Morgunblaðið - 14.09.1962, Síða 15
Föstudagur 14. sept. 1962
MOnCVTSBI 4 ÐIÐ
15
*• - «rT^’rr'' " " ' *.
f .
■ . . ■ •••—:•;*
Rangá kemur í heimahöfn
RANGÁ, hið nýja skip Haf- nokkrum orðum. Fjöldi Bolvík og voru með skipinu, þegax
skip h.f., kom í fyrsta skipti
til ísafjarðar 19. ágúst s.l. og
var fréttamönnum og nokkr-
um öðrum gestum boðið að
skoða skipið. Rangá sigldi síð
an til Bolungarvíkur, sem er
heimahöfn skipsins. Fór þar
fram móttökuhátíð. Jónatan
Einarsson, oddviti Hólshrepps,
flutti ræðu við það tækifæri
og afhenti skipstjóranum að
gjöf litaða ljósmynd af Bol-
ungarvík, en stjórnarformaður
Hafskip h.f., Gísli Gíslason,
stórkaupmaður, þakkaði með
>i»a . ■ i«
inga var samankominn á Brim
brjótnum, til þess að fagna
komu skipsins til heimahafn-
ar og var Bolvíkingum gefinn
kostur á að skoða skipið og
þiggja veitirigar um borð.
Auk stjórnarformanns Haf-
skip h.f., Gísla Gíslason, komu
þeir Sigurður Njálsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, Ólaf-
ur Jónsson frá Sandgerði,
varaformaður stjórnarinnar
og Sigurður Helgason, fram-
kvæmdastjóri Verzlunarsam-
bandsins, flugleiðis frá Rvlk
það sigldi til Bolungarvíkur.
Rangá er byggð í skipa-
smíðastöð Kremer & Sohn í
Emshorn í V-Þýzkalandi, og
var Kremer yngri með því í
þessari fyrstu ferð þess. Haf-
skip h.f. hefur nú samið um
smíði á nýju skipi, og er það
þriðja skipið, sem félagið læt-
ur byggja í þessari skipasmíða
stöð.
Skipstjóri á Rangá er Stein
ar Kristjánsson frá Flateyri,
en fyrsti vélstjóri Þórir Kon-
ráðsson. (Frá fréttaritara)
Heimæðagföld stórra
húsa hlutfallslega
lægri en Istilla
Cjaldskrá hitaveitunnar endurskoðuS:
fyrir stór
Á FUNDI borgarstjórnar Reykja
víkur hinn 6. sept. sl. var til
fyrri umræðu tillaga að nýrri
gjaldskrá fyrir Hitaveitu Reykja
víkur. Ekki felast í hinni nýju
tillögu stórvægilegar breytingar
frá núgildandi gjaldskrá. Einna
þýðingarnlest mun vera breyt-
ingin á útreikningi heimæða-
gjalda, sem nú er gert ráð fyrir,
að verði miðuð við rúinmál húsa.
Gunnlaugur Pétursson borgar-
ritari, er gegnir störfum horgar-
stjóra í fjarveru Geirs Hall-
grímssonar, skýrði frá því á fund
inurn, að þessi breyting væri eink
um gerð til þess að þeir, sem í
fjöibýlishúsum búa þurfi ekki að
greiða hlutfallslega hærri gjöld
en þeir, sem búa í einbýlishús
um, eins og verið hefur.
í greinargerð Jóhannesar Zoega
hitaveitustjóra, er fylgir gjald-
skrártillögunni, eru færð svo-
hljóðandi rök fyrir þessari breyt
ingu:
„Kostnaður við lögn og við-
hald heimæða er að jafnaði því
minni, miðað við rúrrumál og
varmaþörf, sem húsin eru stærri.
Stór hús hafa möguleika á notk-
un ódýrari olíu til hitunar. Hagn
aður þeirra af hitaveitu er því
minni en smærri húsanna. Þau
þurfa og öðrum húsum frekar
að bera aukakostnað af millihit-
urum eða dælum vegna hæðar
húsanna. Mælir því sanngirni
með því, að heimæðagjöld séu
Aðalfundur
Sambands ísl. byggingafél. hefst kl. 3 e.h.
laugardaginn 15. þ.m. í Glaumbæ.
Kennsla
Les. með skólafólki
tungumál, reikning, stærð-
fræði og fl. Og bý undir lands-,
og stúdentspróf. Les m. a. þýzku
og rúmfræði með þeim, sem búa
sig undir 3. bekk Menntaskóla. —
Dr. Ottó Arnaldur Magnússon
(áður Weg), Grettisgötu 44 A.
Sími 15082.
hlutfallslega lægri
hús en lítil."
í hinni nýju gjaldskrártillögu
er einnig gert ráð fyrir því, að
mælaleiga hækki nokkuð, en
hún hefur að sögn borgarritara
og hitaveitustjóra ekki staðið
undir kostnaði við mælana til
þessa. Þessi breyting er því nauð
synleg til þess að mælaleigan
geti staðið undir stofn- og við-
haldskostnaði mælanna. Er mið-
að við, að leigan fyrir hvern
mæli skuli vera sem hér segir á
mánuði:
a. Fyrir mæla allt að %”
............ kr. 30.00
b. Fyrir mæla allt að 1—2”
............ kr. 75.00
c. Fyrir mæla allt að 3”
............ kr. 270.00
Guðmundur Vigfússon borgar*
fulltrúi kommúnista, tók undir
það með borgarritara, að breyt-
ingin á útreikningi heimæða-
gjaldanna muni vera til bóta. En
hækkunina á mælaleigunni taldi
hann óeðlilega mikla, og bar
fram breytingartillögu við þann
lið gjaldskrártillögunnar.
Ennfremur tóku til máls þeir
Björn Guðmundsson (F), Óskar
Hallgrimsson (A) og Gunnlaug-
ur Pétursson borgarritari tvíveg-
is. Að loknum þessum umræð-
um var tillögunni ásamt breyt-
ingartillögum við hana vísað til
2. umræðu.
Röskir menn óskast
í byggingarvinnu. — Upplýsingar í dag að
Laugavegi 10. Sími 22296 milli kl. 4—6.
Léttið húsmcðurinni heimilisstörfin
Meira en 30 ára reynsla í framleiðslu þvottavéla er hagnýtt til fullnustu hjá Servis verk-
smiðjunum. Það er þessi hagnýta reynsla sem kemur yður til góða þegar þér kaupið
SERVIS ÞVOTTAVÉLINA
Nafnið Servis merkir fyrsta flokks gæði, útlit og hagstætt verð. Þér getið treyst Servis,
sem er ávallt í fararbroddi að útliti og nýjungum.
Er þér kaupið Servis, þá kaupið þér fallega og vandaða þvottavél, því að engin önnur þvottavél er búin öðrum eins kostum. ' J
íSv L Höfum nú fyrirliggjandi 4 mismun- andi gerðir af Servis þvottavélum
i:SSS8sS|lB 1:
1 ■wmk\ i# ■
SERVIS ÞVOTTAVÉLIN s. . 'fsS ■ • ilpséSíííí-ii,
h e n t a r hve rri fjölskyldu Mmm
Varahluta- og viðgerðarþjónusta að Laugavegi 170
Kynnist Servis —
og þér kaupið Servis.
Jfekla
Austurstræti 14
Sími 11687.
Afborgunarskilmála-4
Sendum gegn póstkröfu.