Morgunblaðið - 14.09.1962, Blaðsíða 13
Föstudagur 14. sept. 1962
MORGUNBL4Ð1Ð
13
í hádegpisverðarboðinu í gí>er. Frá vinstri: Frú Ben-Gurion, Ölafur Thors, David Ben-Gurion og
frú Ingibjörg Thors.
„Fdlkið færir
legar fdrnir“
sagði David Ben-Gurion í svarræðu sinni
Ofurmannlegur
krattur að baki
ísrael nútímans,
sagði Ölafur Thors, forsætisráðherra, í
ræðu sinni 1 hádegisverðarboðinu
að Hótel Borg í gær
HERRA forsætisráðherra, frú
Ben-Gurion, heiðraðir gestir.
Heimsókn mikils Gyðingaleið-
toga, er kemur frá Jerúsalem,
hlýtur að vekja sterkar tilfinn-
ingar í íslenzkum hjörtum. Við
vitum öll hvað þjóð okkar, eins
og aðrar vestrænar menningar-
þjóðir, á að þakka andlegri leið-
sögn mikilla trúarleiðtoga fsra-
els. Þeir gáfu mannkyninu
Biblíuna, trúna á einn guð, skap
ara himins og jarðar. Þeir voru
fyrstir tjl að vekja máls á vilja
guðs og skyldum mannanna við
guð sinn. Vizka þeirra og and-
legur styrkur urðu mannkyni
leiðarljós á leið sinni frá rugl-
ingi og skekkjum fyrri tíma til
siðferðislegrar meðvitundar og
lagasiðgæðis.
Um aldir var vart nokkur sá
maður uppi á íslandi, hvorki
fiskimaður né afdalabóndi, að líf
hans einkenndist ekki af áhrif-
um frá lestri Bibliunnar, eða
predikara og ljóðskálda, er voru
innblásnir anda ritningarinnar.
fslenzka þjóðin hlaut að vera
þakklát fyrir þær raddir, sem
bárust frá landinu helga á tím-
um erfiðleika og veittu henni
styrk hjartans og andlega upp-
lýsingu.
Við fslendingar erum sögu-
lega sinnuð þjóð, sem oft verð-
ur hugsað til forfeðranna. Því
skiljum við vel þá föðurlands-
ást, sem er tengd fögrum minn-
ingum Og sæmdarfullri fortíð.
Okkur er ljóst, að aðeins slíkur
kærleikur getur blásið Gyðing-
um í brjóst nauðsynlegt hug-
rekki og nær ofurmannlegan
kraft, sem stendur að baki því
kraftaverki, sem ísrael nútím-
ans er — sköpun nýs lands á
gömlum merg, á tiltölulega
skömmum tíma. Sá kraftur —
élan — sem nauðsynlegur er til
slíks sögulegs átaks, hefur hlot-
ið aðdáun þjóða um allan heim.
Sú köllun að endurheimta
land forfeðranna hlýtur frá upp
hafi að hafa verið nokkurs kon-
ar ljóðrænn draumur. Ætti ég
að nefna eitthvað til vitnisburð-
ar um hinn sílogandi eld hug-
sjónaáhuga, þá vil ég geta þess,
að þessi hópur nýlendubúa, sem
komið hafa frá öllum heimshorn-
um, hafa tekið upp og nýskapað
hina gömlu tungu forfeðranna,
hebreskuna. Þeir hafa gert hana
að máli hins nýja ríkis, þannig,
að hér er ekki aðeins um að
ræða fólk af sama stofni, held-
ur einnig eina þjóð, sem er sam-
boðin arfi sínum, landi forfeðra
sinna, Landinu helga. Þetta er
sérstætt í mannkynssögunni.
Þjóð yðar, herra forsætisráð-
herra, hefur með fordæmi sínu
vakið okkur til meðvitundar
um mátt mannsins, þegar háleit
takmörk og hetjulund vísa veg-
inn. íslenzka þjóðin óskar þjóð
yðar árangurs og velgengni,
ríkulegrar uppskeru af hinu
mikla starfi og sterku trú.
Okkur er ljóst, að sá heiður,
sem okkur er að heimsókn yð-
ar, er ekki aðeins heiðurinn að
heimsókn forsætisráðherra fsra-
els. Þér eruð enn fremur og
fyrst og fremst sá maður, sem
öllum öðrum frekar var hinn ó-
bugandi vilji og hin styrka og
dugandi hönd að baki draumsins
um endurheimt fyrirheitna
landsins. f augum þjóðar yðar
voruð þér hið lifandi fordæmi
dugnaðar og einbeitni. Við verð-
um að efast um, hvort draum-
urinn hefði rætzt ef yðar hefði
ekki notið við. Nafn yðar mun
mannkynssagan geyma, ásamt
nöfnum allra þeirra, sem fyrr
og síðar hafa haft áhrif á örlög
Gyðinga.
Megi guð gefa yður og frú
Ben-Gurion langa og hamingju-
sama lífdága og ísraelsku þjóð-
inni fagra framtíð.
KLUKKAN hálf eitt í gær efndi
forsætisráðherra Ólafur Thors og
frú til hádegisverðar að Hótel
Borg til heiðurs forsætisráðherra
ísraels og frú. Viðstaddir voru
ráðherrar og konur þeirra, og
sendiherrar erlendra -ríkja auk
annarra gesta. Var hádegisverðar
boðið hið virðulegasta og fluttu
báðir forsætisráðherrarnir stuttar
ræður, sem birtar eru hér á síð-
unni.
f gærkvöldi sátu David Ben-
Gurion og frú kvöldverðarboð
forseta íslands að Bessastöðum.
Hér á eftir fer listi yfir gesti
að Hótel Borg í gær:
Forsætisráðherra David Ben-
HERRA forsætisráðherra, frú
Thors, sendiherrar, herrar og
frúr.
Það er okkur mikill heiður
að vera hér í boði ríkisstjórnar
íslands.
Það er sérstök ánægja, herra
forsætisráðherra, að vera gestur
yðar í þessu ágæta samkvæmi,
vegna þess að þér voruð, að mig
minnir, fulltrúi lands yðar á
Allsherjarþingi SÞ 1947, og
greidduð þá atkvæði með okk-
ur á því sögulega augnabliki, er
nýtt ríki Gyðinga varð til.
Frá þeim tíma og fram til
Gurion, Madame David Ben-
Gurion, forsætisráðherra Ólafur
Thors, forsætisráðherrafrú Ingi-
björg Thors, ráðherra dr. Bjarni
Benediktsson, Madame Ben Guri-
on Lesheim, ráðherra Gunnar
Thoroddsen, ráðherrafrú Guð-
finna Sigurðardóttir, sendiherra
H. R. Hirsehfeldt, ráðherra Emil
Jónsson, ráðherrafrú Sigríður
Björnsdóttir, ráðherra dr. Gylfi
Þ. Gíslason, ráðherrafrú Vala
Thoroddsen, ráðherra Ingólfur
Jónsson, ráðherrafrú Eva Jóns-
dóttir, ráðuneytisstjóri Yitzak
Navon, Madame Paulson, sendi-
herra Alexander M. Alexandrov,
Madame vor. Hartmannsdorff,
þessa hafa samskipti landa okk-
ar verið náin og vinsamleg.
ísland og fsrael eiga vissu-
lega margt sameiginlegt. Þér
hafið þegar vikið að, herra for-
sætisráðherra, sameiginlegum
andlegum arfi okkar, bók bók-
anna, Biblíunni.
Við eigum gamlar hefðir,
menningu og lærdóm. Við trú-
um á lýðræðislega stjórnar-
hætti; og ef þing ykkar, Alþingi,
hefur starfað, nær án hlés, frá
930, þá vil ég geta þess, að við
höfum nýlega endurvakið þing
okkar, Knesseth, eftir nær 2
sendiherra James K. Penfield, frú
Vigdís Steingrímsdóttir, sendi-
herra J. Strauss, frú Sigríður
Thorlacius, sendiherra J. Z.
Cappelen, frú Ólafía R. Sigurðs-
son, Col. Chaim Ben-Gurion, frú
Sigríður Magnúsdóttir, Pétur
Benediktsson bankastjóri, Miss R.
Elken, Birgir Thorlacius ráðu-
neytisstjóri, frú Sigrún Ögmunds
dóttir, Eysteinn Jónsson fv. ráð-
herra, frú Áslaug Ágústsdótir,
Sig. Óli Ólason alþingisforseti,
frú Doris Briem, Níels P. Sigurðs-
son, Col. Chaim Ben-David, frú
herra, frú Áslaug Ágústsdóttir,
son deildarstjóri, Madame Nasc-
hitz, Sigurjón Sigurðsson, lög-
reglustjóri,, frú Kristín Bern-
höft, Fr. Naschitz aðalræðis-
maður, frú Gunnlaug Briem, Mr.
A. Maron, frú Heidi Gröndal, Mr.
Amos Gordon, Hersteinn Pálsson,
ritstjóri, Bjarni Guðmundsson,
blðafulltrúi, herra biskup dr. Sig
urbjörn Einarsson, frú Martha
Thors, dr. Sigurður Nordal próf-
essor, frú Hlín Þorsteinsdóttir,
dr. Sigurður Sigurðsson landlækn
ir, frú Regína Sigurjónsson, Krist
ján Albertsson rithöfundur, frú
Halldóra Eldjárn, Gunnlaugur
Pétursson borgarritari, Miss Gatt,
Þór Vilhjálmsson borgardómari,
Mr. Reuven Ben-Zwi, Benedikt
Gröndal ritstjóri, sr. Emil Björns
son, fréttastjóri, frú Auður Auð-
uns borgarstjórnarforseti, Árni
Tryggvason forseti Hæstaréttar,
frú Ragnhildur Helgadóttir, al-
þingisforseti, dr. Bjarni Jónsson
Framh. á bls 23
þúsund ára hlé.
Þjóðir okkar eru báðar litlar
og þurfa báðar að glíma Við
harða náttúru og reyna að nýta
sem bezt allar auðlindir.
Við óskum báðar einskis frek-
ar, en að fá að sinna störfum
okkar í friði.
Slíkar eru hinar sameiginlegu
aðstæður, og í ljósi þeirra er
það mjög eðlilegt að samskipti
okkar skuli hafa þróazt, ekki að-
eins á sviði stjórnmála og milli-
ríkjasamskipta, heldur einnig á
sviði verzlunar og menningar.
Sérstaklega lýsi ég ánægiu
minni yfir því, að nú skuli hafa
verið komið á stúdentaskiptum.
Þess-i ágætu samskipti hafa
nú fengið aukna opinbera viður-
kenningu, í því, að staða full-
trúa okkar, hvors hjá öðrum; er
nú staða ambassadors.
Herra forsætisráðherra.
í hinni hjartnæmu kveðju til
lands okkar, þá lýstuð þér ná-
kvæmlega hinu þrefalda eðli
endurkomu okkar til Zion — út-
lausn fólks, sem var dreift um
jörðina og endursköpun þess i
eina þjóð.
Endurheimt lands, sem var
herjað, vanrækt og óræktað um
aldir, með því að græða á ný
forna frjósemi jarðvegsins.
Endurvakninu tungunnar, he-
bresku, tungu Biblíunnar, sem
var að falla í gleymsku.
Takmarki okkar er ekki náð;
sameining þeirrar milljónar inn-
flytjenda, sem til landsins hafa
komið síðan 1948, er ekki enn
fullkomin, hvorki frá félags-
legu, efnahagslegu eða menn-
ingarlegu sjónarmiði og við bíð-
um komu enn fleiri.
60% lands okkar, frá Beers-
heba, heimili ættföðurins Abra-
hams, suður að Eliath, hafnar
Salómons konungs, er enn nær
algerlega óræktað og óbyggt.
Samt sem áður lítum við á
það sem skyldu okkar og sér-
réttindi að deila reynslu þeirri,
sem við höfum þegar fengið,
með öðrum ungum löndum, sem
eiga við svipaða erfiðleika að
glíma og þá, sem okkur hafa
mætt.
Á þessari stundu eru r Israel
um 1500 nemar, karlar og kon-
ur, frá slíkum löndum, og þeir
sitja í skólum eða afla sér hag-.
nýtrar þekkingar í landbúnaði,
samvinnu og tæknifræðum. Um
200 ísraelskir sérfræðingar eru
að störfum í 32 löndum á fjór-
um meginlöndum.
Ég er djúpt snortinn, herra
forsætisráðherra, yfir þeim fal-
legu orðum, sem þér hafið látið
falla í minn garð. Hins vegar er
ekki hægt að þakka það einum
manni, eða þröngum hóp manna,
að fsraelsmenn hafa snúið til
Framh. á bls 23
Að Hótel Borg í gærðag. Frá vinstri: H. R. Hirschfeld, frú Guðfinna Sigurðardóttir, Gunnar
Thoroddsen, frú Ben-Gurion Lesheim og Bjarni Benediktsson. (Ljósm.: Pétur Thomsen)
Virðulegt hádegisverð
arboð að Hótel Borg