Morgunblaðið - 26.07.1962, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.07.1962, Blaðsíða 9
Fimmíudagur 26. íúlí 1962 MORCUVBT4fílÐ 9 Bændaför Skagfirðinga SKÝN við sólu Skagafjörður. — Skagafjörður breiddi út faðminn á móti 116 búendum sínum, sem etaddir voru í Varmalilíð mánu- dagsmorguninn 25. júní. í»eir voru að leggja á stað í 8 daga ferðalag til Suð Austurlands. Logn var og sólskin eins og það getur fegui-st orðið, eyjarnar, fjöllin byggðin öll umvafið sól- ergeislum. Voru likur til að við fengjum að sjá annað fegurra? Ragnar Ásgeirsson væntanleg- lir fararstjóri var mættur í Varmalhlíð og tók nú röggsam- lega við stjórninni. Raðað var í 4 bíla frá Sleitustöðum, glæsilega farkiosti, bílstjórarnir ungir lag- legir menn, sem tilhlökk.un var að ferðast með. Ekið var úr hlaði kl. 9 eins og leið liggur fram Skagafjörð upp á Öxnadalsheiði. Skagafjörður kvaddur en við tók nýtt, glæsilegt hérað og komið til Akureyrar um kl. 11.30. Fólkið fék>k stund til að hitta vini og kunningja, en var svo boðið til dagverðar af K.E.A. að hótel KEA, Var iþar vel veitt að vanda og árnaðaróskir flufctar af for- etöðumönnum kaupfélagsins. Ragnar Ásgeirsson sagði þar frá f erðaáætlun, áminnti um stund- vísi o. fl., er ferðinni viðkom. Kl. um 1,30 safnaðist fólkið að bíl- unum og mátti heita sæmilega etundvíst. Ekið var nú upp Vaðla heiði í yndislegu veðri og útsýni eins og það gefcur bezt verið yfir (blómlegar sveitir báðumegin Eyjafjarðar vel ihýstar jarðir og stórar lendur ræktaðar. Maður heyrir líka að Eyfirðingar séu með fremstu bændum 1 búnaði öllum. Áður en varir erum við komin í Þingeyj arsýslu. Laufgað ur skógur er nú höfuðprýði á leið okkar en ósköp finnst okkur að sjá kölin í túnunum, sem hlýt ur að verða stór hnekkir búandi manni. Ekski er stanzað í Vagla- skógi en Groðafoss skoðaður og allar birgðir af gosdrykkjum keyptar upp hjá útibúi K.I> að Fossthóli, þvi að sólskinið og góða veðrið gerði fól'kið þyrst. — Að Laugum í Þingeyjarsýslu beið fjöldi Þingeyinga og þar voru framreidd veisluföng í boði Bún- aðarsamibands Þingeyinga Undu gestir og heimamenn þar við söng, ræðuhöld og samræður. — Karlakór söng einnig við ágætar undirtektir gesta. Við áttum bágt með að slíta okkur frá þessum gleðskap og höfðingjaboði en dag ur vax að kvöldi kominn og bænd ur og húsfreyjur þeirra biðu okk ar á gististöðum. Var öllum skift niður til gistingar allt frá Reykja kverfi í Keldukverfi. Átfcum við þama indælar nætur eins og alls staðar í ferð okk- ar. Áður en farið var til náttstað ar safnaðist fólkið saman að Hveravöllum í Reykjahiverfi og horfði á rnyndarlegt gos. Þar á K.E.A. ásamt fleirum mikið af gróðurhúsum. Búsældarleg og falleg sveit er þama, fólkið mynd arlegt og frjálslegt og að morgni 26. júní bar öllum saman um að Þingeyingar hefðu borið Skag- firðinga á höndum sér. Að morgni höfðu 'hinir agætu bíl- stjórar nóg að gera að safna fólkinu saman, og var nú keyrt viðstöðulaust að Ásbyrgi. Veður- guðinn sýndi okkur nú að það var hann, sem valdið hafði, því ®ð nú rigndi ein ósköp rétt á meðan stansað var i þessum ein- kennilega stað. Varð því minni viðdvöl þar en áætlað var. 1 Ásbyrgi komu til móts við okk- ur allmargir Norður-þingeying- er, sem sýndu okkur þetta merki lega náttúrufyrirbrigði, sem þeir eð vonum eru sfcoltir af. Eftir góðar óskir og kveðjur var hald- ið áleiðis að Dettifossi, þessum tröllaukna jötni sem Norðlend- ingar gera sér nú miklar vonir um að verði beislaður öldnum og ótoornum til nytja. Og þá erum við áður en varir komin upp á Hólsfjöll og Möðrudalsöræfi, miklar auðnir. umhugsunarvert, að miikill hluti af okkar blessaða landi skuli vera sandaunir og jöklar. í Möðrudal var staðið við um stund og sýndist fólki þar ekki glæsileg* til búskapar. Áfram er brunað, gróður eykst og senn sjáum við niður á Jökul dal. Dagur er liðinn. Austfirðing- ar mæta okkur á Jökuldal albún ir að gera okkur dvölina á Hér- aði ánægjulega. Eins og fyrr er fólkinu skipt á bæina til gisting- ar. Margt aif ferðafólki er orðið þreytt og þykir því sumstaðar nokkuð langt á milli bæja, en gestrisni Norðmýlinga fær okkur til að gleyma þreytunni. Það er allsstaðar veizlufagnaður og líikt eins og bróðir eða systir væru komin til gistingar Það er spjaUað og spurt fram á nótt. Söm eru áhugamálin og einkennilega margir hitta gamla kunningja eða jafnvel skyldmenni. Að morgni risu all ir úr rekkju hressir og ánægð- ir, tilbúnir að mæta ævintýr- um dagsins. Fólkið lagði upp næsta dag hresst og ánægt, margt af okk- ur með nesti og nýja skó, eins og sagt er frá gestgjöfum sín- um, og nú var haldið um Hér- að, keyrt um Skriðdal, komið að Skriðuklaustri og borðað í félagsheimili þeirra Skriðdæl- inga. Þá var haldið í Hallorms- staðaskóg. Þurfti margt af fólk- inu að ganga nokkra leið þar sem vegur er ekki ennþá góður stórum bílum á parti en alUr mættu í skóginum og öllum varð sú stund ógleymanleg. — Dásamlegur staður og móttökur eftir því. Munu Skagfirðingar seint gleyma Guttormslundi, Gróðrarstöðinni og svo veiting- unum hjá Skógræktinni, sem margir gestanna kunnu vel að meta. Ég held að skagfirzkir bændur hefðu gjarnan viljað taka Sigurð Blöndal skógarvörð og bera hann á gullstól um ríki hans, en ekki var til setu boðið þó margir hefðu viljað stanza lengur á þessum stað. Veizla var tilbúin á Egilsstöð- um, þar sem Búnaðarsamband Austurlands var gestgjafi. — Stjórnaði því hófi Sveinn JóAs- son, stórbóndi á Egilsstöðum. Var þarna setið í fjórar stund- ir, sungið, rabbað, etið og drukkið eins og hver og einn torgaði, um 20 ræður fluttar. Héraðsbúar eru glaðsinna og myndarlegt fólk, sem Skagfirð- ingum þótti gott að blanda geði vjð. En allir dagar líða og einn ig þessi ágæti dagur. Gestir óku í náttstað að Egilsstöðum og sveitina þar um kring. Liðið var á i.óttu er fólk fór til nátt- staðar, mjög ánægt yfir vel heppnuðum degi. Næsta dag, 28. júní, var keyrt af stað í ágætu veðri eins og áður, fram Skriðdal og yfir Breiðdalsheiði. Misjafnar spár voru um ferða- lag okkar þennan dag, þar sem vegur var talinn allerfiður á köflum. Vegagerð ríkisins hafði þó lofað endurbótúm og hjálp, ef á þyrfti að halda svo að ferðafólkið var vonglatt og bjartsýnt, enda gekk allt vel yfir heiðina og áfram var hald ið langan veg að okkur fannst niður í Breiðdal. Breiðdæling- ar komu á móti okkur upp að Heiði og skiptu sér í bílana eins og alls staðar var gert. Var þetta vel gert ókunn- Fréttaritara blaðsins í Borgarnesi var falið að fara upp að Norðurá og taka þar mynd af lax- veiðimönnum. Þegar hann kom að Laxfossum, sá hann veiðimann á hakkanum hinu megin. - ð hann yfir ána í vöðlum og hitti þar fyrir einn kunnasta laxveiðimann landsins, þ.e.a.s. for- seta Islands, Asgeir Ásgeirsson. ugu fólki, því að ekki gat Ragn ar okkar Ásgeirsson alls staðar verið okkur til leiðbeiningar og skemmtunar. Að félagsheimili þeirra Breiðdæla var haldið og kaffiveizla setin hjá Búnaðar- félagi þeirra. Þarna er mynd- arlegt heimili og rausnarlega veitt. Frekar illa var spáð fyr- ir okkur um næsta áfanga um Berufjarðarströndina, enda reyndist svo að niðurgröfnu læknirnir þar urðu stóru bíl- unum erfiðir yfirferðar. Þeir tóku niðri aftan og framan og sums staðar þurftum við að byggja nýja vegi ef svo mætti segja. Töfðumst við þarna um 5 tíma. Nutum við þó ágætrar hjálpar vegagerðarmanna og bænda á þessum slóðum. Seint og um síðir komumst við þó á Djúpavog. Var þá komið fram á kvöld. Fólkið var orðið þreytt og matlystugt. Verzlunarmaður í kaupfélaginu var svo greið- vikinn að opna verzlun sýna fyrir ferðafólkið. Gerðust Skag firðingar allaðsópsmiklir við höndlun. Sýndi verzlunarmaður þeim mikið traust enda er ég viss um að það hefir ekki verið misnotað. Langt var ennþá í náttstað, svo að ekki var til setu boðið en áður langt leið mættum við fyrstu Hornfirðingum, sem höfðu nú beðið á Lónsheiði í 6 stundir. Höfðu þessir framverð- ir ekki þolað við lengur en keyrt áfram á móti okkur, en aðrir biðu á sýslumörkum kald ir og hrjáðir, bölvandi Skag- firðingum fyrir slóðaskapinn. Kom þessi leiði þeirra þó ein- kennilega lítið fram við okkur, því að allar hendur voru útrétt ar þá loks að við hittumst á Lónsheiðinni, komin nótt og hálfgerð þokusúld, sem aftraði því að ekkert sást til byggða. Ekkert var því stanzað, en hald ið hið bráðasta niður í Horna- fjörð til fólksins, væntanlegra gestgjafa okkar næstu daga. Egill Jónsson ráðunautur og margir aðrir góðir menn höfðu skipulagt þessar móttökur svo vel að mjög lítil töf varð að. Fékk hver sinn seðil þar sem gististaður var ákveðinn og fólk ið skiptist með það sama heim til gestgjafanna og væntanlegra vina. Fyrstu kynni okkar af Hornfirðingum urðu engin von- brigði fyrir okkur, við fundum strax að við vorum aufúsugest- ir, allar hendur útréttar og full ur skilningur á að ferðafólkið væri þreytt. Matur var á borð- um en síðan farið í rúmið. Föstudaginn 29. júní voru Skagfirðingar árrisulir að vanda. Það var varla hægt að liggja í leti og hvílast, er sól- skin og logn var úti og kl. 1 átti að leggja á stað vestur urru sýslu allt að Jökulsá á Breiða- merkursandi. En áður en lagt var á stað þurftu gestir og heimamenn að kynnast. Tel ég að ekki óvíða hafi þarna verið stofnað til vináttu, sem haldast muni og styrkjast þegar Skaft- fellingar koma í heimsókn til okkar Skagfirðinga. Kl. um 1 hittust menn við Hornafjarðarfljót. Var þá einn ig fjöldi Hornfirðinga mættur. Taldi ég a.m.k. 20 bíla, stærri og smærri. Var gestum og heimamönnum blandað saman í bílana og þar með séð fyrir því að gestir kynntust heimafólki og nytu betur þess, er fyrir augu bar. Var nú ekið með við- dvöl á nokkrum stöðum, sem notuð var til að kynna bæi, sögustaði o. fl. Komu menn að félagsheimili að Hrollaugsstöðum kl. 2 og þar setzt að veizluborði, og eft- ir ánægjulega dvöl þar í tvo tíma hélt allur hópurinn vest- ur að Jökulsá á Breiðamerkur- sandi. Var mér sagt að jafnvel margir Skaftfellingar, sem þarna voru, hefðu ekki komið þang- að áður. Aldrei hefði mig dreymt um að sjá slíka sjón. Fagurt og hrikalegt stórfljótið kemur þarna undan jöklinum rétt við tærnar á manni. Geysilegar ís- borgir, sem brotna úr jökulrönd inni, synda þarna í gríðarmiklu lóni, sem mér var sagt að mælzt hefði um 130 m djúpt. Og svo fellur fljótið kolmórautt til sjávar stuttu neðar en við stóð um. Mörg smá afföll þurftum við að fara yfir á bílunum. — Þótti okkur Skagfirðingum heimamenn vera djarfir að keyra bílana út í þessi vötn. Nú komumst við ekki vestar og var þá snúið við austur á bóg- inn aftur. Kom þá fyrir fyrsta óhapp ferðarinnar, þar sem vatn komst inn á vél eins bíls okkar. Varð hann þar með ó- starfhæfur að mestu og urðum við að skilja hann eftir á miðri leið heim. Þetta var auðvitað leiðinlegt og óþægilegt en allt blessaðist samt, þar sem fólki var komið fyrir í smærri bílum og bætt á okkar farkosti. Var nú hald- ið í náttstaði eftir ánægjuleg- an dag í yndælu veðri, og sann færðumst við Skagfirðingar um að víðar eru fagrar sveitir en í Skagafirði, enda er Horna- firði viðbrugðið, því að þar fer allt saman, grösug fögur sveit, ágætir vegir, glæsilegar brýr á stórfljótunum, sem setur sinn svip á héraðið, hrikalegar tung ur Vatnajökuls, sem teygja sig fram í hverja dalskoru, svo að sums staðar er örstutt frá bæj- m að jökulrönd. Síðast en ekki sízt er svo fólkið sjálft, sem setur sinn svip á héraðið, myndarlegt, dugnaðarlegt, frjáls legt. 30. júní var farið á stað upp • úr hádegi, en nú rigndi dálítið. Fyrirhugað var að fara upp að Vatnajökli en hætt var við það, keyrt nokkuð um, farið að Höfn, kauptúnið skoðað og verzlað ein ósköp, þó búðum væri lokað. Ekið var að Stokks nesi, þar sem mikil mannvirki eru gerð til öryggis flugþjón- ustu o. fl. En veizla mikil var okkur búin að Mánagarði, fé- lagsheimili þeirra Hornfirðinga. Þarna eru myndarleg og rúmgóð húsakynni, enda þurfti á því að halda í þetta sinn því að um 300 manns sátu undir borðum. Fyr- irhugað hafði verið að Skagfirð- ingar og Skaftfellingar sætu hver gegnt öðrum við borðin en einhvern ruglingui varð þó á því, en þarna sátu gestir og heimamenn í góðum fagnaði lengi kvölds. Ræður voru flutt- ar, sungið og spjallað, en þessu vinamóti varð að ljúka, því að árla morguns átti að leggja á stað heimleiðis. Grunar mig þó að ekki hafi allir farið snemma að sofa þetta kvöldið. En kl. 8 að morgni þurfti að rísa úr rekkju og halda heimleiðis. Við kvöddum okkar ágætu gestgjafa og munum lengi minnast þess- ara tveggja daga, er við gistum hornfirzka bændur og húsfreyj- ur þeirra. Ráðunautur þeirra, Egill Jónsson, hafði stjórnað móttökum með ágætum. Boð höfðu borizt frá bændum í Alftafirði, þar sem Skagfirð- ingum var boðið kaffi á 4 bæj- um hjá Múla og Geirhellnabænd um. Fengum við rausnarlegar viðtökur á þessum bæjum. Var nú keyrt með lítilli við- komu á Djúpavogi, að félags- heimilinu Staðarborg, þar sem veitt var ríkulega eins og í fyrra skipti, er við komum þar. Veg- ur hafði nú verið lagaður nokk- uð svo að ferðalangar komust greiðlega áfram. Eins og annars staðar komu bændur víða í bíl- ana til okkar, leiðbeindu og fræddu. Hreindýr sáum við á Berufjarðarströndinni. Var það nýlunda okkur sem ekki höfð- um séð slíkt áður. Einnig sáum við þar hákarlshjall, sem fátítt er orðið. Lá við að einn bíllinn tapaðist af þeim ástæðum, en á- fram komumst við klakklaust í náttstaði seint að kvöldi. Skipt- ist fólk að mestu í Eiða- og Hjaltastaðaþinghá. Fólkið var þreytt en ánægt og naut nú sem áður einstakrar gestrisni. Þá rann upp síðasti dagur ferð Framhald á bls. 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.