Morgunblaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 16.11.1962, Blaðsíða 3
^ F5studagur 16. nóv. 1962 Moncrwnr 4ðið 3 VEÐUR ER hið fegursta, logn og dálítið frost. Föl er á jörðu, en grastoppar og steinar standa upp úr snjónum. Sólar er haett að njóta í bænum fyrir skömmu, en alhvít Esjan er böðuð ljósrauðum geislum kvöldsólarinnar, því tekið er að kvölda, þótt klukkan sé aðeins hálf fjögur. Þegar við ökum vestur Miklubraut komum við auga á þúst á túninu á hægri hönd. Það er hlaði af kössum, spýtna braki, dekkjum og fleira brenni. Strákar eru á stjái í kring. Við stöðvum bifreiðina, stígum út og göngum í humátt ina til þeirra. Er við nálgumst • - ...ggma 'í* «. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.) ,Verði þér að góðu, gæsui m,n“ segir Ingóifur. ‘i*.. Guðbrandur, Ásmundur, Guðmundur, Gísli, Agúst, Páll -ig Reynir uppi á bálkestinum. „Þeir mega koma og horfa á hana þá, en ef þeir koma núna og stela frá okkur spýtum, þá lemjum við þá“, sagði sá næst minnsti. „Hvað heitir þú?“ spyrjum við þann minnsta. „Gisli Kolbeinsson“. „Hvað ertu gamall?“ „4ra ára. Eg verð 5 ára á morgun". Nú tefjum við þá félaga ekki lengur, en ökum áfram í áttina niður í bæinn, og er við komum á Hafnarfjarðar- veginn á móts við Valsheimil- ið, hittum við fyrir 3 krakka, sem einnig eru að safna eldi við í brennu sína. Þau segja okkur að kösturinn sé uppi í Öskjuhlíð. Enn höldum við ferðinni á- fram sem leið liggur fram hjá Tjörninni og nemum staðar við Iðnó. Tjörnin er að mestu lögð, en í horninu við endann á Lækjargötunni, þar sem volgt vatn rennur í Tjörnina, er dálítil vök. Þar getur að líta aragrúa fugla, sem saman komnir eru í þéttum hnapp á þessum litla polli og slást um brauðmolana, sem góð- hjartað fólk kastar til þeirra ofan af bakkanum. í barátt- unni um brauðið hafa álftirnar taka sumir á rás burt frá kest inum, en nokkrir standa kyrr- ir, það eru þeir minnstu. Þeg- ar flóttamennirnir sjá ljós- myndavélina snúa þeir þó við og koma á móti okkur spyrj- andi á svip. „Af hverju hlupuð þið burt, hélduð þið, að við værum lögg an?“ „Nei, við vorum að leita að kanínu, sem er grafin þarna“. „Hélduð þið, að hún væri lifnuð við?“ „Við vorum bara að athuga hvort búið væri að grafa hana upp. Bróðir minn átti hana“. „Eruð þið að safna ykkur í brennu fyrir gamlárskvöld?“ „Já“. „Voruð þið með brennu í fyrra líka?“ „Já, það var næst stærsta brennan hérna“. „Hvaðan fáið þið allt þetta spýtnadrasl?" „Við fáum mest frá pabba“, segir einn. „Er svona mikið drasl heima hjá þér?“ spyr ljósmyndarinn. „Já, pabbi er heildsali". „Ætlið þið að leyfa öllum krökkunum í nágrenninu að vera hér við brennuna hjá ykk ur á gamlárskvöld, eða ætlið þið að reka þá burt?“ að sjálfsögðu yfirhöndina, þar næst koma gæsirnar, en end mjög spakir, en það stafar sennilega af svengd. Nokkrir hafa klöngrazt upp á bakkann og snæða þar af hjartans lyst úr lófum drengjanna, sem ver ið hafa svo hugsunarsamir að færa vinum sínum úr dýragík inu svolitla huggun í þreng- ingum þeirra. Ættu aðrir að taka þá sér til fyrirmyndar. Ásgerður, Gísli, bróðir hennai og Páll með eldsneyti á flutn- ingabiLium sínum. urnar verða að láta sér nægjaj molana, sem hi'ynja af borðum höfðingjanna. Fuglarnir eru Umferðavika á Akranesi Akranesi, 15. nóv. í DAG hófst hér umferðarvika, sem stendur til næsta fimmtu- dags. Lögreglan á Akranesi stend ur fyrir vikunni í samvinniu við ýmsa aðra aðilja. Ætlunin er að auka stórlega umferðareftirlit og umferðarleiðbeiningar fyrir al- menning. Þá verður og stuðlað að sérstakri umferðarfræðslu í skólum bæjarinis í samrá-i viff skólastjórana. Um framkvæmd umferðarvik- unnar hefur lögreglan samvinnu við bifreiðaeftirlitið á Akranesi, stéttasamtök bifreiðastjóra, for- ystumenn skáta og skólastjóra barna- og gagnfræðaskólans. — Fjögur tryggingafélög hafa veitt aðstoð við að hrinda umferðar vikunni í framkvæmd, gefið kennslutæki, kvikmyndir o.fl. Snotur bæklingur hefur verið gefinn út vegna vikunnar. Þar eru umferðarmerkin litprentuð, og ýmsar umferðarreglur efu þar, svo og sérreglur á Akranesi. Á kápu'baki er kort af Akranesi. í dag heimsótti bæjarfógeti, lögregla og bifreiðaeftirlitið skól- ana. Jón Oddgeir Jónsson, full- trúi Slysavarnafélags íslands var með í iheimsókninni. Brennumenn og dýravinir STAKSIEINAR * « Kommúnistar Ht og í Kína f gær svaraffi dr. Jakob Bene- diktsson formaður hins svokall aða Kinversk-íslenzka menning- arfélags hér í blaðinu spurning- unni um álit hans á árás Kín- verja á Indland. Morgunblaðið taldi eðlilegt, að lesendur þess fengju að kynn ast skoffunum kommúnista hér á landi á yfir- gangi hinna kínversku vina þeirra og bræðra enda ér ofbeldi Kinverja gagn- vart Indverjum eitt helzta frétta efni blaða um heim allan. Dr. Jakob Benediktsson talar auð- vitaff á citgin ábyrgð, en Mk- legt er þó, að í orðum hans end- urspeglist sjónarmið kommun- ista hér á landi almennt. Svör dr. Jakbs eru dálítið feimnisleg. Hann reynir lengi vel að bregða sér á bak við kinverskar tilkynn- ingiar, sem honum hafa verið sendar, en að lokum segir hann þó: ,,Kínverjar hafa viljað allt frá árinu 1959, að báðir drægju Hð sitt til baka frá landamær- unum og settust að samninga- borðinu. Þessa tillögu hafa Kínverjar endurtekið hvað eftir annað s.L tvö ár“. Mao og Castro Það ieynir sér ekki að dr. Jakob Benediktsson er á bandi Kínverja og telur aðgerðir þeirra réttteeitanlegar, þótt hamn fliri hægt í sakirnar. Sú er líka vafa- laust skoffun sanntrúaffra komm únista almennt hér á landi, enda hafa þeir að undanförnu sýnt aff þeir eru á þeirri sveifinni, sem harðsnúnust er. Þannig er Castro á Kúbu daglega lofaffur, en minna haft við Krúsjeff, síð- an hann rann af hólml í Kúbu- málinu. Þessi afstaða talar skýru máJi. fslenzkir kommúnistar telja réttlætanlegt og raunar sjálfsagt, að ofbeldi og hervaldi sé beitt til þess að vinna að framgangi hinnar komnvinisku ,,hugsjónar“, sem þeir svo nefna. Netaveiðin f fyrradag urðu umræður á Alþngi um fyrirspurn Jóns Árna- sonar um það, hvað liffi fram- kvæmd þeirrar þingsályktunar, sem Alþingi samþykikti um skipulagningu fiskveiða með net um. Mikið hefur verið rætt u;n netaveiðina og hallast menn að þvi, að nauðsyr beri til að tak- marka hana ír.ið einhverjum hætti. Enn hafa þó ekki verið fundnar þær reglur, sem sæmi- legt samkomulag gæti náðst um, en unnið er að þessum málum, og er augljóst að öllu lengur getur ekki dregizt að eitthvað verði gert, eins og margrætt hefur verið hér í blaðinu. ^Veiðar við Grænland En þegar rætt er um íslenzku fiskimiðin er líka eðlilegt, að athygli sé vakin á viðtali því, sem Morgunblaffið birti í gær við Ágúst Gíslason skipstjóra á togamnum Hauki. Hann segil1 þar, að hann skilji ekki hvers vegna islenzku togaramir ieggi ekki meiri áherzlu á Grænlands- miðin í stað þess at vera að þessu „skrapi“ hér heima. Telur hani. verulegar aflavonir vera á Grænlandsmiðum, og eru vissu- lega vonandi að svo fari, að ís- lenzku togararnir geti þar stund- að veiðar, sem bjargað gætu þessum mikilvæga atvinnuvegi, því að hætt er við að togara- útgerff drægist saman, ef afla- leysiff verður jaín mikið og síð- ustu tvö árin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.