Morgunblaðið - 22.08.1962, Blaðsíða 20
Þ'réttasímar Mbl
— eftir lokun —
Erleudar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
SUS-síða
Sjá blaðsíðu 13.
190. tbl. — Miðvikudagur 22. ágúst 1962
Skipin I síld 55 míl-
ur frá Raufarhöfn
EINS og skýrt var frá í Mbl. í
gær fann ÆGIR nokkrar góðar
síldartorfur og bar sá fundur
góðan árangur í gærkvöldi, en
þá fengu þar all mörg skip afla,
sum góðan. Síidin veiddist 55
mílur NA af N frá Raufarhöfn.
Ægir var á þessum sömu slóðum
i gærkvöldi og hafði þá orðið
var við töluvert mikla síld.
Braela var í fyrradag en batn-
andi veður er leið á daginn í
gær. Komu skipin seint á miðin
sökum þess að mörg þeirra höfðu
notað tímann til þess að losa sig
við smáslatta í landi.
í gærkvöldi var vitað um nokk
ur skip, sem fengið höfðu góðan
afla á þessum slóðum og voru
lögð af stað til lands. Meðal
þeirra voru Pétur Sigurðsson
með 1200 tunnur, Leifur Eiríks-
son 1000, og Áskell með fullfermi,
800—900 mál. Vitað var að fleiri
skip höfðu fengið góðan afla á
þessum slóðum. Veðurútlitið var
gott, en þó hamlar svarta þoka
veiðunum nokikuð. Síldin er mjög
blandin, en sumdr bátar fengu
góðan afla af stórri, feitri síld.
I>á varð vart síldar útaf Glett-
inganesflaki, fremiur grunnt. Vit-
að var um tvö skip, sem þar
fengu afla í gær. Árni Geir með
750 mál og Þórkatla 600 mó'l.
Veiddist síldin 12 mílur fró
Kögri. Ekki voru mörg skip á
þessum slóðum.
Öður mað-
ur með
hníf
UM eittleytið í gærdag gerðist sá
atburður( innarlega á Laugavegi
að maður um fertugt gekk þar
berserksgang með hníf á lofti
og ógnaði fólki. Lögreglan var
kvödd á staðinn, og hótaði mað-
urinn að drepa hana og hvern
þann, sem kæmi nærri honum. í
æðiskastinu braut hann m.a.
rúðu með hendinni og skarst við
það svo blóðið lagaði úr honum.
Tókst lögreglunni að afvopna
manninn, og læknir, sem kvadd-
ur var á staðinn gaf honum ró-
andi sprautu. Var maðurinn síðan
fluttur í fangageymslu lögregl-
unnar við Síðumúla þar sem ekki
var plóss á Kleppsspítalanum, en
maðurinn er ekki heill á geðs-
munum, og hefur hann valdið
vandræðum áður.
5 ára dreng-
ur fyrir bít
UM sjöleytið í gærkvöldi varð
það slys á Suðurlandsbraut
skammt austan benzínsölu BP,
að fimm ára drengur, Steinar
Jensson, Gnoðavogi 2, varð fyrir
bíl og meiddist á höfði.
Slysið varð þannig að Steinar
litli hljóp yfir götuna og skall
tþá á bíl sem ekið var í vestur-
átt. Kastaðist hann í götuna, en
stóð þó fljótt upp aftur. Steinar
var fluttur á slysavarðstofuna og
mun hann hafa hlotið höfuð-
högg.
Pétur Thorsteinsson leitaði
síldar suður með landi í gær, en
sú leit mun lítinn árangur hafa
borið.
Á Raufarhöfn lönduðu eftirtal-
in skip síld til Bræðslu: Arn-
firðingur II. 134 málum, Eld-
borg 756, Halldór Jónsson 892,
Jón Gunnlaugs 446, Guðmundur
Þórðarson 1186,. Hringsjá 1032,
Hringver 828, Náttfari 1116, Héð
inn 502, Hallveig Fróðadóttir
1024, Rán 730, Akraborg 1328,
Garðar 64, Sæþór 710, Sigur-
fari AK 560, Gylfi II 532, í>ór-
katla 588, Pétur Sigurðsson 850,
Heimir 436, Stígandi 758, Helgi
Helgason 1336, Ásólfur 870, Dóra
800 og Sunnutindur 620 mál.
Mjólkursýru skvett
á brennandi þiljur
Stórbruna forðað með snar-
ræði á Snæfellsnesi
Stykkishólmi, 21. ágúst.
I DAG lá við aS stórbruni yrði
er eldur kom upp í íbúðarhúsinu
að Bjarnarhöfn í Helgafellssveit.
Tókst syni Bjarna Jónssonar
bónda þar, Hildibrandi, að ráða
niðurlögum eldsins með snarræði,
en við það brenndist hann svo
á höndum að hann varð að fara
í sjúkrahúsið í Stykkishólmi til
þess að láta búa um brunasárin.
íbúðarhúsið að Bjarnarhöfn er
stórt, gamalt timburhús. Hafði
verið þar kveikt undir ?votta-
poti skömmu efir hádegið og eld-
ur komst þaðan í fatnað.
Þegar Hildibrandur kom að
voru þiljur farnar að loga og
lagði mikinn reyk af. Með snar-
ræði gat hann ásamt öðru heima-
fólki, sem dreif að, ráðið niður-
lögum eldisins. Til slökkvistarfs-
ins var m. a. notuð mjólkursýra
úr tunnum og henni skvett á eld-
inn.
Við slökkvistarfið brenndist
Hildibrandur talsvert á höndum
og varð hann sem fyrr segir að
fara til læknisaðgerðar í sjúkra-
húsið í Stykkishólmi. Bjarni
bóndi var staddur í Reykjavík
er eldurinn kom upp.
Slökkviliðinu á Stykkishólmi
var gert aðvart og var það að
búast af stað er boð komu um
að eldurinn liefði verið slökktur.
Víkíngur land-
aði metafla
Akranesi 21. ágúst t skipi.
TOGARINN Víkingur kom með j Víkingur landaði í Reykjavík
metafla úr síðustu veiðiíör sinni til flestra frysti'húsanna þar, sam
af Grænlandsmiðum, og er talið
að afli hans hafi verið hinn mesti
sem landað hefur verið fyrr og
síðar til vinnslu úr íslenzku |
tals 472,5 tonnum af karfa frá
Grænlandi. Skipstjóri á Vi'kingi
er Hans Sigurjónsson.
— Oddur
Ekki brann mikið innanhúss,
en telja má að hér hafi engu
mátt muna að stórbruni yrði.
— Fréttaritari.
1 GÆR var haldið nppboð í
tollskýlinu í Reykjavík og
þar boðinn upp ýmis varning-
ur, silkihúfur, tízkuvarning-
ur, borð o. ÍI. Um 100 manns
voru á uppboði þessu, og fór
síðasti hluturinn á uppboðinu,
borð, sem við sjálft tá að
gleymdist að bjóða upp, þar
sem peningakassi uppboðs-
haldarans stóð á því, fyrir 10
krónur og þótti lítið. Mynd-
in er frá uppboðinu.
Ljósm. Mbl.: Markús.
HERAÐSIVIÓT
Sjálfstæðismanna
að Laugaborg 26. ágúst
IíÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna í Eyjafjarðarsýslu og á
Akureyri verður haldið að Laugaborg næstkomandi sunnu-
dag, 26. ágúst, klukkan 8.30 eftir hádegi.
Bjarni Benediktsson, dóms- málaráðherra, og Magnús Jónsson, alþm., flytja ræður.
Þá verður sýndur gaman- K Mm n
leikurinn „Heimilist'riður“
eftir Georges Courteline, í • , ,..'v J
þýðingu Árna Guðnasonar,
mf 'L f-ju 'ifí,;. Q magisters. Með hlutverk fara
' leikararnir Rúrik Haraldsson Wm \ jg|j
Bjarni og Guðrún Ásmundsdóttir. . Magnús
Ennfremur verður til skemmtunar einsöngur og tví«
söngur. Flytjendur eru óperusöngvararnir Guðmundur
Jónsson og frú Sigurveig Hjaltested, og undirieik annast
hritz Weisshappel, píanóleikari.
Dansleikur verður um kvöldið.
Færeyíngar ræða við
F. Í. um Færeyjaflug
Föroya Flogfelag hefur verið stofnab
HÉR á landi hafa að undanförnu
dvaiist tveir menn frá t’æreyj-
um og setið á fundum með yfir-
mönnum Flugfélags islands. Hafa
fundir þessir snúist um hugsan-
legt flug félagsins til Færeyja.
Mennirnir tveir, sem heita Hugo
Fjörðoy og Lars Larsen, íóru
flugleiðis til Færeyja I gær. —
Auk þenra tók þriðji Færeying-
urinn þátt í fundum þessum,
Itagnvald Larsen, en hann er bú-
settur hér.
Flugvél frá Flugfélagi íslands
fór 17. ágúst til Færeyja með
íslenzkan ferðamannahóp, og
kom aftur með ferðamenn frá
Færeyjum. Með vélinni komu þá
Fjörðoy og Larsen, en þeir eru
eigendur nýstofnaðs flugfélags í
Færeyjum, Föroya Flogfelag.
Sveinn Sæmundsson, fulltrúi,
skýrði Mbl. svo frá í gær að
menn þessir hefðu kómið hingað
til þess að ræða möguleikana á
Færeyjaflugi, en það hefur verið
til umræðu í allt sumar. Sagði
Sveinn að ekkert væri hægt að
segja um þetta flug að svo
komnu máli. Gerði hann þá ráð
fyrir að Föroya Flogfelag yrði
tengiliður F.í. í Færeyjum ef ti)
slíks flugs kæmi.
>á sagði Sveinn að ein ferð til
Færeyja yrði farin 2. septembep
nk. og þá farið þangað með
iþróttamenn frá Keflaivík. Verð-
ur það íimmta ferð F-L til Fær.
eyja í sumar, og verða íerðirn-
ar sennilega ekki fleirL