Og kom með-
al annars fram, sem einsöngvari
með kórnum.
Kristján er maður trúhneygð-
ur, og eiga þau mál hug hans all-
an. Er hann virkur þátttakandi
í söfnuði ,,Hvítasiunnumanna“ og
dvelst nú á afmáelisdaginn ein-
mitt á landsmóti þeirra, sem
haldið er á ísafirði.
Kvæntur er Kristján Gunn-
þóru Björnsdóttur, hinni mestu
ágætis konu.
Ég vil á þessum merku tíma-
mótum í ævi þinni, kæri frændi,
senda þér og þinni konu, beztu
hamingjuóskir með þakklæti fyr-
ir ykkiar góðu hjálpsemi og ein-
læga vinátfcu á liðnum árum.
Arni Grétar Finnsson.
Gera grín
að fulltrúunum
En meginröksemð Tímans fyr
ir því að Sjálfstæðismenn í borg
arstjórn velji starfsmenn borgar
innar eftir stjórnmálaskoðunum
felst í eftirfarandi spurningu
blaðsins, sem menn mirnu eiga
að svara hver fyrir sig:
„En meðal annarra orða: hvað
halda menn að frambjóðandi
Framsóknarflokksins yrði lengi
yfirmaður eða verkstjóri hjá
Reykjavíkurborg?“
Þeir sent. mættu á. síðasta borg
arstjórnarfundi og urðu vitni að
því fullkomna þekkingarleysi a
málefnum borgarinnar sem borg
arfulltrúar Framsóknarflokks-
ins auglýstu í umræðunum og
með barnalegum fyrirspurnum,
hefðu sjálfsagt svarað þessari
spurningu Tímans með annarri
spurningu, ef fulltrúarnir hefðu
verið starfsmenn Reykjavíkur-
borgar. Sú spurning hefði verið
eitthvað á þessa leið:
Hverskonar stjórnendur eru
það sem bera ábyrgð á því að
slíkur maður er „yfirmaður eða
verkstjóri hjá Reykjavíkur-
bo:'g?“