Morgunblaðið - 28.11.1962, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 28. november 1962
JlírrgwMaMli
Otgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
f lausasölu kr. 4.00 eintakdð.
FRAMSÓKN GERIR
SÉR HÆTTUNA
LJÖSA
(JTAN ÚR HEIMI |
---—--—------^
Þegnar kans vilja að hann kvænist,
en sú, sem hann
elskar er kaþólsk
rf einhverjir kynnu að hafa
viljað afsaka framferði
Framsóknarflokksins „í þjóð-
fylkingarbaráttunni“ með
kommúnistum, með því að
þeim væri ekki ljóst eðli
þeirrar baráttu og takmark
kommúnista, þá er það ekki
hægt lengur, því að í gær
lýsir Tíminn því yfir, að
kommúnistar hér séu sama
manngerðin og þeir, sem
stóðu að valdaráninu „í
Tékkóslóvakíu, Ungverja-
landi og víðar“, sem raunar
var fyrir löngu vitað af öðr-
um.
í viðtali, sem Morgunblað-
ið átti fyrir tíu dögum við
Áka Jakobsson, komst hann
þannig að orði, þegar hann
var spurður að því, hvort
honum hefði aldrei dottið í
hug að beita ofbeldi í Ný-
sköpunarst j órninni.
„Nei, það datt mér ekki í
hug. Það var talað um að ég
fengi dómsmálin í hendur, en
ég vildi það ekki af ótta við
að komast einn góðan veður-
dag í þá aðstöðu að þurfa að
beita valdi og þá yrði freist-
ingin of sterk. Það má Bryn-
jólfur eiga, að ég held hann
hafi hugsað eitthvað svipað.
Svo varð Finnur Jónsson,
dómsmálaráðherra, eins og
þú veizt, þó hann væri ekki
lögfræðingur“.
í tilefni þessara orða Áka
Jakobssonar, segir Tíminn, að
forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins hafi getað hugsað
sér, að kommúnistar fengju
dómsmálin í hendur í Ný-
sköpunarstjórninni, þótt slíkt
felist raunar alls ekki í orð-
um Áka, heldur hitt að þann
möguleika hafi kommúnistar
rætt í sinn hóp, áður en
frá stjórnarmyndun var
gengið. Staðreynd er, að
kommúnistar fengu ekki
dómsmálin. En aðalatriðið er,
að í tilefni af þessum um-
mælum gefur Tíminn í gær
eftirfarandi yfirlýsingu:
„Með þvi (þ.e. embætti
dómsmálaráðherra) hefðu
kommúnistar fengið valdið
yfir gæzlu laga og réttar í
landinu, en það var einmitt
þetta vald, sem þeir notuðu
fáum árum síðar í Tékkósló-
vakíu, Ungverjalandi og víð-
ar, til að brjóta andstæðinga
sína á bak aftur og tryggja
full yfirráð Rússa“.
Og síðar segir:
„Sannarlega skyldi enginn
láta blekkjast af hræsnis-
skrifum manna, sem eru nú
uppvísir að þeirri sök að hafa
boðizt til að leggja gæzlu
laga og réttar í landinu í
hendur kommúnista“.
Framsóknarmenn játa þann
ig, að þeir geri sér fulla grein
fyrir því, að kommúnista-
deildin hér á landi er ná-
kvæmlega sama eðlis og í
þeim löndum, þar sem hún
sveik þjóðir sínar undir jám-
hæl heimskommúnismans. —
Þetta á heldur engum að geta
dulizt, eftir valdaránið í lepp-
ríkjunum, þótt lýðræðislegir
forystumenn í þessum ríkj-
um hafi það sér til afsökunar,
að þeir gerðu sér þá ekki
grein fyrir því, að kommún-
ískir samstarfsmenn þe’irra
voru þjóðsvikarar, sem reiðu-
búnir voru til að beita of-
beldi, ef þeir fengu skipun
um það.
Þeir menn hafa hinsvegar
enga afsökun, sem þrátt fyrir
þessar upplýsingar ganga til
samstarfs við kommúnista og
greiða götu þeirra til valda-
ráns.
AÐSTOÐIN VIÐ
KOMMÚNISTA
ótt Framsóknarmenn hafi
nú lýst því yfir, að
kommúnistar hér á landi séu
sama manngerðin og sú, sem
í Tékkóslóvakíu, Ungverja-
landi og víðar, braut and-
stæðinga sína á bak aftur og
tryggði full yfirráð Rússa,
herða þeir baráttuna í þágu
kommúnismans.
í sama blaði og Framsókn-
armenn lýsa þannig eðli
kommúnista hér á landi, ráð-
ast þeir með heift að lýð-
ræðissinnmn og nefna þá
jafnvel nazista og Hitlersað-
dáendur. Ekkert getur þjón-
að kommúnistum betur en
það, að reynt sé að læða því
inn hjá almenningi, að innan
lýðræðisflokka séu verstu
einræðis- og glæpatilhneig-
ingar í hávegum hafðar. —
Hvarvetna nefna kommúnist-
ar helztu andstæðinga sína
fasista og reyna á þann hátt
að telja fólki trú um, að í
rauninni séu ekki til neinir
sannir lýðræðissinnar.
Nú orðið er hinsvegar litið
þannig á kommúnista í lýð-
ræðisríkjum, að þeim verður
lítið ágengt í áróðri sínum.
Þess vegna gleðjast þeir á-
kaflega, þegar þeir fá í lið
AGA KHAN IV., sem þekkt-
ur var undir nafninu Karim
prins, þar til afi hans Aga
Khan, lézt 1957, er andlegur
leiðtogi 20 milljóna Múhameðs
trúarmanna. Hann er ókvænt-
ur og nú eru hinir trúuðu þegn
ar hans orðnir óþolinmóðir.
Þeir vilja að leiðtogi þeirra
kvænist og eignist erfingja.
-- XXX ----
Þegar Karim, sem nú er 25
ára og talinn beinn afkomandi
spámannsins Múhameðs, heim
sótti fyrir skömmu nokkurn
hluta þegna sinna í austri,
kvöddu þeir hann með þessum
orðum:
Aga Khan VL
— Þeir trúuðu eru að missa
þolinmæðina. Þeir skilja ekki
með sér lýðræðissinna til
þess að stimpla andstæðing-
ana aðdáendur einhverra
mestu glæpamanna sögunn-
ar. —-
Framsóknarmenn vita full-
vel, hvað þeir eru að gera,
þegar þeir ganga til liðs við
kommúnista í þessari áróð-
ursiðju. Þeim er ljóst, að með
því eru þeir að leitast við að
grafa undan trú landsmanna
á lögum og rétti. Þeir telja
þetta þó nauðsynlegt með
hliðsjón af því, að þeir gerð-
ust þeir ógæfumenn að brjóta
gegn lögum og dómum á Al-
þýðusambandsþingi.
Sú athöfn Framsóknar-
manna að standa með komm-
únistum að lögbrotunum á
Alþýðusambandsþingi er að
vísu naumast fyrirgefanleg,
en hitt er þó hálfu verra, að
þeir skuli þjappa sér fast upp
að kommúnistum í áróðurs-
iðju þeirra og einskis svífast.
LÍNURNAR
SKÝRAST
¥Tndanfarna daga hafa lín-
^ urnar skýrzt í íslenzkum
stjórnmálum. Framsóknar-
menn hafa lengi neitað því,
að þeir væru í nánu samstarfi
hvers vegna þú hikar svona
lengi við að velja þér konu ...
Ef Múhameðstrúarmennirn-
ir í Indlandi, Pakistan, Afgan-
istan, Súdan og Egyptalandi,
fylgdust með því, sem gerist í
samkvæmislífinu í Evrópu,
myndu þeir sennilega skilja
betur hvers vegna Karim
kvænist ekki og þeir myndu
einnig skilja, að óþolinmæði
þeirra eykur á þá erfiðleika,
sem hinn ungi Aga Khan á
við að etja.
Hann vill gjaman kvænast
og hefur þegar fundið sér konu
efni. En hann er í miklum
vanda, því að hann getur ekki
haldið tignarstöðu sinni og hin
um miklu tekjum, sem hann
hefur af henni, ef hann kvæn
ist sinni hjartans útvöldu. Að
ur en afi Karims lézt 1957
hafði hinn ungi prins lofað
honum, að kvænast aldrei
konu, sem ekki væri Múham-
eðstrúar. Þegar hann gaf þetta
loforð var það auðvelt fyrir
hann, því að hann hafði ekki
kynnzt hinni fögru Anouchu
von Mehks, dóttur flótta-
manns frá Lettlandi, sem nú er
verksmiðjueigandi í París.
Karim og Anouchka hittust
fyri 1959 í næturklúbb í St.
Tropez í S-Frakklandi. Þegar
hann bauð henni upp í dans
kynnti hann sig og sagði:
— Ég er Aga Khan.
— Já, það er sennilegt, svar
aði hún, Pétur mikli var afi
minn.
við kommúnista, þótt Morg-
unblaðið hafi haldið því fram
og fært að því gild rök.
Nú er hinsvegar þannig
komið, að ekki þarf um þetta
að deila. Á Alþýðusambands-
þingi sýndu Framsóknar-
menn, að ekki gekk hnífur-
inn á milli þeirra og komm-
únista, jafnvel ekki þegar að
því kom að fremja þurfti lög-
brot, og síðan hafa þeir sízt
verið eftirbátar kommúnista
í „þjóðfylkingarbaráttunni".
Þannig er nú orðið um
tvær fylkingar að ræða í hinu
íslenzka þjóðfélagi, annars
vegar er bandalag Framsókn-
armanna og kommúnista og
hinsvegar þeir tveir- lýðræðis-
flokkar, sem standa að Við-
reisnarstjóminni. Þá greinin
auðvitað á um ýmislegt, en
eru þó báðir staðráðnir í að
standa vörð um lýðræði og
frelsi þjóðarinnar og leitast
við að styrkja fjárhagslegt
sjálfstæði hennar.
Hin fylkingin ætlar sér að
ná völdum og mynda stjórn,
sem kommúnistar segja „að
eigi að vera alþýðustjóm eða
þróast upp í það“. Þetta þurfa
allir íslendingar að gera sér
ljóst, og þá er ekki hætta á
því að þeir tefli sjálfstæði og
frelsi þjóðarinnar í voða.
Þau urðu ástfangin og síðan
hafa þau alltaf hitzt þegar
tækihm hefur gefizt. Nú
vilja hinir trúuðu þegnar Aga
Anouchka frá París.
Khans koma honum í hjóna-
band og hann verður að kvæn-
ast stúlku úr þeirra hópi, en
Anouchka er kaþólsk.
Um þessar mundir dvelst
Aga Khan í Bombay á Ind-
1-andi og hugsar um framtíðina.
Á hann að fara að dæmi Ját-
varðs VIII., fyrrverandi Breta
konungs, og taka ástina fram
yfir tignarstöðuna, eða á hann
að gegna áfram skyldum sín-
um, Aga Khan?
Það er erfitt, jafnvel fyrir
afkomanda spámannsins, að
taka slíka ákvörðun.
Erlendar
fréttir
í stuttu máli
París, 24. nóv. - AP.
Það var tilkynnt í aðalstöðv-
|um Aitlantshafsfbandalagsins í
dag, að ráðherrafundur banda-
lagsrikjanna yrði haldinn 13,—
1'5. desemiber.
Þá munu koma saman utan-
ríkis- varnarmála- og fjármála-
ráðherrar NATO-ríkjanna.
Berlín, 24. nóv. - AP.
Þrír A-þjóðverjar flúðu í dag
frá A-Berlín yfir í vesturhlut-
ann. Þeir syntu yfir skipaskurð
í skjóli nætur.
*
Cape Town, 24. nóv. - NTB.
Lögregla gerði húsleit og
framkvæmdi fjöldahandtökur
annað kvöldið í röð í bænum
Paarl, nærri Cape Town. 4Ö
blökkumenn voru handteknir.
Fyrir nokkrum dögum kom tii
mikilla óeirða í bænum og létu
a.m.k. 6 blökkumenn og 2 hvítir
menn lífið í þeim átökum.
n