Morgunblaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 1
24 síður með Barnalesbök
49. árgangur
257. tbl. — Föstudagur 16. nóvember 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
í EINKASKEYTI, sem Mbl. barst í gær frá AP í Los
Angeles segir að Tore H. Nilert forstjóri New York
deildar SAS hafi lýst því yfir á miðvikudag að SAS
væri að verða gjaldþrota vegna samkeppninnar frá
Loftleiðum. Sagði forstjórinn að SAS tapaði um 300
milljónum króna árlega vegna „óheiðarlegrar sam-
keppni Loftleiða“. Skoraði hann á Alþjóðasamband
flugfélaga, IATA, að aðstoða SAS í baráttunni
gegn Loftleiðum.
kvæði gegn hinum fyrirhug-
uðu fargjöldum,“ sagði for-
stjórinn.
SAS tapar árlega um 7
millj. dollurum (kr. 300
millj.) vegna samkeppninnar
frá Loftleiðum, sagði hann.
Er það réttlátt að stórt flug-
félag fái að reka starfsemi
sína algjörlega eftirlitslaust á
þessu sviði, sem annars er
mjög skipulagt, spurði Nilert.
Krúsjeff
Tore H. Nilert, forstjóri SAS ■ New York:
Við erum hægt og síg-
andi að verða gjaldþrota! vjttlir
kvæði gegn hinum fyrirhug- frá Loftleiðum, sagði hann. u M r
• 99**■■t5Btfarlt;i| uðu fargjöldum,“ sagði for- Er það réttlátt að stórt flug- ^ IX | WA gy
samkeppni Loftleiða“ 11 | |\|(]3
Skeyti AP er svohljóðandi:
i Tore H. Nilert, forstjóri
Norðurlandaflugfélagsins
SAS í New York, sagði á mið
vikudagskvöld að fjárhags-
legt hrun vofði nú yfir félagi
sínu vegna þess, sem hann
nefndi „óheiðarlega sam-
keppni frá íslenzka flugfélag-
inu Loftleiðir.“
Ummæli þessi viðhafði Nil-
ert í ræðu, sem hann flutti í
hádegisverðarboði í tilefni
þess að átta ár eru liðin frá
því að SAS hóf flug milli
vesturstrandar Bandaríkj-
anna og Evrópu yfir Norður-
pólinn. Sagði forstjórinn að
SAS mundi greiða atkvæði
gegn fargjöldum þeim, sem
aðildarfélög Alþjóðasamtaka
flugfélaganna (IATA) hafa
ákveðið með þotum yfir At-
lantshafið, nema því aðeins
að samtökin aðstoði SAS í
baráttunni gegn Loftleiðum.
SAS er aðili að IATA, en
Loftleiðir ekki.
Nilert sagði að undanfarin
ár hefðu Loftleiðir boðið 25
—30% lægri fargjöld en SAS,
og „við erum hægt og síg-
andi að verða gjaldþrota (We
are slowly going bankrupt)
vegna þessa ástands. Ef við
ekki finnum einhverja leið til
að keppa við þetta utan-IATA
félag, munum við greiða at-
aga múrsins
Berlín, 1S. nóv. (AP).
TALSMAÐUR borgarstjórnar-
innar í Vestux Berlín skýrði frá
því í dag að a.m.k. 41 austur-
þýzkur flóttamaður hafi verið
skotinm til bana á borgarmörk-
unum frá því múrinn var reist-
ur þar hinn 13. ágúst 1961.
Heinrich Albertz, sem er inn-
anríkisráðherra borgarstjórnar-
inna, skýrði frá þessu á fundi í
dag, og rakti nokkuð 15 mánaða
sögu múrsins.
Af þeim, sem vitað er að hafa
látizt við flóttatilraunir, féllu
29 á flótta. en 12 létust seinna af
sárum. Albertz sagði að tala fall-
inna væri vissulega hærri en 41,
því vestur þýzku lögreglunni
tækist ekki alltaf að fylgjast með
flóttatilraununum.
Auk hinna föllnu hafa 20 flótta
menn og fjórir menn, sem að-
stoðuðu þá, verið saerðir, sumir
hættulega. Austur þýzkir landa-
mæraverðir hafa 457 sinnum
skotið á flóttamenn á þessum
tíma, og hefur vestur þýzka lög-
reglan vitneskju um 1120 hand-
tökur á bannsvæðinu kommún-
istamegin múrsins.
10.000 manna varðlið gætir
markanna austan múrsins, og í
401 tilfelli hafa landamæraverð-
irnir varpað 1935 táragassprengj
um inn í Vestur Berlín. Á borg-
armörkunum hafa Austur-þjóð-
verjar komið sér upp 199 skot-
byrgjum, 124 útsýnisturnum og
218 hátölurum, til að útvarpa
áróðri yfir borgarmörkin. Á
þessu tímahili hafa 290 austur-
þýzkir landamæraverðir flúið til
Vestur Beirlínar.
Eriendar
fréttir
Havana, 15. nóv. (NTB).
ANASTAS Mikoyan aðstoðar
forsætisráðherra Sovétríkj-
“ anna, fer á morgun flugleiðis
frá Havana til New I
York, að því er áreiðanlegar
heimildir á Kúbu herma. Er
þá lokið viðræðum hans við
Castro forsætisráðherra, sem
hófust í byrjun þessa mánaðar.
Mikoyan mun dvelja tvo
daga í New York, en halda
síðan til Moskvu, þar sem
fundur miðstjórnar kommún-
istaflokksins hefst á mánudag.
Briissel, 15. nóv. (NTB).
VIÐRÆÐUR hófust að nýju í
Brússel í dag um aðild Breta
að Efnahagsbandalagi Evrópu.
Samkomulag náðist um nokk-
ur atriði, m. a. um möguleika
á aukaaðild Samveldisríkja í
Akríku.
Saigon, 15. nóv. (AP).
STJÓRNIN í Suður Vietnam
tilkynnti í dag að alls hafi 1137
skæruliðar kommúnista verið
felldir í landinu í október og
111 handteknir. Úr liði stjórn
arinnar féllu á sama tíma 154
menn og ókunnugt um örlög
73
Tore H. Nilert.
Tokíó, 15. nóv. — (AP) —
M Á L G A G N kínverskra
kommúnista, „Dagblað þjóð-
arinnar“ í Peking, birti í dag
harðorða gagnrýni á stefnu
Nikita Krúsjeffs forsætisráð-
herra Sovétríkjanna. Gagn-
rýni þessi kemur fram í 3.500
orða yfirlýsingu stjórnarinn-
ar, sem einnig var útvarpað
um allt Kína.
í yfirlýsingunni segja Kínverj-
ar enn einu sinni að „heims-
valdasinnar Bandaríkjanna eru
aðal hvatamenn árása og styrj-
alda, þar er miðstöð afturhalds í
heiminum, brjóstvörn nýlendu-
stefnunnar, mestir alþjóða arð-
ræningjar og grimmustu fjand-
menn allra þjóða heims.“
EKKl BEYGJA SIG
Með óbeinni tilvísun til þess
er Krúsjeff lét flytja rússneskar
eldflaugar frá Kúbu, segir í yfir-
lýsingunni að ekki minnki striðs
hættan, heldur þvert á móti auk-
ist hún „ef menn hörfa undan,
beygja sig eða jafnvel biðja
heimsvaldasinnana um frið á
kostnað byltingarþjóðanna.“
Vaxandi skoðanamunur ríkir
milli Moskvu og Peking, og bygg
ist hann að mestu á þeirri kenn-
ingu Krúsjeffs að unnt sé að
semja við Vesturveldin og koma
í veg fyrir kjarnorkustyrjöld. í
yfirlýsingu kínversku stjórnar-
innar er Krúsjeff ekki nefndur
á nafn, en þar segir: Það er
grundvallar atriði hvort friður
er byggður á baráttu fólksins eða
hvort hann er byggður á „góð-
mennsku" ákveðinna fulltrúa
heimsvaldasinna.
Framh. á bls. 23.
SKIP BRENiNIDR f HAFI
Ovíst um afdrif skipshafnar
New York, 15. nóv.
(AP-NTB).
ELDUR kom upp í gTÍska
ELDUR kom upp í gríska
flutningaskipinu „Captain
George“ síðastliðna nótt þegar
skipið var statt 575 km. frá
Bcrmuda á leið frá Bandarikj
unum til Tripoli í Lybíu. 1
skipinu, sem er 7.187 tonn,
er allmikið af sprengiefni, og
óttast að það springi í loft upp
þá og þegar. 25 manna áhöfn
var á skipinu, og var í dag
sagt að hún hafi yfirgefið
skipið. En síðari fréttir benda
til þess að einhverjir af áhöfn
inni séu enn um borð að berj-
ast við eldinn.
Mikið óveður er á þessum
slóðuim, og er vitað um annað
skip í hafsnauð skammt fró
gríska skipinu. Fyrst frétt-
ist um brunann í Captadn
George klukkan hálf þrjú í
nótt (ísl. tími). Sendi skipið
þá ú't neyðarmerki oig bað
um aðstoð. Auk sprengiefnis-
ins flutti skipið brennistein,
hveiti og hrísgrjón. Eldurinn
komst í brennisteininn og var
ógerlegt að ráða niðurlögum
hans. Breiddist eldurinn ört
út og greip þá áhöfnin tii þess
ráðs að reyna að varpa spremgi
efndnu fyrir borð. Alls voru
400 tonn af sprengiefnd í skip-
inu, þar af tvö tonn af hvell-
hettum. Átti að nota sprengi-
efnið við borun eftir olíu.
Áhöfninni tókst að kasta
einhverjum hluta farmsins
fyrir borð, en vegna útbreiðslu
eldsins varð að hætta við
það.
Tóilf tímum eftir að fyrsta
neyðarkallið var sent út, til-
kynnti skipstjórinn að áhöfn
in væri að fara í björgunar-
bátana. Þá var olíuflutninga-
skipið Virginia fró Líberíu
kiomið á vettvang og lá í ná-
munda við gríska skipið. En
erfitt var að athafna sig, því
öldurnar voru tíu metra háar.
• SJÓNARVOTTAR.
Fyrst á slysstaðinn var far
þegaflugvél frá brezka flug-
félaginu BOAC. Flaug vélin
í nánd við skipið í tvœr og
hálfa klukkustund, þar til flug
vél frá bandarísku strand-
gæzlunni kom á vettvang.
BOAC-vélin var á leið tdl
London, en vegna eldsneytis
eyðslu á slysstaðnum, sneri
hún til New York. Flugstjór-
inn, John W. Forder, sagði
við komuna til New York að
þegar hann fór frá skipinu
hafi öll yfirbygging þes® virzt
eitt eldhaf. Reyndi áhöfn vé'l-
arinnar að ná sambandi við
skipið í talstöð, en skipverjar
svöruðu ekki. Sagði flugistjór-
inn að það væri sér og farþeg
um vélarinnar ógleymanleg
sjón sem blasti fyrir augum
þeirra þarna úti á regin/hafi.
Ein af flugfreyjum brezku
vélarinnar sagði: Við sáum eld
og reyk, en ekki fólkið um
borð. Þetta er í fyrsta skipti,
sem ég sé nokkuð þessu likt.
Ég vona að ég sjái það aldrei
aftur. Það var hræðilegt að
vita að við gátum ekkert gert
til að hjálpa þeim. Við vor-
um öll óttaslegin og höfðum
miklar áhyggjur vegna áhafn
ar skipsins.