Morgunblaðið - 16.11.1962, Síða 16

Morgunblaðið - 16.11.1962, Síða 16
MORGVNBL4ÐIB Föstudagur 16. nóv. 1962 | 13 lOGSUÐUTÆKI OG VARAHLUTIR G. Þorsleínsson & Johnson hf. Griótagötu 7. — Sími 2-4250. GABOON — FYRIRLIGGJANDI — Stærðir: 4x8 fet. — Þykktir: 16, 19 og 22 mm. KRISTJÁN SIGGEIRSSON H.F. Laugavegi 13. — Sími 13879. CHEERIOS! CHEERIOS! Borðið CHEERIOS í mjólk eða rjóma kvölds og morgna. HÚSMÆÐUR! Munið eftir CHEERIOS þegar þér framreiðið morgunverðinn. Sími 1-1234. sími: 1-1234. Sandvikens Sagir í fjölbreyttu úrvali: Kökuform Plastvörur Búrvogir Búrhnífar Aleggrhnifar og f jöldi annarra búsáhalda. Kókos dreglar mesta úrval í bænum. Austurstræti 22. Aðstoðarmenn við sjúkragœzlu Kleppsspítalann vantar nú þegar 2 aðstoðarmenn til gæzlu á sj úkraaeildum. — Upplýsingar á staðnum hjá forstöðukonu. Reykjavík, 13. nóvember 1962. Skrifstofa ríkisspítalanna. Ilafnarfjörður Opnum á laugardag verzlun að Reykfavikurvegi 3 Leikföng IUinjagripir Tómstunda- vörur Loðskinna- vörur FGNDIJR sf. 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 ögn upp í brjóstvasann á skyrtu Klumps og fékk sér svolítinn blund, því að hún var svo syfjuð. Henni þótti gott að leggja sig eins og pabba sínum. Alltaf vildi hann vera að £á sér blund og stundum var býsna erf- itt að vekja hann. Klump ur litli lofaði Agnarögn að Sofa í friði alla leið- ina heim. „Sæl mamma!“ kallaði Klumpur um leið og hann kom inn í eldhús- ið. „Mamma, má Agnar- ögn ekki borða hjá okk- ur og sofa hérna í nótt?“ spurði hann. „Auðvitað má hún það,“ svaraði frú Klumps „en ertu viss um, að hún vilji það?“ „Ég ætla að spyrja hana,“ svaraði Klumpur og halaði Agnarögn upp úr brjóstvasanum. Svo kitlaði hann hana svolít- ið svo hún hrökk upp af værum svefni. „Hvar er um við?“, spurði Agnar- ögn og teygði sig. „Heima hjá mér,“ svar aði Klumpur. „Viltu ekki borða hjá okkur og sofa hérna í nótt?“ „Það vil ég gjarnan, þakka þér fyrir,“ svar- aði Agnarögn og straúk sér um kampana. „En ég verð samt fyrst að hringja heim og spyrja mömmu, hvort ég megi það.“ Klumpur litli bar Agn- arögn yfir að símanum og leitaði í símaskránni að herra músapabba. Svo hringdi hann í númerið og lagði tólið á borðið fyrir framan Agnarögn. Hún talaði í talrörið og hljóp svo yfir að heyrn- artækinu til að heyra, hverju mamma svaraði. Frú Hagamús sagði, að Agnarögn mætti gjarnan gista hjá Klumpsfólkinu í nótt. Eftir matinn hjálpuðu Klumpur og Agnarögn til vdð uppþvottinn og hlust uðu svo á barnatímann í útvarpinu. Fyrr en þau vissu voru komin háttu- mál. Klumpur fór úr skyrt- unni og hengdi hana snyrtilega á stólbakið. Qg Agnarögn stötek upp í brjóstvasann og kom sér notalega fyrir. „Ef þér gengur illa að vekja mig í fyrramálið, skaltu reyna að hella nokkrum tedropum á nef ið á mér,“ sagði hún. „Þannig er mamma allt- af vön að vekja pabba á morgnana." „Ég skal muna eftir því,“ svaraði Klumpur og slökkti ljósið. Kalt var um nóttina og þegar Klumpur vaknaði um morguninn var ekki vitund notalegt að skríða undan sænginni. Hann gægðist yfix að stólnum til að vita, hvort Agnar- ögn væri vöknuð. Skyrt- an var horfin! „Þetta er skrítið," hugsaði Klumpur, „ég er þó alveg handviss um, að í gærkveldi hengdi ég skyrtuna þarna á stól- bakið.“ Hann stökk fram úr, fór í inniskóna og flýtti sér fram í eldihúsið. „Mamma, hvar er skyrtan mín, hvar er hún? Góðan daginn, annars„“ bætti hann við. „Áttu við hvítu skyrt- una, sem þú varst í í gær?“ spurði frú Klumps „Ég tóte hana snemma í miorgun og fleyigði henni í körfuna með óhreinu fötunum. Klumpur litli varð skelfdur á svipinn „Ham ingjan hjálpi mér,“ sagði hann. „Bara að Agnar- ögn hafi nú ekki kafn- að. Hún svaf í brjóstvas- anum.“ „Hvað ertu að segja'* hrópaði frú Klumps og sló saman höndunum. „Og ég var einmitt að senda fötin í þvottahúsið. Þú verður strax að hlaupa þanigað." Framhald næst. PdSTUSINN David Severn; Við hurfum inn í framtíðina Var hægt að segja, að það líktist suði í bý- flugum? Suði þeirra, þeg ar þær sveima kring um blóm eplatrjánna á fyrsta vortevöldinu, sem var verulega hlýtt. En ekiki gátu býflugurnar verið á ferli núna, eftir að rökkr- ið var fallið a. Auk þess var hljóðið of reglubund- ið. Það var stöðugt og óbreytilegt. Strax og ég hafði lokið við brauðið, gekte ég lengra inn í undirganginn, forvitinn að kanna, hvað fram undan væri. Brétt stóð ég öðrum megin í löngum bak- garði. Útlínur trjánna bar við fölan himin. Ó- ljóst mátti greina mikla byggingu og ógreinilega birtu í gluggum, þótt nú væri orðið of dimmt til þess að hægt væri að sjá nokkuð greinilega. En inn á milli trjánna sá ég bláleitt ljós eða bjarma leggja yfir laut, sem var á stærð við litla tjörn. Næstum ósjálfrátt gekk ég nokkur skref áfram inn í garðinn. Ég nam staðar og hlustaði og heyrði að þessi þungi nið ur heyrðist nú greini- legar en áður. Þegar ég nálgaðist lautina, sem bláleita ljósið kom frá, fékk ég forvitni minni að nokikru leyti svaláð. Það var greinilegt, að hljóðið átti upptök sín einmitt hér. í skugga trjánna þok- aði ég mér nær. Þá sá ég, að lautin var í raun og veru feiknadjúp hola eða brunnur, sem blá- leita birtan kom upp úr. Veggir holunnar voru klæddir málmi og risu um átján þumlunga upp fyrir _ yfirborð jarðvegs- ins. Ég beyigði mig á- fram, en gat ekki greint neinn botn. En hinn þungi niður hélt áfram að hljóma upp úr trekt- inni og virtist koma úr iðrum jarðar. Það var ekki um að villast, að ég kraup hér við rör frá firnastóru orkuveri, sem staðsett var neðanjarðar. Þessi uppgötvun koll- varpaði öllum þeim hug- myndum, sem við Dick höfðum gert okkur um þetta England framtíðar- innar án véla og tækni. Við höfðum haldið að öllu hefði farið aftur í átt til frumstæðra lífs- hátta. En þetta orku- ver virtist sýna eitthvað annað. Ég var svo niðursokk- inn í hugsanir mínar, að ég lá lengi hálfboginn yfir trektinni og gleymdi að dökkur skuggi minn mundi sjást greinilega í bláleitu ljósinu. Framhald næst. í vetur hefur Lesbóik- in ákveðið að veita les- endum sínum verðlaun fyrir það frumsamið efni sem þeir senda blaðinu og birt verður. Þessum verðlaunum verður hagað þannig: 1. Frumsamdar ritsmíS ar, sögur, ritgerðir, kvæði. Veitt verða tvenn verð- laun, kr. 400.00, og 250.00 En auk þess verður greitt hverju sinni eitt hundr- að krónur fyrir það af slíku efni, sem birtast kann í blaðinu. 2. Teiknaðar myndir. Beztar eru strikamyndir, helzt teiknaðar með túksi (svörtu bleki). Venjuleg- ar vatnslitamiyndir og klippmyndir koma samt einnig til greina. Mynd- irnar geta verið eftir frjálsu vali, t.d. sem nota mætti á forsíðu og mynd ir af ákveðnum atburði eða efni, svo sem úr æv- intýrum eða þjóðsögum. (Gætu þá verið margar myndir úr sömu sögu.). Veitt verða tvenn verð- laun, kr. 300.00 og 200.00. Auk þess verður greitt eitt hundrað krónur fyr- ir hverja mynd, sem birt kynni að verða á for- síðu og fimmtíu krónur fyrir aðrar myndir. 3. Skrítlur og gátur, sem lesendur senda, Framhald á næstu síðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.