Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 24

Morgunblaðið - 28.11.1962, Page 24
FRÉTTASfMAR MBL — eftir loknn — Erlenðar fréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 287. tbl. — Miðvikudagur 28. nóvember 1962 I Kaupmannahötn Með hverri Faxa-flugferð til K.- hafnar kemur MBL. samdægurs i Aviskiosken, i Hovedbanegárden Reyndi að selja stolin deyfilyf SL. sunnudag var lögreglunni gert aðvart um að piltur hefði undir höndum deyfilyf, og væri að reyna að selja þau. Lögreglan fór á staðinn tók piltinn. Reynd- ist hann hafa í fórum sínum nokkur glös af deyfilyfjum og tvö glös af morfíni. Við rannsókn málsins kom í ljós að lyfjunum hafði verið stol- ið úr apóteki einu hér í bæ er framið var þar innbrot í fyrra mánuði. Hafði annar maður brot- izt þar inn en látið piltinn fá lyfin til þess að kanna fyrir sig hvort hann gæti ekki selt þau. 260 þús. kr. sekt KL. 18 í gær var kveðinn upp vestur á ísafirði dómur í máli skipstjórans á Grimsby-togaranum Aston Villa, sem tekinn var að veiðum í landhelgi. Var skipstjórinn dæmdur í 260.000 kr. sekt. til Land- helgissjóðs, en 8 mánaða varðhald til vara. Afli og veiðarfæri voru gerð upp- tæk, og skipstjóra gert að greiða allan sakarkostnað. Stúdentafagnað- ur á Selfossi 30. NÓVEMBER nk. heldur Stú- dentafélag Suðurlands 1. desem- berfagnað í Selfossbíói. Til fagn- aðarins mæta stúdentar af Suður landsundirlendi. — Ó. J. Steindór Hjörleifsson í hlut- verki sínu í „Kviksandi“. Sjóprófum lokið SJÓPRÓFUM í máli danska skips ins Hans Boye, sem strandaði á Hólmagranda sl. laugardags- kvöld, lauk í gær. Komu þá fyrir rétt menn, sem voru á hafnsögu- bátinum Haka, og skipstjórinn á Hans Boye kom aftur fyrir rétt. Ekkert nýtt kom fram í málinu, og telur skipstjórinn á danska skipinu, að hafnsögumaðurinn frá Akranesi hafi ekki sýnt nægilega aðgæzlu. i............ Eiríkur hélt til Bretlands I gær EIRÍKUR Kristófersson, fyrrv. skipherra hjá La ndh elgisgæzl - unni, hélt áleiðis til Bretlandis í gærmongun í boði. Capt. Barry Andersons og brezka flotans. Um tíu-leytið hédt hann á fund brezka sendiherans og hitti þar Skipstjórann á gæzluskipinu HMS Russel, sem komið hafði til Reykjavíkur fyrr uim morgun- inn til þess að sækja Eirík. Lagð ist Russel úti á ytri hftfn. Um kl. 11 fóru Eirikur og skipstjór- inn niður að hiöfn og um borð í léttabát, sem flutti þá út í Russ- el. Skipið létti síðan aikkerum um hádegisbilið og sigldi áleið- is til flotaihafnarinnar Rosyth í Slkotlandi, en þar er Anderson æðsti yfirmaður. 1>ESSI mynd var tekin á Loftsbryggju í gærmorgun, þegar Eiríkur Kristófersson var á leið í léttabátinn, sem flutti hann út í HMS RusseL Frá vinstri: Brian Holt, ræðis maður, Alan Snell, skipstjóri á Russel, og Eiríkur Kristó- fersson. (Ljósm.: Mbl. ÓL K. M.). H itaveituborun hœtt í Ólafsfirði ÓLAFSFIRÐI, 27. nóv. í NÓTT var hætt borun á jarð- hitasvæðinu í Garðsdal (Skeggja brekkudal). Verður borinn nú fluttur til Húsavíkur. í sumar og haust hafa tvær Síldarsala í Þýzkalandi ÞRJÚ íslenzk skip seldu síld og annan fisk í Þýzkalandi í gær. Voru það togaramir Marz og Geir og togskipið Margrét. Marz seldi í Cuxhaven 88.5 tonn af síld fyrir 47.875 miörk og 138.1 tonn af öðrum fiski fyrir 104.600 mörk. Salan nam því alds 152.475 mörkum. Geir seldi í Brenhaven 62.6 tonn af síld fyrir .37.200 mörk og 115.5 tonn af öðrum fiski fyrir 86.400 mörík, — alls 123.600 mörk. Margrét seldi í Bremenhaven 85.4 tonn af síld fyrir 52 þús. mörk. Fiimm íslenzk skip eru nú á leið til Þýzkalands með síld. holur verið boraðar hér. Sú fyrri gaf göða raun, og fengust í fyrstu úr henni um 48 sekúndulítrar af 46 stiga heitu vatni á 283ja m dýpi. Síðar hitnaði vatnið í 53 gráður, en magnið minnkaði jafn framt í 30 sek. 1., eins og ráð hafði raunar verið gert fyrir. Þá var hafizt handa um að bora seinni holuna, sem nú hefur verið hætt við. Er hún 130 m frá hinni fyrri. Var búizt við því, að þar yrði hitt á ön.nur göng, en þegar komið var niður á 503ja metra dýpi, var ekkert teljandi vatn komið. Telja jarð- fræðingar vonlaust að fara dýpra á þessum stað, og að e.t.v. hafi verið farið fram hjá göng- unum. Er óráðið, hvenær og hvar hér verður borað næst. — J. Á. Ambassadorar ÁKVEÐIÐ hefur verið með sam- komulagi milli ríkisstjórna ís- lands og Póllands, að skiptast framvegis á ambassadorum, en fram' að þessu hefur verið skipti á sendiherrum. (Frá utanríkisráðuneytinu). Steindór Hjörleifsson fékk Silfurlampann STEINDÓR Hjörleifsson leikari hlaut Silfurlampa Félags íslenzkra leikdómara fyrir bezta leik sýndan á leikárinu 1861—62. Hlaut hEinn lampann fyrir leik sinn í hlutverkinu Jonni Pope í „Kviksandi". Silfur- lampinn var afhentur við hátíðlega athöfn í Þjóðleik- húskjallaranum í gærkvöldi. Mbl. náði snöggvast tali af Steindóri í gærkvöldi. Kvaðst hann telja sér þetta mikinn heiður, og að sér væri það mikil ánægja að veita Silfurlampanum við- töku. Hann sagðist og vera ánægður með að eiga þátt að því, að Leikfélagi Reykja víkur væri sýnd þessi virð- ing, en hann kvaðst álíta, að lampinn væri viðurkenning til allra þeirra, sem með honum störfuðu að „Kvik- sandi“. HMS Russel á ytri höfninni í gærmorgun Litil sildveiði i gærkvöldi: Yiir 80 bálor komnir á veiðar SÍLDARBÁTARNIR héldu sig í gærkvöldi sunnan í Jökultung- unni, en ekki var mikið þá um að vera á miðunum. Bátamir byrj uðu snemma að kasta, en lítil Crímsey: Bátur sekk- ur — Síld- artunnur fjúka Grímsey, 27. nóv. Á SUNNUDAGINN gerði hér aftakaveður af vestri og stórsjó. Vindhraðinn mun hafa náð hámarki kl. þrjú á mánudagsmorgun, og var hann þá a. m. k. 12 vind- stig. Átta trillubátar lágu hér í höfninni, og sökk einn þeirra. Hefur trillan sýni- lega rekizt á aðra trillu og brotið af henni stýrið. Tæpar 2.000 tunnur af salt síld lágu hér á plani, og fóru í sjóinn af þeim milli eitt og tvö hundruð tunnur. veiði var, enda ekki hagstætt veð ur, nokkur kaldi en þó kastandi. Veðurhorfur voru hins vegar góð- ar. Nú eru rúmlega 80 bátar komn ir á síldveiðar, og fleiri eiga eftir að bætast við. Postafene MBL. hafði tal af landlækni, dr. Sigurði Sigurðssyni í gær. Sagði hann, að ekkert nýtt væri að segja um lyfið postafene í bili, en greinar- gerð væri væntanleg frá em bætti hans á næstunni. Lyfið hefði aðeins verið selt gegn lyfseðli hér á landi. Um nokkra notkun mundi sjálfsagt hafa verið að ræða, en ekki væri vitað um það, hve mikil hún hefði verið. Ekki.hefði verið um sérstakt eftirlit með útgáfu lyfseðla á postafene að ræða, en með athugun væri hægt að kanna, hve mikil brögð hefðu verið að neyzlu þess. Ekkert hefði komið í ljós, sem benti til hættulegra aukaverkana vegna notkun- ar postafenes hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.