Morgunblaðið - 22.08.1962, Blaðsíða 6
6
MORGVNBLAÐ1Ð
MiSvikudagur 22. ágúst 1962
Frú Svanhildur Jörunds-
dóftir frá Hrísey 85 ára
FRÚ Svanhildur Jörundsdóttir
frá Hrísey er 85 ára í dag. For-
eldrar hennar voru þau hjónin
Jörundur Jónsson og Margrét
Guðmundsdóttir í Syðstabæ í
Hrísey. Jörundur var landskunn-
ur athafna- og dugnaðarmaður,
skipstjóri og útgerðarmaður.
Hann var einna mestur aflamað-
ur Eyfirðinga á hákarlaveiðum
á síðasta hluta 19. aldar, og því
var hann oft nefndur Hákarla-
Jörundur. Heimili þeirra hjóna
var orðlagt rausnarheimili og
gestrisni þeirra rómuð. Jafnan
yar margt þar í heimili, enda
voru börnin 13. — Frú Svan-
hildur sagði blaðamanni Mbl., er
hann ræddi við hana stundar-
korn í gær, að sér væru minni-
stæð þau ummæli prestsins, sem
jarðsöng föður hennar, að gott
væri, að gatan greri ekki heim
að Syðstabæ, þótt Jörundur
félli frá.
Árið 1897, þegar Svanhildur
stóð á tvítugu, giftist hún Páli
Bergssyni frá Hæringsstöðum í
Svarfaðardal. Fluttust þau til
Ólafsfjarðar og hófu þar búskap
(í ólafsfjarðarhorni). Voru þau
frumbýlingar þar sem nú er ól-
afsfjarðarkaupstaður. í upphafi
voru þrír menn heimilisskráðir
á ólafsfirði, en nú eru þar tæp-
lega þúsund íbúar.
Páll hófst þegar handa um
miklar framkvæmdir í Ólafs-
firði. Rak hann þar stóra verzl-
un og útgerð um tveggja ára-
tuga skeið. Hann beitti sér fyr-
ir öllum framfaramálum í byggð
arlaginu og hafði mikil umsvif.
J»au hjónin eignuðust 13 börn
og höfðu fjölmennt og mikið
heimili. Um tíma voru t. d. 34
í heimili þeirra.
Eftir nær tveggja áratuga
dvöl í Ólafsfirði, fluttu þau
Svanhildur til Syðstabæjar í
Hrísey. Þar hóf Páll útgerð og
verzlun. Gerðist .heimili þeirra
brátt mannmargt, og mun það
um tíma hafa verið fjölmenn-
asta heimili á Norðurlandi. Voru
þau hjón þekkt að dugnaði, út-
sjónarsemi, skörungsskap í hví-
vetna og gestrisni. Þótti það
sannmæli, að heimili þeirra
væri höfðingjasetur. Frú Svan-
hildur var gædd frábæru starfs-
þreki og stjórnsemi, enda kom
það sér betur á hinu stóra
heimili.
Þegar Páll féll frá fyrir all-
mörgum árum, fluttist frú Svan-
hildur suður til barna sinna í
Reykjavík og hefur dvalizt með
þeim síðan. Af þrettán börnum
þeirra eru nú átta á lífi, allt
þekkt og hæfileikamikið > fólk.
Frú Svanbildur er í dag stödd
hjá syni sínum, Hreini Pálssyni,
forstjóra, á Selvogsgrunni 20.
Happdrœtti
ríkissjóðs
H»M*drættislán ríkissjóðs
Útdr. 13. júlí 1962. B.-FLOKKUR.
75. þúsund króna vinningur.
146.042
40. þúsund króna vinningur.
88.508
15. þúsund króna vinningur.
80.264
10. þúsund króna vinningar:
76.766 92.271 137.398
5. þúsund króna vinningar:
16.940 90.898 105.237 112.713 119.665
2. þúsund króna vinningar:
6.824 7.253 7.554 7.786 7.805 61.530 61.791 61.895 62.026 62.840
8.722 8.961 9.013 9.092 9.132 62.866 63.040 64.106 64.380 64.652
9.252 9.326 9.677 10.594 11.097 64.714 65.628 65.799 66.401 67.495
12.327 12.378 12.394 14.668 15.329 67.704 67.814 68.225 68.763 69.189
16.146 17.174 17.758 18.622 18.620 69.258 70.895 71.455 73.190 74.241
18.672 18.927 19.039 19.097 21.404 75.726 76.185 76.409 76.621 76.637
21.876 21.977 22.105 23.443 24.665 76.940 77.208 77.241 77.331 77.609
24.740 25.290 25.352 25.444 25.055 77302 78.249 78.335 78.727 79.117
25.690 25.719 26.113 26.200 26.631 80.163 80.410 80.873 81.775 83.006
27.260 28.218 28.663 29.116 30.142 84.673 85.160 85.363 85.546 86.609
30.471 30.733 30.788 31.926 32.048 87.603 87.763 87.790 88.251 88.273
32.112 32.739 33.096 34.209 34.527 89354 93.149 93.310 94.227 94.796
35.734 36.131 37.428 37.541 38.606 94.798 95.323 95.522 97.397 97.775
38.888 39.111 39.824 40.317 40.662 98.368 99.882 99.13 101.788 012.255
41.212 43.307 43.620 44.156 44.169 102.348 102.628 102.925 103.118 103.435
44.228 44.744 45.884 46.051 46.469 104.119 104.692 104.880 105.100 105.707
46.755 47.144 47.527 49.355 49.974 107.174 107.534 108.650 108.698 108.715
50.076 50.489 51.950 52.061 53.019
53.683 53.686 54.046 54.345 55.879 Frh. 19
56.390 57.089 57.241 59.271 60.096 á bls.
Málverkagjöf
FORSETI ÍSLANDS hefir í
dag afhent á Rafnseyri mál-
verk af Jóni Sigurðssyni. —
Málverkið er gjöf frá Páli
Guðmundssyni bónda í Leslie,
Sask, Kanada. Páll hefir áður
gefið messuvínskönnu úr silfri
til Bessastaðakirkju.
Páll Guðmundsson er fædd-
ur á Rjúpnafelli í Vopnafirði,
bróöir Björgvins, tónskálds.
Um skeið voru þeir saman
kaupamenn í Möðrudal á Fjöll
um, Páll og Ásgeir forseti.
Páll flutti vestur úm haf árið
1911, og hefir lengst af verið
kornbóndi í Leslie. Páli hefir
vegnað vel, enda er hann hinn
mesti atorkumaður.
Málverkið af Jóni Sigurðs-
syni er gert eftir ljósmynd.
Indriði Einarsson spurði Jón
Sigurðsson eitt sinn, hvaða
mynd hann teldi bezta af sér.
„Ætli það sé ekki sú, þar
sem ég ligg fram á lappir
mínar“, svaraði Jón, og því
var sú fyrirmynd valin. Mál-
verkið er gert af Halldóri
Pjeturssyni, en Jón Sigurðs-
son var langafabróðir Hall-
dórs.
(Tilkynning frá
F orsetaskrifstof unni
21. ágúst 1962).
rmrn.rtfTT~iJ~>—
i'
3.009 20.947 22.787 51.643 53.791
62.734 72.414 86.551 88.248 97.370
97.901 103.882 117.430 132.605 147.886
1.000.00 kr. vinningar:
865 10.799 12.430 18.181 18.583
21.868 23.813 30.048 38.642 40.738
47.580 47.682 57.533 60.699 66.034
69.289 83.897 84.611 90.261 98.151
98.652 122.879 134.478 138.279 142.775
500 00 krónur:
3.183 5.441 7.137 7.798 8.771
9.061 9.611 10.312 10.369 10.746
10.928 12.470 13.124 14.784 15.746
17.254 17.418 18.126 .. 18.861 21.049
21.278 21.857 22.989 23.019 23.898
24.796 26.194 27.458 28.877 29.991
31.449 32.368 36.157 38.189 38.196
39.242 39.589 40.402 43.713 45.103
47.197 47.736 47.822 48.832 49.514
50.728 51.671 51.936 53.107 54.906
55.975 56.717 57.340 57.583 58.960
63.140 64.020 64.554 64.976 65.343
66.162 67.820 68.779 70.938 71.017
71.820 71.965 75.680 76.916 77.299
77.9614 78.003 78.361 78.590 79.257
79.816 80.218 80.352 81.258 81.964
87.829 87.854 88.909 90.319 90.476
91.959 94.101 94.465 95.040 96.137
96.594 97.789 98.425 99.952 100.321
101.157 102.335 103.545 109.665 112.904
113,215 114.105 116.577 116.769 117.691
118,155 118.913 120.148 120.184 123.423
124.204 124.772 126.760 127.682 128.175
129.327 129.340 132.946 133.785 138.558
139.063 140.115 141.176 141.346 141.978
143.380 143.422 145.252 147.297 148.130
250.00 krónur:
75 922 1.250 1.342 1.464
1.835 1.862 2.179 2.709 3.359
3.769 4.969 5.198 6.135 6.590
• Hárrúllurnar ganga
á milli
Tveir bréfritafar hafa
skrifað Velvakanda um hár-
snyrtingu og um hárlyf, og
koma þar inn á tvö atriði.
Konu einni finnst mikið
vanta á að fyllsta hreinlætis sé
gætt varðandi hárrúllur þær,
sem hárinu er vafið um á hár-
greiðslustofum, og ýmis önnur
tæki sem hárgreiðslunni til-
heyra. Rúllurnar gangi iðulega
hár úr hári, án þess að þær séu
hreinsaðar tímunum sanian, og
ef fyrir kemur að kona hefur
hörundssjúkdóma eða hár-
sjúkdóma getur hann dreifzt
víða með þessu móti. Nú
kveðst konan ekki vilja styggja
neina einstaka hárgreiðslu-
konu, sem flestar eru mjög
færar í sínu starfi, og biður
því Velvakanda um að koma á
framfæri, til að vekja athygli
þeirra á því í heild.
• Hárúðunarlyf í vitin
Svo skrifar Medico:
1 einu íslenzku dagblað-
anna var þess getið, ekki alls
fyrir löngu, að orðíð hefði vart
sjúkdóms, er nefndur hefur
verið THESAUROSIS, og or-
sakast af innöndun hárúðunar-
lyfja (Hair spray).
í erlendu læknablaði sá ég
nýlega úrdrátt úr grein, sem
birtist í sumar í hinu heims-
þekkta læknatímariti „New
England Journal of Medicine",
en það þykir mjög merkt rit.
í grein þessari eru taldar
sterkar líkur vera fyrir því að
innöndun hárúðunarlyfja geti
valdið sjúkdómi, er nefndur
hefur verið nafninu Thesauros-
is, en sjúkdómur þessi veldur
skemmdum í lungum og lymfu-
eitlum.
Getið er um 2 sjúkdómstil-
felli, af hverjum 3 reyndust
banvæn. 9 tilfelli höfðu fund-
ist við venjulega röntgen-
•skoðun, sem sýndu að lungun
voru ekki eðlileg. Sjúkdóms-
einkenni voru lítilfjörleg eða
engin, t.d. hafði einn sjúkling-
anna er fannst látinn í rúmi
sínu, aðeins kvartað um þreytu
og slappleika um nokkurn tíma
áður en hann lézt.
Allir höfðu þessir sjúklingar
notað mikið hárúðunarlyf, sem
í voru stórar viðarkvoðusam-
eindir, allt frá einu sinni í
viku til 15 sinnum á dag.
Við frekari rannsóknir fund-
ust samskonar sjúklegar breyt-
ingar í lymfueitlum 6 sjúkling-
anna og í lungum þeirra er
létust.
Sérstakt ofnæmi eða ofnotk-
un hárúðunarlyfja, virtist
þurfa til þess að framkalla
sjúkdómasmynd þessa. Þó eru
ekki öll kurl komin til grafar,
vegna þess hve einkenni öll
eru óglögg, og svo eru læknar
heldur ekki mjög á varðbergi
gegn sjúkdómnum.
Þess er getið að bati hafi
verið skjótur eftir að sjúkling-
arnir hættu við notkun lyfsins.
Eigi veit ég hvort hér á landi
munu vera í notkun samskonar
hárlyf og í grein þessari er
getið um. En staðreynd er, að
íslenzkt kvenfólk notar mikið
af hárúðunarlyfjum eða hár-
lakki svokölluðu, og því er
mér spurn: Er ekki ástæða til
þess að láta athuga lyf þessi,
hvort þau raunverulega geti
verið hættuleg heilsu þeirra er
þau nota. Er ekki sjálfsagt að
byrgja brunninn áður en barn-
ið dettur í hann?
• Hlíf fyrir andlitið
í sambandi við þetta bréf,
vil ég geta þess að ég hef séð
hárgreiðslukonur með plast-
hlífar, sem þær fá konum til
að halda fyrir andlitinu á með-
an þær sprauta lakkinu, til að
þær fái það ekki í vitin. Hvað
sem um skaðsemi þess er að
segja, sem ég veit auðvitað
ekkert um, þá virðist það á-
gæt varúðarregla. En að sjálf-
sögðu þarf að þvo plastið áður
en ný kona fær það upp að
vitunum frá þeirri sem á und-
an henni er.