Morgunblaðið - 28.11.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.11.1962, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 28. nóvember 1962 MORGVNBLAÐIÐ 3 EINAR ÓLAFSSON, bóndi í Lækjarhvammi viS Suður- landsbraut rekur f járbú að Bæ í Kjós. Hann hefur þar rúm- lega 200 fjár og þar á meðal nokkra sauði. Einar skýrði Mbl. svo frá, að sl. þriðjudag hefðu fundizt 2 sauðir frá hon- um, sem gengið hafa úti, ejn- hvers staðar í Esjunni hátt á þriðja ár. Sauðunum tveimur var sleppt af húsi veturgömlum vorið 1960. Síðan spurðist ekk ert til þeirra fyrr en um páska leytið árið eftir, er þeir fund- ust uppi á Kjalarnesi. Náðist þá annar þeirra — sá koll- ótti, en sá hyrndi flúði í ó- genga kletta ofan við Saur- bæ og komst undan. Kollótti sauðurinn var flutt ur heim á Bæ í Kjós til hús- bónda síns og segir fátt af hon um þar til honum var sleppt 3 vikum síðar, en þá hvarf hann alveg. Hefur hann þá farið 10—12 km leið og leitað uppi félaga sinn. Síðan þetta gerðist, eða um eins og hálfs árs skeið, hefur Einar bóndi Ólafsson með „týndu sauðina". „Sauðþráir44 úti- legumenn í Esjunni ekkert sézt til sauðanna þang- Hjarðarnes á Kjalarnesi. — og handsömuðu þessa „sauð- 1 að til þeir fundust í síðustu Brugðu bændurnir í Hjarðar- þráu“ félaga eftir langan og 7 viku í hlíðinni fyrir ofan nesi og Norðurkoti skjótt við tvísýnan eltingarleik. 1 Adenauer beiti sér fyr- ir stjórnarmyndun strax telja Strauss standa að baki þeirra atriða „Spiegel-málsins", sem hvað mesta andúð hafa vak- ið. Vantar vitni: Hver hjálpaði konunni? SL. fimmtudagskvöld (22. nóv.) um kl. 7 varð það slys fyrir fram an húsið Bergstaðastræti 7, að kona datt þar á gangstéttina. Handleggsbrotnaði hún og hlaut fleiri meiðsl. Nærstödd kona kom konunni til hjálpar og fylgdi henni áleiðis að húsinu nr. 17 við Bergstaðastræti. Nú þarf rann- sóknarlögreglan á vitnisburði konunnar að halda, og er hún vin samlega beðin að hafa samband við lögregluna ( sími 1'59 24). Umferðarslysum fjölgar um helm- ing í Iíópavogi SKV. upplýsingum lögreglunnar í Kópavogi hefur umferðarslys- um fjölgað nær því um helming frá því í fyrra. í fyrra voru 44 umferðaróhöpp bókuð hjá lög- reglunni eftir allt árið, en á þriðjudag var hið 80. á þessu ári skrásett. Lögreglan hefur haldið línurit um þetta síðan ár- ið 1958, og var aukning'n jafn- stígandi þar til í ár, að umferð- arslysum fjölgar skyndilega. Sennilegasta skýringin er sú, að hin mikla bílaaukning á árinu valdi mestu hér um. Árshátíð Sjálfstæðisfél. í Hafnarfirði HAFNARFIRÐI. — Sjálfstæðis- félögin halda árshátíð í Góðtempl arahúsinu næstkomandi laugar- dagskvöld og hefst hún kl. 8,30. Þar fara fram fjölbreytt skemmti atriði og stutt ávörp flutt. — Nánar verður sagt síðar frá árs- hátíðinni. yfirlýsing þingflokks Krisfilega demokrataflokksins Bonn, 27. nóvember — NTB. MNGFLOKKUR Kristilega demo krataflokksins í V-Þýzkalandi gaf í dag út opinbera yfirlýsingu, að loknum fundi. Segir þar, að þeim tilmælum hafi verið beint til Adenauers, kanzlara, að hann beiti sér þegar í stað fyrir því, að mynduð verði ný stjórn. Eins og áður hefur verið skýrt frá í fréttum, þá hafa bæði Kristi legi og Frjálsi demokrataflokkur- inn lýst því yfir, að þeir séu reiðubúnir til áframhaldandi etjórnarsamstarfs, þó með því skil yrði, að gerðar verði vissar breyt ingar á skipun ráðherra. Þingflokkur Kristilega demo- krataflokksins hefur ákveðið að setja á laggirnar nefnd, sem verða skuli kanzlaranum til ráðgjafar varðandi stjórnarmyndun. Adenauer átti tal við Paul Lúcke, byggingarmálaráðherra, sem nefndur hefur verið sem lík- legur eftirmaður núverandi landvarnarráðherra, Franz-Josef Strauss. Þá ræddi Strauss einnig við kanzlarann í dag. Viðstaddir þær viðræður voru Heinrich Krone, ríkisráð, og Heinrich von Brentano, fyrrverandi utanríkis- ráðherra. Talsmaður Kristilega demo- krataflokksins sagði í dag, að hann gæti ekki sagt neitt um það, hvort Strauss myndi segja af sér. Þess hafa Frjálsir demokratar m. a. krafizt, vegna þess, að þeir Vantar síldarverk- smiðju Hellissandi, 24. nóv. 1 NÓTT kom glöggt í ljós, hver nauðsyn er á því að sildarverk- Ismiðja verði reist í Rifshöfn. Mikil síldveiði var við Jökul, en bátarnir urðu að fara allt suður til Reykjavíkur til þess að losna við aflann. Veðrið var vont og misstu bátarnir mikið af sild- inni á leiðinni. Útvegsmenn á Hellissandi hafa rfoorað á stjórn Síldarverksmiðja rikisins að hlutast til um, að eíldarverksmiðja verði byggð i Rifi. Rökin fyrir því eru aug- i Rifi Ijós og komu skýrt fram í nótt. Mikill tíimi fer í að sigla með síldina, sem veiðist við Jökul. og verði eitthvað af veðri, má búast við vandræðum. Þrír bátar eru gerðir út á síld frá Rifi. Það eru Skarðsvik, sem var á leið til Reykjavíkur í nótt með 12—1300 tunnur, en varð að snúa við. Aflanum er skipt milli Hellissands oig Stykkis- hólms. Arnkell fékk 700—800 tunnur.. Þriðji báturinn er Tjald ur, en ekki er mér kunnugt um afla hans. — R. Ó. ÞAB er allt útlit á því að barnaleikritið, sem Þjóð- leikhúsið sýnir um þessar mundir, Dýrin ( Hálsaskógi, ætli að ná sömu vinsældum og Kardemommubærinn gerði á sínum tíma. Uppselt hefur verið á öllum sýning- um fram að þessu og virð- ast hinir ungu leikhúsgestir skemmta sér konunglega við að horfa á þetta hugljúfa ævintýri Thorbjörns Egners. Um næstu helgi verða tvær sýningar á leiknum bæði á laugardag og sunnu- dag kl. 3 báða dagana. STAKSTEIIMAR „Yfirþjóð“ Þórarins Þórarinn Þórarinnsson skrifaí furðulega grein í blað sitt, Tím- ann, í gær. Tilgangurinn er aug sýnilega sá, að þjóna kommún- istum á enn einu sviði, þ.e.a.s. taka undir þann áróður þeirra, að Þjóðverjar séu með þátttöku í Efnahagsbandalaginu að ná sarr.a markmiði og Hitler sálugi keppti að. Um þetta segir Þórar inn: „Það má telja kaldhæðni ör- laganna, að eftir að tilraun Þjóð verja til að gerast yfirþjóð Evr- ópu með valdi, misheppnaðist al- gjörlega, skuli þeim innan tutt- ugu ára frá þeim ósigri hafa heppnazt að ná því marki. En jafnframt ber þetta dugnaði Þjóðverja glöggt vitni og sýnir, að þeir komast ekki síður á- leiðis eftir friðsamlegum leiðum en ofbeldisleið Hitlers.“ Væntanlega dylst engum, að það, sem fyrir Hitler vakti, var að undiroka Evrópu, svo að hinn hreini stofn Aría fengi öllu ráð ið, en öðrum yrði ýmist útrýmt eða þrælkaðir. Þessu markmiði segir Þórarinn Þórarinnjson, • aS Þjóðverjar séu nú að ná. Ummæli á borð við þetta hafa birzt í hverju einasta kommúnistamál gagni heimsins margsinnis, en ekki er vitað til að málgagn nokkurs lýðræðisflokks hafi hing að til léð máls á slíku ofstæki. Ekki rökfimur Furðulegast er þó, hvemig rit stjóri Tímans kemst að þessari niðurstöðu. Hann segir t.d.: „Ahrif þeirra (þ.e. ÞjóSverja) m.unu sennilega frekar styrkjast eai velkjast, ef Bretar gerast aðilar að bandalaginu." Og síðar segir: „Það mun einnig styrkja að- stöðu Þjóðverja, ef Danir ganga í EBE, þvi að Danir hafa jafnan verið undir sterkum þýzkum á- hrifum, og mun það ekki minnka eftir inngöngu þeirra í EBE. Hins vegar er líklegt að Norð- menn halli sér meira að Bretum". Þannig segir Þórarinn í fyrsta lagi, að Danir muni styrkja Þjóð verja í Efnahagsbandalaginu, en Norðmenn muni hinsvegar halla sér að Bretum, en rétt áður hef- ur hann sagt að áhrif Þjóðverja muni styrkjast við inngöngn Breta. Sem sagt, Bretar munu styrkja Þjóðverja, Norðœenn munu hallast að þeirri stefnn Breta að styrkja þá — en veikja þá samt! „Rök“ Þórarins ern þannig í samræmi við þann til- gang hans að þóknast kommún- istum. Einkennileg afstaða En ef það væri nú svo, sem Þórarinn Þórarinsson, heldur fram til að þóknast vinum sínum í kommúnistaflokknum, að Þjóð verjar væru að ná sama árangri í Efnahagsbandalaginu og Hitler keppti að í síðari heimsstyrjöld mni, þá færi afstaða t.d. Breta, Dana og Norðrmnna að verða ðálítið einkennileg. Eftir því ætti það að hafa verið hin mesta blessun að Þjóðverjar flæddn yfir Danmörku og Noreg og voru komnir vel á veg að gera inn- rás í Bretland. Þessar þjóðir hefðu samkvæmt kenningum Tímaritstjórans átt að taka þessn jafn fegins hendi og efnahags- Iegri samvinnu í Evrópu. Slíkar öfgar eru svo fráleitar, að engn tali tekur, en þær undirstrika hinsvegar enn betur en orðið var, að þeir Framsóknarmenn ,sem nú hafa undirtök í flokknum, eru reiðubúnir til að taka upp málflutning kommúnista i einn og öllu. Spurning er hinsvegar um það, hvort hin alnvnni kjós andi Framsóknarflokksins gleðst yfir þessari þróun flokksins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.