Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 6

Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 6
6 MORC CNBLAÐIÐ Miðvikudagur 28. nóvember 196J Asgrímur Jónsson tÍT ER komin á vegum Helga- fells (Ragnars Jónssonar) ný Ásgrímsbók, stærri og miklu feg- urri en sú fyrri, sem kom út 1'94'9, og var að ég held fyrsta listaverkabók Helgafells. Nýja bókin hefur inni að halda ævi- sögu Asgríms Jónssonar, sem Tómas Guðmundsson skáld skrif- aði fyrir nokkrum árum eftir ir manninum. Árangurinn verð- ur sá að maðurinn sjálfur og lífsstarf hans birtast í sama ljósi og frá hinurn sama sjónarihóli, — það verður augljósara en nokkru sinni fyrr hvílíkt sam- ræmi er í lífi og list Ásgríms Jónssonar. Ritgerðir sérfræðing- anna eru ekki allar jafngóðar, þær geta jafnvel formyrkvað Ásgrímur Jónsson. ifrásögn lisbamannsins, og var hún fyrst gefin út af Almenna bókafélaginu 1956. Hún er hér endurprentuð með litlum breyt- ingum, bæði á íslenzku og ensku. Auk ævisögunnar birtast í þess- ari bók 44 myndir af málverk- um Ásgríms, heilsíðumyndir, nema tvær sem taka yfir heila opnu hivor, allar litprentaðar nema tvær. Bókin er 140 síður í mjög stóru broti, prentuð á vandaðasta pappír. Víkingspremt, prentmót og Bókfell gerðu bókina úr garði. Það er ekki út í bláinn að nefna þessa aðila í meginmáli um þessa bók, því að hún er svo vel og vandlega unnin, að óvíst er hvort fegurri máiverka- bækur séu nú gerðar annars staðar með þjóðum, og eru fram- farirnar frá fyrri listaverkaibók Ásgríms alveg ótrúlegar. í einhverju blaði sá ég ný- lega að verið var að finna að því, að í þessari Ásgrímsbók skyldi vera endurpremtuð ævi- saga listamannsins í stað þess að birta þar nýja ritgerð um mál- aralist Ásgrims. Frá mínu sjón- armiði er þetta með öllu ástæðu- laus gagnrýni. í fyrsta lagi er saga listamannsins í meðferð Tómasar Guðmundssonar bæði fögur og sönn og varpar einmibt þeirri réttu birtu á alla listsköp- I un Ásgríms um leið og hún lýs- það efni sem þeim var ætlað að auglýsa. Hvaða trygging er fyrir því að sérfræðilég ritgerð um mymdlist Ásgríms hefði orðið betri listskýrimg en sjálfsævi- saga listamannsins. Enn má á það minna, að mikill hJuti af upplögum listaverkabóka Helga- fells er keyptur af útlendingum eða eendur þeim að gjöf, og vissulega er saga þessa mikla listamanns, ásamt myndum af verkum hans, eins góð útflutn- ingsvara og landkynning og hver önnur ritgerð um myndlist. Ég hef hér fyrir framan mig nokkrar greinar og ritgerðir um Ásgrím Jónsson málara. Ég mun nú taka upp úr sumum þeirra stutta pósta, ekki sízt til þess að almenningur sjái, að enginn hörgull er á sérfræðilegum rit- gerðum um myndlist Ásgríms, svo að þar af leiðandi er það þalkkarverð tilbreytni að hin nýja Ásgrímsbók skuli birta við- horf listamannsins sjálfs. í bókinni „íslenzk myndlist", sem Kristján Friðriks9on gaf út 1943 er alllöng ritgerð, sem ber titilinn „íslenzkir málarar" eft- ir Emil Thoroddsen. Þar segir meðal annars: „Ásgrímur Jónsson mun verða talinn faðir landslagslistarinn- ar — Fyrst framan af ber mest á vatnslitamyndum í afköstum hans, og nær hann svo mikilli leikni í meðferð vatnslita að margar vatnslitamyndir hans eru að hagleik sérstæðar íslenzkri list. ■— Þá er fram líða stundir og Ásgrími vex þroski, ber æ meira á olíulitum í list hans, unz þeir verða þar alls ráðandi. Um leið nær hann smám sam- an síauknu valdi á forminu, en þess verður þó stöðugt vart, að Ásgrimur er að upplagi aðal- lega feoloristi, og að hlutverk litanna er ávallt hið yfirgnæf- andi í list hans. Það er mjög eft- irtektarvert, hvernig litameðferð hans hefur þroskast frá upphafi. í fyrstu myndum sínum virðist hann oft leggja aðaláherzlu á blæbrigði ljóss og skugga, á yfir- borðsáferð þá, sem veðurfarið sveipar landslagið í það og það skiptið. Síðar verður litgjöfin einfaldari og algildari, eiginlit- irnir leita réttar síns, blandaðir litir eru klofnir í primerliti, að- aluppistaðan í myndunum verð- ur blátt, grænt, rautt og gult, og þar finnur Ásgrímur samnefn- ara fyrir íslenzka landslagsliti“. í hinni fyrri Ásgrímsbók, sem Helgafell gaf út, er ritgerð um Ásgrím eftir Gunnlaug Söhev- ing listmálara. Þar segir svo, meðal annars: „— — — En sérstaklega ber að nefna þjóðsagnamyndir hans, sem eru mjög sérstæðar, og eru margar gimsteinar á sínu sviði. Þær orka á vitund manna með Framhald á bls. 23 Einar Benediktsson. Fullveld isfagnaður Stúdentafélagsins STÚDENTAFÉL.AG Reykjavíkur efnir að venju til fullveldisfagn- aðar 30. nóvember. Verður hann að þessu sinni haldinn að Hótel Borg og hefst kl. 19,30, en húsið verður opnað kl. 19. Ræðu kvöldsins flytur Birgir Kjaran, alþingismaður. Guð- mundur Guðjónsson, óperusöngv- ari, syngur einsöng og Ævar Kvaran, leikari, syngur nýjar gamanvísur, sem Guðmundur Sig urðsson hefur samið. Auk þess mun dr. Páll ísólfsson stjórna almennum söng, og að lokum verður dansað til kl. 2 eftir mið- nætti. — Jafnan hefur verið glatt á hjalla í fullveldisfagnaði Stúdentafélagsins, og er þess vænzt, að stúdentar, eldri og yngri, fjölmenni nú sem fyrr. Stjóm Stúdentafélags Reykja- víkur skipa nú þessir menn: Ein- ar Benediktsson, formaður, Jón A. Ólafsson, ritari, Jóhannes Helgason, gjaldkeri. Meðstjórn- endur Magnús Ólafsson og Bald- ur Tryggvason. í varastjórn era: Ólafur W. Stefánsson, Axel Ein- arsson, Ingvi Þorsteinsson, Har- aldur J. Hamar og Árni Gunnars- son. Fullveldisfagnaðurinn er fyrsta verkefni hinnar nýkjömu stjórn- ar, en hún hyggst halda starf- semi félagsins áfram með svipuð- um hætti og verið hefur. í vetur hefur þegar verið haldin ein kvöldvaka, svo og umræðufund- • Kappinn var ekki frá Gluggum. í Velvakanda sl. föstudag ritaði „mjög reið húsmóðir“ blaðinu bréf, og kvartðai undan því að hún hefði verið svikin um gluggakappa sem þekkt fyrirtæki hér í bænum hafði lofað henni. Út af skrifum þess um vill Velvakandi taka fram, að í þessu tilviki er ekki átt við Fabertrékappa frá firmanu Gluggum hf. heldur voru kapp ar þessir frá öðru fyrirtæki. Hinsvegar munu Fabertrékapp- ar ekki vera fáanlegir hjá Gluggum hf., eftir því sem Velvakandi hefur fregnað, það sem eftir er af þessu ári, sök- um þess að Gluggar hf. eru að flytja úr Skipholti í Hafnar- stræti 1—3. Bréf þetta frá hinni mjög reiðu konu er eitt af skýrustu dæmunum uim vandamál þau, sem Velvakandi er iðulega settur í með umkvörtunarbréf um. Velvakandi tók þá ákvörð un að birta ekki nafn fyrirtæk is þess, sem konan klagar yfir, en um leið verður bréfið til þess að fella grun á annað fyrirtæki, sem veitir svipaða þjónustu. Við Skulum því vona, að Glugg ar hf. hafi, þegar öll kurl komu til grafar, gott eitt af þessum umræðum. Velvakanda er sem sé kuanugt um, að uimrædd kona, sem ritað fyrrgreint bréf í reiði sinni, hefur einmitt snú ið sér til Glugga hf. og fengið fyrirgreiðslu þess fyrirtækis með kappa þá, sem það ekki fókk frá hinu fyrirtækinu. • Útvarpið beðið að endur- taka „Menn og ofurmenni“ Fyrir skömmu var hér í Velvakanda lítilega rætt um leikrit það, sem er flutt í út- varpinu og hefir verið undan- farin þrjú laugardagskvöld. Leikur þessi, „Menn og ofur- menni“ eftir George Bernard Shaw hefur vakið geysimikla athygli og vilja margir á hann hlýða. Maður sneri sér til Vel vakanda nú fyrir skemmstu og bað hann að benda Rikis- útvarpinu á, að æskilegt væri að endurflytja eitthvað að um- ræddu leikriti í þættinum „End urtekið efni“ fyrir þá, sem hefðu verið svo óheppnir að missa. kafla úr. Þessi maður benti á, að í fyrra hefði verið framhaldsleikrit, eða leikrit, sem tók yfir fleiri kvöld í fiuitningu, og hefði þó sá báttur verið á hafður, að síðasti þáttur leikritsins var endurfluttur í þættinum „End- urtekið efni“ á laugardög- um, og gátu þá þeir, sem misst höfðu af leiknum síðasta laugardag. fyigst með honum þá um kvöldið, er næsti þáttur var fluttur. Hér kveður við nolkkuð annan tón en hjá kon unni, sem hringdi til Velvak- anda á dögunum og bað hann lengstra orða að fordæma um- rætt leikrit. Þarna getur mað- ur séð, hversu misjafnar eru skoðanir manna, og það sem ein um finnst gott af útvarpsefni og vill fá að hlýða á það aftur óskar annar eftir að alls ekki bomi fyrir eyru hlustenda. • Rúmin of stutt. Nýlega giftur góðkunningi Velvakanda kom til hans nú á dögunum alvarlegur í fasi og kvartaði mjög um, að rúm þau, sem framleidd eru og seld í húsgagnaverzlunum og verk smiðjum höfuðborgarinnar væru öllsömun af sömu lengd og öll alltof stutt fyrir sig. Þessi góðkunningi er fullorðinn maður að hæðinni til, ef svo má að orði kveða, og mun þurfa rúm, sem eru rúmir 2 metrar. Hann telur sig hins vegar vart hafa efni á að láta smíða sér- staklega fyrir sig rúm, sem er honum nægilega langt, þar sem slík sérframleiðsla muni vera miklu dýrari heldur en rúm þau, sem framleidd eru í fjölda framleiðslu. Velvakandi vill verða við þeirri ósk kunningj- ans, að koma því á framfæri við verksmiðjur þær, sem fram leiða rúm í fjöldaframleiðslu, þessi bráðnauðsynlegustu tæki hvers manns, sem hann eyðir í þriðjungi ævi sinnar, að verk- smiðjurnar verði góðfúslega við þeirri frómu ósk að fram- leiða rúmin í ofurlítið mismun andi lengdum. Húsgagnafram- leiðendur sem aðrir ættu að veita því afhjggli, að íslending ar lengjast jafnt og þétt. Einn ig væri þeim bollt að minnast þess, að íslendingar þyngjast jafnt og þétt og mun það ekki síður vera holl ábending íyrir þá, sem framleiða rúm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.