Morgunblaðið - 28.11.1962, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.11.1962, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 28. nóvember 1961 MORGUNBLAÐIÐ 11 Jón Stefánsson, listmálari - Minning HINAR viðkvæmu taugar Jóns Stefánssonar, sem strengdust og slöknuðu á víxl í þágu hins erfiða verks að skapa list, eru hættar að tifa. Blóðið, sem ólgaði og sauð, eins og fljót í vexti, fyrir mál- efnið list, er sokkið í haf — það haf, sem öllu heldur til skila. Listaverkin — andi þeirra og Styrkur, hlífðarlaus barátta frumyrkjans, sem af þeim verð- ur lesin, blífa og drottna fram- vegis, öldutti og óbornum dýr- mæt gildi, traustur grundvöllur að byggja á. Á efra gangi Bæjarspítala Reykjavíkur situr fólk á tali. Ég sé ekk; gjörla, hverjir þar eru, enda kominn nóvember og farið að rökkva. Er ég strunsa hjá og stefni að stofu innar frá á gang- inum ,er kallað á eftir mér. Ég snv við og hefi þá fyrir mér Jóp Stefánsson, ásamt konu hans frú Ernu, og Ragnar Jónsson í Smára, í sjúkrakápu. Þau hjónin eru þarna að heimsækja hann. Ekki var ég fyrr setztur hjá beim en Jón byrjar að spyrja mig spjörunum úr um sýningar, er hann hafði ekki komizt til að skoða, eða hvað mér fyndist um aðrar, sem hann hafði litið á. Eins og í fyrri daga var ég kominn þarna í flækju-yfir- heyrslu og mér virtist hann ekk- ert mildari í kröfum fyrir hönd listarinnar en hingað til. Sárfá- um dögum síðar frétti ég lát Jón Stefánssonar. Hann hafði verið fluttur á þennan sama spítala, ekki mjög þungt hald- inn, og lagður í næsta rúm við vininn Ragnar Jónsson, — og þar lézt hann að morgni næsta dags, er honum elnaði sóttin mjög skyndilega. Fram á síðustu stund varhann sem sé enn við gamla heygarðs- hornið, af sama brennandi hug — að það væri mikil kúnst að búa til góða mynd. Á námsárum Jóns eru úti í Evrópu háð mikil dómþing yfir hinu gamla litaspjaldi; þessari brúnu sósu sem þá var, og hafði lengi verið, alls ráðandi litur í klassisku málverki. Nýr eldur guðmóðs og skiln- ings hafði læst sig um hugi, og ung kynslóð, með styrka hönd og prútt hjarta, bar þetta nýfrjálsa flóð lita og forma á torg, í nafni impressjónisma, kúbisma og ex- pressjónisma. pessi eldur breiddist út og magnaðist og gerir enn fram á þennan dag með vaxandi hraða, þar sem list hefur á annað borð notið þess að fá að dafna frjáls. f>að var því líkast, að rofnað /efði stífla og opnazt flóðgáttir óstöðvandi unggæðisanda og ný- mæla í listum. Hún versla gamla hafði fengið hastarlegt tilfelli inspírationari Jón Stefánsson varð nemandi hins heimsfræga expressjónista, Henri Matisse á myndlistarskóla hans, sem hann stofnaði í París árið 1908. Ekki verður séð, að Jón yrði fyrir miklum beinum áhrifum af Matisse og enn síður verður hann sakaður um að hafa orðið \porgöngumaður hans, sem marg *n henti ella nemenda hans. Jón hefur ætíð verið með fá- dæmum sérstæður og sjálfstæð- ur persónuleiki í list sinni. Mjög snemma skapar hann sér sinn eígin stíl, þar sem megin uppi- Stöðunnar er eins konar sigildur Still, en að ívafi til áhrif frá Cézanne. Alla tíð bjó hann að áhrifunum og þeim anda, er ríkti í Evrópu, er hann var þar við nám, á öndverðum manndómsár- um'sínum. Þetta mótaði alla af- stöðu hans í starfi hér heima. Hann var hinn góði, frjálslyndi ráðgjafi og páfi, jafnt lista- znanna sem þess opinbera i myndlistar-frumbýli voru. Ekkj var sízt til hans leitað, er vér reyndum fyrst að fóta oss með samsýningar með framandi þjóð- um. Hann var árum saman tengi- liður vor við umheiminn, af því að hann hafði kynnzt og hélt sambandi opnu við ýmsa góða erlenda forvígismenn í listum, og einnig vegna þess að hann fylgdist lika vel með hér heima fyrir. Það er táknrænt upp á sívök- ulan áhuga Jóns á því, er gerð- ist í listum, að á þeim árum er hann sat um kyrrt í Reykjavík, slapp ekki hin minnsta málara- spíra, er skroppið hafði út fyrir pollinn, við að hann rekti úr henni garnirnar við heimkom- una. Jón talaði af samúð og með fyllstu virðingu um nútíma list. Gat beinlínis verið eldheitur for- svarsmaður hennar, bæði í orði og á borði, aðeins ekki á eigin dúkum. Lífsverk Jóns Stefánssonar verður að teljast mikið að vöxt- um, þótt til séu hér málarar, sem málað hafa fleiri myndir. Með Jóni Stefánssyni kemur inn á íslenzkan myndlistarvett- vang það nýmæli að þjóna lista- verkinu sem slíku, sem sjálf- stæðu fyrirbæri, en ekki endur- sögn fjallanáttúru. Honum næg- ir ekki hin stíllausa hermisögn náttúrunnar. Fyrir þetta mun ekki hafa verið örgrant um, að hann væri grunaður um véla- brögð eða paurans merkilegheit. Jón er engum manni líkur í myndum sínum enda þótt hann máli allklassiskan stíl. Mynd hans „Höfnin“ er dæmi þeirrar sígildu myndtúlkunar, sem hér er átt við. í þessari mynd skipt- ast á þungar láréttar línur — í jafnbola skipsbúkum og löngum hafnargörðum — við lóðréttar og rísandi línur reykháfanna með voldugum gufuklökkum er stíga upp í tign og reisn og dýpka sviðið með endurspeglun í vatninu. Inntak þessarar mynd- ar tendrar hjá áhorfandanum hátíðlega kennd um lífigædda ró, alvöru og þögn. Stundum kvartaði Jón Stef- ánsson undan því að sér hefðu ekki verið meðfædd hin léttu málaragrip eða leikandi pensil- hönd. En hvað sem um það er, þá bera myndir hans það með sér, sem ekki er minna um vert — að þær eru afkvæmi öflugs vilja, mikillar geðhæðar, en þó kannski fremur en nokkuð ann- að undirstöðugóðrar menntunar og reynslu og óvenjulegra gáfna. Jón er mikils metinn málari í Skandínavíu og hefur notið þar margvíslegrar viðurkenningar, m. a. gerður heiðursfélagi lista- háskóla, auk þess sem honum hafa — í Danmörku sérdeilis — hlotnazt öll helztu verðlaun og virðingarmerki, er beztu mynd- listarmönnum einum eru veitt þar í landi. Hið mikla haf er við komum frá og hverfum til heldur öllu til skila. Þeir, sem á ströndinni standa, telja sig að vonum miklu svipta, en afreksmaðurinn hefur á löngum starfsdegi borið margt undan sjó, framtíðinni að búa við og varðveita vel. Svavar Guðnason. ÞAÐ er í vissum skilningi hægt að segja að listaverkið lifi höf- und sinn, en það heldur jafn- framt nafni hans á lofti. Ævi mannsins eru takmörk sett, en listin er eilíf á mælikvarða okk- ar jarðneska lífs. Þessvegna verður listamaðurinn tákn hins veika og forgengilega; listin tákn þess sterka, óbrotgjarna og eilífa. Ég fyrir mitt leyti álít að flestir listamenn hafi fyrr og síð- ar haft þetta á tilfinningunni og þar með eignast þá auðmýkt og undirgefni, gagnvart listinni, sem er svo nauðsynleg allri list- sköpun. Þessi tilfinning mun aldrei hafa reynzt listamönnum fjötur, heldur vakið fögnuð, og gefið þann styrk sem trúin á hinn guðlega mátt getur ein veitt. Þegar ég hugsa til Jóns Stefánssonar, sem við erum nú að kveðja í hinnzta sinni, kemur mér fyrst í hug eldhugi hans í starfi, og hin djúpa lotning hans fyrir listinni. Og hann átti í rík- um mæli til að bera, það hrein- lyndi og raunsæi, að finna til smæðar einstaklingsins og veik- leika; gagnvart helgi og styrk þeirrar listar sem mannkynið hefur skapað og unnið að frá örófi alda. Jón var að eðlisfari tilfinninga næmur og fíngerður. Það fór því fyrir honum sem mörgum góð- um listamönnum fyrr og síðar. Næmleiki hans og vandfýsni varð að tiliitslausri sjálfsgagnrýni. Vinnubrögð hans urðu því í mörgum tilfellum áþekk því, sem heimildir, bæði gamlar og nýjar, greina í sambandi við vinnúbrögð sumra hinna miklu listamanna. Piero della Francesca fékk á sínum tíma átta ár til að mála eina altaristöflu. Hann bætti við öðrum átta og kláraði myndina á sextán árum. Og það er þekkt saga, að þegar Cezanne málaði mynd af listaverkasalan- Það er nú orðið langt síðan ég sá verk Jóns Stefánssonar í fyrsta skipti, líklega eitthvað fjörutíu ár. Ég uppgötvaði í þeim margt nýtt, og sem ég hafði ekki komið auga á áður í listinni. Mér birt- ust hér ný einkenni íslenzkrar náttúru, og ég sá ný áhrif frá erlendri listmenningu í þessum verkum. Mér komu í hug málar- ar eins og Courbet og Cezanne, einnig sú list sem þá var alveg ný: Kubistarnir — Fauvist-arnir, og þar Mattisse meðtalinn — en Jón Stefánsson hafði verið læri- sveinn hans, eins og kunnugt er. f þessum myndum Jóns var margt nýtt að sjá fyrir ungan mann og óreyndann í listinni, eins og ég var þá, enda vöktu þær áhuga minn og aðdáun. Hér var lögð áherzla á form, og á stærðir, eða samspil þeirra, og á myndbyggingu; í stuttu máli það sem kalla mætti hina óhlutkendu hlið myndlistarinnar. En jafn- framt hafði Jón mjög næmt auga fyrir hinu innra lífi íslenzkr ar náttúru, ljósbrigðum og sí- breytilegum stemningum, og síð- ast en ekki sízt hinu safarika litauðgi landslagsins. Ég upp- götvaði fljótlega að ég var ekki einn um aðdáun mína á þessum meistara, sem var mér þó alveg nýr, því smám saman kynntist ég ungum listamönnum á mínu reki. Þeir höfðu allir þá sömu sögu að segja: Jón Stefánsson var sá góði andi og mikli lista- maður, sem við lærðum af og litum upp til. Síðar kynntist ég svo Jóni, og féll mér strax mjög vel við hann. Það var þægilegt að vera í návist hans. Hann var ákaflega skemmtilegur, kurteis og viðmótsþýður, og hafði frá- bæra frásagnargáfu. En stund- um fann ég einhverja logandi glóð og sterkt afl að baki. Jón var laus við sýndarmennsku, tilgerð og listamannshroka. Mér fannst hann alltaf velviljaður í garð stéttarbræðra sinna og kröfuharður held ég hann hafi ekki verið, nema við sjálfan sig. um Vollard þá sat hann fyrir í eitt hundrað og þrjú skipti, fjóra til fimm tíma í senn. Þá hætti Cezanne í bili og sagði við Voll- ard: „Nú get ég haldið áfram án þín“. Vollard spurði Cezanne hvernig honum líkaði myndin. „Ég er“, svaraði Cezanne, „ekki alveg óánægður með sumt í sky rtubrj óstinu“. Svona voru vinnubrögð þeirra er beztir reyndust og mest kunnu. Þetta vissi Jón Stefánsson og líka hitt, að svona vinnubrögð reyndust þau haldbeztu til þess að ná til- ætluðum árangri. Það er mikils að sakna þegar þessi mikli listamaður, og bjarti, sterki persónuleiki hverfur nú frá okkur. Honum ber mikið að þakka, því lífsstarf hans var falslaust,’ og mun því reynast sterkt og óbrotgjarnt. En hrein- skilni hans gagnvart sjálfum sér og tillitsleysi í kröfum er hann vann að list sinni, var sú fyrirmynd og arfur, er hann lét listamönnum sérstaklega í té. Megi þessi arfur lifa áfram í hugskoti okkar. Megi andi Jóns Stefánssonar lifa meðal íslenzkra listamanna. Gunnlaugur Scheving. JÓN STEFÁNSSON er nú horf- inn af sjónarsviðinu, en andi hans stendur föstum fótum í ís- lenzku menningarlífi. Slíkur mað ur var Jón. Með þessum fáu orðum vil ég minnast mikilmennis, sem hasl- aði sér völl, ekki aðeins meðal sinnar litlu eyþjóðar, heldur og meðal stærri og voldugri þjóða Evrópu. íslenzk myndlist stendur í mik illi þakkarskuld við Jón Stefáns- son. Hann var sannkaMaður mátt arstólpi þessarar ungu listgreinar, jafnt sem brautryðjandi, listamað ur og maður. Hann setti það for- dæmi, sem íslenzkum var bæði hollt og nauðsynlegt veganesti. Hann var jafnan hinn strangi meistari, sem allir báru virðingu fyrir og dáðu. Hann var fastur í skoðunum, en þó síungur og leitandi í Mst sinni. Hann var gagnmenntaður listamaður, kröfu harður og ósérhlífinn, sívinnandi að nýjum og miklum verkefnum. Honum var aldrei gefin sú værð að geta sætt sig við að hvíla á unnum lárviðarsveigum. Hann beitti sig ströngum sjálfsaga og slakaði aldrei á kröfunum til verka sinna, þrátt fyrir vanheilsu síðari ára. Verk Jóns voru aldrei yfirgefin, fyrr en þau höfðu tekið á sig svipmót hans og hann var t>ess fullviss, að nú gæti hann ekki gert betur. Hann lagði sig í Mma við að styrkja byggingu mál verksins, mest aUra Mstamanna eldri kynslóðarinnar, og skapaði með því strangan móral innan Ustgreinar sinnar. Maðurinn Jón Stefánsson var einn þeirra fáu, sem maður kynn ist á Mfsleiðinni, sem alltaf var unun að hitta og ræða við. Hann var sérstaklega hlýr maður með ómótstæðilegt bros, sem alltaf var innilegt og yljaði manni um hjartarætur. Hann var einstak- lega skemmtilegur í samræðum og gat látið hugann reika víðs vegar í tíma og rúmi. Samræður um list við Jón Stefánsson voru eitt af því ánægjulegasta, sem fyrir ungan Ustamann gat komið. Hann fylgdist vel með því, sem var að gerast í listgrein hans, og hafði myndað sér skoðanir um hvaðeina. Hann gat verið stór- yrtur og hnyttinn, ef svo bar und ir, og jafnan var hann óhræddur við að láta áUt sitt í ljós. En Jón Stefánsson var hlédrægur mað- ur, og ég held, að mestu ánægju- stundirnar hafi hann, lifað, er hann hafði lokið verkefni, sem hann gerði sér vonir um, að væri gott listaverk. Ég tek svo til orða hér, vegna þess að ég efa, að Jón Stefánsson hafi nokkru sinni verið fullkomlega ánægður með það, sem hann lét frá sér fara. Svo takmarkalaus var vand- virkni hans. Svo miskunnarlaus var hann gagnvart eigin verkum. Að árum var Jón Stefánsson orðinn gamall maður, í anda var hann ætíð ungur. Hann undi þvl lítt, að líkaminn entist ekki á við andann, og síðast er fundum okkar bar saman, kvartaði hann sárann um vanheilsu, en lét þess jafnframt getið, að hann ynni þó alltaf eitthvað á hverjum degi. Um leið og hann lauk setning- unni, brosti hann ljúfmannlega, og það var eins og augnaráð hans segði: „Guði sé lof“. Jón Stefánsson var einn af þess um sérstæðu sjentilmönnum, sem ekki líða manni úr minni. Hann var í senn rammur íslendingur, sem stóð föstum fótum í íslenzkri menningu, og víðsýnn heims- borgari, sem þekkti og skildi menningu Evrópu. Hann var gagnmenntaður listamaður, sem hafði mikil áhrif, hvar sem verk hans voru sýnd, og enginn, sem nokkru sinni kynntist Jóni Stef- ánssyni, mun gleyma persónutöfr um þessa einstæða listamanns. MyndMst á íslandi er ef til vill sú listgrein, sem fengið hefur mestan framgang á skemmstum tíma. en þáttur Jóns Stefánsson- ar í því ævintýri er ómetanlegur. Ég vil þakka fyrir þann ómetan- lega skerf, sem Jón Stefánsson hefur lagt íslenzkri myndMst og menningu, og vona ég, að virðing mín fyrir honum verði lesin úr þessum línum. Eftirlifandi ekkju Jóns, frú Ernu Stefánsson, votta ég sam- úð mína og færi henni þakkir fyr ir ómetanlegan stuðning, er hún veitti manni sínum, fyrir þá um- önnun, er hún sýndi hinum mikla málara. Valtýr Pétursson. Fæddur 22. febrúar 1881. Dáinn 19. nóvember 1962. Æ’t uppvaxtarár og nokkrar endurminningar. Framhald á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.