Morgunblaðið - 14.09.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.09.1962, Blaðsíða 2
* MÖKCUNRLAÐIÐ Föstudagur 14. sept. 1962 v * íMMMMMki Lykill fundinn að leynd- arddmi síldargangnanna? Sumarið bar flest einkenni aflaleysissumars til 18. júlí KLUKKAN hálf þrjú í gær lagð'ist varðskipið Ægir að bryggju í Reykjavík eftir lengstu útilegu skipsins í einu. Ægir fór héðan 26. mai í vor og hefur verið við rannsóknir og síldarleit fyrir Norðurlandi síðan undir skipstjórn Har- aldar Björnssonar og leiðang- ursstjórn Jakobs Jakobssonar fiskifræðings. Samtals hefur skipið siglt 15 — 16 þúsund sjómílur í sumar, og sagði Haraldur skipstjóri frétta- manni Mbl. í gær að allt hefði gengið að óskum. Fréttamaður Mbl. átti í gær tal við Jakob Jakobsson, sem tók á móti Ægi á bryggjunni, en Jakob ei kominn til Reykja víkur fyrir nokkrum dögum eftir vel heppnað starf við síldarleitina í sumar svo sem kunnugt er. — Fyrsta mánuð leiðangurs ins, eða til 25. júní, vorum við einir á miðunum þar sem engin veiðiskip voru komin þangað, sagði Jakob. — Þess- um hluta tímans var varið til sameiginlegra rannsókna ís- lendinga, Norðmanna og Rússa á hafinu fyrir vestan, norðan og austan ísland, allt til Jan Mayen og Svalbarða. Helztu niðurstöðumar, sem fengust af þessum rannsókn- um á Norðurlandsmiðunum má segja að hafi verið að hitastigið var mjög nálægt meðaltali fyrri ára, svo og þör- ungagróður. Rauðátumagn var hinsvegar meira en nokkru sinni fyrr og fyrsta ganga norsku síldarinnar á Norður- landsmiðin var óvenjusnemma á ferðinni. Við lok þessarra sameiginlegu rannsókna, eða 2. júní, hafði sú ganga raunar gengið hjá og var komin aust- ur fyrir Melrakkasléttu þegar fyrstu íslenzku skipin komu á miðin. Veik vestanganga — í upphafi síldveiðanna voru veiðisvæði íslenzku skip- anna einkum tvö, við Stranda- grunn, því að þangað hafði síðari hluta júnímánaðar geng ið no'kkur hluti íslenzka vor- gotssíldarstofnsins, og fyrir austan Langanes, þar sem veiði hófst nokkru fyrir júní lok, þar var um blandaða síld að ræða, bæði af ísienzkum og norskum uppruna. — Þegar kom fram undir mánaðaraótin júní—júlí kom í ljós að vestanganga íslenzku vorgotssíldarinnar var tiltölu- lega veik og ekki unnt að byggja neina verulega veiði á henni eftir að fyrstu aflahrot- unni lauk þar í júníbyrjun. Hinsvegar reyndist síldargang an á Austfjarðamiðum mjög sterk, jafnvel sterkari en í fyrra og er þá mikið sagt. Þarna komu saman elztu ár- gangar vorgotssíldarinnar, sem kom suðaustur fyrir land og syðri armur norsku göng- unnar. — Þá gerist það að 28. júní finnum við á Ægi nýja göngu norsku síldarinnar, sem var þá að koma inn á Kolbeinseyjar- svæðið. Síld þessi var stygg og í mjög misstórum torfum fram yfir 10. júlí, þannig að veiði á þessu svæði var frem- ur stopul, en síidin ákaflega feit og verðmæt. — Upp úr miðjum mánuð- inum þéttist síldin á þessum slóðum og var þar þá mikil Flest einkenni aflaleysissumars — Fram að 18. júlí bar þetta sumar flest einkenni aflaleysissumra, þ.e.a.s. síldar- göngurnar stóðu stutt við á Norðurlandsmiðum og megin- hluti veiðanna fór fram á Austursvæðinu. Fyrri hluta júlí fór sjávarhiti á vestur- svæðinu ört vaxandi og rauð- átan minnkandi, en í stað hennar komu fiskilirfur eða glæráta, sem jafnan hefur verið óbrigðult merki þess að veiðum sé lokið á viðkomandi svæði. Stranmbreytingar höfðu úrslitaþýðingar — 18. júlí urðum við á Ægi þó vitni að miklum straum- breytingum, sem ég tel að hafi haft úrslitaáhrif á framhald veiðanna fyrir norðan. Þessar straumbreytingar voru eink- um fólgnar í því að kaldur sjór hafði streymt inn á vestur svæðið og borið þangað með sér rauðátu, en flæmt glærát- una nær landi. Með þessum kalda straumi kom einnig all mikið síldarmagn, sem verið hafði í smátorfum á mörkum hins hlýja og kalda sjávar norður og norðvestur af Kol- beinsey. Lykill að leyndarmáii síldarinnar? — Þessar sjávarbreytingar voru athugaðar mjög nákvæm lega og ég tel það mjög lík- legt að niðurstöður þessara rannsókna geti falið í sér lyk- ilinn að leyndarmáli síldar- gagnanna á gömlu og góðu síldarárunum. Segja má, sagði Jakob, — að síðari hluta júlí og fyrri hluta ágúst hafi meira og minna verið stanzlaus veiði á öllu svæðinu frá Skagagrunni og allt suður undir Hvalbak. Eftir að kom fram í ágúst gekk mikíð magn af 2 — 3 ára gamalli síld á miðin og háði það mjög veiðum þar sem smásíldin og millisíldin ánetjaðist hjá öllum þeim skipum, sem ekki höfðu tök á því að taka smáriðnar vetrar- nætur í notkun. Svo rammt kvað að þessu hjá t. d. norska síldveiðiflotanum að flest skip in hættu veiði um miðjan ágúst. Um það leyti urðu sild- arsvæðin afmarkaðri en áður og tel ég líklegt að síldveið- um hefði þá jafnvel lokið ef starfsemi síldarleitarskipanna hefði ekki borið þann árangur, sem raun varð á. Fundir leitarskipanna — 18. ágúst fann Pétur Thor steinsson t. d. mikið síldar- magn um 90 mílur út af Glett- inganesi og var þar stanzlaus veiði fram að 19. ágúst. Þann dag fundum við á Ægi mikið síldarmagn um 50 mílur norð- Haraldur Björnsson, sklpstjórj og Jakob Jakobsson, fiskifræð- ingur í brú Ægis í gær. — Starfsemi Ægis i sumar bar mik- inn ávöxt. (Ljósm. Mbl.) ! ur af Langanesi. Veiðar hófust þar daginn eftir og stóðu nær óslitið á aðra viku. — 28. ágúst fundum við mikið síldarmagn 50 mílur SA af Skrúð og var þar all- mikil veiði af ágætri söltunar- síld, fram yfir mánaðamót. 31. ágúst fann Fanney mikla síld útaf Þistilfirði og tveim- ur dögum síðar fann Pétur Thorsteinsson enn síld nokkru vestar, eða útaf Melrakka- sléttu. Má segja að af þessum svæðum hafi verið stanzlaus veiði til vertíðarloka. Þess má geta að þakklæti sjómanna kom t. d. fram I því að síldar- miðin voru ýmist nefnd eftir skipstjórum leitarskipanna eða skipunum sjálfum, enda hefðu þessi mið sennilega ekki fundizt nema fyrir atbeina þeirra. Mikilvægi síldarleitar á sjó — Síldarleitin á sjó er nú orðin fastur þáttur í síldveið- unum og síldarskipin fara æ meira eftir þeim leiðbeining- um, sem þau fá frá leitarskip- unum og eins því, sem við & Ægi látum frá okkur fara um veiðihorfur. Aðstæðurnar við þessa starfsemi breyttust mjög til batnaðar á þessu sumri því að leitarskipin voru nú í fyrsta sinn þrjú og við fengum einnig að hafa Ægi óslitið fyrir norð- an allan tímann. — Samstarf við skipverj- ana á öllum þremur leitar- skipunum var mjög ánægju- legt og ég tel að áhafnir skip- anna hafi sýnt mikla árvekni og þolinmæði í starfi, sem seint verður fullþakkað. Eins og sakir standa er þessi starf- semi kostuð beint úr ríkissjóði en þar sem hún er orðin svo mikilvægur þáttur í veiðunum sem raun ber vitni, tel ég mjög aðkallandi að síldarútvegurinn sjálfur greiði nokkurn hluta kostnaðarins, enda yrði þá unnt að greiða skipverjum á leitarskipunum í samræmi við aflamagn og bæta kjör þeirra, sem eru vægast sagt léleg ef borið er saman við meðalhlut háseta á veiðiskipunum, sagði Jakob Jakobsson að lokum. Forsætisráðherraruir ræðast við. — / fremstu röð Framhald af bls. 1. ómótstæðilegri hugsjón, og það er hún sem er driffjöðrin í öllu okkar starfi.“ Síðan sagði hann mér þá söigu að ísraelsmaður nokkur hafi far ið til raánar tiltekins lands í Evrópu, en komið aftur heim til ísraels. Ben-Gurion spurði hann þegar hann kom heim, hvernig honum hefði fallið útivistin. Jú, KL. 12 í gær var hæg suðlæg átt um allt ísland, skúrir um vestanvert landið, til Skaga- fjarðar norðanlands, en að hann lét vel af landinu, setn hann hafði farið til,- ecv '-bætti við. „Þar er búið að gera allt.“ „Þá gat hann ekki hugsað sér að vera lengur og fluttist heim“ sagði Ben-Gurion. ísraelsmenn vilja sjálfir gróðursetja plöntuna horfa á hana vaxa og verða al- þroska tré“. Að lokum sagði ólaf ur Thors, forsætisráðherra: „Af þeim mönnum sem ég hef hitt á lífsleiðinni, virðist mér Ben-Gur ion í allra fremstu röð sem mikil- menni og elskulegur maður. öræfajökli sunnanlands. Aust ast á landinu var léttskýjað. Hitinn var alls staðar 8—10 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.