Morgunblaðið - 15.12.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.12.1962, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Laugar'dagur 15. des. 1962 Gunnar Gunnarsson bóndi i Syðra-Vallholti ÞANN 3. desember sl. andaðist í sj úikraihúsinu á Sauðánkróíki Gunnar bóndi Gunnarsson í Syðra-Vallholti í Skagaifirðd. Kom fráfall hans okkur vinium hans ekiki á óvart, því að heilsa og kraftar voru þrotnir og vairð honum hvíldin ljúf og kærkom- in. Útför hans verður gerð í dag frá sóknarkirkju hans að Víði- mýri. Hann var fæddiuir að Syðra- Vallholti í Vallihióllmi 8. nóv. 1889. Foreldrar hans voru Gunnar bóndi í Syðra-Vallholti Gunnars son og kona hans Ingibjörg Ólafs dóttir. Börn þeirra Vailihoits- hjóna voru átta og eru nú tvær diætur á lífi, Sigríður húsfreyja á Stóru-Ökruim í Blöndiuhlíð, giift frænda sínum Birni Sigurðs- syni bónda þar, og Þórunn bú- sett á Siglufixði. Þau hjón, Gunnar og Ingibjörig, voru bæði af hinni kunnu Skíðastaðaætt, sem kennd er við Skíðastaði á Laxárdal, eina mestiu landlkosta- jörð í Skagafjarðarsýsliu. Á Skíðastöðum bjuggu um hálfrar aidar skeið, frá 1822 til 18T0, Gunnar Gunnarsson og Guðrún Þorvaidsdóttir og er Skíðastaðaætt frá þeim runnin. Áttu þau margt barna og eru afkomendiur þeirra fjöilmargir. Gunnar á Skíðastöðum var stór- bóndi og héraðshafðingi, og eru af honum ýmsar frásagnir. Hann var einn af forystumönnum Skag firðinga í undirbúningi norður- reiðar og heimsóknar til Qríms amtmanms á Möðruvöllum árið 1849. Margir afkomenda hans bera nafn hans, og er Gunnar sá, sem hér er minnzt, fjórði maður í beinan karllegg frá Gunnari gamla á Skíðastöðum, sem hét nafni hans. í Skíðastaðaætt ér margt af dugmiklu atgerfisfólki og eru þeir ættmenn margir atorkusam ir starfsmenn. Lífsfjör og glað- sinni eru rík einkenni í ætt þess- ari, og kornu þessir ættarkostir allir ríkulega fram í öllu fari og háttum Gunnars í Syðra- Vallholti. Búskap á feðrajörð sinni hóf Gunnar 1914, en kvæntist ekki fyrr en 1925. Þá gekk hann að eiga Ragnhildi Erlendsdóttur frá Beinakeldu í Þingi. Ragnhildur er kona vel gefin og velgerð á alla lund, sem tekið hefir mik- inn þátt í félagsmálum kvenna í sinni sveit og hvarvetna skipað sæti sitt með sæmd. Þeim hjón- um varð sjö barna auðið, og eru sex þeirra á lífi. Eina dóttur misstu þau barnumga. En börnin eru: Gunnar, bóndi í Syðra-Vall holti, Ingdbjörg húsfrú í Reykja vik, gift Móses verkfræðingi«Að alsteinssyni. Ástríður Helga, skrifstofustúlka hjá prentsmiðj- unni Eddu. Erla Guðrún, er starf ar við Alþjóðabankann í Was- hington, Ásgeir, heima í Syðra- Vallholti og Sigurður, starfsmað ur hjá Fiskideild Atvinnudeild- ar Háskólans. Þá ólu þau hjón upp frænku Gunnars, Ólöfu Björnsdóttur frá Krithóli á Efribyggð, nú gift kona í Reykjavik. Glöggt má kenna dug Skíðastaðaættar í öll- um framgangi þeirra Vallhol'te- syskina og ekki hefur sá hún- vetnski arfur, sem þeim var fenginn frá móðurinnd, rýrt manngildi þeirra. Gunnar í Syðra-Vallholti var með betri bændum í sinni sveit. Hann unni sinni fögru jörð og jók kostagiíldi hennar með auk- inni ræktun og umbótum. Hann var slitviljugur eljumaður, sem aldrei taldi eftir sér að taka til höndium, sínum og öðrum til nytsemdar. Framan af búskap þeirra Vall holtshjóna mun fjárhagur þeirra hafa verið þröngur, ekki sízt meðan börnin voru í ómegð, enda þá miklir erfiðleikar í ári fyrir bændur yfirleitt, í fjárhagislegu tilliti, og engiir fæðingarstyrkir og fjölskyldiubætur að styðjast vdð. En dugur þeirra hjóna brást ekki, þó að efalaust hafi þá á stundum verið meira á sig lagt en hollt var og hóf var á. En um annað var ekki- að ræða, ef af átti að komast, og þegar börnin komust á legg og til hjálpar við bústörfin, þá greikkaðiist hagur allur. Þegar ég nú minnist þessa aldna bónda, þá korna mér helzt í hiug þessi orð Filippíbréfsins: „Verið glaðir. Ljúfilyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum.“ Ég minnist þess vart að hafa kynnzt gdaðari manni né ljúfari í lund en Gunnari í Syðri-Vall- holti, nema skyldi einum frænda hans sem einnig er horfinn af sjónansviðinu. Þegax við Seilhreppingar komum saman til mannfagnaðar, einu sinni á vetri eða svo, þá lét Gunnar sig þar sjaldnast vanta meðan heilsan leyfði. Á slíkum fundum okkar var hann öllum glaðari, söng mest af öíli- um og dansaði mest af öllum. Ókunnugum gat jafnvel fundizt nóg tdl um fjör hans og lífsgleði, en engum blandaðist hugur um, að gleði hans var heil og sönn, hreinlega sprottin afi þeinri kennd, sem lýst er í vísunum alkunnu og marg- sungnu: „Það liggur svo makalaust ljómandi á mér mér líkar svo vel hvernig heimurinn er.“ Bölsýnd fannst ekki í fari Gunnars í Syðra-Vallholti, og deilugirni var víðs fjarri eðdi hans cg huga. Ljúfljmdi hans var öllum, sem þekktu, kunnugt. Öllum og öllu vildi hann vel og laun hans eru og l£ka þau, að hann er nú kvaddur af hlýjum huga og með blessunarósikum allra þeirra, sem honum kynnt- ust. Það er fagurt í Syðra-Vallholti, og sólar nýtur þar vel. Bærinn stendur í sunnanverðu Vallholt- inu í mdklu túni, sem hallar til suðurs og vesturs niður að siéttunni, sem teyigir sig til allra átta úr fiá holtinu. Steinn né gróðarlaus blettur finnst naum- ast í landi jarðarinnar. Allt er vafið grasi og gróðri. Og sé gengið upp á Vallholtið getur að líta eitt fegursta útsýni í héraði otkkar. Allur meginhluti þess blasir við auga, siéttan mikia og fjalla- hringurinn, og yzt í norðri rísa útverðir þess úr hafi. Séum við stödd á þessum stað í heiðbjörtu júníkvöldi, þá gefst okkur sýn, sem aldrei úr minni Mður. Notokru fyrir mdðnættið rennir miðnætursólin undan Tindastóii og svífur hægt og hóglega með hafisbrún til austunáttar. Furðu- legum purpuraljóma slær yfir héraðið allt. Hugur áhorfand- ans fyllist lotningu og gleðd. Dýrð Drottins Ijómar í kringum hann. Það var inn í þennan heim og þessa fegurð, sem Gunnar í Syðra Valliholti fæddist fyrir 73 árum. Nú er andi hans borinn inn í enn fegurri og sólbjartari heima. Við sem eftir stöndum gleðj- umst yfiir þessari nýju fæðingu hans, um leið og við þökkum samverustundirnar og kynnin öll og biðjum ættingjum og vin- um látins heiðursmanns blees- unnar Guðs í bráð og lengd. Gunnar Gíslason. Karlmanna- frakkar ú r P O P L I N N Æ L O N TERYLENEog ULLAREFNUM í miklu úrvali. /T Laugavegi 27 — Sími 12303. Skóldsögur, sagna- þætlir og aídamóta* BLAÐINU hafa borizt nokkrar toækur frá bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri. í þeirra hópi má geta fyrstu skáldsögu ungs höfundar, Magneu frá Kleifum. Hefur saga þessi birzt sem framhaldssaga í tímaritinu „Heima er bezt“ og hlotið vin- sældir. „Sagan er spennandi og hugljúf ástarsaga,“ svo sem um hana segir á kápusíðu. Sagan heitir „Karlsen stýrimaður". Ný framhaídssaga eftir Magneu frá Kleifum birtist um þessar mund- ir í tímaritinu „Heima er bezt“. Þá sendir bókaforlag Odds BjörnssOnar frá sír síðara bindi af skáldverki Mika Valtaris, „Förusveinninn". Ber þessi bók undirtitilinn „Með Stór-Tyrkj- anum“. Forlagið hefur áður gefi- ið út Egyptann, Ævintýramann- inn og fyrra hefti þessa ritverks, „Förusveininn" eftir sama höf- und. Á kápusíðu bókarinnar segir að þetta sé síðara bindið afi hinni ævintýralegu og spennandi skáldsögu um ástir og tryggðrof, kvennabúr og geldinga, orustur og bardaga, stjórnmálabrellur, sjóræningja og krossferðaridd- ara. Þeir eru konunglegir! i/nTV? kæliskápur Crystal KJng Góðír grciósluskífmárar. Sendum um allt land. 10 IV I X Crystal Queen og Crystal Prince o. kohnerup hansen Slml 12606. Suðurgðlu 10. Þá hefur forlagið og sent frá sér 5. bindi í sagnaflokkinum „Svipir og sagnir“. Ber þetta bindi nafnið „Fortíð og fyrir- burðir“. Er hér um að ræða þætti úr Húnavatnsþingi. Á kápusíðu segir svo um þessa bók: „Þessi bók er 5. og síðasta bind ið í ritsafninu „Svipir og sagn- ir“ en eins og kunnugt er, þá eru þetta sagnaþættir úr Húna- vatnsþingi, að mestu leyti tekn- ir saman af sr. Gunnari Árna- syni, Magnúsi Björnssyni á Syðra Hóli og Bjarna Jónassyni í Blöndudalshólum.“ í lok þessarar síðstu bókar í sagnafilokki þessum er ítarleg nafnaskrá yfir öll fimm bindin og gefur það bókinni aukið gildi. Sr. Gunnar Árnason ritar for- mála bókarinnar en bókin er 282 bls. að stærð, vönduð að öllum frágangi. Þá sendir forlagið frá sér 3. bindi af Aldamótamönnum ,eftir Jónas Jónsson frá Hriflu. Jón- as ritar aðfararorð fyrir þessari 'bók og segir þar, að iþetta sé síð- asta bindi í flokki þessum. Hann segir ennfremur um æviþætti þessa: „Æviþættir mínir um aldamóta menn eru margir, en þó alltof fáir. í þessum þáttum leitast ég við að gefa sanna og ljósa mynd af söguhetjunum, lýsa verkum sem vert er um að tala. Til eru nokkrar góðar ævisögur af skör- ungum sögunnar á þessu tíma- ibili. Slík verk exu dýrmæt en hafia ekíki mikla þýðingu fyrir almenning í landinu. Greindir og góðir borgarar segjast ekki hafa tíma til í tómstundum sín- um að lesa ævisögu í nokkrum bindum.“ Fleira segir Jónas í aðfararofð um sínum, en síðan hefjast þætt- irnir, sem eru um Þorgils gjall- anda, Guðmund Guðmundsson, Valdimar Briem, Stephan G. Stephansson, Þórarin Böðvars- son, Guðmund Friðjónsson, Jón Trausta, Þorvald Thoroddsen, Bjarna Sæmundsson, Einar Séra Gunnar Árnason Benediktsson, Harald Níelsson, Einar H. Kvaran, Markús Bjarna son, sr. Jón Bjarnason, Stefaníu Guðmundsdóttur og síðan er eft- irmáli og loks nafnaskrá. Bó’kin er 194 bls., vönduð að öllum bún- aði. Loks hefur blaðinu borizt Barnasaga eftir hina kunnu barnakennara á Akureyri, þau Jennu og Hreiðar Stefánsson. Barnasagan, sem þau senda frá sér að þessu sinni, heitir Adda og litli bróðir. Hún hefur verið gefin út áður árið 1947, en er nú endurbætt. Teikningar í bók- ina hefur Halldór Pétursson gert. Þetta er 17. barnabókin, sem þau Jenna og Hreiðar Stefánsson láta frá sér fara. Á kápusíðu segir svo um þessa bók: „Hinar svokölluðu ödduhæk- ur náðu strax óvenju miklum vinsældum, þegar þær byrjuðu að koma út árið 1946. Þessar bæk ur hafa verið ófáanlegar um ára bil en í fyrra kom fyrsta bókin í þessum vinsæla bókaflokki út í 2. útgáfu og hér kemur nú önnur bókin í bókaflokknum i nýrri útgáfu. Öldu-bækurnar eru tilvaldar handa börnum, sem nýrri útgáfu. Öddu-bækurnar eru skrifaðar á léttu máli, sem börn skilja, og prentaðar með mjög skýru letri.“ ATHUGIÐ ! að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu, en öðrum blöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.