Morgunblaðið - 16.11.1962, Side 14
14
MORCVNBLAÐIÐ
Föstudagur 16. nóv. 1962 1
Konan mín og móðir okkar
EVL.ALIA KRISTJÁNSDÓTTIR,
frá Patreksfirði
lézt á Landakotaspítala að morgni hins 13. þ.m.
Kristján Jónsson og börnin.
SIGMUNDUR SIGURÐSSON
fyrrverandi héraðslæknir
andaðist 14. þ.m að Sólvangi í Hafnarfirði.
Vandamenn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
RAGNHEIÐUR S. JÓNSDÓTTIR
andaðist 14. þ.m. og verður jarðsett frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 20 þ.m. kl. 13,30. Blóm vinsamlegast afbeð-
in, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
líknarstofnanir.
Victor Gestsson, Hulda Gestsson,
Sigurður Gestsson, Rannveig Jónsdóttir
og sonadætur.
Móðir okkar
JÓNÍNA KRISTÍN JÓNASARDÓTTIR
frá Borgarnesi,
verður kvödd frá Fossvogskirkju föstud. 16. þ. m. kl. 3.
Jarðsett verður að Hjarðarholti, Borgarfirði laugard.
17. þ. m. kl. 2.
Böm Tiinnar látnu.
Móðir okkar og systir
GUÐRÚN BRANDSDÓTTIR
Tómasarhaga 53,
verður jarðsungin frá Neskirkju laugardaginn 17/11
kl. 10,30 f. h.
Blóm afþökkuð, en þeim er vildu minnast hinnar látnu,
bent á styrktarfélag vangefinna eða aðrar líknarstofn-
anir. — Athöfninni i kirkjunni verður útvarpað.
Tómas Brandsson,
Hermann Búason, Brandur Búason.
Útför móður okkar,
PETRÚNELLU ÞÓRÐARDÓTTUR,
Sjólyst, Stokkseyri,
fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 17. þ.m.
Athöfnin hefst með húskveðju að Sunnutúni- kl. 13,30.
Ólafur Guðnason, Þóröur Guðnason.
Ynnilegasta þakklæti, sendum við til allra sem sýndu
okkur samúð við andlát og jarðarför
JÓNÍNU GUÐRÚNAR KRISTJÁNSDÓTTUR.
Ennfremur þökkum við hjúkrunarkonum og öðru
starfsfólki að sjúkradeildinni á Elli- og hjúkrunarheim-
ilinu Grund fyiir góða hjúkrun og umhyggju henni
veitta í alla staði.
Hjörtur Elíasson,
Gyða Erlingsdóttir,
’ Svavar Gests.
Ynnilegt þakklæti sendum við þeim, er auðsýndu okk-
ur vináttu við ar.dlát og jarðarför mannsins míns, föður
okkar, tengdaföður og afa
EINARS G. RUNÓLFSSONAR
Langholtsvegi 138.
Kristín Þorleifsdóttir, böm,
tengdabörn og barnaböm.
Við þökkum vinum og vandamönnum samúð og tryggð
er þeir hafa sýnt okkur við fráfall og útför mannsins
míns og föður okkar
GUNNARS GUNNARSSONAR
Stokkseyri.
Ingibjörg Sigurðardóttir og böra.
Ættingjum, vinum og vandamönnum, nær og fjær
þökkum við af heilum hug sýnda vinsemd og virðingu
við andlát og útfcr mannsins míns
ÓLAFS STEFÁNSSONAR, vélstjóra,
Vesturgötu 22, Reykjavík.
Fyrir mína hönd og annarra ættingja.
Ósk Jósefsdóttir.
Þórður Stefánsson
yfirverkstj. 70 ára
HINN 30. september sl. varð
Þórður Stefánsson, yfirverk-
stjóri hjá Slippfélaginu, 70 ára.
Ég var þá staddur erlendis en
las í Morgunblaðinu viðtal við
Þórð. Fannst mér þar farið nokk
uð fljótt yfir sögu, hvað 30 ára
starfi hans hjá Slippfélaginu
viðviikur.
Seint á árinu 1932, réðist
Slippfélagið í að byggja drátt-
arbraut fyrir 600 smál. skip. Var
þá miðað við að geta tekið upp
stærsta íslenzka togarann, sem
þá var hér. Ekkert tæki var þá
til á íslandi, sem hægt var að
landsetja á stærra skip en um
200 smálesta. Þá voru þó í eigu
landsmanna um 40 togarar, 4-
50C smá'lesta. Ef skip þessi
þurftu viðgerðar við á botni,
var aðferðin sú, að þau voru
dregin upp í fjöru á háflóði og
beðið með viðgerðina þar til fjar
aði út. Það var að sjálfsögðu
ekki nema nokkrar klukkustund-
ir, sem hægt var að komast að
botninum á hverri fjöru. Oft
sködduðust skipin ef fjaran var
grýtt. Ef um meiriiháttar skaða
á botni var að ræða, var að
sjálfsögðu vonlaust við þessar
aðstæður að framkvæma fulln-
aðarviðgerð. Var þá klastrað
í botninn eftir föngum, til að
gera skipið haffært, sem þó af
eðlilegum ástæðum oft reyndist
örðugt, og var þá stundum teflt
á tæpasta vaðið. Fullnaðarvið-
gerð var svo framkvæmd erlend
is. Finnst manni nú furðulegt,
að ekki hafi fyrr verið byggð
dráttarbraut fyrir togaraflotann
því togaraútgerð hafði þá verið
rekin á fslandi í meira en tvo
áratugi. Sennilega má leita or-
sakanna í því, að fyrirtækið hafi
þótt fjárfrekt og álitið, að það
gæti ekki borið sig fjárhagslega.
Það féll í hlut Þórðar Stefáns-
sonar, sem var reyndasti kaf-
ari, sem þá var völ á á íslandi,
að hafa yfirverkstjórn með bygg
ingu þessarar nýju dráttarbraut-
ar. Ennfremur byggði hann sjálf
ur með aðstoð annars kafara allar
undirstöður, sem undir sjó voru.
Þá voru ekki tiltækileg þau tæki
og vélar, sem nú er völ á. Allt
þurfti að vinna með handafli.
Var. þetta vandasamt verk og erf
itt, en Þórður leysti það af hendi
eins og annað með mestu prýði.
Svo stóð á, að Slippfélagið
hafði fengið loforð fyrir láni hjá
Hafnarsjóði Reykjavíkur til bygg
ingar dráttarbrautarinnar, þó
með því skilyrði, að skip, ekki
minni en 600 smál. að stærð,
yrði tekið upp á dráttarbraut-
ina fyrir áramót 1932-33. Af
ýmsum ástæðum var ekki hægt
að byrja á byggingu dráttar-
brautarinnar fyrr en seint í
septemiber 1932. Tíminn var því
allt of naumur og vetur fór í
hönd. Það voru ekki margir svo
bjartsýnir að álíta að takast
mætti að fullnægja skilyrðum
hafnarstjórnar. Þetta varð því
kapphlaup
var dag og
sem viðraði.
því að segja,
son stjórnaði
arans, sem
á íslandi, 15.
við tímann, unnið
nótt, nærri hvernig
Er skemmst frá
að Þórður Stefáns-
upptöku fynsta tog-
tekinn var á land
desember 1932. Var
þess getið í blöðunum hér, og
þótti hið mesta afrek, sem það
og var, að ljúka byggingu braut-
arinnar á svo skömmum tíma.
Langmest var það dugnaði og
útsjónarsemi Þórðar Stefánsson-
ar að þakka, að svo vel tókst
til, því að hann framikvæmdi
sjálfur vandasamasta verkið, und
irstöðurnar undir sjó. Það reið
á miklu fyrir Slippfélagið að
fá lánið hjá hafnarsjóði, og vafa-
samt er, hvernig farið hefði, ef
það hefði ekki fengizt. Slippfé-
lagið stendur því, af þessu einu,
í þakkarskuld við Þórð Stefáns-
son. #
Árið 1933 byggði Slippfélagið
dráttarbraut fyrir 800 smál. skip.
1948 braut fyrir 1500 smál. skip
með hliðarfærslu fyrir þrjú 1000
smiálesta skip (nýsköpunartogari
er 6-700 smái.), 1954 braut fyrir
2500 smál. skip og 1956 braut
fyrir 5<)0 smál. skip með hliðar-
færslu fyrir báta. Við byggingu
allra þessara dráttarbrauta hef-
ir Þórður Stefánsson verið yfir-
verkstjóri og leyst það starf af
hendi með miklum dugnaði og
útsjónarsemi. Þetta voru mikil
mannvirki á sínum tíma, eftir
íslénzkum mælikvarða, sérlega
undirstöður undir sjó, sem ein-
göngu verða byggðar með að-
stoð kafara.
Þetta var þó ekkd aðalstarf
Þórðar hjá Slippfélaginu. Hann
hefir verið yfirverkstjóri við
þá deild félagsins, sem annast
upptöku skipa, hreinsun þeirra,
málun o.fl. Hann hefir ýmist
tekið upp eða stjórnað upptöku
flestra þeirra skipa, sem í slipp
hafa komið hjá Slippfélaginu,
síðan 1932, en þau munu nú alls
vera um 6500 talsins, samtals
yfir 4 midlj. smál. Uppsátur
skipa á dráttarbrautir er vanda-
DugZeg stúlka
getur fengið atvinnu hálfan eða allan daginn. —
Upplýsingar i sínia 10566.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Ynnilega þakka ég öllum þeim, sem minntust min á
áttræðisafmæli mínu 4. nóv., með blómum, skeytum og
annarri vinsemd. Sérstaklega þakka ég skyldfólki mínu
fyrir góðar gjafir og skólameistarahjónum, kennurum og
nemendum M. A. fyrir rausnarlega gjöf, hlýhiig og
trygglyndi bæði fyfr og síðar. — Guð blessi ykkur öll.
Kristrún Júlíusdóttir, Barði.
samt verk, sérlega við þær að-
stæður, sem hér eru í höfnínni,
þó þær hafi batnað mjög síð-
ustu árin. Lítið má út af bera
svo ekki verði slys, en mdkil
verðmæti í veði ef ilía fer. Elkk-
ert teljandi óhapp hefir þó hent
í þessi 30 ár, vil ég mest þakka
það Þórði Stefánssyni og hans
góðu starfsmönnum, sem hann
hefir ráðið sér til aðstoðar.
Þeir eru orðnir all margir út-
gerðarmenn og skipaeigendur,
sem skipti hafa átt við Þórð
Stefánsson þessi ár. Ég hygg, að
þeir munu mér sammála um,
að vandfundinn væri sá maður,
sem betur hefði rækt starf sitt,
bæði frá sjónarmiði viðskipta-
vina og Slippfélagsins.
Fyrir hönd Slippfélagsins
þakka ég Þórði það mikla starf
sem hann hefir innt af hendi
þessi 30 ár, sem hann hefir starf-
að hjá félaginu.
Að lokum þakka ég Þórði
ágætt samstarf, sem addrei hefir
hlaupið snuðra á í öll þessi ár.
Sigurður Jónsson. I
Hjólmoi
Þorgilsson,
Kambi
HINN 15. október sl. andaðist I
Hérgðssjúkrahúsinu á Sauðár-
króki bændaöldungurinn Hjálm-
ar Þorgilsson frá Kambi í Deild-
ardal, fæddur þar 17. janúar
1871. Hann byrjaði búskap með
móður sinni 1901. Kvæntist 1904
Guðrúnu Magnúsdóttur hrepp-
stjóra á Sleitustöðum í Kolbeins-
dal, en missti hana eftir fárra
ára sambúð. Hann var jarðsettur
á Hofi á Höfðaströnd hinn 24.
október sl. — Þessarar gömlu
kempu og sérstæða persónuleika
hefur tvívegis áður verið getið
allrækilega í Morgunblaðinu, í
síðara sinni í janúar 1961 í sam-
bandi við 90 ára afmæli hans,
og vísast til þess. — Hér fylgir
kveðja frá gömlum sveitunga,
flutt við útför hans:
Þú ert Hjálmar frá oss farinn
fluttur yfir dauðans haf.
Oft ber þetta að í skyndi
áður en neitt við vitum af.
Eiginkonan frá þér flutti
fyrir meir en hálfri öld.
Beið þín ung með brosi hlýju
bak við lífsins dyratjöld.
Þóttir í æsku efnismaður
almennt talað hér í sveit.
Viljastyrkur, greind og geta
gáfu beztu fyrirheit.
Einkunn þín og aðalsmerki
engum reynast torskilin.
Málstað réttum fast að fylgja
fram til sigurs hvert eitt sinn.
í ljósi því sem lífið gaf þér
leiftrar sólbjört minningin.
Eignaðist konu yndislega
er þú minntist hugfanginn.
Eftir fimm ár flutti burtu
frá þér upp í himininn.
Ungbörn þrjú þið áttuð saman
erfitt var þá Drottinn minn.
Merki eftir manndómsárin
munu geymast hér í sveit.
Stundum örðugt fyrir fæti
flestir menn í gæfuleit.
Þér var annt um íslandsbyggðir
einkum bernskudalinn þinn.
Góða ferð til Ljósu-landa
, ljúfsár vakir minningin.