Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 8

Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 8
8 MORCI’NBLAÐIÐ Miðvikudagur 28. nóvember 1962 Kal í túnum, áfengis- varnarsjóöur, tækni- fræðingar o. fl. rætt á Alþíngi í gær hagsuppbyggingu ríkisstjórnar- innar og sakir hans hefði m.a. tekizt að endurheimta lánstraust okkar. En einmitt vegna hins misjafna árferðis væri okkur einnig mikil nauðsyn á, að hafa þennan gjaldeyrisvarasjóð til að grípa til. Hannihal Valdimarsson, (K) minnihluti heilbrigðis- og félags- málanefndar, kvað hins vegar ekki annað þarfara við hið frysta sparifé að gera en ráðstafa því til fyrrnefndra sjóða og gera það þannig lífrænt. Hann lagði því til, að frumvarpið yrði sam- þykkt. Atkvæðagreiðslu var frestað. Á FCNDI neðri ðeildar Alþingis í gær gerði Bjami Benediktsson grein fyrir frumvarpi um kjara- samninga opiniberrr. starfsmaima Davíð Gíslason kvað meirihluta fjárhagsnefndar leggja til að frumvarp um bráðabirgðabreyt- ingu og framlengingu nokkurra laga yrði samþykkt óbreytt og var það gert; frumvarp um al- mannatryggingar var samþ. kkt við 3. umræðu og sent til neðri deildar. I>á voru rædd frum- vörp um verkfræðinga, jarð- ræktarlög, áfengisvarnarsjóð og lánsfé til húsbyggjenda. Iðnfræðingar Btefnist tæknifræðingar. Jónast Rafnar (S) gerði grein fyrir frumvarpi um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga, húsameistara og tæknifræðinga. Iðnaðarmálaráðuneytið hefði með bréfi farið þess á leit við iðnaðarnefnd, að hún kynnti sér efni frumvarpsins og flytti, ef hún teldi sér það fært. Neíndin hefði orðið sammála um flutn- ing þess, en einstakir nefndar- menn áskilið sér rétt til að hafa óbundnar hendur við atkvæða- greiðslur. Aðalnýmælið er, að lagt er til, að heitið tæknifræðingur verði tekið upp sem starfsheiti þeirra manna, sem nú nefnast iðnfræð ingar. Ennfrem- ur að tæknifræð ingar megi nota orðið „ingeniör" í sambandi við starfstitil sinn, en verkfræðing- ar noti samsvar- andi „diplom- ingeniör" og „civil-ingeniör“. Samkv. frumvarpinu er því ætlazt til, að þeir menn sem lok ið hafa prófi frá viðurkenndum tækniskólum erlendis skuli heim ilt að bera það starfsheiti, sem erlendir menn mega nota að loknu prófi. Iðnfræðingar haldi fram, að bannið við að nota það starfsheiti, sem sams konar námi fylgi erlendis, hafi mjög dregið úr áhuga ungra manna til tækn- isfræðináms erlendis og af þeim sökum sé hlutfall á fjölda iðn- fræðinga annars vegar og verk- fræðinga hins vegar mjög á ánnan veg, en æskilegt sé talið miðað við reynslu annarra þjóða, en verkfræðingar séu nú fjór- falt fleiri hérlendis. Frumvarp þetta er samið að beiðni Tæknifræðingafélags ís- lands, þ.e. félags iðnfræðinga, en bæði Verkfræðingafélag ís- lands og Arkitektafélag íslands hafa lýst sig andvíga þeirri breyt ingu, er í frumvarpinu felst. Styrkur til endurræktar kalskemmda. Valtýr Kristjánsson (F) gerði 1 jómfrúrræðu sinni grein fyrir frumvarpi þess efnis, að jarð- ræktarstyrkur núi til endurrækt- unar kalbletta. Tjón af völdum kals sé stórkostlegt í miklum kal árum, en árið 1962 sé eitt af þrem verstu kalárum frá 1918. í mörgum tilfellum verður ekki um annað að ræða en að endur- vinna verstu kalslétturnar. í núgildandi jarðræktarlögum séu ekki nein ákvæði, er heimili, að greiddur sé styrkur út á slíka endurrækt. Áfengisvamasjóður. Þórarinn Þórarinsson (F) gerði grein fyrir frumvarpi sínu um stofnun sérstaks áfengis- varnarsjóðs, en hlutverk hans sé að styrkja áfengisvarnir, fræðslu um skað semi áfengis- og bindindisstarf, einkum meðal ungs fólks. Tekj ur sjóðsins nemi 3% áfengissöl- unnar. Kunnara sé en frá þurfi að segja, að áfeng- isneyzla fer mjög vaxandi, en áhrifamesta vopnið gegn áfengis neyzlunni sé tvímælalaust ein- dregið og vakandi almennirigs- álit, er byggi afstöðu sína á hleypidómalausum forsendum og glöggum rökum. Skylda rík isvaldsins sé að stuðla að því og sé það sérstaklega áríðandi, að slíkt álit skapist meðal hinnar uppvaxandi kynslóðar. Gjaldeyrisvarasjóðurinn nauðsynlegur. Birgir Finnsson (A) kvað meirihluta heilbrigðis Og félags- málanefndar leggja til að frum varp um lánsfé til húsnæðis- mála verði fellt, þar sem það felur ekki í sér raunhæfar til- lögur til lausnar á vandamálum húsbyggjenda, en í frumvarpinu er lagt til, að Seðlabankanum sé gert skylt að lána Byggingar- sjdði rfkisins og Byginarsjóði verkamanna alls 310 millj. kr. til 2S og 42 ára. Kvað al- þingismaðurinn allt fé Seðla- bankans bundið, annars vegar útlánum til at- vinnuveganna landbúnaðar og sjávarútvegs, og hvarflaði ekki að neinum að hreyfa við því fé; hins vegar í gjaldeyrisvarasjóðn um, en hann nemur nú um 800 millj., og vildu sumir skerða hann. Kvaðst alþingismaðurinn þó verða að telja, að einmitt gjaldeyrisvarasjóðurinn væri einn farsælasti þátturinn í efna- Lántaka vegna vatnsveitu- framkvæmda í Eyjum Á FUNDI neðri deildar Alþingis í gær gerði Guðlaugur Gislason grein fyrir frumvarpi sínu um heimild fyrir ríkisstjórmina til allt að 12 millj. kr. lántöku, sem endurlánaðar yrðu Vestmanna- eyjakaupstað til vatnsveitufram- kvæmda. Kvað hann öllum ljóst, að bygging vatnsveitu í Vest- mannaeyjum sé nokkrum ann- mörkum háð og erfiðari í fram- kvæmd, en í öllum eða a.m.k. Mikil gróska í tónlist- arlífi Hafnarfjarðar HAFNARFIRÐI — Föstudaginn 16. nóvember var Tónlistarskólinn settur í Bæjarbíói af skólastjóranum Páli Kr. Pálssyni, organleik- ara. Á undan og eftir ræðu hans léku þrír kennarar skólans, þau Katrín Dalhoff, Atli Heimir Sveinsson og Helmuth Neumann ein- leik og þríleik. Tónlistarskólinn er nær full- settur í vetur og eru nerriendur 133 talsins. Kennt er í Flens- borgarskólanum og í gömlu sím- stöðinni við Austurgötu hefir skólinn nú fengið afnot af hús- næði fyrir kennslu á blásturs- hljóðfæri og í gítarkennslu. í vetur verður stofnsett ný deild fyrir börn á aldrinum 5-8 ára og kennir Carl Orff undir- stöðuatriði hljómlistar með leik og föndri. 23. þ.m. hófst eins mánaðar tónlistarnámskeið fyrir unglinga og fullorðna og fer kennslan fram í stuttum fyrirlestrum og með leik af segulbandi. Kennari verður Helmuth Neumann sem er austurrískur að ætterni og gagnmenntaður tónlistarmaður. Hann er sellóisti í Sinfóníuhljóm sveitinni. Þá gat Páll Kr. Pálsson þess í setningarræðu sinni, að í ráði væri að endurvekja tónlistarhald í Bæjarbíói. Munu fara þar fram í vetur kammertónleikar, einleik ur og einsöngur. Einnig verða tónleikar í Þjóðkirkjunni. í lok skólasetningu í Bæjar- bíói léku kennarar Tónlistar- skólans Tríó í G-dúr eftir Haydn. — G. E. Eyjafjörður verði tvö dýralæknisumdæmi MAGNÚS Jónsson gerði í efri lækni í hverju umdæmi, svo að deild í gær grein fyrir frumvarpi þess efnis, að Eyjafjarðardýra- læknisumdæmi verði skipt í tvö dýralæknisumdæmi. En bæði sá dýralæknir, sem nú gegnir þar embætti, svo og yfirdýralæknir telja óviðunandi að þar sé einn dýralæknir, sakir hins mikla fjölda gripa, sem í umdæmi þess Tveir dýralæknar á Akureyri Upplýsti alþingismaðurinn, að nú um skeið hefðu tveir dýra- læknar verið starfandi á Akur- eyri, en hins vegar væri ekki heimilt að launa nema einn dýra- Þjóðnýting bíóanna Á FUNDI neðri deildar í gær gerði Hannibal Valdimarsson grein fyrir frumvarpi sínu um Kvikmyndastofnun ríkisins, en, þar er gert ráð fyrir, að kvik- myndahús verði tekin eignar- námi og þjóðnýtt. Kvað flutningsmaður efni frumvarpsins í stuttu máli það, að á vegum ríkisins skuli reka Kvikmyndastofnun ríkisins, er ein hefur með höndum innflutn ing kvikmynda svo og rekstur kvikmyndahúsa. Frá þeim tíma, er hún hefur starfsemi sína, er einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum óheimilt að reka kvikmyndahús, nema sérstak- lega standi á og sérstakt kvik- myndaráð sam- þykki. Heimilt sé að taka eign- arnámi handa Kvikmynda- stofnuninni kvikmyndahús þau, sem rekin eru, er lögin taka gildi. Keppt skal að því að gera kvikmyndir að sem almennustu og þjóðlegustu menningartæki, hliðstæðu útvarpi og skólum. í þessu skyni skal kvikmynda- stofnunin reka kvikmyndahús sem víðast, sjá skólum fyrir fræðslukvikmyndum, vanda sem mest val erlendra kvikmynda og gera íslenzkan texta við þær, eftir því sem unnt er, bægja burtu siðspillandi, óþjóðhollum og menningarsnauðum kvikmynd um, efla innlenda kvikmynda- gerð og loks er af reksturhagn- aðinum heimilt að styrkja leik- list. hljómlist og aðrar skyldar listgreinar. Sérstakt kvikmyndaráð, er Al- þingi kýs, á að hafa umsjón með hinni menningarlegu starfsemi og gæta þess sérstaklega, að fyllsta hlutleysi ríki, svo að starf seminni verði aldrei beitt til einhliða áróðurs fyrir stefnur eða flokka. aðstaða hins dýralæknisins er alveg óviðunandi. Þó hefur hér- aðslæknir látið í ljósi, að hann getur ekki einn gegnt þessu starfi. Niðurstað an hefur því orðið sú, sagði alþingismaður- inn, að við þing menn Norður- landskj ördæmis eystra í þessari deild flytjum frumvarp um það í samráði við yfirdýralækni, að umdæminu verði skipt. Þá kvað alþingismaðurinn kunnugt, að ekki hefðu fengizt dýralæknar í öll umd.æmi lands- ins. En þó menn af þeim sökum vildu halda því fram, að ekki ætti að skipta umræddu umdæmi, nema fyrst fengjust dýralæknar til annarra umdæma, mundi það ekki leysa neinn vanda að þessu leyti. Eftir sem áður yrði að finna lausn á þessu vandamáli í Eyjafirði, svo að dýralæknirinn geti verið þar áfram, en hann vill gjarna vera nyrðra og mundi naumast sækja um þau umdæmi önnur, er laus kunna að vera. Kvaðst alþingismaðurinn taka þetta fram, þar sem þetta væru einu hugsanlegu andmælin gegn frumvarpinu. flestum öðrum kaupstöðum landa ins, þar sem þar er um enga vatnsuppsprettu að ræða, sem til greina gæti komið að virkja til vatnsveituframkvæmd'*. Um þrjár leiðir að velja. Alþingismaðurinn gat þess, a8 á undanförnum árum hefði far- ið fram ítarleg athugun á bygg- ingu vatnsveitu til afnota fyrir almenning þar. Athuganirnar hefðu leitt í ljós, að um þrjár leiðir er að velja. í fyrsta lagi jarðborun og er í því sambandi rætt imi þann möguleika af afla vatns með svokölluðum djúp- borunum. Yrði þá að bora allt niður að 1000 m dýpi og freista þess þannig að hitta á vatnsæð frá meginlandinu. Álits sérfræð- inga um þetta atriði hefur ver ið leitað, en um- sögn þeirra er enn ekki fyrir hendi. Þá er í öðru lagi rætt um vinnslu vatns úr sjó, og hafa Vestmannaeyingar gert sér far um að fylgjast sem bezt með þeirri þróun. sem átt hefur sér stað í þeim málum, en hún hef- Ur verið mjög ör. Kvaðst al- þingismaðurinn hafa ástæðu til að ætla, að lausn málsins eftir þeirri leið geti verið mun nær, en menn höfðu jafnvel gert sér vonir um eða grein fyrir. Loks er svo rætt um vatns- leiðslu frá meginlandinu, sem yrði rúmlega 20 km. löng og virðast engir tæknilegir örðug- leikar á lögn hennar, en hins vegar erfitt að gera sér grein fyrir, hvort óhætt sé að treysta því, að lögnin haldist óskemmd. En þó er vitað, að erlendis hafa slíkar vatnsleiðslur verið lagð- ar um lengri veg og ekki komið að sök. Kvað alþingismaðurinn fulla ástæðu til að ætla, að jafnvel þegar á fyrri hluta næsta árs fáist úr því skorið, hver þessara þriggja leiða verði talin hag- kvæmust. Enda nauðsynlegt, þar sem hér er um lausn mjög að- kallandi vandamáls að ræða, og liggja til þess fleiri en ein ástæða. í fyrsta lagi sé eðlilegt, að íbúar byggðarlags eins og Vestmannaeyj a geri kröfu til að fá óhindraðan aðgang að nægi- legu neyzluvatni og vatni til heimilisþarfa. Og í öðru lagi vofir sú hætta yfir Vtjtmanna- eyingum öðrum landsmönnum frekar, að neyzluvatn þeirra, eins og þess er nú aflað, verði ónothæft vegna geislavirkni af völdum kjarnorkusprenging — Fyrirfram er vitað, að hér er um mjög fjárfrekar framkvæmd ir að ræða, vart undir 20—30 millj. kr., og getur ^arla talizt óeðlilegt, að leitað sé sérstakrar fyrirgreiðslu ríkisvaldsins, þar sem um slíka sérstöðu er að ræða eins og hjá Vestmannaey- ingum í þessu máli. PALL s. PALSSON Hæstaréttarlögmaður Ber0staðastræti 14. Simi 24-200. IMýleg íbúð til sölu Til sölu éf nýleg, vönduð 3ja—4ra herb. íbúð í vest- ur enda á sambýlishúsi við Kleppsveg. Teppi á gólfum fylgja. Hagstæð lán að upphæð ca. kr. 225 þúsund áhvílandi. Mikil útborgun. Er laus nú þegar. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL., Málflutningur — Fasteignasala. Suðurgötu 4 — Sími: 14314.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.