Morgunblaðið - 14.12.1962, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.12.1962, Blaðsíða 13
Föstudagur 14. des. 1962 MORGUNBLAÐIÐ 13 Heildarafli í níu mán. 662.515 tonn SKV. skýrslu Fiskifélags fs- lands var heildarafli fyrstu 9 mán uði þessa árs 662.515 tonn. Á sama tíma í fyrra var heildaraflinn orð inn 515.772 tonn. Bátafiskur er alls 632.600 tonn en togarafiskur 29.915 tonn. Hlið- stæðar tölur í fyrra voru 457.322 og 58.450. Mest hefur veiðzt af þessum fisktegundum (tonna- fjöldi innan sviga): Síld (412.715), þorskur (165.719), ýsa (28.964), karfi (10.134), stein- bítur (11.554), ufsi (7.710) og langa (4.758). Eftir verkunaraðferðum skipt- ist þorskafli þannig (tonnafjöldi innan sviga): Frysting (106.787), söltun (67.401), herzla (31.133), til innanlandsneyzlu (7.758), ísun (2.443), mjölvinnsla (1.699). Síldarafli skiptist þannig eftir verkun: Bræðsla (330.953), solt- un (55.515), frysting (18.194), ís- un (7.718) og niðursuða (336). Samkoman hófst með sviða veizlu. Að því loknu setti Ás- geir Pétunsson, sýslumnaður, saimtoomuna og bauð gesti vel komna. Meðai þeirra voru Gunnar Thoroddsen, fjánmálla ráðlherra og frú, Pétur Otte- sen fyrnum alþingismaður, og Sigurður Ágústsson aliþingis- maður og frú, og Jón Árna- son, ailþingismaður. Þá kynntd Ásgelr Pétursson, sýslumaður, t ( setur fagnaðinn. Gunnar Thoroddsen, f jármála ráðherra, flytur ræðu. Ristarbrotnaði í vinnu Kl. 8.40 á mánudagsmorgun varð það slys á vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar, að áhald féll niður á fót Arnar Guð mundssonar, Miðtúni 10. Ristar- brotnaði hann og var flhttur í Slysavarðstofuna. Þessi mynd sýnir nokkra gest- anna, sem sátu vetrarfagnað Sjálfstæðismanna í Borgar- nesi. Borgarnesi, las upp. M fllutti Gunnar Thoroddsen, fjármála ráðherra ræðu. Síðan fluttd Ómar Ragnarsson skemmti- þátt og Árni Helgason í Styikk ishólmi fór með nokkrar víis- ur eftir sig. Síðan yar dansað til klukkan 2 eftir miðnætti og sleit þá sýsl'umaður fagn- aðinum með því að óska þess að samkomugestir hrópuðu ferfalt húrra fyrir Borgar- fjarðarhéraði, og var svo gert. Hvalfjarðarveg- urinn slæmur AKRANESI, 13. des.: Bílstjóri nýkominn úr Reykjavík sagði mér í dag, að vegurinn væri af- leitur. Veður í aur og bleytu að heita má alla leiðina fyrir Hval fjörð. — Oddur. Vetrarfagnaður í Borgarnesi LAUGARDAGINN 8. desem- Asgeir Pétunsson diagrskmá ber var haldinn vetrarfagn- kvöldisinis, sem var sem hér aður Sjálfstæðismanna í Borg Fre^a Bjarnadóttir, arnesi og nágrenni. Fór fagn aðurinn fram í Hótel Borgar- nesi. Mikill mannfjöldi var á samkomunni, yfir 140 manns, og komust færri að en vidu sökum þrengsla. Reglur lögreglunnar um jólaumferðina — ífisamt leiðbeínmgum um bifreiðastæði við Hiiðbæinn ÁKVEÐIÐ hefir verið að gera eftirfarandi ráðstafanir vegna mikillar umferðar á tímabil- bilinu 14.—24. desember n.k.. 1. Einstefnuakstur. a. í Pósthússtræti frá Hafnarstræti til suðurs. b. Á Vatnsstíg frá Lauga- vegi til norðurs að Lindar- götu. c. Á Frakkastíg frá Hve<rf isgötu að Lindargötu til norð- urs. 2. Bifreiðastöður bannaðar á eftirtöldum götum. a. Á Týsgötu vestan meg- in götunnar. b. í Naiustunum vestan megin götunnar milli Tryggva götu og Geirsgötu. c. Á Vegamótastíg frá Grettisgötu að Skólavörðustíg. d. Á Suðurgötu frá Kirkjugarðsstíg að Skotlhús- vegi. e. Á Laugavegi frá Skóla- vörðustíg að Klapparstíg. Ennfremur skal heimilt, ef ástæða þykir til, að banna alveg bifreiðastöður á Laugra- vegi, í Bankastræti og Aust- urstræti frá kl. 15 þar til almennum verzlunum er lok- að og á laugardögum og að- fangadag jóla frá kl. 11—12. 3. Bifreiðastöður takmarkaðar. a. Settir verða upp stöðu- mælar á Hverfisgötu að Vatnsstíg og á Bergstaðastræti milli Skólavörðustíg og Lauga vegs. b. Bifreiðastöður verða takmarkaðar við 1 klst. á Hverfisgötu frá Vatnsstíg að Snorraibraut, á eyjunum í Snorrabraut frá Hverfisgötu að Njálsgötu, á Barónsstíg, Vitastíg og Frakkastíg að Bergþórugötu, á Klapparstíg, í Garðastræti norðan Tún- götu. Þessi takmörkun gildir á tímabilinu frá kl. 13 og þar til almennum verzlunum er lokað. Ennfremur kl. 10—12 á laugardögum og aðfangadag jóla. 4. Takmörkun á umferð vörubifreiða. Umferð vöruibifreiða, sem eru yfir 1 smálest að burðarmagni, og fólksbifreiða fyrir 10 farþega og þar yfir, annarra en strætisvagna, er bönnuð á eftirtöldum götum. Laugavegi frá Höfðatúni í vestur, Bankastræti, Austur- stræti, Aðalstræti og Skóla- vörðustíg fyrir neðan Týsgötu. Ennfremur er ökukennsla bönnuð á sömu götum. Bannið gildir frá 14. des. til 24. des., kl. 11—12, og frá kl. 14 þar til almennum verzl- unum er lokað. Ferming og afferming er bönnuð við sömu götur á sama tíma, nema sérstaklega standi á, og þarf þá leyfi lögreglunnar til slíkr ar undanþágu. 5. Bifreiðaumferð er bönn uð um Austurstræti, Aðal- stræti og Hafnarstræti 16. desember, kl. 20—22, og 22. desember, kl. 20—24, svo og á Laugavegi og Bankastræti, ef sérstök þörf krefur. 6. Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir forð- ist óþarfa akstur, þar sem þrengsli eru og að þeir leggi bifreiðum sínum vel Og gæti í hvívetna að trufla ekki eða tefja umferð. 7. Þeim tilmælum er beint til gangandi vegfarenda, að þeir gæti varúðar í umferð- inni, fylgi settum reglum og stuðli með því að öruggri og skipulegri umíerð. Umferðarnefnd vill vekja athygli á þeim bifreiðastæð- um, sem til eru og hægt er að nota í sambandi við jóla- umferðina. Garðastræti 5 og 7; Vestur- götu 5, 7 og 9; 1 Grófinni; Túngötu 2; Suðurgötu 2, á horni Tryggvagötu og Pósthús strætis; Tjarnargötu 5 Og 11; Smiðjustíg 3 og 5, við Sölv- hólsgötu og Ingólfstræti; Hverfisgötu 30; Skólavörðu- bætta umferð. stíg 11 (við Grettisg.), við Hafnarhvol; Vitatorgi; Óðins- torgi, Bergstaðarstræti 16 og 18; Skólavörðuholt fyrir sunn an Iðnskólann, við Iðnskól- ann, við Austurbæjarbarna- skólann, Þingholtsstræti 28, Bókhlöðustig 10, Hverfisgötu 60, við Sundihölhna. Þá hefur fengist leyfi til að nota bifreiðastæði Sambands íslenzkra samvinnufél. við Sölvhólsgötu, Aðalbílasölunn- ar Ingólfsstr. 11 og Aðalstræti 16 og Bílasölu Davíðs Sigurðs- sonar við Laugaveg 90 og 92, báða laugardagana frá kl. 13.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.